Morgunblaðið - 20.10.1999, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1999 55.
FÓLK í FRÉTTUM
!■■■■■■■........■■■■■......... ■ ■ ■ ■■■■■■.........
Johnny Depp og Charlize Theron leika hjónakorn
í Eiginkonu geimfarans.
Draugar og
skelfdar
eiginkonur
ÞRJÁR nýjar myndir eru meðal
þeirra tíu vinsælustu sem sýndar
eru í kvikmyndahúsum á Islandi
þessa vikuna. A toppnum trónir hin
yfírskilvitlega mynd Sjötta skilning-
arvitið með töffaranum Bruce Willis
í aðalhlutverki. Hún fjallar um sál-
fræðing sem fær það erfíða verkefni
að sætta ungan dreng við skyggni-
gáfu sína. Myndin naut mikilla vin-
sælda í Bandaríkjunum og eiga
áhorfendur von á óvæntum og ófyr-
irséðum endi.
Ameríska bakan sem var á toppn-
um í síðustu viku er því komin í
annað sætið en þetta er fyrsta
flokks unglingamynd með nær
óþekktum en mjög frambærilegum
leikurum í aðalhlutverkum.
Onnur ný mynd á lista er í þriðja
sætinu en það er bamamyndin
Kóngurinn og ég.
The Haunting vermir fjórða sæt-
ið en með eitt aðalhlutverkið í þeirri
mynd fer ein kynþokkafyllsta leik-
kona samtímans; Catharine Zeta
Jones.
Þriðja nýja myndin á listanum er
Eiginkona geimfarans með Johnny
Depp í aðalhlutverki. Hún fjallar um
geimfara sem fer að haga sér helst
til undarlega eftir eina geimferðina.
Bardaginn er byrjaður
Brad Pitt og Edward Norton fá lofsamlega dóma fyrir
frammistöðu sína í Fight Club.
MYNDIN The Fight Club með hin-
um stórefnilegu Brad Pitt og Ed-
ward Norton í aðalhlutverkum var
þriðja aðsóknarmesta myndin í
Bandaríkjunum um helgina en á
toppnum trónaði Double Jeopardy
og mynd Rob Reiners, The Story of
us, var í öðru sæti. Lítill munur var
á myndunum þremur og höluðu
þær allar inn um 740 milljónir hver.
Bíógestir og gagnrýnendur höfðu
beðið The Fight Club með tölu-
verðri eftirvæntingu en hún er
byggð á samnefndri skáldsögu eftir
Chuck Palahniuk. Fjallai- hún um
unga menn sem eyða frístundum
sínum í að berjast á hrottalegan
hátt til að fá fullnægju í hversdags-
leikann.
Ofbeldisfull í meira lagi
Gagnrýnendur eru flestir hrifnir
af myndinni en segja hana ofbeldis-
fulla í meira lagi og því ekki fyrir
hvern sem er en þeir sem sjá hana
eiga eftir að hafa um nóg að hugsa
næstu vikurnar á eftir. Norton fer
með hlutverk manns sem hefur at-
vinnu af því að vera sögumaður í
kvikmyndum. Pitt leikur þjón sem
hefur allt á hornum sér en röð til-
viljana leiða þá félaga saman og
stofna þeir bardagakiúbbinn ógur-
lega í kjölfarið. Gagnrýnendur eru
sem fyrr yfir sig hrifnir af frammi-
stöðu Nortons sem hefur í gegnum
tíðina valið hlutverk sín af mikilli
kostgæfni. Einnig er farið lofsam-
legum orðum um Pitt og hann sagð-
ur loks vera laus við hræðsluna að
prófa eitthvað nýtt.
En í kjölfar myndarinnai- hefur
sprottið upp alvarlegri umræða og
hræðsla um að ungir, óheflaðir karl-
menn eigi eftir að stofna sína eigin
bardagaklúbba í Bandaríkjunum.
Norton og Pitt segjast báðir vissir
um að svo verði ekki heldur sé í
myndinni komist að rótum ofbeldis
og beri hún því boðskap til ungra
karlmanna.
Höfundur í ofbeldis-
fullu umhverfi
Höfundur bókarinnar átti erTiða.
æsku og var ofbeldi daglegt brauð í
hans lífi. Faðir hans, Fred að nafni,
fannst myrtur í maí síðastliðnum en
er hann var mjög ungur að ánnn
varð hann vitni að því er faðir hans
myrti móður hans og skaut síðan
sjálfan sig. Þess vegna telja gagn-
rýnendur ólíklegt að Chuck hafi
tekist að komast að rótum ofbeldis í
bók sinni.
