Morgunblaðið - 20.10.1999, Blaðsíða 56
56 MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1999
*----------------------------
FOLKI FRETTUM
MORGUNBLAÐIÐ
Forvitnilegar bækur
A FISH
CAUGHT
IN TIME
the Coelacanth
SAMANTHA WEINBERG
Lifandi
steingerv-
ingur
A Fish Caught in Time eftir Sam-
antha Weinberg. Fourth Estate
gefur út London 1999. 239 bls.
innb. með registri. Keypt á
Spitalfields markaðnum
í Lundúnum á um 1.000 kr.
ÞAÐ ÞOTTU mikil tíðindi þeg-
ar spurðist um jólin 1938 að suður
í Afríku hefði ungur safnvörður
fundið nýdauðan coelacanth, enda
vissu menn ekki betur að fiskur-
inn sá væri útdauður og hefði ver-
ið í milljónir ára. I kjölfarið fór af
stað mikið coelacanth-æði um
'»'heim allan og linnti ekki fyrr en
síðari heimsstyrjöldin hófst
nokkrum árum síðar. Það æði
stendur reyndar enn að nokkru
leyti, því ekki er lengra en síðan í
mars sl. að franskur vísindamaður
hrinti af stað deilu um latneskt
heiti fisksins.
I bráðskemmtilegri bók sinni
lýsir Samantha Weinberg coela-
canth-æðinu og þeim sem komu
við sögu, safnverðinum suður-af-
ríska, Marjorie Courtenay-Lati-
mer, vísindamanninum James
Leonard Brierley
Smith og konu
hans Margaret
og alpersón-
^xunni, Latimeria
Chalumnae,
coelacanthinum
sjálfum sem allt
snerist um.
Bók Wein-
bergs er á köflum
eins og spennandi
reyfari, ekki síst
þegar Smith og fé-
lagar hrifsa til sín
fyrsta heila coela-
canthinn undan nef-
inu á Frökkum á
Comoro-eyjum, sem
voru á þeim tíma
frönsk nýlenda. Saga
coelacanthsins er saga óþreytandi
^.hugsjóna- og vísindamanna, geð-
bilaðra einræðisherra, franskrar
þjóðrembu og þýskrar þraut-
seigju. Öðru fremur er bók Wein-
bergs persónusaga, því skýr mynd
er dregin upp af merkismanninum
og furðufuglinum J.L.B. Smith og
Margaret konu hans sem var ekki
síður merkileg.
Coelacanthinn, sem tekist hefur
að lifa af í sextíu milljón ár, líklega
fyrir það helst að vera nánast óæt-
ur, hefur aðeins fundist á tveimur
stöðum í heiminum, við strendur
Austur-Afríku og í Indónesíu. Við
iPomoro-eyjar hefur stofninn látið
verulega á sjá eftir að vísinda-
menn „upgötvuðu" hann og þó
nánast öruggt sé að hann sé víðar,
finnast frekari heimkynni hans
vonandi aldrei, eins og þýski ævin-
týramaðurinn Hans Fricke orðaði
það.
3 Árni Matthíasson
Elizabeth með þriðja manni sínum, Mike Todd, Debbie Reynolds
og Eddie Fisher, sem síðar varð fjórði eiginmaður Elizabeth.
Eddie Fisher og Elizabeth
Taylor á brúðkaupsdaginn
Baldið barn varð heims-
frægur kvennabósi
að hann
handt
„Þ AÐ ER ekki tónlist mín sem
fólk man eftir, heldur konurnar
mínar,“ segir hinn rúmlega sjö-
tugi Eddie Fisher sem hefur gef-
ið út ævisögu sína og kallar
hana: Been There, Done That.
Frægastur er Eddie Iíklegast
fyrir að hafa gifst hinni íðilfögru
leikkonu Elísabet Taylor árið
1958. Hann var ijórði eigin-
maður hennar en hjónaband _
þeirra entist í tæp fjögur ár. I
bókinni talar hann um samband
sitt við Elísabet með miklum til-
þrifum og minnist oft á hversu
góðu kynlífi þau hafi lifað. Hann
segir þau hafa rifíst eins og
hundur og köttur eina stundina
en þá næstu veltust þau um í
rúmi á einhverju hóteli.
Umvafinn aðdáendum
Eddie var eitt sinn stjarna.
