Morgunblaðið - 20.10.1999, Síða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1999
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Fjárfestingarfélagið 3P fjár-hús ehf. og Jón L. Arnalds eignast hlut í
íslenska sjónvarpsfélaginu hf./Skjá einum
Nýir hluthafar með
helming hlutafíár
Skjár einn hefur útsendingar í kvöld
FJÁRFESTINGARFÉLAGIÐ 3P
fjár-hús ehf., sem er í eigu Sigurðar
Gísla Pálmasonar, Jóns Pálmasonar
og Páls Kr. Pálssonar, og Jón L.
Arnalds hæstaréttarlögmaður hafa
gerst hluthafar í Islenska sjón-
varpsfélaginu hf. sem rekur sjón-
varpsrásina Skjá einn, en hún mun
hefja útsendingar að nýju í kvöld.
Fjárfestingin er i tengslum við
breytt skipulag íslenska sjónvarps-
félagsins og tengist hlutafjáraukn-
ingu í félaginu, og kemur nýtt fé inn
í félagið með fjárfestingunni.
Árni Þór Vigfússon, íram-
kvæmdastjóri Islenska sjónvarpsfé-
lagsins hf., segir í samtali við Morg-
unblaðið að skipulagsbreytingarnar
feli í sér að rúmlega 60 manns hafi
verið ráðnir til félagsins, en dagskrá
Skjás eins muni koma til með að
breytast mjög. Megináherslan verð-
ur á innlenda dagskrárgerð og nú
sé komin fréttastofa hjá sjónvarps-
félaginu.
Árni segir að ekki sé hægt að
gefa upp að svo stöddu hver upp-
hæð fjárfestingarinnar sé, né held-
ur hver hlutafjáraukningin hafi ver-
ið.
Eftir fjárfestinguna eiga nýir
fjárfestar 50% í félaginu, og eldri
fjárfestar 50%. Hin nýja fjárfesting
skiptist svo að 3P eiga tæp 30% og
Jón Amalds rúm 20%. Áður áttu
þeir Árni Þór Vigfússon og Kristján
Ra. Kristjánsson 90% og Guðmund-
ur Kristjánsson og Guðbergur Da-
víðsson áttu 10%. Að sögn Árna
Þórs Vigfússonar er hlutfallsleg
skipting þeirra 50% sem þeir eiga
nú í félaginu svipuð, þótt einhverjar
h'tilsháttar breytingar hafi orðið.
Nær til 47.000 heimila
„Við verðum með íslenska við-
skiptaþætti, pólitíska þætti, gaman-
þætti, rabbþætti og svo framvegis.
Svo eru ýmis önnur framtíðaráform
sem ekki er hægt að ræða frekar
um á þessari stundu, og mun það
verða ljóst á næstu vikum og mán-
uðum. Þetta er því algerlega ný
sjónvarpsstöð með innlendri dag-
skrárgerð og fréttastofu,“ segir
Árni, og bætir við að hinn erlendi
hluti dagskrárinnar verði byggður
upp á ákveðnum þemum. lvAðalá-
herslan er á skemmtanagildið," seg-
ir Arni.
Að sögn Árna miðast dagskrár-
stefna sjónvarpsstöðvarinnar við að
höfða til ungs fólks á öllum aldri.
„Við höfum verið með tilraunaút-
sendingar, og sjáum að við skemmt-
um fólki án tillits til aldurs. Fólki
sem hefur gaman af að lifa,“ segir
Ami. Hann segir að dagskráin á
Skjá einum verði í opinni dagskrá
en tekjur sjónvarpsstöðvarinnar
verða af auglýsingum. Hann segir
einnig að dagskráin náist nú hjá
47.000 heimilum, sem era um 63%
heimila á Faxaflóasvæðinu. Að sögn
Ama verður dagskráin send út á ör-
bylgjutíðni og á breiðbandinu.
„Göður hópur og djarfir
frumkvöðlar"
Páll Kr. Pálsson, framkvæmda-
stjóri 3P fjár-húss ehf., segir í sam-
tali við Morgunblaðið að fjárfesting-
in í Skjá einum sé að þeirra mati
spennandi verkefni.
„Þarna er góður hópur og djarfir
frumkvöðlar á ferð. I fjölmiðlaheim-
inum eiga sér nú stað geysimiklar
breytingar, og við teljum þama
vera mikil sóknarfæri með áhuga-
verðum tengimöguleikum við ýmsa
aðra fjölmiðla á markaðnum," segir
Páll.
Ekki náðist í Jón L. Amalds
hæstaréttarlögmann.
