Morgunblaðið - 20.10.1999, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ
í DAG
BRIDS
Um.sjóii (■iióiniiniliii'
Páll Arnarson
ÁRIÐ 1969 skrifaði Svíinn
Erik Jannersten um þetta
spil í bók sinn Enda chan-
sen:
Vestur
♦ DG109
V4
♦ G95
♦ D10863
Norður
♦ ÁK53
¥ DG
♦ K102
♦ K742
Austur
♦ 872
V K1086
♦ 863
♦ G95
Suður
* 64
¥ Á97532
♦ ÁD74
*Á
Samningurinn er sex
hjörtu í suður og vestur
spilar út spaðadrottningu.
Eins og Jannersten leggur
þrautina upp, þá drepur
sagnhafi í blindum og spil-
ar strax hjartadrottningu.
Hún á slaginn, en síðan
leggur austur á gosann og
legan kemur í ljós. Austur
á 108 í trompinu og við-
fangsefnið er að komast hjá
því að gefa tvo slagi á lit-
inn.
Það verður að hugsa já-
kvætt og reyna að teikna-
upp“eina möguleikann".
Suður þarf að stytta sig
tvisvar í trompinu, taka alla
hliðarslagina og spila úr
blindum í Iokin. En þar eð
innkomur blinds eru af
skornum skammti verður
sagnhafi að svína tígul-
tíunni. Leiðin sem Jann-
ersten mælir með er þessi:
Laufás er tekinn, síðan er
spaða spilað á kóng og lauf
trompað. Þá kemur tígulás
og tígull á tíuna. Þegar það
gengur er lauf enn tromp-
að, og loks er tígli spilað á
kóng:
Vcstur
♦ G10
V-
♦ -
* D
Norður
* 53
¥ -
♦ -
* K
Austur
* 8
¥ 108
♦ -
*-
Suður
*-
¥97
♦ D
*-
Laufkóng er spilað og
það er sama hvað austur
gerir, hann fær aðeins einn
trompslag.
Þetta er allt hárrétt hjá
Jannersten, en það má
velta fyrir sér hvort ekki sé
betri byrjun að spila laufí á
ás í öðrum slag og síðan
smáu hjarta að DG blinds.
A þennan hátt er hægt að
skapa innkomu á tromp til
að stinga eitt lauf, en þá
verður ekki nauðsynlegt að
svína tígultíunni.
SKÁK
Uinsjón Margeir
Pétursson
STAÐAN kom upp í und-
anrásum í Evrópukeppni
taflfélaga í haust. Serbinn
Pavlovic (2500) hafði hvítt
og átti leik gegn Jim Steed-
man, Noregi. 23. Bxg7! -
Kxg7 24. Df5 - Rf6 25. g5 -
Hh8 26. Hdel og svartur
gafst upp.
'mx.m\ .....
11 4Í111
A
A
JL &
é. m
HVÍTUR leikur og vinnur
Árnað heilla
Hlutavelta
n /A ÁRA afmæli. í dag,
I Umiðvikudaginn 20.
október, verður sjötug
Ragna Sigríður Gunnars-
dóttir, Fífuhvammi 11,
Kópavogi. Eiginmaður
hennar er Sveinbjörn H. Jó-
hannsson. Þau verða að
heiman og eyða deginum
með fjölskyldu sinni.
BRÚÐKAUP. Gefín voru
saman 22. ágúst sl. í Hrepp-
hólakirkju af sr. Eiríki Jó-
hannssyni Jóhanna Sveins-
dóttir og Jón Ingi Jónsson.
Heimili þeirra er að Smára-
hlíð II, Hrunamannahreppi.
Hrútur _
(21. mars -19. apríl)
Þú ert í varnarstöðu án þess
að vita nákvæmlega gegn
hverju. Skoðaðu mál þín á
raunsæjan hátt og þá skil-
urðu betur viðbrögð þín og
getur breytt þeim.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Einhver atburður sem gerist
í nágrenni þínu snertir þig
dýpra en flesta aðra. Leggðu
þitt af mörkum en gættu
þess að það taki ekki frá þér
alla orku.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Fötin skapa manninn segir
máltækið og þótt þú leggir
meira upp úr gáfnafari manna
en útliti er það nú staðreynd
að útlitið getur skipt máli.
Krabbi
(21. júnl - 22. júli)
Þótt þú vitir oft ekki af eigin
líðan ertu afar næmur á aðra
og getur miðlað málum þeg-
ar þú fínnur að eitthvað er í
uppsiglingu.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Einhver talar í óráðnum gát-
um svo þú skalt ganga hreint
til verks og segja viðkomandi
að hann sé bæði að eyða þín-
um tíma og sínum eigin.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) (Dfi.
Vertu varkár og settu þig
ekki í neinar skuldbindingar
því þótt samningurinn hljómi
vel núna geta aðstæður
breyst fyrr en varir.
