Morgunblaðið - 20.10.1999, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1999 47
Frímsýn 99
Ljósm. Hjalti Jóhannesson.
Margir heimsóttu FRÍMSÝN 99.
FRÍMERKI
Halflin í samvinnu
við Islandspóst hf.
í SÍÐASTA þætti var sagt frá
Degi frímerkisins og eins stuttlega
frá frímerkjasýningunni.
FRÍMSÝN 99, sem Félag frí-
merkjasafnara hélt af því tilefni „í
samvinnu við Islandspóst hf‘.
Mér skilst, að samvinna Pósts-
ins hafi fyrst og fremst verið fólg-
in í því að hafa sérstakt pósthús
fyrsta dag sýningarinnar, sem
jafnframt var útgáfudagur nýrra
frímerkja. Pósturinn mun einnig
hafa haft straum af kostnaði við að
koma sýningunni á framfæri við
almenning. Það ber að sjálfsögðu
að virða og þakka, enda bar það
árangur með góðri aðsókn. Er
mér sagt, að um 300 gestir hafi
heimsótt sýninguna þá þrjá daga,
sem hún stóð.
Oftar en einu sinni hefur í þátt-
um þessum verið látið í ljós - og
þá tekið mið af framkvæmdum
Póstsins í frímerkjamálum, að
áhugi stjórnenda hans á frí-
merkjasöfnun sé mjög takmarkað-
ur og beinist einkum að því að
hafa sem mestan hagnað af póst-
flutningum, m.a. með því að draga
úr notkun frímerkja og nota gúm-
stimpla í staðinn. I nýlegum þætti
hér í Mbl. var svo sýnt með skýr-
um dæmum, að Pósturinn eyði-
legði jafnvel þau frímerki, sem
enn væru látin á sendingar, með
„groddalegum" bylgjustimplum
og það í rauðum lit. Allt um það
vilja forráðamenn Póstsins láta
líta svo út sem þeir hafi einhvern
áhuga á frímerkjasöfnun. Áþreif-
anlegt dæmi um annað kom því
miður fram við opnun þessarar
sýningar.
Á FRÍMSÝN 99 var enginn af
stjórnarmönnum Póstsins við-
staddur, og eftir því tóku margir
auk mín, þar á meðal formenn
LÍF og FF, og létu undrun sína í
ljós við mig. Eini „fulltrúi“ Pósts-
ins var Ingibjörg Hafliðadóttir,
forstöðukona Frímerkjasölunnar,
en auðvitað sem starfsmaður
Póstsins til þess að selja sýningar-
gestum frímerki á útgáfudegi. Ef
þetta er ekki óvirðing við samtök
safnara, þá veit ég ekki, hvaða orð
á að hafa um þetta. Sá, sem þess-
um þætti stýrir, hefur verið á
flestum frímerkjasýningum hér-
lendis frá upphafi samtaka safnara
fyrir 40 árum og hefur aldrei fyrr
orðið vitni að því, að enginn full-
trúi Póstsins hafi verið við opnun
sýningar, jafnvel hinnar smæstu.
Vel má vera, að einhver afsökun
hafi getað verið fyrir fjarveru
þeirra, en hún kom ekki fram við
opnun sýningarinnar, svo sem þó
hefði verið sjálfsagt.
Eins og þegar hefur komið
fram, var FRIMSÝN 99 ekki stór í
sniðum, enda var hlutverk hennar
eingöngu það að gefa almenningi á
sjálfum Degi frímerkisins nokkurn
kost á að kynnast frímerkjasöfnun
og um leið ýmiss konar annarri
hliðarsöfnun við frímerkin. Þannig
fær almenningur tækifæri til að
öðlast svolitla þekkingu á tóm-
stundagamni þess hóps samborg-
ara sinna, sem stundar söfnun í
hjáverkum frá önn dagsins.
í þætti 6. þ.m. var sagt nokkuð
frá væntanlegu efni á FRÍMSÝN
99. Nú er sýningin að baki, svo að
unnt er að segja nokkru nánar frá
því, sem þar mátti sjá.
Sýningarrammar voru alls 32.
