Morgunblaðið - 13.11.1999, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1999 61.
UMRÆÐAN
Hugvekja
að vestan
NÚ haustar að og
menn fara að huga að
félagsmálum. Sumar-
leyfin búin og útlanda-
ferðirnar minning ein.
Frjálslyndi flokkurinn
fer einnig að skríða úr
sumarhíði sínu, og láta
til sín heyra. Við þurf-
um að fara að snúa
okkur að því að vekja
athygli á stefnuskrá
flokksins og því sem
hann stendur fyrir.
Ég vil benda fólki í
hinum dreifðu byggð-
um á að lesa sjávar-
útvegsstefnu okkar.
Frjálslyndi flokkurinn
er með skýra og vel mótaða sjávar-
útvegsstefnu, og í kosningabarátt-
unni var margvarað við því ástandi
sem nú er að koma upp allt í kring
um landið. Ef við viljum hafa allt
landið í byggð, verðum við að fá að
hafa sterka smábátaútgerð heima-
Byggðamál
s
Eg sendi flokks-
systkinum mínum um
allt land kveðjur, segir
Ásthildur Cesil
Þórðardóttir, og hvet
þau til að fara að láta í
sér heyra og hafa hátt
um flokkinn okkar.
manna á hverjum stað. Þessi lífs-
nauðsynlegi þáttur í daglegu lífi
smábæja og þorpa um allt land er
að leggjast af vegna kolrangrar
sjávarútvegsstefnu. Við getum
breytt þessu, ef við viljum, en þá
verðum við að standa saman. Óg
hvað er þá betra en að sameinast
um þann flokk sem hvað afdráttar-
lausast tekur á um hvernig standa
skuli að útgerð á íslandi.
Sama er að segja um landbúnað-
armálin, þau eru í stórum hnút
vegna hafta og afskipta hins opin-
bera, og bændur eru neyddir tU að
hrökklast frá búum sínum, vegna
svipaðs kvótakerfis og í sjávarút-
veginum. Við höfum líka fastmót-
aða stefnu í friðunar- og umhverfís-
málum.
Allt eru þetta átakamál í dag. Við
höfum áhuga á að snúa vörn í sókn í
fíkniefnamálum, þar er mikið verk
óunnið og menn eru þar algjörlega
að berja hausnum við steininn. Það
er málefni sem ég vil taka allt öðru-
vísi á, og mun beita mér fyrir innan
flokksins ef við fáum
umboð þjóðarinnar til
að vinna að okkar mál-
um.
Ef við viljum ná
árangri og vekja fólk
til umhugsunar, tekur
það tíma. Við íslend-
ingar erum orðin svo
föst í gömlu fiokka-
kerfi að það tekur
fjögur ár að minnsta
kosti að skafa utan af
rótarhnausnum og
koma fólki í skilning
um að jörðin ferst ekki
þó það kjósi ekki alltaf
gamla flokkinn aftur
og aftur á hverju sem
gengur. Gömlu hugsjónamennirnir
eru þarna ekki lengur, í þeirra stað
eru komnir ungir menn sem oft
hugsa bara um daginn í dag. Og
peningahyggjan er að verða alls-
ráðandi. Það læra menn í skólum
með hagfræði og allskonar fræð-
um. Gömlu gildin eru talin úrelt og
nú á allt að vera hagkvæmt út frá
arðsjónarmiðum.
Ég er ekki sammála því. Ef mað-
ur er ekki ríkur í andanum og í sátt
við sjálfan sig, þá er alveg sama
hve mikið af peningum maður á,
vanlíðan er svarið. Sumir halda að
það sé hægt að gera hvað sem er,
bara ef ekki kemst upp um það, það
er ekki rétt. Ef maður breytir
ranglega þótt ekki komist upp um
mann líður manni samt illa. Við
höfum öll innbyggt í okkur lögmál-
ið sem er inntakið í trúnni, og þótt
djúpt sé á því sumstaðar, þá er það
þar. Og þegar fer að síga á ævina,
þá verða þessi gildi sterkari og hafi
maður hagað sér eins og bavíani,
þá er erfiðara að lifa með því en áð-
ur. Þetta hefur ekki beint með
kristna trú að gera heldur hvernig
við erum byggð upp. Forhertustu
menn reyna að leita fyrirgefningar
þegar þeir nálgast endamarkið. Þá
kemur hræðslan við hið óþekkta.
Þetta er alþekkt staðreynd og eins
gott fyrir unga athafnamenn að
hafa í huga. Allt kapp er best með
forsjá.
Ég vil svo bara senda flokks-
systkinum mínum um allt land
kveðjur, og hvet þau til að fara að
láta í sér heyra og hafa hátt um
flokkinn okkar. Hann er ekki stór í
dag, en ég hef þá trú að hann geti
eflst og dafnað. En til að það gerist
þá þurfum við að vera dugleg við að
láta í okkur heyra. Við erum með
góð stefnumál og gott fólk. Við
skulum því ganga hnarreist og sig-
urviss inn í veturinn, og alla leið inn
í nýja öld.
Höfundur er garðyrkjustjóri
Isafjarðarbæjar.
Ásthildur
Cesil Þórðardóttir
| Viðskipti í
Í56
Viðskipti í 44 löndum - 264 lönd eftir - Ertu með?
-1-
J
íslensk hönnun
og framleiðsla á
heimsmælikvarða.
Opið i sýningar-
sölum i dag
frá 10.00 - 16.00
<§)
SAMTÖK
IÐNAÐARINS
Sýning í dag á
framúrskarandi
hönnun og fram-
leiðslu íslenskra
húsgagna og inn-
réttinga á eftir-
töldum stöðum:
Á. Guðmundsson
Bæjarlind 8-10,
Kópavogi
Epal
Skeifunni 6,
Reykjavík
GKS
Smiðjuvegi 2,
Kópavogi
Penninn
Hallarmúla 2,
Reykjavík
*
4*