Morgunblaðið - 20.10.1999, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1999
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Nýbyg-ging
Váá, bara 15 metra há súla, hvað heldurðu að biskupinn segi nú Sigurður Gísli.
Ferðamálaráð Islands færir út kvíarnar
Ný skrifstofa opnuð í París
FERÐAMÁLARÁÐ íslands hefur
auglýst stöðu forstöðumanns skrif-
stofu í Frakklandi. Að sögn Magn-
úsar Oddssonar ferðamálastjóra,
var á síðasta ári samþykkt í Ferða-
málaráði, að næsta skrifstofa ráðs-
ins yrði opnuð á latnesku svæði.
„Það er ljóst að veruleg aukning
ferðamanna hefur orðið frá þessu
svæði, þ.e. Frakklandi, Ítalíu og
Spáni,“ sagði hann.
„Við höfum ekki verið með neina
starfsemi á þessu svæði en aftur á
mót verið með skrifstofu í Þýska-
landi í 14 ár og lengur í Bandaríkj-
unum,“ sagði hann. Á siðasta ári var
ráðinn tímabundið starfsmaður í
Frakklandi en án sérstakrar skrif-
stofu, sem sinnt hefur svæðinu auk
þess sem gerður var samningur við
fyrirtæki, sem dreift hefur efni og
svarað fyrirspumum, að sögn
Magnúsar. „En núna stígum við
skrefið til fulls eins og samþykkt
var, að opna skrifstofu á svæðinu,
sem verður í París,“ sagði Magnús.
Stefnt er að því að skrifstofan verði
opnuð ekki síðar en um áramótin.
Meðal verkefna forstöðumanns
er stjómun, vinna við almenn land-
kynningarverkefni og umsjón með
markaðsmálum í tengslum við
söluaðila.
Dýnustærð 135x190 cm þykkt 15cm
SUÐURLANDSBRAUT 22
SI'MI: 553 6011 • 553 7100
ehf.
Kirkjukór Grensássóknar í Skálholti
Kirkjuleg verk
frá ýmsum tímum
Árni Arinbjarnarson
Kirkjukór Grensás-
kirkju heimsækir
Skálholtsdóm-
kirkju sunnudaginn 24.
október og syngur þar
við guðsþjónustu sem
hefst klukkan 14.00.
Prestur verður séra
Ólafur Jóhannsson,
sóknarprestur Grensás-
kirkju. Kórinn heldur
síðan tónleika í kirkjunni
klukkan 17.00. Árni Ar-
inbjarnarson er orgel-
leikari og stjórnandi
Kirkjukórs Grensás-
kirkju.
„Á tónleikunm í Skál-
holtskirkju ætlum við að
flytja bæði innlend og
erlend lög. Af innlend-
um lögum má nefna Lof-
söng eftir Sigfús Ein-
arsson við texta úr Davíðssálm-
um, en Sigfús var fæddur á
Eyrarbakka 1877 og
dómorganisti í Reykjavík frá
1913 til 1939, er dr. Páll ísólfs-
son tók við því starfi. Þá er á
efnisskránni lag eftir Jakob
Hallgrímsson; Ó undur lífs, við
texta eftir Þorstein Valdimars-
son, og einnig er útsetning Jak-
obs á lagi úr Hólabók; Ein lítil
söngvísa. Jakob Hallgrímsson
var tónlistarkennari, fiðluleik-
ari og orgelleikari, m.a. var
hann aðstoðarorgelleikari við
Grensáskirkju um tíma. Hann
stjórnaði ýmsum kórum og
samdi tónverk og raddsetti ís-
lensk þjóðlög. Hann lést í júní á
þessu ári aðeins 56 ára gamall.
Ingimar Sigurðsson bassa-
söngvari, sem er félagi í kórn-
um, mun syngja lag eftir afa
sinn, Isólf Pálsson, en Isólfur
var orgelleikari við Stokkseyr-
arkirkju og hann var faðir Páls
ísólfssonar og Sigurðar, sem
var orgelleikari við Fríkirkjuna
í Reykjavík. Af erlendum lög-
um má nefna; Laude Dominum
eftir Mozart, sem Ingibjörg
Ólafsdóttir syngur einsöng í
með kórnum, og Libera me
Domine úr Reqiem eftir Fauré,
en Ingimar Sigurðsson syngur
einsöng í því. Þá eru lög eftir
Bach, Bruckner, Beethoven,
Niels Gade og lag eftir norskt
tónskáld; í návist Guðs, en text-
inn er eftir Heimi Steinsson.
