Morgunblaðið - 20.10.1999, Síða 1
STOFNAÐ 1913
238. TBL. 87. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Fyrsta heimsókn þjóðarleiðtoga Kína til Bretlands
Þingmenn í Indónesíu ganga til atkvæða og kjósa næsta forseta landsins í dag
Bresk stjórnvöld gagnrýnd fyrir
að einblína á viðskiptatengsl
Lumlúnum. Reuters, AP.
OPINBER heimsókn Jiangs Zemins, forseta Kína, til Bretlands hófst í
gær með móttökuathöfn í miðborg Lundúna að viðstaddri Elísabetu II
drottningu, Tony Blair forsætisráðherra, Robin Cook utanríkisráðherra
og fleiri ráðamönnum. Þetta er í fyrsta sinn sem kínverskur þjóðarleið-
togi sækir Bretland heim og var við því búizt fyrirfram að heimsóknin
yrði umdeild.
Þrátt fyrir mikla öryggisgæzlu tókst einum mótmælanda, veifandi tíb-
etskum fána, að komast nærri alveg upp að hestvagni sem Jiang og
Bretadrottning var ekið í til Buckingham-hallar, áður en hann var hand-
tekinn.
Megawati vongóð um sigur
Jakarta. Reuters.
LITLAR líkur voru taldar á því í gær að B.J. Ha-
bibie, forseta Indónesíu, tækist að halda embætt-
inu, eftir að þing landsins hafnaði með naumum
meirihluta skýringum hans á embættisfærslu
sinni sem hann lagði fram í ræðu síðastliðinn
fimmtudag. Með því að hafna skýringum forset-
ans getur þingið farið fram á að flokkur hans,
Golkar-flokkurinn, útnefni nýjan frambjóðanda
tO embættisins. Megawati Sukarnoputri, dóttir
fyrsta forseta landsins, kvaðst vongóð um að
bera sigur úr býtum í forsetakjörinu.
Megawati nýtur mikilla vinsælda meðal
Indónesa og hún skoraði á þingmennina að virða
vilja þjóðarinnar og greiða sér atkvæði.
Flokkur Megawatis fékk flesta þingmenn
kjörna í kosningunum í júní en náði þó ekki
meirihluta á þinginu, sem er skipað 500 kjörnurn
þingmönnum auk 200 embættis-
manna sem eru skipaðh' án kosn-
inga. Herinn hefur 38 fulltrúa á
þinginu og talið er að hann styðji nú
Megawati.
Habibie varð fyrir miklu áfalli í
fyrradag þegar Wiranto hershöfð-
ingi, yfirmaður hersins, tilkynnti að
hann hefði hafnað því að verða vara-
forsetaefni hans.
Óttast óeirðir verði
forsetinn endurkjörinn
Habibie kvaðst ekki ætla að gef-
ast upp þrátt fyrir mótbyr síðustu
daga. „Eg verð að halda baráttunni
áfram fram á síðustu mínútu," sagði
forsetinn þegar hann ávarpaði her-
menn í forsetahöllinni í Jakarta.
Margir Indónesar vilja þó að for-
setinn dragi sig í hlé og sérfræðing-
ar í stjórnmálum landsins vara við
því að miklar óeirðir geti blossað
upp verði hann endurkjörinn.
Þúsundir stuðningsmanna
Megawatis gengu að þinghúsinu í
Jakarta í gær og hundruð verð-
bréfasala og ungi-a fjármálamanna
efndu tO mótmæla gegn Habibie í
kauphöllinni.
Reuters Herinn og lögreglan hafa sent
Habibie felur andlit 40.000 manna liðsauka á göturnar
í greipum sér í tO að halda uppi lögum og reglu í
þinginu í gær. Jakarta.
Reuters
Flugræningi gafst upp
AP. Hamborg.
FLUGRÆNINGI vopnaður hnífi,
sem rændi vél egypska flugfélagsins
Egyptair í gær, gafst upp fyrir þýsk-
um lögreglumönnum á flugvellinum í
Hamborg í gærkvöldi. Fai'þega og
áhöfn, samtals 55 manns, sakaði ekki.
Maðurinn var handtekinn þegar
hann sté út úr vélinni og gekk út á
flugbrautina. Ekki er vitað hvað hon-
um gekk til með ráninu en hermt er
að hann sé Tyrki í leit að pólitísku
hæli.
Maðurinn rændi vélinni skömmu
eftir að hún hóf sig til flugs frá flug-
veUinum í Istanbul í Tyrklandi.
Flugvélin var í áætlunarflugi til Ka-
író en raeninginn sneri henni í átt til
Evrópu og krafðist þess að hún lenti
í London. Flugstjórinn mun hafa
sagt honum að ekki væri nóg elds-
neyti á vélinni til að komast þangað
og því var förinni heitið til Hamborg-
ar. Til átaka kom í flugstjórnarklef-
anum þegar áhöfn reyndi að afvopna
manninn og hlaut aðstoðarflugstjóri
minniháttar meiðsli á hálsi.
