Morgunblaðið - 20.10.1999, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 20.10.1999, Blaðsíða 58
^58 MIÐVIKUDAGUR 20, OKTÓBER 1999 FOLKI FRETTUM MORGUNBLAÐIÐ Leikslgórinn ungi Night Shyamalan. hefur inn rúma 17 milljarða króna. Leikstjóri er 27 ára Indverji, Night Shyamalan, og talaði Pétur Blöndal m.a. við hann um samstarfíð við Bruce Willis, 45 stuttmyndir og hræðslu við drauga. Eru til draugar? ^ Ein umtalaðasta kvikmynd vestanhafs er Sjötta skilningarvitið sem halað dálítið skelkaður en við mynduðum smátt og smátt náið samband með- an á tökunum stóð. Pað hjálpaði að hann bar virðingu fyrir mér þegar hann hófst handa við verkefnið því honum fannst mikið til handritsins koma. Hann hafði því aðrar vænt- ingar en venjulega þegar hann tek- ur verkefni að sér og mín upplifun var sú að þar væri duglegur og framtakssamur fagmaður að verki.“ Haley Joel Osment og Bruce Willis í hlutverkum sinum. Mér skilst að þú hafir sjálfur verið tíu ára þegar þú fórst að gera kvikmyndir; hvemig voru þær? „Sú fyrsta var útúrsnúningur úr James Bond,“ segir hann og hlær. „Ég var í hlutverki James Bond. Þótt röddin væri ekki svona djúp og ég talaði eins og stúlka var ég í jakkafötum, með sólgleraugu og barði alla í hverfinu. Alls gerði ég 45 stuttmyndir fram til 16 ára aldurs og hver þeirra er um 5 til 7 mínútur. Þær fjölluðu um allt milli himins og jarðar og allir sem komu nálægt gerð þeirra skemmtu sér konung- lega leyfi ég mér að fullyrða. I lok vikunnar héldum við bíósýningu þótt varla væri horfandi á neina þeirra. Einstaka sinnum kom fyrir eitthvað fyndið eða áhugavert, en annars voru þetta hræðilegar myndir. Ég hef verið að safna þeim saman svo þær verði ekki seldar í Oprah.“ Lærðir þú eitthvað á þessu? „Já, maður lærir hvað á ekki að gera. Við reyndum til að mynda að endurgera Leitina að týndu örkinni með skelfilegum árangri. Eftir því sem árin liðu sá maður að þessi ÞAÐ vakti ómælda athygli í Bandaríkjunum þegar Sjötta skilningarvitið úr smiðju indverska leik- - stjórans Night Shyamalans náði efsta sæti aðsóknarlistans í sumar, hélt því í fimm vikur og varð fyrst í kvikmyndasögunni ásamt Titanic til að ná yfir 20 milljónir dollara fimm helgar í röð. Myndin hefur verið í yfir tvo mánuði á lista og halað inn ríflega 242 milljarða dollara eða rúma 17 milljarða króna. Er hún næstaðsóknarmest í Bandaríkjun- um það sem af er árinu. Bruce Willis er í aðalhlutverki myndarinnar og virðist hafa líkað ýiað vel því í vikunni bárust fregnir af því að hann hefði ráðið sig í næstu mynd þessa unga leikstjóra, sem er aðeins 28 ára. Disney hefur keypt réttinn til framleiðslu á myndinni og verður mótleikari Willis ekki af verri endanum eða Samuel L. Jack- son. Blaðamaður náði tali af Shyamalan og talaði við hann um Sjötta skilningarvitið sem frumsýnd var hérlendis á fostudag. Ertu hræddurvið drauga? „Ekki eftir að ég varð fullorð- inn,“ segir Shyamalan og hlær. „En ég var hræddur við þá þegar ég var krakki. Mér var meinilla við að vera einn og ég leyfði for- eldrum mínum aldrei að skilja mig einan eftir. Þau urðu alltaf 0áS fá einhvem til að vera hjá mér.“ Jafnvel þótt Sjötta skilning- arvitið sé hrollvekjandi líður manni ekki illa þegar maður fer af myndinni og slekkur ljósin til að fara að sofa. „Myndin er þegar allt kem- ur til alls góðviljuð skýring. Hún snýst um að veita krakka stuðning og horfast í augu við ótt- ann. Það er ekkert neikvætt við það. Maður verður sterkari og upplýst- ari, hvort sem það á við um dreng- inn eða lækninn. Síðasta atriði myndarinnar er upplífgandi og von- andi líður áhorfendum þannig.“ IS Ímmmm Þær eru margar ráðgáturnar sem Willis glímir við. Þú þurftir þá ekki að hræða þá. „Nei,“ svarar hann og hlær. „Ég veit ekki hvort það er svo auðvelt þegar 10 ára krakkar eru annars vegar. Ef til vill er það hægt þegar þeir eru sex eða sjö ára, en það er ekki góð leið til að leikstýra.“ Hvemig var að vinna með Brace Willis? „Það var frábært. I fyrstu var ég 3C Tr vernig kviknaði hugmyndin? 1—1 „Eg hafði mynd í huga af JL JL dreng í jarðarfor sem situr í stiganum og er að tala við ímynd- aða persónu. Þegar fólkið fer að hlusta kemst það að því að hann er að tala við manninn sem er fallinn frá. Atriðið skilaði sér ekki í mynd- ina heldur annað jarðarfararatriði sem er á svipuðum nótum.