Guðni Friðrik Árnason átti fimm
ramma með efni, þar sem segir frá
Kristóferi Kólumbusi og komu
hans til Ameríku 1492. Guðni rek-
ur þar sögu Kólumbusar mjög ná-
kvæmlega og undirbúning undir
siglingu hans yfir Atlantshaf vest-
urleiðina til Indlands, eins og að
var stefnt. Allir vita nú, hvar hann
lenti með flota sinn. Þetta er allt
rakið skilmerkilega hjá Guðna eft-
ir fjölmörgum frímerkjum, sem út
hafa komið allt frá 1892, er 400 ár
voru liðin frá fyrstu ferð Kól-
umbusar. Guðni nýtir efnivið sinn
á skemmtilegan hátt og les skyn-
samlega úr frímerkjum, blokkum
og stimplum það, sem þau segja
um Kólumbus og ferðir hans. -
Hjalti Jóhannesson átti þarna tvo
ramma, annan með svonefndum
kórónustimplum, en hinn með
tölustimplum. Sýndi hann stök
merki, en mest þó merki á heilum
umslögum. Þetta var auðvitað ör-
lítið brot af heildarsafni því, sem
hann hefur víða hlotið verðskulduð
verðlaun fyi’ir. - Garðar Schiöth
sýndi bílafrímerki í þremur römm-
um, en hann er sjálfur kunnur
áhugamaður um fornbíla, svo að
þetta mótífefni er honum að sjálf-
sögðu kært. - Af öðrum frímerkj-
um voru þarna fiskamerki úr
mörgum áttum og eins merki frá
Kúbu, sem einn áhugasamasti
safnari í F.F., Kristján Borgþórs-
son, hefur safnað. - Formaður FF,
Sveinn Ingi Sveinsson, sýndi jóla-
merki og skákfrímerki í þremur
römmum og mörg á póstgengnum
umslögum. - Hrafn Hallgrímsson
átti eperantó-frímerki í einum
ramma.
Jón Egilsson sýndi skátafrímerki
og smáarkir á umslögum, stimpl-
uðum í Hafnarfirði, enda hann
sjálfur Hafnfirðingur. Þá átti hann
alls konar efni í þremur römmum,
sem tengist fyrstu NORDIU-sýn-
ingu hér á landi 1984. Slík saman-
tekt Jóns er ábending til safnara,
hverju má halda til haga í sögu-
legu tilliti. - Sama má raunar
segja um póstsögulegt efni, sem
Sigurður H. Þorsteinsson sýndi og
nefndi Hólmavík. Hefur hann
haldið ýmsu því til haga frá veru
sinni þar nyrðra, sem öðrum hefði
tæplega dottið í hug, en er vissu-
lega póstsaga, þótt frímerki komi
ekki alltaf við sögu. - Löngu er
Einar Ingi Siggeirsson þekktur
fyrir áhuga sinn á páfanum í Róm
og ferðum hans um heimsbyggð-
ina. Þarna mátt fá svipleiftur af
ferðum páfa í tveimur römmum. -
Eggert Óli Antonsson sýndi í
þremur römmum svonefndan
Þýzkan heilpóst úr seinni heims-
styrjöld. - Loks er ein hliðargrein
við frímerkin, sem Þór Þorsteins
hefur gefið verulegan gaum. Eru
það margs konar gjaldmerki og
auglýsingamiðar, sem menn hafa
ekki almennt talið eiga samleið
með frímerkjum. Þetta sýndi hann,
en að auki frímerld, sem notuð
voru sem stimpilmerki 1918 og 19
og eins sem tollmerki um 1920.
Loks voru þama leifar íslenzkra
frímerkja, sem enduðu „ævi“ sína
sem yfirprentuð orlofsmerld. Ég
hafði gaman af að renna augum yf-
ir ýmsa miða í safni Þórs. Mér
þótti samt nöturlegast, þegar ég sá
miða tileinkaðan Þórbergi Þórðar-
syni á hundruðustu ártíð hans
1989. Ártíð er „dánarafmæli", en
ekki afmæli, svo sem hér átti að
standa.
Jón Aðalsteinn Jónsson
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Bridsfélagið Muninn Sandgerði
Miðvikudaginn 13. október lauk
tveggja kvölda einmenningi og urðu
úrslit efstu manna þessi:
Amar Amgrímssson 150
Bjöm Dúason 136
Þórir Hrafnkelsson 133
Lokastaða efstu manna eftir bæði
kvöldin varð þessi:
Amar Amgrírasson 286
Gunnar Guðbjömsson 252
Karl G. Karlsson 252
Miðvikudaginn 20. október hefst
fjögurra kvölda hausttvímenningur
barometer með forgefnum spilum og
vonum við að spilarar fari nú að vakna
af værum blundi og fari að láta sjá sig.
Eftir þessa keppni hefst
haustsveitakeppni sem mun standa
yfir í 4 kvöld og mun efsta par og
neðsta par spila saman í sveita-
keppninni, spiluð verða 2X14 spil
með von um góða þátttöku.
Spilað á fimmtudögum
í Þönglabakka
Fimmtudaginn 7. október mættu 11
pör. Spilaður vai- Howell-tvímenning-
ui' með þremur spilum á milli para.
Lokastaða efstu para varð þessi:
Bryndís Porsteinsd. - Hanna Friðriksd. 204
Sigurður B. Þorsteinss. - Bjöm Theódórss. 188
Unnar Atli Guðmundss. - Þórður Sigfúss. 186
Miðlungur 165.
Fimmtudaginn 14. október var
einnig spilaður Howell-tvímenningur
og spiluðu 14 pör þar sem spiluð
voru tvö spil milli para. Lokastaða
varð þessi:
AlfreðKristjánsson-BaldurBjartmars 193
GuðmundurBaldursson-Birkir Jónsson 192
Miðlungur var 156.
