Morgunblaðið - 13.11.1999, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 13.11.1999, Blaðsíða 48
48 LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ÓLAFUR HELGI GÍSLASON + Ólafur Helgi Gíslason fæddist á Húsavík 17. októ- ber 1957. Hann Iést á Landspítalanum 3. nóvember síðastlið- inn. Foreldrar hans eru hjónin Jóhanna Halldórsdóttir frá Öngulsstöðum í Eyjafirði og Gísli Ólafsson frá Kraunastöðum í Að- aldal. Foreldrar Jó- hönnu voru hjónin Þorgerður Siggeirs- dóttir og Halldór Sigurgeirsson búandi á Onguls- stöðum. Foreldrar Gisla voru hjónin Bergljót Jónsdóttir og Olafur Gíslason búandi á Kraunastöðum. Gisli og Jó- hanna bjuggu fyrst á Kraunast- öðum en síðan á Brúum, Aðal- dal. Ólafur ólst upp með foreldr- „í rósemi og trausti skal styrkur þinn vera.“ Þessi orð spámannsins komu mér í hug er ég heyrði lát Ólafs á Brúum. Enda höfðu þau oft komið í hugann er ég hugleiddi veikinda- stríð hans á liðnum árum. Alltaf ró- legur og tók öllu með jafnaðargeði. Ólafur ólst upp með foreldrum og systkinum á Kraunastöðum og á Brúum. Hann kenndi ungur nýrna- bilunar og er það talið að hafi stafað af slysi er hann varð fyrir sem bam. Hann var samt glaður og reifur í leik og starfi, en kannski ekki eins þróttmikill. Vann hann öll verk sín af natni og samviskusemi. I hópi jafnaldra var hann ljúfur og kátur. Eg minnist hans vel frá fermingar- undirbúningi. Alltaf var stutt í fal- um sínum og systk- inum. Systkini hans eru Þórhallur Geir, húsasmiðameistari í Reykjavík, kona hans er Valgerður Jónsdóttir. Þor- gerður, skrifstofu- maður á Akureyri, og Halldór, hús- gagna- og innrétt- ingameistari á Húsavík, kona hans er Aðalheiður Lauf- ey Aðalsteinsdóttir. Ólafur varð búf- ræðingur frá Hóla- skóla vorið 1976 og starfaði síð- an að búskap foreldra sinna um árabil, síðan tók hann við búinu á Brúum og bjó þar í nokkur ár uns hann varð að hætta vegna veikinda. _ Útför Ólafs Helga fer fram frá Grenjaðarstaðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. lega brosið hans, í námi, leik og starfi. Það var gott að hafa hann sem nemanda. Eftir nám í Hafralækjarskóla fór hann skömmu síðar til náms í Hóla- skóla og brautskráðist sem búfræð- ingur þaðan vorið 1976. Hann hafði alltaf haft áhuga á búskap og þótti vænt um sveitina sína. Hann starfaði síðan við bú for- eldra sinna. En nokkru seinna kom í ljós alvarleg nýrnabilun, er eðli- lega hafði mikil áhrif á getu hans til erfiðisvinnu. Hann fór út til Kaup- mannahafnar vorið 1983 og fékk nýtt nýra. Nú virtist framtíðin blasa við að nýju. Hann tók til starfa við bústörfin að nýju og naut þess mjög. Var fullur bjartsýni um vöxt og viðgang búskapar á Brúum. Og árin liðu og að því kom að hann tók við búi foreldra sinna. En innan skamms tóku veikindin sig upp. Það voru nýrun sem biluðu. Hann varð að fara í nýmavél til Reykja- víkur því slíkt þarfatæki er ekki til annars staðar á landinu. Ferðirnar urðu margar og þrótturinn bilaði svo augljóst var að ekki var um það að ræða að stunda búskap. Ólafur varð að vera á sjúkrahúsum meir og lengur. Öllu þessu tók hann með jafnaðargeði. Sjúkdómurinn ágerð- ist og svo fór að taka varð af honum báða fætur. Jafnvel það bugaði hann ekki. Þegar við hjónin komum til hans á sjúkrahúsið skömmu eftir að þetta gerðist, hittum við hann brosandi og í góðu jafnvægi. Við undruðumst það, en við þekktum hann svo vel og skynjuðum að allt lífið hafði hann mátt reyna svo margt sem kenndi honum að stjórna svo skapi sínu að ekkert böl gat haggað rósemdinni. Hann sýndi þama svo mikla hetjulund að frá- bært var. Hann fékk síðan gervifætur