Morgunblaðið - 20.10.1999, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1999 25
AP
Lundúnaaugað
RISAVAXIÐ Parísarhjól, sem
hlotið hefur nafnið Lundúnaaug-
að, hefur nú verið reist á syðri
bakkaThames í London, gegnt
þinghúsinu í Westminster, í til-
efni komandi aldamóta. Hjólið
vegur fímmtán hundruð tonn og
er 173 metra hátt. Á því verður
komið fyrir 32 „útsýnishylkjum"
og er gestum heitið því að út-
sýnið yfir borgina verði stórkost-
legt.
CIA neitar því að
árásin á Súdan
hafí verið mistök
Washington. AP.
GEORGE Tenet, yfirmaður banda-
rísku leyniþjónustunnar CIA, við-
urkenndi í fyrrakvöld að henni
hefðu orðið á nokkur mistök á síð-
ustu árum en neitaði því að
sprengjuárás Bandaríkjamanna á
lyfjaverksmiðju í Súdan á síðasta
ári væri á meðal þeirra.
„Við höfðum ekki rangt fyrir
okkur,“ sagði Tenet og bætti við að
ekkert hefði komið fram sem benti
til þess að árásin hefði verið tilefn-
islaus.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
fyrirskipaði árásina til að hefna
sprengjuárása hermdarverka-
manna á bandarísku sendiráðin í
Kenýa og Tansaníu sem urðu 224
að bana, þeirra á meðal tólf Banda-
ríkjamönnum.
Bandaríkjastjórn hefur haldið
því fram að verksmiðjan í Súdan
hafi framleitt efnavopn og tengst
Sádi-Arabanum Osama bin Laden,
sem er grunaður um að hafa staðið
fyrir hermdarverkunum. Stjómin í
Súdan neitar því að verksmiðjan
hafi tengst efnavopnaframleiðslu,
svo og sádi-arabískur kaupsýslu-
maður er segist eiga verksmiðjuna
og hefur hótað að höfða mál gegn
Bandaríkjunum. Jórdanskir og
breskir verkfræðingar, sem reistu
og ráku verksmiðjuna, segja einnig
að hún hafi ekki verið búin nógu
háþróuðum tækjum til að geta
framleitt efni til hemaðar.
Valdi ekki rangt skotmark
Tenet neitaði því að CIA kynni
að hafa valið rangt skotmark í Súd-
an, eins og í loftárásunum á Júg-
óslavíu þegar sprengju vai- varpað
á kínverska sendiráðið í Belgrad.
„Ég afsaka ekki þau mistök leyni-
þjónustunnar sem leiddu til
sprengjuárásarinnar á kínverska
sendiráðið," sagði hann. „Við vitum
núna hvað fór úrskeiðis og höfum
gert viðeigandi ráðstafanir.11
Tenet viðurkenndi einnig að
kjarnorkutilraunir Indverja á síð-
asta ári hefðu komið CIA í opna
skjöldu en bætti við að þrátt fyrir
slík mistök væri engin ástæða til að
véfengja upplýsingar leyniþjónust-
unnar um starfsemi verksmiðjunn-
ar í Súdan.
Gagnrýni á svissneskan þjóðernissinna kyndir
undir kosningabaráttunni
Sagður hafa tekið undir
afneitun helfararinnar
Ziirich. Reuters.
ÁSAKANIR um að einn bezt
þekkti stjórnmálamaður Sviss hafi
lofað bók eftir höfund sem heldur
því fram að helför nazista gegn
gyðingum hafi aldrei átt sér stað
hefur hleypt óvæntu lífi í daufa
kosningabaráttu fyrir þingkosning-
ar sem fram fara í landinu um kom-
andi helgi.
Blocher, sem á sæti á þingi, fer
fyrir Svissneska þjóðarflokknum
(SW) í Ziirich-kantónu. Skoðana-
kannanir benda til að flokkurinn
vinni talsvert á í kosningunum.
Pólitískir andstæðingar
Blochers, sem eru ófáir, hafa gert
að umtalsefni bréf nokkurt, sem
Blocher skrifaði fyrir tveimur árum
til stuðningsmanns í þakkarskyni
fyrir bók sem hann hafði sent hon-
um. Bókin er eftir Júrgen Graf og
ber titilinn „Um hnignun sviss-
nesks frelsis". Graf þessi hefur ít-
rekað vakið athygli með því að
halda því fram að helförin gegn
gyðingum sé uppspuni. Hann hefur
hlotið dóm fyrir að brjóta gegn
svissneskum lögum sem banna
kynþáttamismunun.
„Hann hefur rétt fyrir sér,“
skrifaði Blocher í hinu stutta þakk-
arbréfi, sem svissneskt dagblað
kom höndum yfir og birti í vikunni.
Þetta telja andstæðingar Blochers
til vitnis um að hann aðhyllist ekki
þau gildi lýðræðisins, sem séu
grundvöllur svissneskrar stjóm-
málahefðar.
Segir ásakanir
kosningaáróður
Blocher staðhæfir að hann hafi
aldrei lesið bókina, heldur aðeins
lagt út af titli hennar í umræddu
bréfi, sem skrifað hafi verið í
skyndi. Þessi ummæli Blochers
urðu skopmyndateiknara tilefni til
að teikna mynd af honum með bók
Adolfs Hitlers, „Mein Kamj>f‘, í
hendi, með þessi orð á vör: „Eg hef
aldrei lesið bókina, en titillinn er
fínn.“
Blocher segir ásakanirnar á
hendur sér ekkert annað en óm-
erkilegt skítkast. „Það er varla
nokkur annar maður sem er eins
skeleggur málsvari lýðræðisins og
ég,“ sagði hann í sjónvarpsviðtali á
mánudagskvöld. „Þetta er kosn-
ingaáróður sem á rætur að rekja til
ótta hinna stjómmálaflokkanna við
eigin ófarir [í kosningunum], vegna
þess að þeir hafa ekki gert neitt í
þágu svissnesks frelsis, vegna þess
að þeir hafa ekki staðið sig í að
verja hagsmuni Sviss, vegna þess
að þeir hafa stöðugt hækkað skatta
og vegna þess að þeir hafa ekki
leyst úr þeim vanda sem felst í mis-
notkun flóttamannalaganna," sagði
Blocher.
Hann er harður fylgismaður
hlutleysis Sviss og andstæðingur
nánari tengsla við Evrópusam-
bandið og finnur auknum straumi
innflytjenda flest til foráttu, svipað
og Jörg Haider, sigurvegari nýafst-
aðinna kosninga i Austurríki.
Baöinnréttingar
og hreinlætistæki
Fyrir stærstu
sem smæstu
baðherbergi.
Mánud.-föstud. 9-18
Laugard. 10-14
Síbumúla 34
Viá Fellsmúla
Sími 588 7332
Fax 588 7335
férslunin.is
http://www.
Innréttingar
m—log tæki