Allir gagnrýnendur virðast hins
vegar sammála um að handritið sé
skemmtilega skrifað, myndin vel
leikin og spennandi og fyndin í
senn. I henni er ekki komist að
þeirri niðurstöðu að aðalpersónum-
ar séu mjög veikar á geði líkt og
margir gagmýnendur halda fram
og þar liggi helsti veikleiki myndar-
innar.
kvikmyndaverðlaunin
Anders W. Berthelsen og Iben Hjejle úr Síðasta söng Mifune eru tilnefnd
til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna fyrir besta leik f aðalhlutverki.
Leikarar tilnefndir
TILNEFNINGAR til Evrópsku
kvikmyndaverðlaunanna voru
tilkynntar á dögunum. Þar sést
klárlega að myndir sem gerðar
eru á tungumáli heimalandsins,
hvort sem það er Danmörk,
Þýskaland eða Frakkland,
virðast vera í sókn í Evrópu.
Fram til þessa hefur þróunin
verið í þá áttina að myndir
þurfi að vera á enska tungu til
þess að ná langt á alþjóðavett-
vangi.
Val á kvikmyndum sem til-
nefndar verða til verðlaunanna
verður tilkynnt í byrjun nóv-
ember. Áhorfendaverðlaunin
verða veitt eftir atkvæða-
greiðslu, sem m.a. fer fram á
Netinu á mbl.is. Evrópsku
kvikmyndaverðlaunin verða
veitt 4. desember í Berlín eftir
að 500 meðlimir kvikmynda-
akademíunnar hafa gert upp
hug sinn.
Þeir sem tilnefndir eru sem
bestu karlleikarar eru Daninn
Anders W. Berthelsen fyrir
Síðasta söng Mifune, Bretinn
Rupert Everett fyrir „Ideal
Husband“, Bretinn Ralph
Fiennes fyrir „Sunshine“, Þjóð-
verjinn Götz George fyrir
„Nichts als die Wahrheit“,
Frakkinn Philippe Torreton
fyrir „Ca Commence Ajo-
urd’hui" og Bretinn Ray Win-
stone fyrir „The War Zone“.
Þær sem tilnefndar eru sem
bestu leikkonur eru Nathalie
Baye frá Belgíu fyrir „Une Li-
aison Pornographique", Pen-
elope Cruz frá Spáni fyrir „La
Nina de tus Ojos“, Emilie
Dequenne frá Belgíu fyrir
„Rosettu", Iben Hjejle frá Dan-
mörku fyrir Síðasta söng Mifu-
ne og Cecilia Roth frá Spáni
fyrir Allt um móður mína.
Þrír koma til greina í valinu
um besta handritshöfund og
eru það Sasa Gedeon frá Tékk-
landi fyrir „Navrat Idiota",
Ayub Khan-Din frá Bretlandi
fyrir „East is East“ og István
Szabo & Israel Horowitz frá
Ungverjalandi fyrir „Suns-
hine“.
Besti kvikmyndatökumaður-
inn verður einn af eftirtöldum:
Yves Cape frá Frakklandi sem
myndaði „L’Humanité", Alexei
Fyodorov frá Rússlandi sem
mynaði „Moloch“, Lajos Koltai
frá Ungverjalandi sem mynd- 'r
aði „La Legenda del Pianista
sull’Oceano & Sunshine“ og
loks Jacek Petrycky frá Pól-
landi fyrir „Gunese Yolculuk“.
,j/lnclrea Gylfadóttir
ásamt félögum.
Blús, jazz og íslensk dægurlög
fös. 22/10 — Kvöldverður kl. 21.
— Tónleikar kl. 23.____________
Óskalög landans
Söngtextar Jónasar Ámasonar
úr ástkærum leikritum.
Flytjendur: Aðalheiður Þorsteinsdóttir,
Anna Sigriður Helgadóttir, örn Amarson
Lau. 23/10 — Kvöldveröur kl. 20.
— Söngskemmtun kl. 21.30
(Ævintýrid
um ástina
eftir Þorvald Þorsteinsson
sun. 24/10 kl. 15
sun. 31/10 kl. 15
MIÐAPANTANIR í S. 551 9055
Kuldaskómir
Loðfóðraðir
leður-kuldaskór
í stærðum 41-46.
Grandagarði 2, Rvík, sími 552-8855 og 800-6288
Opið virka daga 8-18 og laugardaga 10-14