Morgunblaðið - 20.10.1999, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVTKUDAGUR 20. OKTÓBER 1999 3%
___________UMRÆÐAN_
Beinþynning -
faraldur 21. aldar
f DAG, 20. október,
er alþjóðlegi bein-
vemdardagurinn.
Hann er haldinn til að
vekja athygli á bein-
þynningu sem rætt er
um sem faraldur 21.
aldarinnar. Hérlendis
verða a.m.k. 1.000 ein-
staklingar árlega fyiir
beinbrotum sem rekja
má til beinþynningar.
Hvert slíkt brot er
þjóðfélaginu dýrt í
formi útgjalda til með-
ferðar og endurhæf-
ingar, en ekki síður
vegna þjáninga, vinnu-
taps og félagslegra
erfiðleika sjúklinganna. Oft er rætt
um beinþynningu sem hinn þögla
sjúkdóm vegna þess að hún hefur
fengið minni umfjöllun en margir
aðrir dramatískari sjúkdómar og
einnig vegna þeirrar staðreyndar
að sjúklingarnir hafa iðulega borið
þjáningar sínar í
hljóði. Þetta er í fjórða
sinn sem alþjóðadagur
beinvemdar er hald-
inn, en fyrsta sinn sem
Island tekur virkan
þátt. Það era Alþjóða-
samtök beinþynningar
(IFO) sem standa að
deginum í samvinnu
við Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnunina
(WHO), en Gro Har-
lem Brandtland fram-
væmdastjóri WHO
hefur lýst því yfir að
nauðsynlegt sé að
gera tillögur um að-
gerðir á heimsvísu til
að sinna forvömum og meðferð
beinþynningar. Beinvemd, sem er
landssamtök áhugafólks um bein-
þynningu, var stofnuð 12. mars ár-
ið 1997. Formaður Beinvemdar er
Ólafur Ólafsson formaður Félags
eldri borgara og fyrrverandi land-
Beinvernd
Sjúklingarnir, segir
Anna Björg Aradóttir,
hafa iðulega borið þján-
ingar sínar í hljóði.
læknir. Markmið Beinvemdar era:
að vekja athygli almennings og
stjómvalda á beinþynningu; að
standa að fræðslu og rannsóknum
um orsakir, meðferð og leiðir til
vamar beinþynningu; og að eiga
samskipti við erlend félög á svipuð-
um grandvelli. Beinvemd hefur
m.a. staðið fyrir kynningu og
fræðslu um beinþynningu, bæði
fyrir almenning og heilbrigðisstétt-
ir. Gefnir hafa verið út tveir bæk-
lingar, annar fjallar almennt um
orsakir og áhættuþætti beinþynn-
ingar, en hinn um líkamsrækt og
Anna Björg
Aradóttir
beinþynningu. í nóvember á sl. ári
var haldinn samráðsfundur um for-
vamir og meðferð beinþynningar
þar sem m.a. var rætt um umfang
vandamálsins og greiningu þess,
en meiri gaumur gefinn að því
hvernig hægt er að veijast sjúk-
dómnum. Þar var t.d. fjallað um
mikilvægi kalks og D-vítamíns í
fæðunni, gildi líkamsræktar, og
það að forðast reykingar og neyta
áfengis og kaffis í hófi. Stofnaðar
hafa verið svæðisdeildir í öllum
landsfjórðungum til að ná betur til
íbúanna þar og virkja á þann hátt
fleiri í baráttunni gegn beinþynn-
ingu.
Það er von okkar í samtökunum
Beinvemd að viðburðir dagsins
veki athygli sem flestra og menn
verði þannig fróðari um beinþynn-
ingu og hvemig megi verjast
henni.
Höfundur er stjórnarmaður í sam-
tökunum Beinvernd.
HAGFISKUR
- hagur heimilinna
5677040
Rækja, humar, hörpuskei.ýsa.lúða.siungur.laxofi.
FRI HEIMSENDING
lief hafiö sölu
á glæsilegum
samkvæmisfatnaöi,
pilsum, drögtum
og toppum frá
f Ronald Joyce
London.
f 3 'A
Ra^Iia, Garðatorgi.
sími 565 6680
Opið kl. 9-16. lau. kl. 10-12
!
FBA og lýð-
ræðismálin
VIÐ stöndum nú
frammi fyrir mikilli
umræðu og uppstign-
ingu kvenna í átt til
lýðræðis. Get ég ekki
orða bundist með að
segja frá reynslu
minni af þeim málum.
