Morgunblaðið - 20.10.1999, Side 52
MORGUNBLAÐIÐ
^52 MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1999
Matur og matgerð
Nautatunga
Kristín Gestsdóttir segist aðeins einu
sinni áður hafa matreitt nautatungu og
gekk það ekki vel, en nú varð þetta
hinn ljúfasti réttur hjá henni.
ÉG fór að lesa mér til og leitaði
fyrst í gamlar íslenskar mat-
r reiðslubækur en varð ekki vel
til fanga, fann þó i bókinni Ein-
faldt matreiðslu vasaqver fyrir
heldri manna hússfreyjur eftir
Mörtu Maríu Stephensen frá
árinu 1800 smáumfjöllun um
„uxatúngu“ en þar voru tung-
umar látnar liggja í salti „uns
þær verða ljúfar“ og síðan
reyktar í 2-3 daga. I matreiðslu-
bókum nágrannaþjóða fann ég
nautatungu helst í þýskum og
dönskum bókum en Þjóðverjar
gera talsvert af að reykja tung-
una og borða kalda, aftur á móti
salta Danir hana gjarnan og
borða með grænmeti og þannig
matreiddi ég hana. Við þennan
lestur komst ég að því að þegar
notuð er fersk tunga þarf hún
að liggja í salti í 1-2 daga fyrir
notkun og því væntanlega orðin
að „saltri tungu“ að því loknu.
Tungan þarf þriggja klukku-
tíma suðu, síðan er himnan tek-
in af henni og ekkert gert við
tunguna annað en sneiða hana í
þunnar sneiðar. Suðuvatnið er
bragðbætt með ýmsu grænmeti.
Mjög oft er madeira notað í sós-
una en grun hefi ég um að ekki
noti margir það hér á landi. Ég
spurði um það hjá ÁTVR í sum-
ar og var sagt að hætt væri að
flytja það inn, það seldist svo
illa. Setja má portvín eða sjerrí í
sósuna. Ég setti ekkert vín í
mína sósu. Köld niðursneidd
nautatunga er vinsælt álegg
víða um heim.
Soðin söltuð
nautatunga
_______1 tungg, 1 - Vi kg
sjóðandi vatn svo að fljótí yfír
_______1 tsk. svört pipgrkorn__
__________2-3 gulraetur________
I1 2 ________2 meðalstórir laukar____
_______2-3 steinseljugreinar___
1 -2 sellerístönglar (mó sleppa)
1. Skolið tunguna vel, skerið
frá tungurætur ef einhverjar
eru.
2. Setjið vatn í pott ásamt pip-
arkomum, gulrótum í þykkum
sneiðum, lauk í bitum, sellerí-
stönglum í bútum og steinselju-
greinum í heilu lagi. Setjið tung-
una í sjóðandi löginn og sjóðið
við hægan hita í 3 klst. Tunguna
má skera í tvennt til að hún
rúmist betur í pottinum.
3. Fjarlægið himnuna af tung-
unni og skerið í þunnar sneiðar.
Tunguna má bera fram heita
eða kalda. Ef nota á hana kalda
er gott að láta hana kólna í soð-
inu. Takið hlemminn af meðan
hún er að kólna.
Meðlæti: Soðnar kartöflur og
soðið grænmeti, sveppasósa og
piparrótar/eplarjómi.
Sveppasósa
150 g ferskir sveppir
___________30 g smjör_________
'A tsk. karrí
________1 pk. sveppasósa______
soð af tungunni
1 dl rjómi
1. Hreinsið sveppina og skerið
í sneiðar. Bræðið smjörið, setjið
karrí út í og sjóðið í 1-2 mínútur,
en gætið þess að þetta brenni
ekki. Setjið sveppina út í og
sjóðið i 3 mínútur við meðalhita.
Hellið í skál og geymið.
2. Búið til sósuna skv. leið-
beiningum á umbúðum en notið
soðið og rjómann í stað vatns og
mjólkur.
3. Setjið sveppina út í sósu-
pottinn og sjóðið við mjög hæg-
an hita í 5 mínútur.
Piparrótar/
eplarjómi
2 stór epli
2-3 cm biti fersk piparrót
1 peli rjómi
Afhýðið eplin og piparrótina og
rífið hvort tveggja fínt. Þeytið
ijómann og setjið saman við.
