Morgunblaðið - 13.11.1999, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1999 35
LISTIR
Andlegt stríð
KVIKM¥]\PIR
Regnboginn/Sambíó
FIGHT CLUB
★ ★★
Leikstjórn: David Fincher. Handrit:
Jim Uhls eftir samnefndri skáld-
sögu Chucks Palahniuk. Aðal-
hlutverk: Edward Norton, Brad
Pitt, Helena Bonham
Carter, Jared Leto og Meat Loaf.
20th Century Fox 1999.
ED Norton leikur ungan mann í
skrifstofuvinnu sem getur ekki
sofið. Hann er reiður út í kerfið,
vonleysi og tilgangsleysi neyslu-
samfélagsins þjaka hann. Á einum
af viðskiptaferðalögum sínum
kynnist þessi einmana náungi Tyl-
er Durden (Brad Pitt). Hann er
allt sem ungi maðurinn hefði vilj-
að vera, hann fer sínar eigin leiðir
og er frjáls undan „afleiðingum
lífsstílsmeinlokunnar“ sem hann
segir efnishyggjuna vera. Með
Tyler fer ungi maðurinn úr einum
öfgunum í aðrar, og saman stofna
þeir Bardagaklúbbinn, þar sem
þeir félagar lúskra hvor á öðrum
og á nýjum meðlimum klúbbsins.
Eitt leiðir af öðru þar til unga
manninum fínnst starfsemi
klúbbsins gengin út í öfgar.
Fight Club er vægast sagt töff
mynd. Hún er út í gegn stílíseruð;
myndatakan flott, með nokkrum
teiknuðum tölvuatriðum sem
koma vel út, og hljóðvinnslan frá-
bær.
Petta er dökk mynd, blóðug og
sóðaleg, í samræmi við heldur nið-
urdregið sálarástand unga manns-
ins. Þetta mjög kaldhæðin mynd
þar sem hlegið er að eyðileggingu,
veiku fólki, sorglegum atburðum
og hryllilegum. Það getur orðið
býsna yfírþyrmandi þegar líða
tekur á, en það er örugglega ætl-
unin.
Af skiljanlegum ástæðum er
mikið um bardagaatriði og annað
ofbeldi í myndinni, sem er full
mikið og tilgangslaust; oft gert
töff með viðeigandi tónlist. Þetta
er að vísu leið unga mannsins til
að koma sér út úr þessum dauð-
yflislega lífsstíl sem er að gera
hann vitlausan, en það er spurn-
ing hvað allir hinir fá út úr þessu,
og frekar ósannfærandi hversu
frelsandi eilíf slagsmál reynast
mörgum. En höfundur bókarinnar
er víst eitthvað geðveikur greyið,
og ætti það að skýra margt sem
ekki virðist rökrétt.
Myndin er snilldarvel upp-
byggð, en því miður kemur ekki í
ljós fyrr en í lok myndarinnar að
þetta er mjög sérstök og áhrifarík
saga. Þá gera áhorfendur sér
grein fyrir því að bardaga-
klúbburinn er í rauninni eins og
hliðarefni við það sem sagan fjall-
ar í rauninni um. Það er synd.
Mér leiddist frekar þetta tilgangs-
lausa ofbeldi í myndinni í fyrsta
sinn sem ég sá hana en fannst
hins vegar stórskemmtilegt að sjá
hana í annað sinn þegar ég gat
einbeitt mér að því sem máli
skiptir. Það er eiginlega spurning
hvort hún hefði ekki mátt vera
áhugaverð við fyrsta áhorf, í stað
þess að horfa á miðlungsmynd og
láta koma sér á óvart í lokin. Vill
áhorfandinn láta koma sér það
mikið á óvart að honum finnst
hann eiginlega hafa verið skilinn
útundan mestallan tímann?
Ed Norton fær hér enn eitt
tækifærið til að sanna að hann er
besti ungi leikarinn í Hollywood í
dag, og hann er hreint út sagt frá-
bær. Brad Pitt er sætur með bux-
urnar á hælunúm og gæjastælana
á hreinu. Það er alltaf gaman að
horfa á hann, einkum fyi-ir ungar
konur, en sögunnar vegna er
persónuleiki hans frekar flatur og
hann fær ekki að njóta sín sem
leikari.
Helena Bonham Carter er mjög
góð í hlutverki Mörlu Singer, kon-
unnar í lífi þeirra félaga, og sýnir
á sér nýja og óvænta hlið. Ósköp
er hún nú sæt, þótt hún sé frekar
sjúskuð og dópuð í þessari mynd.
Svo verður að minnast á Meat
Loaf, sem er í skemmtilegu hlut-
verki hins brjóstgóða Bob.
Fight Club er mjög sérstök og
sérlega áhugaverð mynd fyrir
margar sakir, en einnig allumdeil-
anleg fyrir aðrar.
Hildur Loftsdóttir
Eru rimlagardinurnar óhreinart
VtZ> Kreifiíum:
Rimta, strimta, pitseroö og íótargiuggafjöid.
Setjum afrofmognandl bónhúb.
Sickjum og sendum ef óskab er.
.m
tstíkxúhremsunin
S61h*Ímor 35 • SimJ; 333 3634 • OSMs397 3634
Sýning á ljóðum Þor-
geirs Kjartanssonar
í ANDDYRI Bókasafnsins í
Kópavogi stendur yfir sýning
á ljóðum Þorgeirs Kjartans-
sonar (1955-1998) sem Rúna
K. Tetzschner hefur skraut-
skrifað og skreytt. í dag, laug-
ardag, kl. 15, mun Rúna, f til-
efni sýningarinnar og
Norrænnar bókasafnsviku,
m.a. lesa Ijóðin eftir Þorgeir
og Hildigunnur Haildórsdóttir
leikur á fiðlu milli þátta.
Þorgeir var sagnfræðingur
að mennt og hafði gefið út
eina ljóðabók en skildi auk
þess eftir mikið af Ijóðum í
handriti sem hann hugðist
gefa út. Sum þessara ljóða eru
nú fáanleg í skrautskriftar-
búningi Rúnu en munu síðar
koma út á bók, segir í frétta-
tilkynningu.