Morgunblaðið - 20.10.1999, Síða 33

Morgunblaðið - 20.10.1999, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1999 33 urlusonar rtil míboði aðeins að því, sem erfítt sé að sýna fram á, sé einfaldlega hafnað, rétt eins og gerst hafi með Vínlandskortið og Kensington-steininn, sem síðan hafi verið úrskurðuð sem upprunalegar heimildir. Hann rifjar upp að það hafi vakið mikla athygli og ólgu þegar Vín- landskortið, þar sem segir frá Vín- landsfundi Leifs heppna, hafi verið úr- skurðað upprunalegt. Margir hafi tekið það óstinnt upp að Kólumbus væri sviptur heiðrinum. Heyerdahl hnykkir á að Leifur hafi komið til Vínlands um 500 árum á und- an Kólumbusi, en ekki í landaleit held- ur sem kristinn trúboði. Lilliestrpm bendir á að Vínlandskortið frá 1440 hafi einmitt verið gert til að sýna fram á hve kirkjan hafi snemma náð frá Kína í austur til Ameríku í vest- ur. TOgátu sína um portugölsku þrælasalana segist hann byggja á páfabréfi frá 1448, þar sem segi frá þessum at- burðum. Heyerdahl er á því að siðaskiptunum megi að mörgu leyti kenna um hve elsta saga norrænna manna sé óljós. Með þeim hafi Norðurlöndin fallið í ónáð hjá páfastóli og um leið verið dregið úr vægi þeirra í mann- kynssögunni. Ymsar heimildir séu þó enn varðveittar í skjalasafni páfagarðs og einnig séu til margar mikilvægar arabískar heimildir um norrænar miðaldir. „Þar hef ég skoðað mikið efni sem flestum er ókunn- ugt,“ segir Heyerdahl. Að sögn þeirra Heyer- dahl og Liiliestrom von- ast þeir til að bókin veki upp umræðu og bæti við vitneskju manna. „Tilgangur okkar er ekki að leggja fram nýtt fræðirit, heldur ýta undir nýjar hugmyndir og umræður um mikilvæg tímabil og heimildir um sögu okkar,“ segir Heyerdahl að lok- um. Fornleifafræðingur og sægarpur ^ Thor Heyerdahl er nýorðinn 85 ára og hefur á langri starfsævi orðið þekktur sem fornleifafræðingur og sæ- garpur. Kenningar hans um sjóferðir fyrri tíma hafa á stundum þótt ævin- týralegar, rétt eins og leiðangrarnir frægu sem hann fór yfir Kyrrahafið á balsaviðarflekanum Kon-Tiki og yfir Atlantshafið á sefbátunum Ra I og Ra H. Árið 1951 fékk Heyerdahl Óskars- verðlaun í flokki heimildarmynda fyrir mynd sem hann gerði um Kon-Tiki- leiðangurinn árið 1947, en í ferðinni Iagði hann að baki átta þúsund kíló- metra á balsaviðarflekanum Kon-Tiki, frá Perú til Pólýnesíu. Heyerdahl sigldi ásamt fímm félögum sínum í þeim tilgangi að sanna þá kenningu sína að íbúar Kyrrahafseyja hefðu get- að komið frá Suður-Ameríku en ekki frá Suðaustur-Asíu. Heyerdahl hefur skrifað fjölda bóka um leiðangra sína og sett fram kenn- ingar um sjóferðir fyrri tíma en sú kenning hans sem hefur mestan hljóm- gi-unn fengið, er kenning hans um upp- runa Pólýnesíumanna, sem Kon-Tiki- leiðangurinn var einmitt farinn til að sýna fram á. Undanfarin ár hefur Heyerdahl búið á Tenerife, einni eyja Kanaríeyja, með eiginkonu sinni sem hann hitti fyrir tæpum áratug á Kanaríeyjum. Heyerdahl kom hingað til lands um síðustu jól og dvaldi hér í eina viku, m.a. til að kynna sér Islendingasögurn- ar og ræða við íslenska fræðimenn í þeim tilgangi að aíla sér vitneskju um siglingar norrænna manna um Atlants- hafið fyrr á öldum. S? Arkitekt íslenska sendiráðsins segir mikla reynslu að vinna að