Allt gert til að hindra
mótmælaaðgerðir
Þetta atvik var nákvæmlega af því
tagi sem brezk stjórnvöld höfðu fyrir
alla muni viljað hindra að kæmi fyr-
ir, þar sem þeim er mjög í mun að
styggja ekki kínverska forsetann
meðan á dvöl hans í Bretlandi stend-
ur, einkum með tOliti til þess hve
mikilvæg góð samskipti við Kína eru
vegna Hong Kong, nýlendunnar
fyrrverandi sem Kína fékk yfirráð
yfir í fyrra.
Tveir aðrir mótmælendm- héldu
fána Tíbet á loft í mannfjöldanum
sem fylgdist með hátíðlegri móttöku-
athöfninni á The Mall-breiðstrætinu
sem liggur að Buckingham-höll. En
lögregla hindraði annan hóp mót-
mælenda í að hefja mótmælaborða á
loft, þai- sem staða mannréttinda-
mála í Kína var gagnrýnd. Um-
kringdi lögregla hópinn, sem í voru
um 100 manns, og færði hann lengra
frá Buckingham-höll.
Talið skipta miklu að
heimsóknin takist vel
Heimsóknin til Bretlands er upphaf
hálfs mánaðar ferðalags Jiangs til
Evrópu, Norður-Afríku og Sádí-Ara-
bíu.
Er Jiang heimsótti Sviss fyrr á ár-
inu lét hann gestgjafa sína heyra
það, að þeir hefðu „misst góðan vin“
vegna þess að mótmæla varð vart
þar sem leið hans lá í heimsókninni.
Gripið var tO allra hugsanlegra ör-
yggisráðstafana í Lundúnum, þar á
meðal með útkalli lífvarðasveitar
konungsfjölskyldunnar.
Miklu skiptir að heimsóknin takist
vel. Á síðasta ári fluttu Bretar vörur
fyrir um einn milljarð sterl-
ingspunda, andvirði 120 milljarða
króna, tfl Kína og fluttu inn kín-
verska framleiðslu fyrir nærri þre-
falda þá upphæð.
Talsmenn mannréttindasamtaka
saka brezka ráðamenn um að einblína
um of á viðskiptatengsl í samskiptum
við Kína og vanrækja að tala máli
þeiira sem hlíta pólitískum ofsóknum
af hendi stjómvalda þar í landi.
Pútín forsætis-
ráðherra Rússlands
Aðgerðir
gegn pen-
ingaþvætti
VLADIMIR Pútín, forsætisráðherra
Rússlands, lofaði í gær að Rússar
skyldu stemma stigu við útstreymi
illa fengins fjár frá landinu til Vest-
urlanda, þar sem gert er ókleift að
rekja það til upprana síns. Dóms-
mála- og innanríkisráðherrar sjö
helstu iðnríkja heims, auk Rúss-
lands, eru nú staddir í Moskvu á ráð-
stefnu um leiðir til að uppræta al-
þjóðlega glæpastarfsemi.
I ræðu á ráðstefnunni beindi Pútín
hins vegar athyglinni að alþjóðlegri
hryðjuverkastarfsemi og hvatti til al-
þjóðlegrar samvinnu svo takast
mætti að vinna á henni. Pútín sagði
einnig að það þjónaði hagsmunum
Rússa að takast mætti að binda enda
á flæði „óhreinna" íjármuna út úr
landinu. Síðar í gær hitti hann Janet
Reno, dómsmálaráðherra Bandaríkj-
anna, að máli og lýsti Reno ánægju
með fundinn að honum loknum.
Pútín sagði að í undirbúningi væru
ný lög í Rússlandi til að stemma
stigu við peningaþvætti.
Reuters
Maður sem vildi mótmæla yfirráðum Kr'nverja yfir Tíbet er hér handtekinn á hlaupum í átt að hestvagni sem
Jiang Zemin Kínaforseti og Elísabet II Bretadrottning sátu í.
2001-„Ar
tungumála“
Brussel. Reuters.
FRAMKVÆMDASTJÓRN
Evrópusambandsins (ESB) til-
kynnti í gær, að hún legði til að
árið 2001 yrði lýst ,Ár tungu-
mála“ til þess að hvetja fólk til
að læra erlend tungumál og
nýta sér þá möguleika sem hin
opnu landamæri innan sam-
bandsins bjóða upp á.
„Að hafa eitt eða fleiri erlend
tungumál á valdi sínu opnar
Evrópumönnum ný tækifæri,"
sagði Viviane Reding, sem fer
með mennta- og menningarmál
í framkvæmdastjórninni, á
blaðamannafundi í Brussel.
I skriflegri yfirlýsingu segir
framkvæmdastjórnin að hún
hyggist verja átta milljónum
evra, andvirði 608 milljóna
króna, í að styrkja tungumála-
nám, þar á meðal nám í evr-
ópskum tungumálum sem
minna eru töluð en önnur.