Morgunblaðið - 15.10.1999, Page 76
jr
4
BOK
KOSTAB
með vaxta þrepum
®miNAl)\HKANKINN
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍM15691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKIHFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RnSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1
FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK
Sigketill fínnst í
Fimmvörðuhálsi
Umbrota-
svæðið
stærra en
vitað var
VIÐ yfirborðsmælingar með
flugvél á Mýrdalsjökli og ná-
grenni á dögunum fannst sig-
ketill í Fimmvörðuhálsi sem
liggur á milli Mýrdalsjökuls og
Eyjafjallajökuls. Talið er lík-
legast að jarðhiti hafi myndast
þarna við umbrotin í Kötlu í
sumar og að þau hafi náð yfir
stærra svæði en í fyrstu var
talið.
Magnús Tumi Guðmunds-
son, jarðeðlisfræðingur hjá
Raunvísindastofnun Háskóla
Islands, segir að enginn kann-
ist við jarðhita í Fimmvörðu-
hálsi og sigketillinn sjáist ekki
á eldri loftmyndum. Ketillinn
er 200-300 metrar í þvermál og
10-20 metra djúpur. Hann er
einum kílómetra vestan við
gönguleiðina yfir Fimmvörðu-
háls, í jökulfönn sem er
laustengd Eyjafjallajökli. Sig-
ketillinn er norðan tO í hálsin-
um og vatn sem kemur undan
honum rennur í Hvanná og
þaðan í Krossá.
Magnús Tumi telur líklegast
að myndun sigketilsins tengist
umbrotunum í sumar. „Það
þýðir að umbrotin hafa náð
töluvert út fyrir Kötluöskjuna.
Líkiega hefur kvika skotist inn
í bergið allt vestur á Fimm-
vörðuháls og umbrotasvæðið
því stærra en við höfum vitað,“
segir Magnús. Tekur hann
fram að áður hafi verið vitað
að tengsl væru á milli hrær-
inga í Eyjafjalla- og Mýr-
dalsjökli.
, , Ljósmynd/Hvíta húsið
Jón Baldvin Hannibalsson, sendiherra Islands í Washington, afhendir Bill Clinton Bandaríkjaforseta íslendingasögurnar í Hvíta húsinu.
Islensk gjöf mun skipa heiðurssess í skrifstofu Bandarfkjaforseta
BILL Clinton Bandaríkjaforseti
tók í liðinni viku á móti íslend-
ingasögunum á ensku frá ís-
lensku þjóðinni og sagði að hann
hlakkaði til að hefja lestur þess-
arar dásamlegu gjafar.
Jón Baldvin Hannibalsson,
sendiherra íslands í Washington,
afhenti Bill Clinton Bandaríkja-
forseta Islendingasögurnar á
Hlakkar til að lesa
Islendingasögurnar
ensku að gjöf á þriðjudag í lið- ræddi við Jón Baldvin lengur en
inni viku. Clinton tók á móti gjöf- til stóð.
inni í Hvíta húsinu 5. október og „Forsetinn var n\jög þakklátur
að fá íslendingasögurnar og sagði
að þetta væri dásamleg gjöf,“
sagði Mike Hammer, talsmaður
Bandaríkjaforseta, í samtali við
Morgunblaðið. „Hann sagði að
þær myndu skipa heiðurssess í
bókahillunni f skrifstofú sinni í
Hvíta húsinu og þar sem hann
væri mikill lestrarhestur hlakkaði
hann til að grípa niður í þær.“
Skýrsia um áhrif byggingar álvers á Austurlandi
Ibúum gæti fjölg-
að um 600-900
Aðalfundur smábátaeigenda
Farið verði að dæmi
V esturbyggðar
í SKÝRSLU um mat á umhverfis-
áhrifum álvers á Austurlandi er
komist að þeirri niðurstöðu að íbú-
um á Mið-Austurlandi fjölgi um
600-900 manns ef 120 þúsund
tonna álver verði byggt í Reyðar-
firði. Álverið hafi jákvæð áhrif á
atvinnulífið á svæðinu og jákvæð
áhrif á byggðaþróun á Austur-
landi.
Guðmundur Bjamason, bæjar-
stjóri í Fjarðabyggð, segir að
Ækýrslan sýni að álver í Reyðarfirði
sé sú vítamínsprauta fyrir atvinnu-
lífið á Austurlandi sem Austfirð-
ingar hafi verið að kalla eftir.