“ Hvernig var að leikstýra krökk- unum í myndinni og fá þá til að leika? „Ég talaði bara við þá,“ segir hann. „Þá naut ég þess að hafa Ifckrifað handritið og geta útskýrt fyrir þeim tálfinningarótið og hvað ég hefði í huga fyrir hverja persónu. Eg skýrði út fyrir þeim mannlegu hliðina, ekki bara hina draugalegu og ógnvekjandi, og benti þeim á að einbeita sér að því að sýna sannar tilfinningar á hverju augnabliki; ég Sgeæi um að það skilaði sér í mynd- ^ha.“ Haldið þið sambandi? „Við tölum saman viku- lega vegna þess hversu myndin gengur vel í Bandaríkjun- um. Við skiptumst gjaman á sögum af fólki sem hefur séð myndina og ræðum jafnvel önnur verkefni; við eram að hugsa um að gera aðra mynd saman sem yrði þó ekki fram- hald af þessari.“ Hefurðu fundið fyrir jákvæðum viðbrögðum? „Mjög sterklega," svarar hann. „Það er sjaldgæft að myndir komi á óvart nú- orðið; að áhorfendur grípi andann á lofti. Þeir fá sjaldnast tíma til að kom- ast inn í söguna því flýtir- inn er svo mikill að byrja hasarinn. Menn virðast ekki gera sér ljóst að ef þeir taka sér tíma til að segja söguna græða þeir á því í lokin. Von- andi læra kvikmyndaverin eitthvað á þessu því viðbrögð- in hafa verið einstök og fólk fer aftur og aftur á myndina. Áhrifanna gætir alls staðar. Það er talað um myndina í spjallþáttum, hún er í blöðun- um á hverjum degi og um dag- inn fékk ég sent slúðurblað þar sem sagði frá 10 ára dreng sem sá draug í alvöranni.“ sögupersóna getur ekki talað svona, þetta gervi er óviðeigandi og að ekki má færa myndavélina á þenn- an hátt. Smátt og smátt lærir mað- ur.“ Horfirðu enn á þessar myndir? „Fjölskyldan mín kom saman á síðustu þakkargjörðarhátíð og horfði á nokkrar af þessum mynd- um. Þá ýmist hlógu allir sig mátt- lausa eða hágrétu.“ Þú ert 28 ára og samt ertu búinn að leikstýra þriðju kvikmynd þinni í fullri lengd sem hefur halað inn 242 milljónir dollara. Hvemig kanntu við þig á frægðarbrautinni? „Það er óvenjulegur staður,“ svarar Shyamalan. „Maður lærir alla ævi hvemig á að takast á við klúður og vanlíðan. En enginn segir manni hvemig maður á að bregðast við einskærri velgengni. Hvað gerir hetjan eftir að hún vinnur hjarta stúlkunnar í lok myndarinnar? Það er aldrei sýnt. Velgengni af þessu tagi hefur áhrif á allt sem maður tekur sér fyrir hendur. Allir sem veifa manni, borða með manni, tala við mann vita af því að þetta er leik- stjórinn sem gerði Sjötta skilning- arvitið. Aður var það bara ungi Ind- verjinn sem gerði kvikmyndir. Ég held dauðahaldi í hið hversdagslega lífsmynstur sem ég hrærðist í þegar ég gerði þessar þrjár myndir. Sög- umar verða til af því að fara út með raslið, þegar hundurinn ræðst á mann; það skilar sér í myndfrnar. En ef ég fer ekki út með raslið af því ég er svo ríkur þá tapast augnablik- ið. Maður verður að halda sérkenn- um sínum.“ Sérðu aldrei eftir að hafa ekki gerst læknir? [Tólf í nánustu fjöl- skyldu úrvalsnemandans Shyama- lans era læknar og hafnaði hann fjölmörgum styrkjum til lækna- náms sem honum vora boðnir til að einbeita sér að kvikmyndum.] „Nei, en ég fékk að leika lækni [Dr. Hill] í myndinni.11 Þú lékst einmitt aðalhlutverkið og leikstýrðir myndinni „Praying With Anger“. Ætl- arðu kannski að feta í fótspor Quentins Tarantinos og ýmist leika eða leikstýra kvikmyndum? „Vonandi fer ég ekki sömu leið og Quentin," svarar hann. „Ég hef ekki nógan tíma til að æfa leiklistina þar sem ég er upptekinn við handrita- skrif og leikstjóm. En ef ég get æft mig svolítið í aukahlutverkum eins og í Sjötta skilningarvitinu þá kem- ur kannski að því að ég gef mér tíma. Annars sé ég varla fram á það því ég verð meira og meira feiminn eftir því sem ég fullorðnast." Shyamalan afsakar sig og hverf- ur stundarkom úr símanum. Þegar hann kemur aftur segist hann hafa verið að huga að eiginkonu sinni sem sé ólétt. Var hún þá að eiga rétt í þessu? spyr blaðamaður. „Já, einmitt á þessu augnabliki,“ svarar hann og hlær. „Þetta er stúlka.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.