stóru heildarverkefni Við hönnun sendiráðsins þurfti að hugsa lóðrétt - ekki lárétt Morgunblaðið/NORDFOTO Unnið var hörðum höndum við frágang á ldð sendiráðanna í gær. Hér er norski listamaðurinn Finn Schjoell að koma fyrir bldmaskreytingu. Ólafssonar og húsgögnin í Desformi. Líparítið var sagað í Steinsmiðjunni. Þar sem húsið er ekki klætt lípar- íti að utan bylgjast steypan eins og bárujárn. Pálmai- sagði að það væri með ráðum gert og hefði hann rneð því viljað vísa í þá hefð, sem er á Is- landi fyrir því að nota bárujárn. Það hefði hins vegar komið illa út vegna koparsins að nota járn í bygginguna og því hefði hann ákveðið að láta bárujárnsformið koma fram í steyp- unni. Talsverður munur er á íslenska sendiráðinu og hinum sendiráðun- um. Ljóst líparítið einkennir það ís- lenska, en í hinum fær gler meira vægi og eru rimlar úr viði utan á glerinu sem klæðir finnska sendiráð- ið. Pálmar sagði að hann hefði viljað nota það byggingarefni, sem ein- kennandi væri fyrir Island, og það væri steinn. Viður væri hins vegar meira einkennandi byggingarefni fyrir Finnland og Finnar væra einnig þekktir fyrir gleriðnað. Þá mætti bæta því við að íslenska sendi- ráðið væri að mörgu leyti opnara þegar inn í það væri komið en hin sendiráðin. Hugmyndir Pálmars voru valdar í samkeppni, sem haldin var um bygg- ingu sendiráðs árið 1996, en áður hafði verið haldin samkeppni um sameiginlega svæðið í Evrópusam- bandinu auk íslands og Noregs og bárast nokkur hundrað tillögur í hana. Pálmar sagði að það hefði ver- ið strembið að vinna með þetta svæði þar sem settar hefðu verið mjög ákveðnar skorður. Byggingin hefði orðið að vera jafn há og hinar sendi- ráðsbyggingarnar - 14 metrar - en hún hefði verið á minnstu lóðinni. Stiginn hefði því verið aðalatriði og við hönnun hússins hefði þurft að hugsa lóðrétt en ekki lárétt eins og venjan væri á Islandi. Hafist var handa við að reisa sendiráðin árið 1997 og hin ýmsu verk síðan unnin í þeirri röð, sem verktakinn kaus. Is- lendingar fluttu síðan inn í júní og vora fyrsta þjóðin tii að flytja inn í sendiráð sitt á sameiginlega svæð- inu. Sameiginlegu framtaki veitt athygli „Ég held að það hafi verið rétt ákvörðun að halda sig saman,“ sagði Pálmar. „Þessu sameiginlega fram- taki hefur verið veitt athygli vegna þess að það er stórt, en það er þó það lítið að það er manneskjulegt. Þetta er ekki eins og til dæmis á Potsdamer Platz þar sem bygging- arnar eru ekki 14 metrar heldur 14 hæðir.“ Þegar margir aðilar með mismunandi þarfir koma að sama verkefni getur oft*’ verið erfitt að ná saman. Munurinn á þörfum Islendinga og norrænu frændþjóðanna hefur sennilega komið einna sterkast fram í mismunandi öryggiskröfum. Aður en komið er inn á litla torgið, sem sendiráðin standa við, þarf að fara í gegnum móttöku og gera grein fyrir ferðum sínum. Þegar komið var í ís- lenska sendiráðið sjálft gátu gestir og gangandi gengið inn án þess að gerðar væru athugasemdir og var aðeins farið gegnum einar dyr, sem í gær voru opnar. í sænska sendiráð- inu var ekki eins auðvelt að komast leiðar sinnar. Þar þurfti að ganga í gegnum tvennar dyr, sem greinilega eru aldrei opnar hvorar tveggja í- - einu, og í móttöku er enn spurt um erindi viðkomandi. Pálmar sagði að