Morgunblaðið - 20.10.1999, Síða 60
1*60 MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
* *
r
HASKOLABIO
HASKOLABIO
sartftímans;
Hagatorgi, sími 530 1919
NOTTING HILL
_________Synd kl. 11.____
Svartur Köttur Hvftur Köttur
Sýnd kl. 11. Síðasta sinn.
ALLT UM MÓÐUR MÍNA
_______Sýnd kl. 7. Sið. sýn._
SÍI) l.s /7 SÖXCt II I //A7 \/.
Sýnd kl. 5 og 9.
Rugratsmyndir
Sýnd kl. 5.
________
inn ef þú þorir. THE
H AUNTING
SUM HÚS FÆÐAST SLÆM
Sýnd kl. 6.45, 9 og 11.15. b.í. 14.
Sýnd kl. 6.45, 9 og 11.15. B.i. 16.
MMjyax aaaagfr maMu
míwaMa vtA/iaaiM
NÝTT 0G BETRA
FYRIR
990 PUNKTA
FERDU IBÍÓ
Atfabakka 8, sítni 587 8900 og 587 8905
ÓFE Haireverik
MATRIX 2 fy'r
www.samfHm.is
Edduverðlaunin veitt í fyrsta sinn
Kvikmyndir órjúfanlegur
hluti sagnaarfsins
Hinn 22. október verða tilkynntar tilnefningar til Edduverðlaun-
anna sem Islenska kvikmynda- og sjónvarpsakademían
veitir. Sextán dögum síðar verða úrslit kosninga kunngerð
í beinni sjónvarpsútsendingu.
TILGANGUR Edduverðlaunanna er að kynna
með jákvæðum hætti það starf sem unnið er
innan kvikmynda- og sjónvarpsgeirans hér á
landi og vera hvatning til þeirra sem í geiran-
um starfa um að leggja sig fram til allra góðra
verka.
Islenskir kvikmyndagerðarmenn að störfum.
Átta verðlaun og Óskarinn
„Fólk í bransanum fær þarna tækifæri til
að verðlauna starfsfélaga sína og almenn-
ingur fær einnig tækifæri til að kjósa,“ seg-
ir Ásgrímur Sverrisson kvikmyndaleik-
stjóri sem er framkvæmdastjóri Eddu-
verðlaunanna.
Dagana 4. og 5. nóvember fer kosning-
— Kin fram. Á kjörskrá eru þeir starfsmenn
kvikmynda- og sjónvarpsgeirans sem
tekið hafa þátt í tveimur verkefnum eða
GoodLife
Nýi dömuilmurinn
sgrún
tterriss°n f.
fleiri auk leikara sem komið hafa við
sögu í kvikmyndum og sjónvarpi.
Almenningur getur greitt atkvæði
með atkvæðaseðli sem birtist í Morg-
unbiaðinu eða á Morgunblaðinu á
Netinu mbl.is. Vægi lesenda í kosn-
ingunni er 30% en fagmanna 70%.
Veitt verða verðlaun fyrir eftirfar-
andi flokka:
★Besta kvikmynd í fullri lengd
★Besta heimildamynd
★Besta leikna sjónvarpsefni
★Besti sjónvarpsþáttur eða þáttaröð
★Besti leikari í kvikmynd eða sjón-
varpi
Síðasta
hraðlestrarnámskeiðið...!!
á öldinni hefst 26. október. Ef þú vilt bæta ár-
angur í námi og starfi skaltu skrá þig strax.
Margfaldaöu afköstin!
HRADLESTRARSKÓLINN
Síml: 565-9500 Fax: 565-9501
www.ismennt.is/vefir/hradlestrarskolinn
a'rtirleikkonaltnyndmm
pálína Jónsdottirle Kcmp.
Sjálfvirkmn en
★Besta leikkona í kvikmynd eða
sjónvarpi
★Besti leikstjórinn
Einnig verður íramlag Islands til
Óskarsins kosið af fagmönnum og
veitt verða þrenn fagverðlaun, sem
valnefnd, skipuð af stjórn ÍKSA, ís-
lensku kvikmynda- og sjónvarpsaka-
demíunni, ákveður.
„Það verður misjafnt frá ári til árs
hvaða greinum innan fagsins vinn-
ingshafar tilheyra," segir Ásgrímur.
„Við vildum halda verðlaunaílokkun-
um í lágmarki, en það hefði ekki ver-
ið hægt að verðlauna alla þættina.
Við höfum þetta svona í ár en svo
verðum við að sjá hvað reynslan sker
úr með.“
- Er Óskarinn fyrirmynd ykkar?
„Það má segja að við fáum ýmis-
legt lánað þaðan sem og frá öðrum
sambærilegum verðlaunum en auð-
vitað erum við ekki að tala um jafn-
langa og viðamikla uppákomu held-
ur sjáum við fyrir okkur rúmlega
klukkustundarlanga dagskrá. Hátíð-
in 8. nóvember verður þó afar glæsi-
leg þar sem formlegs klæðnaðar er
vænst og mikið um dýrðir. Við verð-
um með aðalkynni sem heldur utan
um dagskrána en síðan munu þekkt-
ir einstaklingar úr öllum áttum veita
verðlaun fyrir einstaka flokka, sýnd
verða brot úr verkunum og ýmsar
skemmtilegar uppákomur verða
milli verðlaunaveitinga. Það er
metnaður okkar sem að þessu
Nokkrir af leikurum íslensku kvikmyndar-
innar Úngfrúin góða og húsið eftir
Guðnýju Hallddrsdóttur.
stöndum að gera þetta með vegleg-
um hætti þannig að Edduverðlaunin
geti orðið að árvissum viðburði í
okkar menningarlífí. Það hefir
einnig sýnt sig að svona sjónvarps-
efni er mjög vinsælt og það mun
ekki fara framhjá neinum að mikið
stendur til.“
Vísað í
sagnaarfinn
Magnús Tómasson listamaður
hannar verðlaunagripinn, Edduna,
sem verður afhjúpaður 22. þessa
mánaðar, en það er Morgunblaðið
sem kostar hönnunina og gefur hann
verðlaunahöfum.
„Verðlaunagripurinn vísar í minni
úr Snorra-Eddu en sama dag og til-
nefningarnar verða opinberaðar af-
hjúpum við gripinn og þá hugmynd
sem að baki honum liggur. Stjóm
Akademíunnar ákvað að það væri við
hæfí að gefa verðlaununum þetta
nafn en með því er verið að vísa í
sagnaarfinn, menningararf okkai’ ís-
lendinga, en óneitanlega er það starf
sem unnið er bæði á vettvangi kvik-
mynda og sjónvarps í órjúfanlegu
samhepgi við það á undan er komið,“
segir Ásgrímur að lokum.