Morgunblaðið - 20.10.1999, Side 16

Morgunblaðið - 20.10.1999, Side 16
16 MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ Alandi lokað fyr- ir gegn- umakstri Fossvogur BORGARRÁÐ hefur sam- þykkt tillögu skipulags- og umferðarnefndar um að aug- lýsa breytingu á deiliskipulagi vegna umferðar um Aland og Eyi-arland sem miðar að því að Alandi verði lokað fyrir gegnumakstri. Götunni verð- ur þó ekki lokað í orðsins fyllstu merkingu, heldur verða sett upp skilti sem banna gegnumakstur annarra en sjúkrabíla. Ibúar við Akraland og Aland sendu skipulagsyfir- völdum erindi fyrir rúmu ári þar sem farið var fram á að enginn gegnumakstur yrði leyfður um Aland, enda vasri gatan sú eina í Fossvogs- hverfi þai- sem það væri leyfi- legt. Þó vildu íbúar gera und- antekningu varðandi akstur sjúkrabíla. Bentu íbúamir á að bílaum- ferð um Áland og Eyrarland hefði aukist verulega vegna aksturs að Sjúkrahúsi Reykjavíkur, enda ætti fjöldi fólks erindi á stofnunina. Einnig bentu íbúarnir á að Áland hefði tæplega verið skipulagt sem akstursleið að svo stórri stofnun í upphafi og gatan hlyti að hafa verið hugsuð sem botnlangi í sam- ræmi við aðrar götur í hverf- inu. I erindi íbúanna kom fram að homið á gatnamótum Eyr- arlands og Alands er algjör- lega blint, og geti orsakað að- stæður sem skapað geti veru- lega slysahættu, þó svo að spegli hafi verið komið fyrir á staur við homið. Þá sé mjög lítið útsýni fyrir gangandi vegfarendur og bflar sjáist ekki fyrr en á stuttu færi. Ibúar vogi sér vart að fara yf- ir götuna vegna bflaumferðar og hraðans sem þar er. HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ iiaiiW [sh-—Li : m 1 M [ - ^ m ... . Fimm átta metra háar koparsúlur fslandsmerkis Sigurjóns Ólafssonar munu í framtíðinni teygja sig upp úr Hagatorgi. Morgunblaðið/Ásdís Islandsmerki á Hagatorg Vesturbær Átak gegn hraðakstri Hafnarfjörður MINNISMERKI Sigurjóns Ólafssonar, íslandsmerk- inu, verður á næstunni komið fyrir við Hagatorg. En listaverkið var gert til að minnast stofnunar lýð- veldis á íslandi 1944. Listaverkið stóð áður við Hótel Sögu en var fjarlægt þaðan og hefúr því nú ver- ið fundinn nýr samastaður. Verkið samanstendur af fimm koparklæddum súl- um sem eru um átta metr- ar á hæð. Vinna stendur nú yfír við undirstöður verksins og er þessa stundina m.a. verið að steypa stöpla minnismerkisins. Hönnun umhverfís og val staðsetn- ingar íslandsmerkisins er síðan í höndum Ragnhildar Skarphéðisdóttur lands- Iagsarkitekts en gert er ráð fyrir að framkvæmd- um Ijúki fyrir miðjan nóv- ember nk. SKIPULAGS- og umferðar- nefnd Hafnarfjarðar hefur lagt til við bæjarstjórn að sett- ur verði 30 km hámarkshraði á Skjólvangi, Sævangi og Vest- urvangi og því fylgt efth' með tilheyrandi aðgerðum. íbúar við Skjólvang lögðu í sumar fram erindi þar sem farið var fram á úrbætur í umferðar- málum í götunni. I vinnslu hjá Hafnarfjarðarbæ er nýtt deiliskipulag fyrir Hrafnistu- svæðið þar sem tekið verður á því hvort loka eigi Skjólvangi sunnan við Herjólfsbraut, þannig að aðkoma að Hrafn- istu verði um Herjólfsbraut. Þá hefur nefndin lagt til að Hvammar sunnan Hvamma- brautar verði gerðir að 30 km hverfi með tilheyrandi hliðum inn í hverfið, skiltum, þreng- ingum og hraðahindrunum. íbúar við Stekkjarhvamm óskuðu eftir áliti á því hvort að hægt væri að draga úr hraða í götunni með hraða- hindrun. Einnig fóru íbúarnir fram á að settar verði hljóð- manir eða girðing við Reykja- nesbraut. Jafnframt þessu hefur verið samþykkt að leggja til við bæjarstjórn að á safn- og húsagötum í Mosahlíð verði 30 km hámarkshraði og að sett verði upp hraðahindrun í Uthlíð ofan við leikskólann í tengslum við göngustíginn sem þar er. í upphaflegri hönnun Klettahlíðar var gert ráð fyrir hraðahindrun á móts við stíginn ofan við byggðina ásamt þrengingu milli Furu- hlíðar og Fjóluhlíðar. Skipu- lags- og umferðarnefnd hefur lagt til að þetta verði útfært nánar og sett í framkvæmd. Listasýning á sjötugsafmæli Breiðholt ÁSMUNDUR Guðmunds- son fagnaði sjötugsafmæli sínu nú á dögunum með því að halda sína fyrstu sýningu, en