Geymið í minnst 2 tíma fyrir
notkun.
Athugið: Piparrót er seld í
smábútum. Gott er að geyma
hana í frysti og rífa niður frosna.
í DAG
VELVAKAJVPI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Bflastæði við
Bláa lónið
ÉG SÁ af myndum sem
birtust í Morgunblaðinu
að það er langur gangur
frá bílastæðinu að baðhús-
inu við Bláa lónið, svo
iangur að ég sé ekki
framá að geta farið þang-
að þar sem ég á erfitt með
gang og er ekki í hjólastól.
Gigtveiku fólki finnst
þessi langi gangur frá
bílastæðinu vera sér of-
viða. Ég skil ekkert í þeim
sem hönnuðu Bláa lónið
að hafa ekki bílastæðin
nær lóninu, það eru svo
margir sem mundu vilja
fara í lónið sér til heilsu-
bótar sem eru fatlaðir,
ýmist af völdum slysa eða
veikinda. Við gamla lónið
var bílstæðið alveg við
innganginn og fór ég oft í
gamla lónið.
Fyrrverandi
baðgestur.
Góð þjónusta
hjá Shell
ÞAÐ var nú í vikunni að
eitthvað var að bílnum hjá
mér sem er Volkswagen
Golf. Fór ég með bílinn á
stillingarverkstæði en þar
var mér sagt að væri
margra daga bið eftir að
komast að svo ég fór á
smurstöð Shell sem er fyr-
ir neðan Sjálfstæðishúsið.
Þar gerðu þeir við bílinn
eins og skot, stilltu platín-
urnar og tóku ekld krónu
fyrir. Vil ég þakka fyrir
einstaka þjónustu.
Áður hafði ég farið á
Shellstöðina sem er nær
Kringlunni, en ég var að
reyna að hreinsa véhna
með hreinsiefni og á end-
anum sóðaði ég út allt
planið hjá þeim en þeir
tóku því mjög vel og lán-
uðu mér öll verkfæri og
sýndu mér alveg 100%
þjónustu. Finnst mér þetta
einstök þjónusta hjá Shell
og sendi þeim mínar bestu
þakkir fyrir.
Orn Olafsson.
Óæt kaka
ÉG fór í Kringluna sl.
laugardag og sá þar sölu-
borð þar sem verið var að
selja kökur til styrktar
góðu málefni. Mér leist
ágætlega á eina kökuna og
keypti hana en þegar heim
var komið var kakan óæt,
botnarnir hráir og glassúr
hafði verið sullað yfir allt.
Trúlega hefur þessi kaka
verið bökuð af krakka. En
mér finnst ekki forsvaran-
legt að seija svona gallaða
vöru.
I.G.
Nýtt org-el
ÞAÐ átti ekki að fara fram-
hjá neinum að búið var að fá
nýtt orgel í Langholts-
kirkju. Ég las viðtal er tekið
var við organistann, Jón
Stefánsson, í tilefni komu
þessa hijóðfæris. Jón Stef-
ánsson segir að ekki hafi all-
ir er hlut átt að máh verið
sammála um staðsetningu
orgelsins. Hann segir: ,Að
sr. Haukur Guðjónsson hafi
látið þau orð falla að ef
Drottinn Guð hefði ætlast til
þess að organistinn og kór-
inn væri í hinum enda kirkj-
unnar þá hefði hann snúið
eyrunum hinsegin á höfðinu
á okkur“. Ég spyr því: Var
Langholtskirkja staðsett
með kór og organista fyrr
heldur en Drottinn staðsetti
eyrun á manninn? Gaman
væri að fá svar við því.
Sigríður.
Hneykslanlegar
myndir
ÉG SÁ í 38. tbl. tímaritsins
Séð og heyrt mynd sem
var verðlaunuð sem besta
mynd vikunnar en myndin
var af tveimur berum
stúlkum. Á sömu síðu var
mynd af litlu barni með sí-
garettu. Finnst mér þetta
virkilega ósmekklegt að
birta svona myndir og skil
ég ekkert í foreldrunum að
leyfa þetta.
Ein hneyksluð.