öryggismál hefðu ekki verið ofarlega á lista Islendinga, en í þeim efnum hefði orðið að lúta vilja samstarfsaðilanna. Þannig hefði ekki mátt gefa út teikningu af sendi- ráðinu vegna þess að það jafnaðist á við leiðarvísi fyrir þá, sem kynnu að vilja koma illu til leiðar. Þegar reynt var að halda fram að óþarfí væri að hafa skothelt gler þar sem íslenska sendiráðið vísar út að götunni vegna þess að enginn færi að skjóta á Is- lendinga var bent á að þá væri hægt að skjóta í gegnum íslenska sendi- ráðið og inn í það norska. Norrænu sendiráðin í Berlín verða form- lega tekin í notkun í dag, en þau eru öll reist á sömu lóðinni. Um 20 arkitektar komu að hönnun sendiráðanna, en Pálmar Kristmundsson er arkitekt íslenska sendi- ráðsins. Hann segir að við hönnun sendi- ráðsins hafí hann lagt áherslu á að nota ís- lenskt efni í bygginguna. RÆNU koparskildirnir, sem mynda vegginn ut- um sameiginlega sendiráðslóð Norður- landanna, vekur strax athygli þess, sem á leið framhjá, og strætisvagnastöðin fyrir utan hefur þegar hlotið heitið Norrænu sendi- ráðin þótt þau verði ekki opnuð formlega fyrr en í dag. Þegar komið er inn á svæðið þar sem í gær úði og grúði af starfsfólki, sem var að setja upp ljósabúnað fyrir beina útsend- ingu frá athöfninni á stöðvunum ARD og NTV, ganga frá sviði og draga fána Norðurlandanna að húni og niður aftur, er gengið inn í sameiginlega bygg- ingu. Þar verður meðal ann- ars hægt að setja upp sýn- ingar og í gær var komin upp ljósmyndasýning nor- rænna ljósmyndara þar sem meðal annars getur að líta myndir af víkingum eft- ir Pétur Maack. Til hliðar við sameigin- legu bygginguna er torg og við það standa frá vinstri til hægri danska, íslenska, norska, sænska og finnska sendiráðið og var hvert hús reist út frá þeim forsend- um, sem heildin setti. „Það er mikil reynsla og skemmtilegt að taka þátt í verkefni sem þessu þar sem hugsa þarf um heildina," sagði Pálmar Kristmunds- son, arkitekt íslenska sendi- ráðsins, sem í gær var að fylgjast með lokaundirbún- ingnum. „Hér koma saman hugmyndir fimm arkitekta frá Norðurlöndunum, sem komu inn í áætlunina um heildar- skipulagið, og mér finnst þær eiga vel saman.“ Reynt að nota íslenskt efni Pálmar kvaðst hafa reynt að not- ast við íslenskt efni og vísa í íslensk- an byggingarstíl við hönnun húss- ins. I litlum garði við horn svæðis- ins, sem vísar að götunni, væru hraunhellur af Reykjanesi og undir þeim logaði rautt ijós, en að utan væri sá hluti sendiráðsins, sem rúmaði skrifstofur, klæddur líparíti, sem einnig væri gosefni. Þar kölluð- ust því á hrátt grjótið úr iðrum Is- lands og efnið þegar það hefði verið unnið. Líparít hefur ekki verið notað áð- ur við húsbyggingar. Líparítið í sendiráðinu hefur þurft að uppfylla ströng skilyrði á leiðinni frá Hamarsfirði við Djúpavog til hverfis- ins Tiergarten í Berlín. Sakir þess að um óreynt byggingarefni er að ræða þurfti að kanna hvort það stæðist þýska byggingarstaðla og í hálft ár stóðu yfir prófanir á kuldaþoli og ýmsu öðru. Grjótið var fryst og þítt áður en leyfi fékkst. í gólfi sendi- ráðsins er íslenskt grágrýti og Pálm- ar hannaði bæði fastar innréttingar og húsgögn. Innréttingarnar vora smíðaðar í Smíðastofu Sigurðar Hann sagði að sér þætti