Morgunblaðið - 20.10.1999, Síða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1999
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Bruggað af
fíngrum fram
Hvalreki
MYJVPLIST
M o k k a
MYNDVERK
GÍSLI STEINDÓR
ÞÓRÐARSON
SIGURÐUR ÞÓR
ELÍASSON
Opið alla daga á tíma kaffihússins.
Til 5. nóvember. Aðgangur ókeypis.
ÞESSI öld gríðarlegra umskipta í
mannheimi hefur jafnframt lokið
upp mörgum hurðum er snerta
mannssálina og undirvitundina.
Ekkert hefur í jafn ríkum mæli
stuðlað að því og myndmálið, sem
verður æ stærri þáttur í daglegu lífí
og er undir stöðugri krufningu. Hér
kemur bæði til uppgötvun röntgen-
geislanna í kjölfar ljósmyndarinnar, í
lok síðustu aldar, sem og innsæi
listamanna sem voru heillaðir af
þessari tækni gegnumlýsingar hluta,
jafti uppnumdir og þeir eru á síðustu
tímum af nýjustu hátækni á sviði
tölvunnar er opnar þeim ný og áður
óþekkt svið. Hin teiknandi hendi
mannsins er framlenging sálarinnar,
sagði franski málarinn Matisse í
upphafí aldarinnar, og voru það orð
að sönnu. Við það má bæta að rissið
og myndmálið er orðið nýtt og full-
gilt lesmál við hlið bókmálsins og
sjónmenntir jafngildar bókmennt-
um, sem þær hafa raunar alltaf verið
þótt sums staðar hafi mönnum alls
ekld verið það Ijóst, jafnvel þótt hin
mesta fjarstæða. Þá hafa menn upp-
götvað að skapandi myndræn tján-
ing afhjúpar innri tilfinningar og er
kannski besta meðalið til að kanna
sálarlíf sjúklinga, einkum ef veikindi
þeirra eru geðræns eðlis eða með-
fæddur galli, einhverfír og/ eða
þroskaheftir. Menn hafa uppgötvað
að geðsjúkir eru einstaklega hug-
myndaríkir í myndrænni tjáningu og
hafa oftar en ekki eðlislæga tilfinn-
ingu bamsins lyrir litasampili, sem
það tapar er fram líða stundir eins og
svo mörgu upprunalegu, einkum þar
sem svonefnd, siðmenning, hefur
rutt sér rúms. Aður var vitað að í
sumum tilfellum er biiið stutt milli
snilligáfu og brjálsemi og sumir lista-
menn hafa raunar lengstum verið
með annan fótinn á geðsjúkrahúsum
eða dvalið á þeim aímarkaðan tíma.
Frá því Goethe leið hafa engir í
jaih ríkum mæli rannsakað sálræn
áhrif lita, forma og lína og módem-
istar aldarinnar og má hér nefna þá
Paul Klee og Max Emst, en sá síðar-
nefndi var um skeið umsjónarmaður
á geðsjúkrahúsi og fékk mikinn
áhuga á myndrænni tjáningu sjúkl-
inganna. Það er þetta beina sam-
band við miðilinn sem þetta fók hef-
ur í svo ríkum mæli sem er svo
mikilvægt. Er einfaldlega að tjá sig á
svipaðan hátt og það fyrsta sem
ungabamið gerir þegar það fær blý-
ant eða liti í hönd, er að fara eftir
hrynjandi hjartsláttarins og geð-
sveiflum sínum. Þessar hugleiðingar
era settar á blað vegna sýningar
tveggja vistmanna á sambýlinu að
Lækjarási 8, á veggjum Mokka kaffi,
þeirra Gísla Steindórs Þórðarsonar
og Sigurðar Þórs Elíassonar. Báðir
era þeir einhverfir, þroskaheftir og
heymarlausii' og mætti í fljótu
bragði álykta að heimurinn sé þeim
lokuð bók. En svo er þó ekki því
myndlist þeirra segir okkur að hér
er um skyni gædda einstaklinga að
ræða, þótt fullmikið hafi þeir ekki af
því sem aðrir hafa og eðlilegir teljast.
I Ijósi þess að hér er einungis um
afrakstur eins námskeiðs að ræða,
auk nokkurrar tilsagnar áður, er um
eftirtektarverðan árangur að ræða
sem vonandi verður til þess að
myndsköpun verði stærri þáttur í lífi
þeirra í framtíðinni. Opni þeim dyr
sköpunargleðinnar og auðveldi jafnt
læknum sem starfsfólki að þrengja
sér nær vitundarlífi þeirra.