(23. sept. - 22. október) m
Þú hefur ekki haldið þá skil-
mála sem þú settir þér í fjár-
málum og þarft því að halda
að þér höndum meðan þú
nærð þér á strik aftur.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Þrátt fyrir miklar annir skaltu
gefa þér tíma til að njóta sam-
skipta við vini og ættingja þvi
það þaiT ekki mikið til að
gleðja sjálfan sig og aðra.
Bogmaður # ^
(22. nóv. - 21. desember) ÁF")
Hvort sem þér líkar það bet-
ur eða verr þarf heimilið að
sitja í fyrirrúmi þessa dag-
ana því að mörgu er að
hyggja sem krefst allrar at-
hygli þinnar.
Steingeit
(22. des. -19. janúar) mtt
Nú er rétti tíminn til að brjóta
niður þá veggi sem hindrað
hafa mannleg samskipti og
hefjast handa við að byggja
upp jákvæðara lífsviðhorf.
Vatnsberi
(20. janúar -18. febrúar)
Þú ert ekki eins og þú átt að
þér og þarft að komast að því
af hverju það stafar og snúa
svo dæminu við. Vertu
ákveðinn við sjálfan þig.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) M»«>
Þú ert traustur og setur
trúnaðinn ofar öllu og því er
eðlilegt að fólk leiti skjóls hjá
þér í erfiðleikum sínum.
Taktu því vel og sinntu því.
Stjömuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
gninni vísindalegra staðreynda.
Þessir duglegu krakkar söfnuðu kr. 2.615 til styrktar
Rauða krossi íslands. Þau heita Marta Sigrún Jóhannsdótt-
ir, Danfel Freyr Jóhannsson, Guðrún Elín Jóhannsdóttir og
Daníel Þór Jónsson.
Þessar duglegu stúlkur söfnuðu kr. 6.164 til styrktar
Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna. Þær heita Karen,
Eva, Ásthildur og Björk.
í ÁRNASAFNI
Innan við múrvegginn átti ég löngum mitt sæti,
utan við kvikaði borgin með gný sinn og læti.
Hálfvegis vakandi, hálfvegis eins og í draumi
heyrði ég þungann í aldanna sígandi straumi.
Undrandi renndi ég augum með bókanna röðum:
eljuverk þúsunda, varðveitt á skrifuðum blöðum.
Hvai' sem ég fletti, við eyru mér ólguðu og sungu
uppsprettulindir og niðandi vötn minnar tungu.
Las ég þar sálma og lofsöngva þjóðar í nauðum,
lífsvonin eina var samtvinnuð krossinum rauðum,
yfírtak langt bak við ömurleik hungurs og sorgai'
ómuðu sætlega strengleikai' himneskrar borgar.
Oftsinnis, meðan ég þreytti hin fornlegu fræði,
fannst mér sem skrifarinn sjálfur hið næsta mér stæði.
Hugurinn sá yfir hlykkjóttum stafanna baugum
hendur, sem foi'ðum var stjórnað af lifandi taugum.
Bókfellið velkist, og stafirnir fyrnast og fúna,
fellur í gleymsku það orð, sem er lifandi núna,
legsteinninn springur, og letur hans máist í vindum,
losnar og raknar sá hnútur, sem traustast vér bindum.
Jón Helgason.
STJÖRIVUSPl
eftir Frances Drake
VOG
Aímælisbarn dagsins:
Þér er mikilvægt að sinna
öllum þáttum lífs þíns og
ert meðvitaður um að ham-
ingjan felst ekki í verald-
legum gæðum.
MIÐVIKUDAGUR 20. OKTOBER 1999 53,
ÁRMÚLfl 1 • SÍMI 568 7222 • FAX 568 7295
ÁRVÍK
ÁRMÚLA1 • S(MI 568 7222 • FAX 568 7295
Ég þakka innilega öllum vinum mínum og
vandamönnum fyrir einstaka umhyggju og
kœrleika mér sýndan vegna 90 ára afrnœlis
míns 7. október sl.
Friðgeir Grímsson.
Daman auglýsir
Fallegur náttfatnaður úr satíni með
bómull og „microfiber" að innan.
Fyrir konur á öllum aldri.
Sloppar úr „microfiber"
Sendum f póstkröfu
Laugavegi 32 - Sími 551 6477
VASAÚR MEÐ LOKI
Falleg úr við íslenska hátíðarbúninginn
Tilvalin útskriftargjöf
Vönduð vasaúr með loki. Verðmæt tímamótagjöf.
Úrin eru fáanleg úr 18 karata gulli, 18 karata gullhúð eða úr silfri.
Sjáum um áletrun.
Garðar Ólafsson úrsmiður,
Lækjartorgi, sími 551 0081