Merrill Lynch
metur Ericsson
Flugleiðir bæta við
flugferdum til London
í NÝLEGU mati alþjóðlega ráð-
gjafar- og fjárfestingarfyrirtækis-
ins Merrill Lynch er sænska fjar-
skiptafyrirtækið Ericsson talið
vænlegri fjárfestingarkostur en áð-
ur. M.a. er vísað til eignarhlutar
Ericsson í íslenska hugbúnaðarfyr-
irtækinu OZ.COM og samstarfs fyr-
irtækjanna. Matseinkunn Merrill
Lynch á Ericsson fer úr „hold“ í
„buy“ sem merkir að fjárfestum er
nú ráðlagt að kaupa hlutabréf í
Ericsson í stað hlutlauss mats áður,
þ.e. að fjárfestum var hvorki ráð-
lagt að selja né kaupa bréf í Erics-
son.
Að mati Merrill Lynch er svig-
rúm til allt að 50% hækkunar á
gengi hlutabréfa í Ericsson næstu
tólf mánuði, miðað við það sem nú
er. Merrill Lynch telur hugsanlegt
að hlutabréfaverð fari í 400 sænskar
krónur eða 49 dollara innan tólf
mánaða en nú er gengið 259 sænsk-
ar krónur eða 31 dollari.
Meðal röksemda fyrir hækkun á
einkunn Ericsson er samstarf
sænska fyrirtækisins við íslenska
hugbúnaðarfyrirtækið OZ.COM en
Ericsson fjárfesti í rúmlega 900
milljóna króna nafnverðshlut í
OZ.COM síðastliðið vor. Fyrirtækin
hafa sameiginlega þróað notenda-
búnað fyrir Netið, iPulse, en búnað-
urinn hefur vakið mikla athygli.
Notendur eiga með iPulse að geta
haft samskipti hvort sem þeir era
með einkatölvu, síma, boðtæki,
handtölvu eða farsíma við höndina,
ef þeir skilgreina með hvaða hætti
þeir vilja láta ná í sig. Vöraþróun
stendur enn yfir en iPulse hefur
hlotið góðar viðtökur á sýningum
erlendis.
Að mati Merrill Lynch er mark-
aðshlutdeild Ericsson í GSM-far-
símakerfinu um 35% og útlit fyrir
að slík hlutdeild haldist áfram. I
matinu kemur fram að Ericsson
hefur sterka markaðsstöðu með
fjölbreytta framleiðslu á ýmiss kon-
ar fjarskiptabúnaði.
FLUGLEIÐIR munu svara sfauk-
inni eftirspurn ferðamanna í við-
skiptaerindum með því að bæta
við elleftu flugferðinni á viku til
London frá og með 2. nóvember,
að því er fram kemur í fréttatil-
kynningu. Einnig verður ferðum
á milli Kaupmannahafnar og
Reykjavíkur fjölgað úr tveimur á
dag í þijár.
„Aukin ferðatíðni til London
og Kaupmannahafnar endur-
speglar vel útrás íslensks við-
skiptalífs til Evrópu," segir í til-
kynningunni. Ennfremur kemur
fram að fjölgun ferða til lykilá-
fangastaða komi til móts við
þarfir farþega í viðskiptaerind-
um sem leggja áherslu á að nýta
tíma sinn sem best.
f tilefni af fjölgun ferða til
London bjóða Flugleiðir sérstakt
kynningartilboð á vikuferðum til
London á 12.900 krónur.
Gengi krónunn-
ar í sögulegu
lágmarki
GENGI íslensku krónunnar hefur
náð sögulegu lágmarki en viðskipta-
vegin gengisvog krónunnar fór á
mánudag undir 111. í gær endaði
hún í 111,05. Gengisvísitalan fór
lægst í 110,88 á mánudag en opin-
ber skráning hennar var 110,95
þann dag. Samkvæmt upplýsingum
frá Islandsbanka F&M var fyrra
lægsta gildi opinberrar gengis-
skráningar krónunnar 111,09 hinn
12. júní 1998 en þann dag fór vísital-
an lægst í 110,95 innan dagsins. Ný-
verandi gengisfyrirkomulag gerir
ráð fyrir að gengisvísitalan geti
sveiflast innan +/-6% vikmarka,
sem þýðir að neðri mörk vísitölunn-
ar era við 108,11.
I markaðsyfirliti Landsbanka Is-
lands kemur fram að þessi vikmörk
séu í sjálfu sér ekki bindandi af
hálfu Seðlabankans og því ekkert
til fyrirstöðu að krónan styrkist
enn frekar og rjúfi þessi neðri
mörk.
Verðbólga farin úr böndum
„Verðbólga er farin úr böndum
og mælist nú allt að þrisvar sinnum
meiri en í okkar helstu viðskipta-
löndum - undan þessari staðreynd
verður ekki vikist. Frekari aukning
verðbólgu mun grafa enn frekar
undan trausti innlendra og erlendra
aðila á efnahag landsins og þar með
gengi krónunnar. Gengi krónunnar
hefur styrkst talsvert á árinu en
það hefur ekki dugað til að halda
aftur af verðbólgunni. Gefi gengi
krónunnar eftir mun það valda auk-
inni verðbólgu frá því sem nú er.