Hann sló í gegn áður en EIvis
kom til skjalanna og á fimmta og
sjötta áratugnum var hann um-
vafinn æstum aðdáendum við
hvert fót- mál. Eddie yfír-
gaf fyrstu eigin-
konu sína,
Debbie Reyn-
olds, er hann á
tvö börn með,
og vakti skiln-
aður þeirra
mikið umtal,
sérstaklega
vegna þess að
hann flúði
beint í fang
Elísabetar.
Málið var á
þeim tíma
álitiðjafn
alvarlegf
og fram-
hjáhald
Bills Clin-
tons forseta og
Monicu Lewinsky. Framhjáhöld
og kvennafar eru þó ekki það
eina sem Eddie fjallar um í ævi-
sögu sinni, þar er líka sagt frá
eiturlyfjafíkninni sem háði hon-
um í áratugi.
Bókin hefur vakið hörð við-
brögð þeirra sem Eddie fjallar
þar um og meðal þeirra kvenna
sem hann státar sig af að hafa
átt í sambandi við eru Betty Dav-
is, Mia Farrow og Marlene
Dietrich. Elísabet er sögð æf af
reiði út af bókinni.
„Hvað í ósköpunum varð um
skopskynið hjá henni?“ sagði
Eddie hissa er hann heyrði af
viðbrögðum fyrrverandi eigin-
konu sinnar. „Hvað í ósköpunum
hef ég gert henni? Það vita hvort
eð er allir um þessa hluti sem ég
segi frá í bókinni." Elísabet held-
ur því fram að Eddie skáldi
meirihluta bókarinnar en hann
er undrandi yfir slíkum ásökun-
um. Hann er líka undrandi á við-
brögðum fyrstu eiginkonunnar
Eddie
í bókinwvrf/átt í ástavsam-
Die'
;trich-
og börnum þeirra tveimur sem
tala um hann sem „fyrrverandi“
föður sinn.
„Þetta er allt runnið undan
rifjum Debbie,“ segir Eddie.
„Hún er ótrúlega fölsk og sfjórn-
söm. Alls ekki sú ljúfa og indæla
manneskja sem hún gaf sig út
fyrir að vera er ég kynntist
henni. Eg er með samviskubit yf-
ir að hafa gefið börnum mínum
svona hræðilega móður.“
Gerir það sem
hann langar til
En Eddie er tilbúinn að viður-
kenna ýmislegt í eigin pers-
ónuleika sem ekki getur talist
honum til tekna. „Eg hef alltaf
gert nákvæmlega það sem mig
langar til, það eru mín örlög.“
Hann var baldið barn í skóla og
sannfærði sjálfan sig um að hann
væri yfir allar reglur hafinn.
Foreldrar hans voru rússneskir
gyðingar og hann ólst upp í fá-
tæktarhverfí með ofbeldisfullum
föður sínum. Foreldrar hans
vildu að hann giftist gyðinga-
stúlku en hann gat ekki hugsað
sér það. „Eg hef aðeins sængað
hjá einni gyðingastúlku og þá
vissi ég ekki einu sinni að hún
væri gyðingur."
Flestir halda því fram að
Eddie sé karlremba sem svífist
einskis til að fá sínu framgengt í
kvennamálum en hann telur það
af og frá. „Eg ber mikla virðingu
fyrir konum! Eg elska þær! Það
er yndislegt að vera með stúlk-
um og yndislegt að vera ástfang-
inn afþeim. Og þær hafa þráð
mig. Eg hef þurft að leggja á
flótta undan stúlkum. Þetta er
alls ekki mér að kenna. Eg sé á
gömlum Ijósmyndum að ég var
fjallmyndarlegur ungur maður.
Eg var með hár og ég var ríkur
og frægur. Svo gat ég líka sung-
ið.“
Eddie segir ástina það besta
sem til sé í lifinu. „Þegar maður
er ástfanginn hverfa öll vanda-
mál eins og dögg fyrir sólu svo
hvernig í ósköpunum gæti ég
séð eftir einhveiju í lífinu?“
En líf Eddies hefur samt
ekki alltaf verið dans á rós-
um eins og hann vill oft sjálf-
ur vera láta. Á níunda ára-
tugnum neyddist hann til að
leigja sér íbúð í einu af síðri
hverfum New York og spilaði á
klúbbum þar sem gestirnir vissu
ekki einu sinni hver hann var.