heildar- myndin einnig falla vei inn í um- hverfið og sú ætlan höfundanna, arkitektanna Aifreds Bergers og Ti- inu Parkkinens, að grænn kopar- veggurinn félli inn í iandslagið og yrði eins konar mótvægi við grænar laufkrónur trjánna hinum megin við götuna hefði gengið upp. Pálmar sagði að ekki sakaði að sendiráðið væri sérlega vel staðsett, skammt^ frá Fílharmóníunni og Potsdamer Platz. Á þessu svæði væru um 60 þjóðir að reisa sér sendiráð. Lóðin hefur tengst Norðurlöndum frá upphafi þessa áratugar. Árið 1912 keypti sænska ríkið sér þar lóð undir sendiráð og skömmu áður en heims- styrjöidin síðari braust út keyptu Finnar sér lóðina við hliðina. Eftir þrotlausa samninga tókst Finnum og Svíum síðan að kaupa lóð- irnar aftur af Berlínarborg og þriðju lóðina keyptu Danir af sambandslandinu Hessen. Rúmlega tuttugu arki- tektar komu að sendiráðs—* byggingunum og hönnun heildarsvæðisins og þurfti því gífurlegrar samhæfing- ar við. Pálmar sagði að sér fyndist hins vegar að heild- aráhrifin væra greinilega meiri en framlag einstak- linganna. Mismunandi öryggis- þarfír Halldór Ásgrímsson um opnun norrænu sendiráðanna í Berlín Mikilvægur dag ur fyrir Island Berlín. Mor^unblaðið. ÞJÓÐHÖFÐINGJAR Norður- landanna komu til Berlínar einn af öðrum í gær til að vera við- staddir opnun norrænu sendiráð- anna í dag. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti íslands, sem flytur ávarp við opnunina þar sem Island er í forsæti í Norður- landaráði, kom síðdegis í gær frá London og Haildór Ásgrímsson utanríkisráðherra kom undir kvöld frá Kænugarði. Haiidór sagði að það væri mjög táknrænt að Norðurlöndin væru að opna saman sendiráð í Berlín. „Jafnframt er Þýskaland okkar helsta viðskiptaland og Þjóðverjar hafa reynst okkur mjög vel í samstarfínu í Evrópu," sagði Halldór. „Þetta er því mjög mikilvægur dagur fyrir ísland.“ Auk fullrúanna frá íslandi eru viðstödd Margrét Danadrottning, Haraldur Noregskonungur, Martti Alitisaari, forseti Finn- lands, og Karl Gústav Svíakonun- ungur ásamt mökum sínum. Þá eni hér Tarja Halonen, utanrík- isráðherra Finnlands, Niels Hel- veg Petersen, utanríkisráðherra Danmerkur, Knut Vollebæk, ut- anríkisráðherra Noregs, og Anna Lindh, utanríkisráðherra Sví- þjóðar. f gærkvöldi hélt hljómsveitin Orkester Norden eða Norræna hljómsveitin, sem skipuð er hljóðfæraleikurum yngri en 25 ára, tónleika f Berlínarfílharm- óníunni undir stjórn Okkos Kam- us. Á tónleikunum voru leikin verk eftir norræn tónskáld, þar á meðal píanókonsert Edwards Griegs þar sem Peter Jablonski lék einleik, fiinmta sinfónía Jeans Sibeliusar, Hanadansin úr óper- unni „Maskarade" eftir Carl Ni- elsen og verkið Tokkata fyrir hljómsveit, sem Karólína Eiríks- dóttir samdi sérstaklega af þessu tilefni. Karólína var viðstödd tón- leikana og tók við blómvendi eft- ir flutning verksins. Hún sagði að við samningu verksins hefði hún haft að leiðarljósi að allir fengju p eitthvað spennandi að fást við. í hléi heilsuðu þjóðhöfðingj- arnir og utanríkisráðherrarnir upp á gesti í fílharmóníunni, en að tónleikunum loknum þáðu þjóðhöfðingjarnir léttan kvöld- verð í boði Danadrottningar og Hinriks prins á lótel Adlon við Brandenborgarliliðið. *

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.