og gat gengið. Hann gladdist yfir því. Nokkm seinna fékk hann bfl, sérút- búinn, og gat keyrt. En alltaf var hann bundinn við nýrnavélina oft í viku. A sjúkrahúsum dvaldi hann löngum því að smám saman kom í ljós að fleiri líffæri vom sjúk orðin. Hann þjáðist oft mjög en í þessu öllu sýndi hann ótrúlegt æðraleysi og stillingu. Og nú síðast þegar í mörgu var af honum dregið, flaug hann norður í afmæli sitt 17. októ- ber sl. heim í Brúa. Gleði ríkti í huga hans og foreldra og systkina að fá hann heim. En dvölin var stutt, því nýmavélin kallaði. Þessir fáu dagar glöddu alla og lifa í minn- ingunni sem bros frá Óla. Að morgni 3. þessa mánaðar var hann að fara í nýrnavélina er hjart- að gaf sig og á skammri stundu var hann allur. Löngu og erfiðu stríði var lokið. En allir frændur og vinir hans muna hann sem glaða og brosmflda drenginn sem öllum vildi vel og glacldi svo marga með lífi sínu. Óli var mjög bamgóður. Það reyndu þau börn er hann um- gekkst, ekki síst var hann ætíð svo elskulegur við systurson sinn, Borgar Þórarinsson, sem ólst upp að nokkm leyti á Brúum. Óli var honum svo umhyggjusamur og góður og það gleymist ekki. Margir vom þeir sem vildu hjálpa og létta undir með honum, ekki síst foreldramir. En einn stendur þar upp úr sem á miklar þakkir skildar. Það var Þórhallur bróðir hans, sem alla tíð lagði fram krafta sína og tíma til að hjálpa bróður sínum. Var alltaf tilbúinn að gera það besta sem unnt var og þau hjón voru alltaf tflbúin að hafa hann á heimili sínu og sýndu ástúð mikla. Það starf stóð í mörg ár og er ómælt og verður ekki þakkað sem skyldi. Að lokum þetta. Ólafur á Brúum skilur eftir sig bjartar minningar um góðan dreng sem alls staðar kom sér vel og gladdi aðra með ljúf- leika og fyrirmyndar framkomu. Hann lifði og starfaði í rósemi og trausti og í því var styrkur hans. Við hjónin og böm okkar og fjöl- skyldur þeirra þökkum honum við- mótið góða við okkur öll og geym- um minninguna um hann í þökk. Við sendum foreldmm hans og systkinum og fjölskyldum þeirra okkar dýpstu samúðarkveðjur og biðjum Guð að gefa þeim öllum styrk og huggun. Sigurður Guðmundsson. Ólafur frændi minn er dáinn. Það kom snöggt, hjartað brast. Og þótt við ættum von á þessari fregn í langan tíma hrekkur maður alltaf við er þetta skeður. En þetta var líkn því hann var búinn að kveljust í mánuði og ár. Það bjargaði Ólafi svo mikið að í vöggugjöf fékk hann svo ljúfa lund að fátítt er. Aldrei var kvartað. Öllu tekið með þolinmæði og jafnaðargeði. Þótt fætumir væm teknir bugaðist hann ekki. Vonin um betri tíma var alltaf sterk. Þar hjálpaði Þórhallur bróðir hans honum svo mikið. Ef eitthvað rofaði til var hann kominn að hjálpa honum, keyra hann eða fara með hann heim til sín og Vallýjar að reyna að stytta stundimar. Guð blessi þau fyrir alla þá hjálp. Fjölskylda Óla hefur alltaf staðið vel saman um að létta byrðar hans, þótt Þórhallur hafi verið drýgstur enda haft betri tækifæri. Daginn sem Óli dó fóra Þorgerð- ur og Halldór systkini hans suður. Vildu sjá hann áður en hann væri lagður í kistu. Er þau komu heim aftur hringdi ég í Brúa. Þorgerður talaði við mig. Hún sagði: „Við fór- um beint á sjúkrahúsið og sáum bróður okkar í rúminu sínu og hann var svo fallegur." Hún sagði þetta svo fallega og með hlýrri rödd. Ég klökknaði við og gat ekkert sagt. Minningarnar koma í hugann margar svo hlýjar og mildar frá ár- unum sem við systurnar vorum nágrannakonur. Eg man eftir hlýj- um haustdegi. Ég gekk upp í Kraunastaði. Ólafur var þá nýlega fæddur. Ég stóð við vögguna og horfði á þetta fallega barn. Hann hafði