Ásmundur bæði málar og sker út í tré. Á annað hundrað manns mættu í afmælis- veisluna og skoðuðu um Ieið sýningu Ásmundar í félagsmiðstöðinni Ár- skógum. En Ásmundur hefur gert sér það til gamans sl. 24 ár að mála. Það sem gerir hann þó frábrugðinn mörgum öðr- um tómstundaiistamönn- um er að hann hóf ekki að mála af neinni alvöru fyrr en hann fékk slag 45 ára gamall. En Ásmundur lamaðist þá í hægri hluta líkamans og varð í fram- haldi að læra að nota vinstri hendina. Það var hins vegar fljótlega eftir veikindin að Ásmundur hóf að mála bæði sér og öðrum til gamans. f gegnum tíðina hefur hann m.a. málað mikið á tré og meðal þess sem vekur athygli gesta á sýningu Ásmundar eru mannamyndir málaðar á við. En á myndunum má þekkja ýmsa þjóðþekkta einstaklinga eins og Stef- án frá Möðrudal sem og fjölda stjórnmálamanna. Svipurinn er þar oft glettilega líkur og segist Ásmundur gjarnan mála portrettin eftir myndum úr Morgunblaðinu. Aðspurður um þennan sérkennilega efnivið, við- argrunninn, segist Ás- mundur í upphafí ekki hafa verið nógu reyndur í litameðferð og því hafí sér reynst auðveldara að mála með akrýllitum á viðar- grunn en olíu á striga. Hann er þó jafnvígur á þessar litagerðir í dag. Ásmundur er ekki myndlistarmenntaður, en hefur lésið sér nokkuð til um málaralistina. Hann nýtur hins vegar kennslu í útskurði sem hann tók til við að læra fyrir um tveimur árum síðar. En það er Einar Jóhannesson sem býður upp á kennslu í úl skurði fyrir eldri borgara Árskóga. Það er því útskurðurinn sem á allan hug Ásmund- ar um þessar mundir og segist hann varla gefa sér tíma til að mála lengur. Heldur eru það útskornir munir á borð við hestinn á myndinni sem heilla hann núna. Myndir Ásmundar og styttur eru til sölu á sýn- ingunni í Árskógum og hafa þó nokkrir nýtt sér Morgunblaðið/Golli tækifærið og fjárfest í munum hans. Þeirri hug- mynd hefur síðan heyrst fleygt í Árskógum að rétti staðurinn fyrir por- trett sljórnmálamann- anna væri nýja kaffístof- an í Alþingishúsinu. Þroskahjálp fær lóð fyrir sam- býli fatlaðra Vesturbær LANDSSAMTÖKIN Þroska- þjálp hafa fengið jákvætt svar við umsókn sinni um að reisa sambýli fyrir fatlaða á lóð við Einarsnes. Að sögn Friðriks Sigurðssonar, framkvæmda- stjóra samtakanna, er fram- kvæmdin meðal annars hugs- uð til að benda á að hægt sé að leysa húsnæðismál fatlaðra á farsælan hátt með góðum lausnum. Friðrik segir að Þroska- hjálp hafi gert nokkuð í því að byggja húsnæði fyrir fatl- aða og hafi óskað eftir því við Reykjavíkurborg að fá lóð til slíkra framkvæmda. Samtök- in hafa fengið lánsheimfldir hjá Ibúðalánasjóði til að byggja félagslegar leiguíbúð- ir ætlaðar fötluðum. Friðrik segir að eftir sé að ræða við borgarskipulag varðandi það hvaða gerðir húsa eru þama hugsaðar, en stefnt sé að því að byggja þama hús með sjálfstæðum íbúðum fyrir fatlaða. Ekki hefur verið ákveðið hversu margar þær verða, en væntanlega verður byggt þarna tvflyft hús í þeim anda sem hverfið býður upp á. Að sögn Friðriks hefur Þroskahjálp þegar byggt eitt 5 íbúða raðhús með starfs- mannaaðstöðu uppi í Star- engi 118. Einnig hafa sam- tökin fest kaup á íbúðum á jarðhæð á Skúlagötu 46, þar sem fatlaðii’ búa í sama húsi og aðrir Reykvíkingar. „Við höfum af þessu nokkra reynslu og höfum verið að búa til húsnæði sem við telj- um að sé gott og hæfi fótluð- um jafnt sem öðmm. Okkar skoðun er sú að það húsnæði sem fötluðum hæfir sé bara húsnæði sem hæfir öllum, að teknu tilliti til þeirra sér- þarfa,“ segir Friðrik. Hann segir að mikil eftirspum sé eftir svona húsnæði, en að Þroskahjálp stefni þó ekki að því að fullnægja þeirri eftir- spurn, það sé annarra að gera það. Borgarsjóður á lóðirnar nr. 58 og 60-62 við Einarsnes og hefur borgarráð falið borgar- skipulagi að gera breytingu á deiliskipulagi svæðisins til þess að þar geti risið sam- býli. Einnig er gert ráð fyrir að hluti af svæðinu leggist við aðliggjandi lóðir og hefur þegar verið samið við einn lóðareiganda um sölu á við- bót við hans lóð. Ennfremur liggur gangstígur um svæðið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.