Inn á milli kórlaganna syngja
þær Ingibjörg Ólafsdóttir,
Hellen Helgadóttir og Matt-
hildur Matthíasdóttir þrísöng
en það er Agnus Dei eftir
Gluck. I upphafi tónleikanna
leik ég á orgelið verk eftir
Buxtehude og sálm-
forleik eftir Bach.“
- Hvenær var
Kirkjukór Grensás-
kirkju stofnaður?
„Kirkjukór Grens-
áskirkju hefur starfað í Grens-
ássöfnuði síðan söfnuðurinn var
stofnaður 1964. Fyrst var hann
til húsa í Breiðagerðisskóla, þar
sem söfnuðurinn fékk iýrst
inni, en prestur safnaðarins þá
var séra Felix Ólafsson.
Organisti var þá Gústaf Jó-
hannesson. Síðan flutti söfnuð-
urinn með guðsþjónustur sínar
í húsnæði í Miðbæ við Háaleit-
isbraut. En 1972 var safnaðar-
heimili Grensáskirkju vígt og
voru guðsþjónustur haldnar þar
til ársins 1996 en í desember
það ár var núverandi kirkja
vígð þar sem guðsþjónustur eru
nú haldnar. Aðrir prestar sem
þjónað hafa í söfnuðinum eru
séra Jónas Gíslason og séra
► Árni Arinbjarnarson fædd-
ist í Hafnarfirði 1934. Hann
ólst upp í Reykjavík og
stundaði nám þar við Tónlist-
arskólann, lauk burtfarar-
prófi í fiðluleik 1956 og burt-
fararprófi í orgelleik árið
1960. Kennari hans í fiðluleik
var Björn Ólafsson og í org-
elleik dr. Páll ísólfsson. Árni
stundaði framhaldsnám í
London 1957-’58. Hann var
fastráðinn fiðluleikari í Sin-
fóníuhljómsveit íslands frá
1960-’96. Árni kennir nú
fiðluleik við Nýja tónlistar-
skólann og er organisti við
Grensáskirkju í Reykjavík.
Hann er kvæntur Dóru Lydíu
Haraldsdóttur og eiga þau
þrjú börn.
Halldór S. Gröndal. Núverandi
prestur er eins og fyrr sagði
séra Ólafur Jóhannsson."
- Eru margir félagar í
kirkjukórnum?
„Kirkjukórinn samanstendur
af tuttugu söngvurum og hefur
að sjálfsögðu tekið miklum
breytingum og endurnýjun frá
fyrstu árunum. Hlutverk hans
hefur alla tíð verið að leiða hinn
almenna kirkjusöng og einnig
að leggja til kórverk eða annað
innlegg í guðsþjónustuna, því
hið talaða orð og svo lofsöngur-
inn til Guðs þurfa að haldast í
hendur í guðsþjónustunni. Hlut-
verk kirkjukórsins er fyrst og
fremst að hafa forgöngu safnað-
arins í lofgjörð og tilbeiðslu, en
kórinn hefur einnig brugðið út
af hinu hefðbundna starfi við
guðsþjónustuna og haldið sína
sjálfstæðu tónleika
eins og til stendur að
gera næsta sunnu-
dag.“
-Hefur kórinn farið
í söngferðalög?
„Kórinn hefur farið í ferðalög
innanlands, þar á meðal fórum
við í ferð til Hvammstanga á síð-
astliðnu ári þar sem kórinn söng
við guðsþjónustu og hélt sjálf-
stæða tónleika í Hvammstanga-
kirkju. Á síðasta ári hélt kórinn
aðventutónleika þar sem m.a.
var flutt kantata eftir Bach með
aðstoð kammersveitar. Þrátt
fyrir fjórraddaðan kirkjusöng í
sálmalögum hefur kórinn einnig
lagt sitt af mörkum til að örva
kirkjusönginn og sungið ein-
raddað þar sem lögin hafa verið
lækkuð í tónhæð fyrir hinn al-
menna kirkjugest til þess að
hvetja til þátttöku kirkjugesta í
safnaðarsöng við guðsþjónust-
ur.“
Forgangaí
lofgjörð og
tilbeiðslu