En auðvitað var það kvenmaður
sem bjargaði honum og kom til
betri vegar. Hann giftist árið
1993 hinni kínverskættuðu Betty
Lin sem átti velgengni að fagna í
viðskiptaheiminum. Hún kom
honum á Betty Ford-sjúkrahús-
ið í afvötnun þar sem læknar
gerðu honum Ijóst að hann
myndi deyja innan hálfs árs ef
hann hætti ekki að neyta kóka-
íns.
Elísabet eina ástin
I bókinni kemst lesandinn
næst hans sönnu tilfinningum er
hann ræðir um hjónaband sitt og
Elísabetar Taylor. Af öllum þeim
konum sem hann hefur átt ving-
ott við í gegnum tíðina er það
hún sem hann þráir enn. Á með-
an hjónaband þeirra stóð gat
hann lítið annað gert en að
hugsa um hana, kaupa handa
henni gjafir og eyða öllum
stundum sem gáfust með henni.
Árin þrjú sem þau voru gift voru
sem endalausir hveitibrauðsdag-
ar en að lokum lét hann leikar-
anum Richard Burton hana eftir.
Hann segist enn sjá eftir því.
„Hún var stóra ástin í lífí mínu,“
viðurkennir hann. „Er það ekki
furðulegt, ég fæ ennþá mikið út
úr því að tala um konur, eftir allt
sem á undan er gengið?“ Senni-
lega er það jafn furðulegt og
hann hafi komist upp með allt
sem hann vildi, aftur og aftur og
brotið fleiri hjörtu og sært fleiri
konur en hann á nokkru sinni
eftir að vilja vita.
Með eng-
an nafla
„Hello? Is Anybody t,here“, Jostein
Gaardner. James Ánderson þýddi á
ensku, Sally Gaardner mynd-
skreytti. Skáldsaga, 144 blaðsíður.
Orion Children’s Books, 1997.
$11.87 hjá Amazon.com-netbókum.
SVIPAÐUR í útliti, en að vissu
leyti frábrugðinn - Mika er frá ann-
arri stjömu. Jói litli finnur hann
hangandi í trénu í garðinum, og
bregður ekkert svo mikið. Jói gerist
leiðsögumaður Mika um lífið á jörð-
inni, og lærir um leið að líta heiminn
svolítið öðrum augum. Hvernig ætli
epli bragðist í fyrsta sinn? - Það er
skemmtilegt að setja sig í spor
Mika.
Hann segist skilja sína plánetu
betur með því að heimsækja aðra.
Hann vill því vita allt um jörðina -
hvemig lífið sjálft varð tdl, hann vill
vita hvað varð um risaeðlurnar,
hvemig bömin fæðast, og þar fram
eftir götunum. Hann vHl ólmur læra
og bókin er því stútfull af ft'óðleik,
aðallega fyrir yngstu kynslóðina, en
fyrir hina eldri er hún forvitnileg
sýn á okkai' eigin heim og er um leið
ágætis kennslubók í bamslegri
gleði.
Allt og ekkert vekur undrun Mika
og lesandinn getur ekki annað en
hrifist með. Höfundurinn, Jostein
Gaardner, er vakandi fyrir undram
þessa heims, stóram sem smáum -
það era öragglega ekki hænur
neinsstaðar annarsstaðar en á jörð-
inni! Samtöl geimgengOsins og Jóa
era oftar en ekki á heimspekilegum
nótum, enda ekki við öðra að búast
frá höfundi Veraldar Soffíu. Hann
sýnir bömum mikla virðingu með
því að leyfa þeim til dæmis að velta
fyrir sér hvort skapari hafi skapað
heiminn og bendir þeim jafnframt
á að oft era spurningamar sjálfar
meiravirði ensvör.
Sagan er reglulegt ævintýri sem
stendur þó traustum fótum í raun-
veruleikanum. Vonandi opnar
hún augu bamanna - eða
kannski frekar hinna ful-
lorðnu, þeirra augu era
oftar lokuð. Þannig er
þetta litla sögukom
skrifað í svipuðum
anda og Litli
prinsinn, önn-
m' saga um
geimstrák,
og teikn-
ingamar
era jafn-
vel helst
til keim-
líkar. En
engu að síður
stendur sagan um
Mika alveg fyrir sínu -
hann er dularfullur lítill
strákur með engan nafla.
Silja Björk Baldursdóttir
Elizabeth Taylor í hlut-
verki sínu í myndinni
„Suddenly Last Summer“
frá árinu 1959.