Það era hinir háu vextir hér á landi
sem stutt hafa við gengi krónunnar
en vegna þess mikla munar sem er
á innlendum og erlendum vöxtum
hefur gjaldeyrisinnstreymi til
landsins verið mikið.
Seðlabankinn hefur hækkað vexti
í þrígang og hafa þessar vaxtahækk-
anir haft það að markmiði að slá á
þenslu og koma í veg fyrir veikingu
krónunnar. Tekist hefur að styðja
við gengi krónunnar en það er ekki
að sjá að innlend eftirspurn hafi
minnkað að neinu marki,“ að því er
fram kemur í markaðsyflrliti Lands-
bankans. Þar kemur fram að í nóv-
ember muni seðlabankar Bandaríkj-
anna, Bretlands og Evrópu, taka
ákvörðun um hvort vextir verða
hækkaðir í þessum löndum. En þessi
lönd mynda ríflega 80% af gengisvog
krónunnar og myndi 25 punkta
hækkun skammtímavaxta í löndun-
um valda 0,20% lækkun á núverandi
vaxtamun.
DeCODE
hækkar um
58% á 4
mánuðum
HLUTABRÉF í DeCode Genetics
hafa hækkað um 58% frá því í júní
síðastliðnum þegar 17% hlutur
stofnfjárfesta var keyptur af inn-
lendum aðilum. Gengi hlutabréf-
anna er nú um 27 dollarar á hlut og
hefur verið að hækka síðustu daga,
að því er fram kom í morgunkorni
Fjárfestingarbanka atvinnulífsins í
gær.
I morgunkominu kemur fram að
umræða um seinkun á leyfisveitingu
gagnagranns á heilbrigðissviði og
þar af leiðandi seinkun á skráningu
fyrirtækisins á hlutabréfamarkað
erlendis hafi orðið til þess að hluta-
bréf fyrirtækisins lækkuðu nokkuð í
verði fyrir um tveimur vikum. Hins-
vegar hafi fréttir um að von sé á til-
kynningum frá íyrirtækinu um já-
kvæðan árangur af rannsóknar-
starfsemi aukið eftirspurn eftir
hlutabréfum.
Engin þörf á skráningu strax
Um miðjan júní sl. var undirritað-
ur samningur um kaup FBA,
Landsbankans, Búnaðarbankans og
eignarhaldsfélagsins Hofs á um
17% hlut í DeCODE Genetics, eign-
arhaldsfélagi Islenskrar erfðagrein-
ingar, fyrir rúma sex milljarða
króna.
Þá kom fram í máli forstjóra Is-
lenskrar erfðagreiningar, Kára
Stefánssonar, að stefnt væri að
skráningu félagsins á alþjóðlegum
markaði fyrir lok ársins.
I viðtali við Kára á Reuters á
fóstudag kemur fram að engin
ákvörðun hafi verið tekin um skrán-
ingu DeCODE á markað á næst-
unni. Hann sagði, samkvæmt morg-
unfréttum F&M í gær, að engin
þörf væri á því á þessari stundu þar
sem fyrirtækið hefði úr nægu fjár-
magni að spila í bili. Þegar tíminn
kæmi yrði fyrirtækið skráð á mark-
að þannig að sem mest fé fengist
inn í fyrirtækið. Kári sagði að í
fyrra hefði verið fyrirhugað að skrá
DeCODE á dönskum markaði en
hætt hefði verið við þau áform þeg-
ar markaðurinn þar í landi lækkaði.
----------------------
Mikið tilkynnt
um ólöglegan
hugbúnað
TALSVERT hefur verið tilkynnt
um ólöglegan hugbúnað í kjölfar
þess að BSA, samtök nokkurra
stærstu hugbúnaðarframleiðenda
heims, auglýstu eftir upplýsingum
um fyrirtæki sem nota ólöglegan
hugbúnað. Að sögn Sveins
Jónatanssonar, lögmanns BSA hér
á landi, hefur auglýsingin vakið
mikla athygli og töluvert verið
hringt út af henni, en eðli málsins
samkvæmt gæti hann ekki gefið
frekari upplýsingar þar sem trúnað-
ur væri mikilvægur varðandi mál af
þessu tagi.
Sveinn sagði að ef þær upplýsing-
ar sem bærast væra á rökum reist-
ar og nægilega vel rökstuddar þá
væri í sumum tilfellum haft beint
samband við viðkomandi fyrirtæki,
en ef talið væri að sönnunarstaðan
væri viðkvæm þá væri haft beint
samband við lögreglu.
„Við viljum hins vegar ekkert
láta uppi um einstök tilvik eða
hvort verið sé á grundvelli þessar-
ar herferðar að fara af stað á eftir
einhverjum aðilum, en þetta hefur
jú gerst í fjölmörgum tilfellum
gegnumsneitt," sagði Sveinn. „Við
erum búnir að vera að fá upphring-
ingar alveg frá því að fólk fór að
frétta af því að við værum að starfa
að þessum málum, og eftir að þessi
auglýsing kom út hefur það síst
minnkað."