strax þennan fallega svip, sem alltaf fylgdi honum. Enda skapið þannig. Hann var svo ljúfur og góð- ur. A unglingsárunum fór hann á Hólaskóla og reyndist þar vel, gekk námið vel og var vinsæll, enda búinn þeim kostum sem falla vel á þannig stöðum. Þessi fáu orð eiga að vera þakk- arorð til vinar og frænda og samúð- arkveðja til fjölskyldu hans. Það hefur alltaf verið vinátta milli barna okkar Jóhönnu og enst vel þótt vegir hafi lengst á mflli. Þar hefur ekki borið skugga á. Það era ljúfar minningar frá jóla- boðum á báðum heimilum og margt fleira mætti nefna. Góður Guð styrki ykkur og blessi minninguna um Ólaf frænda minn. Aðalbjörg Halldórsdóttir. + Guðmundur Vig- fússon var fædd- ur á Kvoslæk í Fljóts- hlíð 6. apríl 1923. Hann lést á Sjúkra- húsi Suðurlands 24. október sl. Foreldrar hans voru hjónin Ástríður Andrés- dóttir og Vigfús Guðmundsson. Var Ástríður fædd á Hall- dórsstöðum á Vatns- leysuströnd, dóttir Þóm Kjartansdóttur og Andrésar Vigfús- sonar. Vigfús faðir Guðmundar var fæddur á Kvos- læk, sonur Guðrúnar Sigurðar- dóttur og Guðmundar Jónssonar er bjuggu á Kvoslæk frá 1893. Guðmundur var einkabam for- eldra sinna og ólst upp í skjóli Starfsfús hönd og hugur heill oghjartaðgöfgifyllt var þitt veganesti og vöggugjöf sem veröld fékk ei spillt. r Blómoóúðin > öarðskom t v/ PossvogskiFl<jugat*ð j Sími: 554 0500 Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að diskl- ingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. þeirra. Eftir bama- próf í Fljótshlíðar- skóla vann hann á búi foreldra sinna þar til faðir hans Iést árið 1965. Eftir það rak hann búið með móður sinni uns hún lést árið 1984. Bjó Guðmundur síðan einn á Kvoslæk uns hann fyrir hálfu öðm ári varð að bregða búi sökum heilsubrests. Dvaldi hann siðustu misser- in á Sjúkrahúsi Suð- urlands á Selfossi og á hjúkmnar- heimilinu á Kumbaravogi. Útför Guðmundar fer fram frá Breiðabólsstaðarkirkju í Fijóts- hlíð í dag og hefst athöfnin klukk- an 13. Þú vannst þín störf í trausti og trú hins trygga bóndamanns, sem að öllu hlúir, bætir böl bæði fólks og lands. (Höf.ók.) Einn af öðmm ganga þeir nú til feðra sinna bændurnir sem fyrr á þessari öld lögðu gjörva hönd að ræktun lands og lýðs og létu rætast djarfar vonir um blómlega byggð og betra mannlíf í sveitum landsins. Þrátt fýrir breytt viðhorf og annar- legt gildismat nú undir aldarlokin verður að vona að sá grannur hafi þegar verið lagður, sem borið geti uppi mannlíf og menningu um breiðar byggðir á nýrri öld. Um Guðmund á Kvoslæk má segja líkt og sr. Matthías orti fyrr um annan Fljótshlíðing: „Firrtist fordild, sá er í Fljótshlíð bjó, né skaust frá skyldu - til skapadæg- urs.“ Hann var heill og traustur í orði og athöfn. Þeir sem búa á sög- uslóðum Njálu og lifa sig frá æsku- áram inn í persónur og atburði sem þar er lýst, tileinka sér margir vel þau gildi sem þar eru í hávegum höfð. Tfl dæmis þann boðskap sem felst í orðum Kolskeggs: „Hvártki skal ek á þessu níðask ok á engu öðru, því er mér er til trúat.“ Og ekki veit ég marga sem betur hafa tileinkað sér boðorðið um að heiðra föður og móður, heldur en Guðmundur gerði með allri fram- göngu sinni, umhyggju og stuðn- ingi við foreldra sína allt frá æsku- dögum og tfl þeirra endadægurs. I skóla reyndist Guðmundur frá- bær námsmaður og mun hafa hlotið hæstu einkunnir sem hægt var að gefa, og var þar jafnvígur í öllum greinum. Var á orði haft að honum nægði að fara yfir námsefnið að- eins einu sinni til þess að geta skil- að því frá sér til fulls, svo skarpnæmur var hann og minnið trútt. Ekki er vafi á að við aðrar