Fjárfestingarbanki
atvinnulífsins (FBA)
er í sókn á fjármála-
markaðnum. Þar er
ungt fólk um borð og
slagorð bankans er
„FBA - ný hugsun,
nýjar leiðir, tækifæri
fýrir þig!“
Þegar ég fór af stað
að finna mér nýtt
starf, valdi ég FBA m.a. vegna
þess að mér fannst verkefnin þar
spennandi og ólík fyrri störfum
mínum. Að ekki sé talað um það
hvað mér finnst liturinn fallegur á
merkinu, „þessi blái“ enda er eld-
húsið mitt í sama lit. Ég kastaði
veiðarfæram mínum út til þeirra.
Með menntun mína og starfsferil á
önglinum og FBA beit á agnið.
Eg var ráðin í deild hjá FBA
sem heitir reikningshald og áætl-
anir. Þar era bara starfandi konur
og hefur deildin stundum verið
kölluð saumaklúbburinn.
Eftir að hafa starfað í deildinni í
stuttan tíma, fann ég það að yfir-
maður saumaklúbbsins (kona)
hafði samþykkt ráðningu mína, en
ekki þátttöku mína í saumaklúbbn-
um, vegna fyrri starfa minna.
Þetta fékk ég staðfest þegar í ljós
kom að fela átti starfsferil minn í
kynningunni um mig, sem starfs-
mann FBA á Netinu. Það er mín
skoðun að mér hefði ekki verið
boðið upp á þetta, nema vegna þess
að ég er kona. Þegar ég gaf þetta
ekki eftir var ekki um annað að
ræða af hennar hálfu, en að ég
hætti störfum hjá FBA.
Ég á glæsilegan 15 ára starfsfer-
il að baki m.a sviði stjórnunar,
ásamt ýmsu öðra, hjá Islands-
banka hf. En þar era konum og
körlum gefin jöfn tækifæri til þess
að njóta sín í starfi.
Framkoman sem ég hef sagt frá
hér, gæti hafa tíðkast á tímum Brí-
etar Bjarnhéðinsdóttur. En eins og
flestum er kunnugt, barðist hún
iyrir kosningarétti íslenskra
kvenna fyrr á öldinni.
Nú lifum við rétt fyrir
aldamótin 2000. Og
ráðstefnu Hillary Rod-
ham Clinton um konur
og lýðræði við árþús-
undamótin er nýaf-
staðin. Þjóðin hefur öll
hlýtt á þau fögra orð,
sem sögð vora á þing-
inu um bættan hag
kvenna og aukinn byr í
segl þeirra á leið til
jafnræðis. Finnst mér
þessi reynsla mín ekki
í nokkra samræmi við
þær væntingar sem
gerðar era til lýðræð-
ismála.
í þessu sambandi bendi ég á bók
Halldórs Laxnes „Sjálfstætt fólk“
og sérstaklega á það hvernig
Bjartur í Sumarhúsum leitaði ár-
Jafnrétti
Fela átti starfsferíl
minn, segir Sara
Franks, í kynningunum
um mig sem starfs-
mann FBA á Netinu.
angurslaust að rollunni sem konan
hans át í heilu lagi, þegar hann var
að heiman, vegna þess að hún var
svo svöng.
Höfundur er bankamaður.
SLIM-LINE
dömubuxur frá
gardeur
Oðrntv
tískuverslun
v/Nesveg, Seltj., s. 561 1680
Sara
Franks
-
• #
Námskeið fremstu sérfræðinga
á sviði áfallahjálpar og
sálrænnar skynaihjálpar.
SLYSAVARIUAFELAGID LAIUDSBJORG
Landssamband björgunarsveita
Þrír bandarískir sérfræöingar á sviöi váhrifa-
meðferðar og áfallahjálpar munu halda fjögur
tveggja daga námskeið og einn fyrirlestur
dagana 28.-31. október 1999.
George S. Everly og Jeffrey T. Mitchell eru
íslendingum að góðu kunnir en þeir heimsóttu
ísland í tvígang á síðasta ári til
námskeiðshalds.
Sérstök athygli er vakin á námskeiðinu
Áfallahjálp fyrir börn en þar er fjallað um það
hvernig veita má börnum nauðsynlega aðstoð
í kjölfar sálrænna áfalla. Kennarar og aðrir
sem fást við börn í daglegu starfi sínu er
sérstaklega bent á þetta námskeið sem kennt
er af færustu sérfræðingum heims á þessu
sviði.
Hér er um einstakt tækifæri að ræða sem
áhugamenn um áfallahjálp ættu ekki að
láta fram hjá sér fara.
Námskeiðin verða haldin á Grand Hótel
Reykjavík, Sigtúni 38.
Skráning og upplýsingar eru á
skrifstofu Slysavarnafélagsins
Landsbjargar í síma 570 5900
< -
4