Skýrslan leiði jafnframt í ljós að
Austurland geti ráðið við þetta
verkefni.
í skýrslunni er m.a. byggt á
Íannsókn sem ráðgjafarfyrirtækið
íýsir hf. gerði á samfélagslegum
áhrifum álvers á Austurlandi. í
henni kemur fram að íbúum á
Austurlandi hefur fækkað um 1% á
ári síðan 1990 og búa núna rúm-
lega 800 færri íbúar í fjórðungnum
en árið 1990. Nýsir telur því að
svæðið geti tekið við þeirri íbúa-
fjölgun án þess að fjölga þurfi fólki
í þjónustustörfum svo neinu nemi.
Bent er á að álverið muni verða í
samkeppni við aðra atvinnustarf-
semi á Austurlandi og að fyrirtæki
sem bjóði illa launuð störf og
stopula vinnu geti ekki keppt við
störf í álverinu. Jafnframt megi
búast við að samkeppnin um
vinnuaflið leiði til þess að laun á
svæðinu hækki.
V othreinsibúnaður
í öðrum áfanga
I skýrslunni kemur fram að ál-
ver muni ekki hafa nein þau áhrif á
umhverfið sem komi í veg fyrir að
hægt verði að fara út í fram-
kvæmdina. Mengun muni þó hafa
áhrif á viðkvæman gróður í næsta
nágrenni álversins. Gert er ráð fyr-
ir að við álverið verði byggt þurr-
hreinsivirki, en fullyrt er í skýrsl-
unni að það hreinsi 99,7% af öllum
flúor sem kemur frá kerum verk-
smiðjunnar. Að mati norsku stofn-
unarinnar NILU er útblástur
brennisteinstvíildis frá fyrsta
áfanga álversins það lítill að til-
gangslaust sé að byggja vothreinsi-
búnað við álverið. Verði álverið
stækkað úr 120 þúsund tonna
framleiðslu í 360 þúsund tonn sé
hins vegar hætta á að magn
brennisteinstvíildis fari upp fyrir
viðmiðunargildi og því verði að
reisa slíkan búnað verði álverið
stækkað.
■ Álverið hefur/18
ÖRN Pálsson, framkvæmdastjóri
Landssambands smábátaeigenda,
hvatti félagsmenn sína til að fylkja
sér um sameiginlega lausn á úthlut-
un byggðakvótans á aðalfundi sam-
bandsins í gær. Sagði hann að við
úthlutunina ætti að fara að dæmi
Vesturbyggðar og úthluta veiði-
heimildum til útgerða sem gerðar
eru út frá viðkomandi stöðum og
óska eftir tilboðum frá þeim.
Ekki ætti að búa til reglur um út-
hlutun, því slíkt muni ávallt vekja
upp öfund, gremju og sundurlyndi í
byggðarlögunum. Sagði Öm ekkert
20 GRÁÐA hiti var á Sauðanesvita
um miðjan dag í gær og víða á
Norðurlandi voru mikil hlýindi,
t.d. 18 gráður á Siglunesi og Siglu-
firði. Þessu olli suðlæg átt og
hnjúkaþeyr. Spáð er kólnandi
veðri í dag.
Ekki var ljóst í gær hvort hita-
met hefði verið slegið fyrir þennan
árstíma. Kl. 9 í gærmorgun var hit-
athugavert við að veiðiheimildum
væri úthlutað með þeim hætti að
sem mestar tekjur renni til viðkom-
andi sveitarfélags, enda væri til-
gangurinn að efla byggðina. Sveit-
arfélögin hafi ekki haft af því tekjur
þegar kvótinn var seldur úr byggð-
arlögunum og íbúar þeirra ekki
spurðir álits, þrátt fyrir að þeir hafi
tapað umtalsverðum íjármunum á
slíkum gjörningi, sem gerður hafi
verið undir yfirskrift hagræðingar.
■ Sjávarútvegurinn/24
■ Krókaaflakerfinu/24
inn á Sauðanesvita 17,3 gráður og
16,6 gráður kl. 6 í gærmorgun.
Samkvæmt upplýsingum Veður-
stofunnar fór hlýtt loft yfir landið
og var hnjúkaþeyr á Norðurlandi.
Þar var alskýjað en engin úrkoma
að ráði.
Meiri líkur eru á hnjúkaþey þeg-
ar hvasst er en því er spáð að dragi
úr vindi í dag.
Hitinn fór í 20 gráður