Sýningin er líka sláandi dæmi
þess hvemig unnt er að lesa í myndir
þessa fólks, þótt ekki sé iyrir annað
en á hve ólíkan hátt þeir nálgast
miðla sína, eins og um tvö tungumál
væri að ræða. Myndir Sigurðar Þórs
era dimmar og byggjast á endur-
teknu hryni, og hann notar mest
finguma við gerð pastelmynda
sinna, strýkur litina út með fingrun-
um. Litavalið og styrkur áferðarinn-
ar fer eftir líðan hans, þannig að hér
era hinai' skynrænu kenndir á fullu
líkt og hjá baminu. Gísli Steindór
vinnur eftir íyrirmyndum, eftirgerir
myndir í þá veru sem honum dettur í
hug hverju sinni og era myndir hans
með öllu glaðlegara yfirbragði, auk
þess að lithljómurinn er ferskari.
Eitt námskeið segir sjaldnast mikið
um hæfileika viðkomandi, hvort sem
um fatlað eða ófatlað fólk er að ræða,
en sýningin staðfestir svo ekki verð-
ur um villst gildi þess að halda skap>-
andi athöfnum að fólki á þroskastigi
þeirra Gísla Steindórs og Sigurðar
Þórs.
Bragi Ásgeirsson
Tilvera undir sól, 1999.
Leiðrétting
Mynd snúið við
VEGNA mistaka í vinnslu Lesbók-
ar 2. október sl. var mynd af mál-
verki Jóhönnu Bogadóttur, Tilvera
undir sól, birt á hvolfi. Um leið og
beðist er velvirðingar á mistökunum
er myndin birt aftur á réttum kili.
í Hafnarborg, menningar- og
listastofnun Hafnarfjarðar, stendur
nú yfir sýning á olíumálverkum Jó-
hönnu, undir yfirskriftinni Frá
Skeiðará til Sahara. Sýningin er op-
in alla daga nema þriðjudaga kl. 12-
18 og henni lýkur sunnudaginn 24.
október.
LIST OG
HÖJYNlJjV
Thomas Hauffe
HÖNNUN
SÖGULEGT
ÁGRIP
Háskólaútgáfan 1999.
Kilja, 198 bls.
ÚT er komið yfirlitsrit um sögu
hönnunar eftir þýska listsögufræð-
inginn Thomas Hauffe, sem einnig
bætti við sig félags- og hagsögu í
Bochum. Er þannig um hámennt-
aðan mann í þessum fræðum að
ræða, doktor að auki, og fjallaði
lokaritgerð hans um nýju þýsku
hönnunina, á níunda áratugnum.
Starfar að útgáfu bóka
um listir og listasögu.
Eðli hugtaksins hönn-
un hefur lengi velkst fyrir
Islendingum, hönnunar-
saga er ekki til í íslenzku
skólakerfi, frekar en sjón-
menntasaga. Fyrir vikið
má segja margar ófagrar
sem skoplegar sögur af
fáfræði landans, einna
neyðarlegast er að fólk
hefur í nýjungagimi farg-
að og fleygt í haugana
ómældum tonnum af ekta
og fágætum hlutum, til að
rýma fyrir nýjum og
fjöldaframleiddum sem
lítið hönnunar- minja og
markaðsgildi hafa. Þá var
hönnun bannorð í fataiðn-
aði til skamms tíma, enda
nær allar hugmyndir um
snið og skreyti sóttar í er-
lend vikurit og tízkublöð,
og tíðkast því miður enn í
alltof ríkum mæli. Verðmæti frum-
legrar sköpunar í hönnun er þó
óumdeilanleg og snjallir nafn-
kenndir hönnuðir ytra hafa allar
klær úti gegn eftirlíkingum, sumir
með lögmenn á fullum launum, sem
gera ekkert annað en að eltast við
falsanir eins og ég hef endurtekið
vísað til. Hér hafa menn hins vegar
skjól af einangran og fáfræði til
ýmissa vafasamra verka hvort
tveggja í hönnun og myndlist,
ásamt örmarkaði sem lengstum
hefur skipt heiminn harla litlu.
Ritið er eins konar hraðnámskeið
í hönnun eða, Design, eins og menn
nefna fyrirbærið í útlandinu, er sem
slíkt hvalreki á fjörur óþolinmóðrar
þjóðar á harðahlaupum eftir hrað-
soðnum nýjungum og fróðleik í
smáskömmtum, sem illu heilli ein-
kennir kennslukerfið og gegnsýrir
þjóðfélagið. En fagið sem hugtakið
hefur fengið slíkan byr undir báða
vængi ytra, að það er að skipa sér
við hlið listasögu sem sjálfstæður
geiri sagnfræði. Eins og segir í for-
mála; „flæðir ört vaxandi fjöldi
bóka um einstök svið hönnunar og
hönnunarsaga er á bestu leið með
að verða sjálfstæð fræðigrein eins
og listasagan. Lengst á veg komin
er þessi unga grein á Bretlandseyj-
um og frá árinu 1977 hefur þar ver-
ið starfrækt sérstakt félag um
hönnunarsögu og óvíða er að finna
jafn marga hönnunarsagnfræðinga.