Þakkir fyrir skilvísi
ÉG VIL senda manninum
sem fann veskið mitt hjá
Bílahöllinni á Höfða mínar
bestu þakkir. Vil ég biðja
hann um að hafa samband
við mig svo ég geti launað
honum þetta. Er hann beð-
inn um að hafa samband
við Magnús í síma
896 4434.
Tapað/fundið
Svartur jakki týndist
við Glaumbar
SVARTUR jakki týndist
aðfaranótt sunnudags ann-
aðhvort á Glaumbar eða í
nágrenninu. Skilvís finn-
andi hafi samband í síma
553 9655. Steinunn.
Gulur anórakkur
týndist
SKÆRGULUR anórakk-
ur merktur Perry Ellis
2000 (sá eini sinnar teg-
undar) týndist á stoppu-
stöð við Grensásveg sl.
laugardag eða i leið 6. Eig-
andi er nýorðinn sex ára
og fékk anórakkinn í af-
mælisgöf og saknar hans
sárt. Skilvís finnandi hafi
samband í síma 553 9865.
Við Tjörnina.
Yíkverji skrifar...
RJÚPNASKYTTUR læra á
hverju hausti sína lexíu þegar
þær rata í raunir. Strax á fyrsta
degi þurfti að hefja leit að tveimur
skyttum en allt fór vel og alltaf geta
menn lent í slysum og óhöppum.
Skotveiðimenn geta gripið til
margs konar búnaðar og hjálpar-
tækja sem auðvelda þeim að bjarga
sér ef eitthvað kemur upp á og er
sjálfsagt að þeir verði sér úti um
slíkan búnað, svo sem blys, GPS-
staðsetningartæki, kalltæki eða
eitthvað sem þeir geta notað til að
gera vart við sig.
Varla þarf að minna þessa vönu
útivistarmenn á að hér geta veðra-
breytingar orðið svo snöggar sem
hendi væri veifað og jafnvel þótt
veðurspá og veðurútlit lofi góðu
verða menn að gera ráð fyrir ýmsu
óvæntu úr þeirri áttinni.
Þegar veiðitíminn hófst heyrðist
sú áminning til skotveiðimanna að
þeir myndu nú eftir veiðikortunum.
Það virtist mjög mikilvægt að menn
hefðu þau á sér. Þama hefði átt að
fljóta með áminning um að þeir
hefðu líka með sér þessi nauðsyn-
legu hjálpartæki. Verðum við svo
bara að vona að skytturnar komist
vel frá vertíðinni á þessu hausti.
xxx
EKKI þarf að fjölyrða um
hversu margt er í boði í menn-
ingarlífinu á höfuðborgarsvæðinu,
tónlist, myndlist, leiklist og hver
veit hvað. Og alltaf furða menn sig
á því, ekki síst útlendingar, hversu
margt er hér í boði - hjá ekki
stærri þjóð.
Víkverji var á nýlegum tónleik-
um Kammermúsíkklúbbsins og
varð hugsað til þess þar sem hann
sat í troðfullri Bústaðakirkju og
hlustaði á nokkur verk hinna gömlu
meistara hversu merkilegt starf
þeir vinna bæði forráðamenn þess
og allir þeir tónlistarmenn sem
koma fram á vegum félagsins. Þá á
Víkverji bæði við yngri sem eldri
forystumenn og listamenn; enda
hafa sumir jafnvel verið með allt
fráupphafi.
Óvíst er að menn geri sér grein
fyrir hversu merkileg þessi starf-
semi er. Félagið hefur í áratugi
staðið fyrir reglulegu tónleika-
haldi. Forystan hefur verið óþreyt-
andi við að halda sínu striki, útveg-
að íslenska listamenn sem erlenda
og boðið metnaðarfullt og vandað
efni. Það er nefnilega dálítill hand-
leggur að skipuleggja svona nokk-
uð, bæði að leita menn uppi og fá
þá til samstarfs og ekki síður að
hrinda öllu þessu í framkvæmd og
halda út í öll þessi ár.
Vonandi verður ekkert lát á þess-
ari starfsemi og reyndar óttast Vík-
verji það ekki. Það sannaði aðsóknin
á síðustu tónleikana; tónleikagestir á
öllum aldri kunna að meta svona
nokkuð og eru með á nótunum.