Morgunblaðið - 20.10.1999, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1999
SJONMENNTAVETTVANGUR
Chardin var málari hins óbreytta hvunndags ásamt þvf að
kyrralífsmyndir hans eða samstillingar, eru með því frábærasta sem
gert hefur verið í þeirri grein. En myndir hans eru ekki einungis og
helst stórmerkilegar fyrir myndefnið, heldur öllu öðru fremur hinn
blíða og milda frásagnarhátt ásamt því hve meistaralega vel þær eru
málaðar, hann hvunndagsgerði þannig ekki málverkið í sjálfu sér.
Chardin á sér marga aðdácndur enda skera myndir hans sig úr og þá
helst fyrir þetta kynngimagnaða látleysi og máttugu pensilstrokur í
birtuslegnum jarðlitum. Grand Palais til 22. nóvember.
Aðalviðburðurinn í Frankfurt var sýning á Stadel, Borgarlistasafninu,
er nefnist, Mehr Licht, meira ljós, sem hefur með myndverk frá árum
upplýsingatímabilsins að gera og við gætum útlagt sem Ný augu. Var
einmitt sá bárufaldur nýrra viðhorfa sem hreif Jónas Hallgrímsson og
þá Fjölnismenn með sér. Marchel Proust sagði líka seinna, að það
væru ekki almennir landvinningar sem mestu máli skipti heldur að
ölast nýja sýn á hlutina, ný augu. Sýningin stendur til 9. janúar árið
2000. Goethe-húsið sem enn stendur var að sjálfsögðu heimsótt og var
mikils háttar lifún.
Jákó sf.
sími 564 1819
Þvottavélar
fyrir vélahluti
Pw
til utlaadd
-auðvelt að murid
SÍMINN
www.simi.is
Á sömu hæð í byggingunni á Piccadilly, sem hýsir sýningu van Dyck, er einnig kynning á h'fsverki
arkitektsins John Soane (1753-1837). Meistaraverk hans mun ótvírætt hafa verið teikningarnar að fyrrum
Englandsbanka, sem tók hann 44 ár að fullgera. Niðurrif byggingarinnar árið 1920, sem þá var að stórum
hluta í rústum, í stað þess að endurreisa hana í upprunalegri mynd, er í dag af mörgum talið mesta
skemmdarverk aldarinnar í byggingarsögu Lundúna. Sýningin kom mér mjög á óvart fyrir sígild og þó
nútímaleg viðhorf, Soane var sannarlega og óumdeilanlega meistari Ijóss og rýmis líkt og riss Joseph Michael
Gandy af salarkynnum Englandsbanka ber með sér. Til 3. desember.
í Weimar, menningarborg Evr-
ópu 1999, hafði lungan af árinu
staðið yfir viðamikil sýning er
bar naftúð, Ris og fall módern-
ismans á 20. öld, f tveim hlutum,
I og II. Auk þess voru á sama
stað, Mehrsweckhalle (Fjölnota-
höll), sýnd myndverk úr einka-
eign Adolfs Hitlers. Mér til sárra
vonbrigða var sýningunum rétt
nýlokið er mig bar að, en margt
fleira var að sjá og skoða í borg-
inni, einkum var straumur fólks
í sumarhús Goethe og hús
skáldsins Friedrichs Schillers.
Myndin sýnir tjóra nafnkennda
samtíðarmemi úr sögu borgar-
innar. Skáldin Johann Wolfgang
von Goethe, Friedrich Schiller
og Cristoph Martin Wieland,
ásamt heimspekingnum og rit-
höfundinum Johann Gottfried
von Herder.
Itiakita.
Slípirokkar
115-125-180 mm
Aðeins
1
snjöll lausn getur skipt sköpum
fyrir framtíð þína.
AGE MANAGEMENT
STIMULUS COMPLEX P.M.
Framsæknir vísindamenn á
rannsóknarstofum La Prairie
senda nú frá sér háþróað efni,
sem haegir á öldrun húðarinnar.
Húð þín bregður á leik.
Aldursblettir hverfa.
Djúpar línur og hrukkur dvína.
Á augabragði hefur þú
endurheimt þitt rétta andlit
Kynning
í dag og á morgun, fimmtudag.
10% kynningarafsláttur
og fallegur kaupauki
H Y G E A
jnyrtivöruverjlun
Kringlunni
Sími 533 4533