I öðram löndum eru það einkum
listsagnfræðingar (listsögufræð-
ingar), blaðamenn fagtímarita og
jafnvel hönnuðirnir sjálfir sem
fjalla um efnið“. Þar segir ennfrem-
ur, að samanborið við listasöguna
er framboðið af bókum um hönnun-
arsögu takmarkað og áhugasamir
eiga oft ekki annarra kosta völ en
að ganga út frá afmörkuðu hönnun-
arsviði og leita svo á náðir lista-
sögubóka til að afla sér frekari
þekkingar.
Þrátt fyrir að ritið sé með
minnsta móti eru efnistök og frá-
gangur slíkur að skiptir sköpum um
útgáfu listaverkabóka hér á landi,
prentunin mjög góð og litmyndir
skýrar þótt litlar séu, hins vegar
tapa svart-hvítar myndir sér eðli-
lega meira við slíka minnkun. Hér
er dregin saman í hnotskurn viða-
mikill fróðleikur eins og sjá má af
efnisyfirlitinu; Hvað er hönnun/
Forsaga/Iðnbyltingin/ Umbóta-
hreyfingar/ Upphaf módernismans/
Bylting og framúrstefna/Lúxus og
vald/Viðreisn eftir strið/Góð hönn-
un“ og „falleg hönnun“/Tilraunir og
andhönnun/Eftir módemismann.
Þá eru vel að merkja viðaukar:
Orðaskýringar/ Afangar í sögu
hönnunar/ Hönnunarsöfn og -sýn-
ingar/ Ritaskrá/ Atriðaorðaskrá/
Nafnaskrá/ Myndaskrá. Er þannig
jafnframt hafsjór skilvirkni við út-
gáfu listaverkabóka og mikilvægur
lærdómm- um þá hlið sem hérlendir
hafa vægast sagt verið áttavilltir í
til þessa. Það inniheldur meiri fróð-
leik þótt ágripskenndur sé en
margur íslenzkur doðranturinn og
er afar handhægt og upplýsandi
uppflettirit. Hér kemur glettilega
vel fram hve víðtækt svið hönnunar
er, en á því hef ég verið að hamra í
áratugi í skrifum mínum og rekið
mig á marga þykka og járnbenta
veggi, myrkviði fáfræði og for-
dóma. En nú er þetta loks komið á
prent á landi hér, að auki frá út-
landinu og ættu þá ýmsir vantrúað-
ir að láta sannfærast. Um er að
ræða svo mikilvægan áfanga um
miðlun upplýsinga um gildi sjón-
mennta og sjónmenntasögu að Hkja
má við opinberan, skref inn í nýja
öld, og ritið ætti að vera til á hverju
heimili.
Næsta vonlaust er að koma öllu
að í almennri og knappri umsögn,
og án þess að teygja lopann fram úr
öllu valdi þar sem um frumútgáfu
upplýsingarits um hönnun hér á
landi er að ræða, en vitaskuld mun
ritið verða vegið og metið er fram
líða stundir og lengi skara umfjöll-
un um sjónmenntir. Lýk skrifinu
með upplýsandi upptalningu á um-
fangi hönnunar, sem tekin er orð-
rétt og athugasemdalaust úr ritinu;
Ásýndarhönnun / Tölvuviðmóts-
hönnun / Iðnhönnun / Híbýlahönn-
un / Opinber hönnun / Tízkuhönnun
/ Bílahönnun / Grafísk hönnun /
Hugmyndahönnun / Tölvustudd
hönnun / Upplýsingahönnun / Um-
búðahönnun / Samskiptahönnun /
Framúrstefnuhönnun / Vélbúnað-
arhönnun / Table-Top-hönnun
Counter-hönnun / Róttæk hönnun /
Fjölmiðlahönnun / Andhönnun /
Endurhönnun / Kvikmyndahönnun
/ Hljómhönnun / Objekthönnun /
Hugbúnaðarhönnun. Eins og fram
kemur hefur ekki tekist að þýða öll
heitin, og hér er að auki hægast að
bæta ýmsu við svo sem samgöngu-
hönnun, hönnun drauma og
ímynda, jafnt í kvikmyndum leik-
húsverkum sem bókmenntum al-
mennt...
Þýðingin er verk Magnúsar
Diðriks Baldurssonar, en hér hef ég
ekki samanburð. Þó kemur fram að
hann hefur eðlilega lent í erfiðleik-
um við að íslenzka ýmis sérheiti.
Sérfræðileg ráðgjöf var í höndum
Baldurs J. Baldurssonar. Bókin var
uppranalega gefin út í Þýskalandi
af DuMont-forlaginu í Köln og er
prentuð á Italíu af Editorale Lloyd.
Bragi Ásgeirsson
Nýkomið í sölu stórglæsilegt 327 fm einbýli ásamt
32 fm bílskúr við Kjarrveg. Fallegar og vandaðar
innréttingar, m.a. nýtt eldhús, glæsilegar stofur
með arni, parket, flísar og falleg verönd með heit-
um potti. Ahv. 11 millj. Verð 33 millj. (1161).
Ýmsar gerðir framúrstefnu í almennri
hönnun á öldinni.