Besta prósentuskor mánaðarins og
flest bronsstig mánaðarins gefa 5.000
kr. Gjafabréf á Þrjá Frakka. Alfreð
og Kristján eru þar með komnir með
forystu á báðum stöðum. 61,85% pró-
sent skor og 26 bronsstig skoruð.
Aðaltvímenningur Bridsfélags
Kópavogs hafinn
Aðaltvímenningur BK hófst
fimmtudaginn 14. október. Var spil-
að fyrsta kvöldið af fjórum og mættu
20 pör til leiks.
Skor efstu para kvöldsins var eft-
irfarandi:
Halldóra Magnúsd,- Soffía Danielsd. 39
Bjöm Árnason - Jón Páll Siguijónss. 38
Daniel Már Sigurðss. - Vilhjálmur Sigurðss. 26
Þórður Jörandss. - Vilhjálmur Sigurðss. 25
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
Blaðbera
vantar á Laufásveg I.
Upplýsingar í síma 569 1122.
Morgunblaðið leggur áherslu á að færa lesendum sinum vandaðar og áreiðanlegar
fréttir og upplýsingar. Morgunblaðið er eina dagblaðið á íslandi sem er í
upplagseftirliti og eru seld að meðaltali rúmlega 54.000 eintök á dag.
Höfuðstöðvar Morgunblaðsins eru í Kringlunni 1 í Reykjavík þar sem eru yfir
300 starfsmenn. Á Akureyri er starfrækt skrifstofa í Kaupvangsstræti 1.
Morgunblaðið kom fyrst út 2. nóvember 1913.
Árvakur hf. er útgefandi Morgunblaðsins.
Indland — viðskipti
Leitum að fólki með tengsl við Indland vegna
markaðssetningar á nýrri vöru þar í landi.
Spennandi viðskiptatækifæri.
Áhugasamir hringi í síma 881 2930.
Cafe Bleu, Kringlunni
Þjónar athugið! Vegna mikilla anna vantar
þjóna til starfa strax.
Upplýsingar gefur Björk í síma 899 1217.
Starf í blómabúð
TiL SÖLU
Starfskraftur óskast í hlutastarf í blómabúð
í Reykjavík. Reynsla æskileg.
Áhugasamir sendi umsóknirtil afgreiðslu Mbl.,
merktar: „Blóm — 8856", fyrir 25. október.
V MISLEGT
Veitingarekstur
til leigu
Til leigu er veitingarekstur og
veisluþjónusta Hótels Óðinsvéa, Þórs-
götu 1, Reykjavík.
Veitingareksturinn, sem nú er í fullum
rekstri, er boðinn til leigu frá og með
næstu áramótum. Fyrir hendi er fuilbúin
aðstaða með flestum tækjum, sem til
rekstrarins þarf.
Veitingasalur rúmar u.þ.b. 70 manns í
sæti og koníaksstofa u.þ.b. 30 manns í
sæti, allt í ágætu ásigkomulagi,
Góð staðsetning miðsvæðis í Reykjavík.
Frekari upplýsingar veita Ólafur Haralds-
son, Lágmúla 7, í síma 581 2622, og
Bjarni í síma 511 6200.
Til sölu bókhaldsstofa
á Norðurlandi vestra sem starfað hefur í 17
ár. Góð verkefnaaðstaða, sveigjanlegur vinnu-
tími með góðum sumarfríum. Hentar einstak-
lingi eða hjónum. Fjölskylduvænt umhverfi,
stutt í vinnu og skóla, einungs 2V2 klst. akstur
til Rvíkur. Lágur húsnæðiskostnaður hvort sem
ertil leigu eða kaups. Kjörið tækifæri fyrir rétt-
an aðila. Upplýsingar í síma 451 2600 á skrif-
stofutíma og 451 2609 á kvöldin.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
ÉSAMBAND ÍSLENZKRA
KRISÍNIBOÐSFÉIAGA
Háaleitisbraut 58.
Samkoma í kvöld kl. 20.30.
Jónas Þórisson talar. Hörður
Geirlaugsson syngur einsöng.
Allir hjartanlega velkomnir.
http://sik.torg.is/
Hörgshlfð 12.
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld ki. 20.00.
I.O.O.F. 18 = 18010-” = Rn.
□ Njörður 5999102019
Stofnfundur.
□ HELGAFELL 5999102019 IV/V
I.O.O.F. 9 = 18010208’/! = Dd.
□ GLITNIR 5999102019 1
I.O.O.F. 7 = 18010208’/! m Bk.
DULSPEKI
Sálarrannsóknarfélagið
Metaria
Þýska sálarrannsóknarfélagið
Metaria, með miðilinn og hug-
læknirinn Edel Schröder í farar-
broddi, verður með opinn fund í
Borgartúni 6 fimmtudaginn 21.
otktóber kl. 20.00. Allir velkomn-
ir. Enginn aðgangseyrir.