að- stæður hefðu honum staðið opnar leiðir til náms og frama á sviði vís- inda eða annarra mennta. Vora slíkar ytri takmarkanir á náms- kostum síður en svo einsdæmi á fyrri hluta aldarinnar. En aldrei heyrðist Guðmundur barma sér, hvorki af þessum sökum né öðram. Hann gekk sinn markaða veg, hóg- vær og af hjarta lítillátur. Hann tók þátt í félagslífi og samhjálp sveit- unganna, þar sem hver var búinn til að vinna hjá öðrum á grandvelli samvinnu, án reiknaðs endur- gjalds. Þannig urðu átökin aflmeiri tfl þess að byggja og rækta og raunar líka við bústörfin þegar þau kröfðust aukins mannafla. Guð- mundur var einnig um áratuga skeið traustur fjallmaður og góður félagi í haustleitum á Grænafjalli. Reyndist hann í því sem öðra gæt- inn og góður liðsmaður. Þegar litið er til þess þáttar sem Guðmundur á Kvoslæk átti í munstri mannlífs í sveitinni sinni, koma í hug orð postulans er hann segir: „Verið hver yðar öðram fyrri til að sýna hinum virðing.“ Hann var þrátt fyrir sína skammvinnu skólagöngu góð sönnun þess sem skáldbóndinn Stephan G. Steph- ansson heldur fram: „Þitt er menntað afl og önd, eigirðu fram að bjóða: hvassan skilning, haga hönd, hjartað sanna og góða.“ Guðmundur var um árabil hús- vörður við félagsheimilið Goðaland og gegndi því starfi af mikilli trúm- ennsku og samviskusemi. A sumrin voru oft börn og unglingar á Kvos- læk, bæði til fósturs og til hjálpar við heyskapinn. Og eftir að Astríð- ur móðir Guðmundar féll frá hafði hann ráðskonur um sumartímann til að sjá um heimilisverkin. Milli Guðmundar og þessa sumardvalar- fólks skapaðist einatt vinátta og tryggð sem hélst í gegnum árin. Nágrannar hans og fleiri vinir sýndu honum tryggð og dýrmæta hjálpsemi þegar aldur og vanheilsa tóku að gera honum erfitt fyrir. Á það reyndi mjög hin síðustu árin, enda var honum ekki ljúft að þurfa að yfirgefa sín föðurtún og sveitina kæru. Þótt Guðmundur væri hógvær og tillitssamur í allri umgengni var hann nógu skapríkur tfl að bregð- ast við rangsleitni og ósanngirni, ef honum þótti úr hófi keyra. Hann mun líka undir niðri hafa illa þolað höft og stífar reglugerðir sem bændum og búskap þeirra voru settar á seinni áram. Var hann enda, eins og aðrir bændur, áður vanur sjálfræði og ábyrgð á sínum athöfnum og búskaparlagi. Eins og áður sagði átti Guðmundur við al- varleg veikindi að stríða nokkur síðustu árin. Voru þau honum erfið og varð engin bót á ráðin. Hinsta kallið færði því að þessu sinni með sér lausn og líkn. Vinir og sveitungar kveðja góðan dreng, þakka samfylgdina og fela hann Guði og gæsku hans. Sváfnir Sveinbjarnarson. Birting afmælis- og minningargreina MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birt- ingar endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaup- vangsstræti 1, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarn- ar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is) - vinsa- mlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Um hvern látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfí- legri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar era beðnir að hafa skímarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins era birtar greinar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar era birtar af- mælisfréttir ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi út- prentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa sem í daglegu tali era nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og Wordperfect einnig auðveld í úrvinnslu. GUÐMUNDUR VIGFÚSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.