Morgunblaðið - 13.11.1999, Blaðsíða 73
.................. .......... . . jhwl
í DAG
Árnað heilla
Nýjar sendingar af sófasettum
oq hornsófum
Teq. Annette
T.d. teg. Annette 3+1 + 1 stgr. kr. 179.000
álklætt leðri, margir litir.
,
2H3 m/tauáklæði frá kr. 87.900
2H3 m/leðri á slitflötum frá kr. 119.000.
OPIÐ í DAG KL. 10-16.
VISA
□□□□□□
36 mán.
HUSGAGNAVERSLUN
Reykjavikurvegi 66, Hafnarfirði, sími 565 4100
36 mán.
Bamamyndatökur á
kr 5000,00
Vegna mikillar aðsóknar er
tilboðið framlengt.
Ljósmyndastofan Mynd súni: 565 42 07
Ljósmyndastofa Kópavogs sími: 554 30 20
Matvcelamarkaóurinn er opinn laugardaga og sunnudaga
kl. 11-17. Söluaðllar eru að selja elgln framlelðsluvöru
sem er ófáanleg nema í Kolaportinu.
KOLAPORTIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Hrútur ~
(21. mars -19. apríl)
Þú ert þekktur fyrir að stunda
fagleg vinnubrögð. Stattu vörð
um orðspor þitt og hlustaðu
aldrei á sögur sem hafa ekki
við nein rök að styðjast.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það skiptir öllu máli að vera
fordómalaus gagnvart því
fólki sem þú hittir því engir
tveir eru eins og allir hafa
sínar ástæður fyrir hlutunum.
Tvíburar t ^
(21. maí - 20. j úní)
Láttu óttann ekki hindra þig í
að ná takmarki þínu. Hug-
leiddu frekar á þá staðreynd
að þú getur allt sem þú ætlar
þér og drífðu þig af stað.
Krabbi ^
(21. júnl - 22. júlí)
Til að forðast allan misskiln-
ing þarftu að segja það sem
þér býr í brjósti. Þögnin get-
ur verið svo þrúgandi og eng-
um er fært að lesa hug þinn.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Settu það í forgang að verða
öðrum að liði því það gefur
sjálfum þér mest. Ekki þarf
alltaf að vera ástæða til þess
að maður láti gott af sér leiða.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) IwL
Leggðu hugann í bleyti og
vittu hvort þú getir ekki kom-
ið ástvinum þínum á óvart
með einhverjum hætti. Það
þarf ekki að kosta neinu til
nema sjálfum sér.
tTX
(23. sept. - 22. október) A
Tilfinningalega ertu ekki í
góðu jafnvægi svo vertu ekk-
ert að láta skoðanir þínar í
ljós fyrr en þú ert kominn á
réttan kjöl aftur.
Sporðdreki „
(23. okt. - 21. nóvember)
Þú átt gott með að vinna með
öðrum og leggur mikla
áherslu á að andrúmsloftið sé
létt og skemmtilegt enda
skiptir það öllu máli ef vel á
að takast til.
Bogmaður m ^
(22. nóv. - 21. desember) XLf
Gefðu þér tíma til að skoða
hvað skiptir þig raunverulega
máli í lífinu og hvemig þú
getir breytt því sem breyta
þarf í samræmi við það.
Steingeit
(22. des. -19. janúar)
Þú átt ekki í neinum vand-
ræðum með að hafa þau áhrif
á fólk sem þú vilt og það er
ekki þér líkt að efast um það
svo eftir hverju ertu að bíða?
Vatnsberi f .
(20. janúar -18. febrúar) GSnt
Stundum fara málin á annan
veg en maður ætlaði en vertu
ekkert að velta þér upp úr því
og taktu bara þann pól í hæð-
ina að ekki er allt á þínu valdi.
Fiskar m
(19. febrúar - 20. mars)
Þú verður beðinn um að taka
að þér vandasamt verk og
þarft að gera þér grein fyrir
þeirri ábyrgð sem því fylgir.
Með skipulagningu ætti það
að takast.
Stjömuspána & að iesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1999 73
Gömlu dansarnir
í Hreyfilshúsinu í kvöld
kl. 22.00—02.00.
Félag harmonikuunnenda
STJÖRJVUSPA
O/VÁRA afmæli. í dag,
O v/laugardaginn 13. nóv-
ember, verður áttræð Ingi-
björg Kristjánsdóttir,
Kópavogsbraut lb, Kópa-
vogi. Ingibjörg tekur á móti
ættingjum og vinum á Hótel
Loftleiðum, Víkingasal, í
dag frá kl. 14-17.
HÉR er ævintýraleg
slemma sem Bandaríkja-
mennimir Ralph Katz og
George Jacobs sögðu og
unnu í keppninni um Kína-
bikarinn (China Cup) í síð-
asta mánuði:
BRIDS
Umsjón Gnðmundur
Páll Arnarson
Norður
A KD3
V Á105
♦ ÁKD95
♦ 52
Vestur Austur
+ 1074 A G865
V KG872 V 94
♦ 64 ♦ G1032
+ G84 * K103
Suður
♦ Á92
VD63
♦ 87
+ ÁD976
Þetta var í fyrstu umferð
og andstæðinganna er ekki
getið í mótsblaðinu, senni-
lega af tilhtssemi. Én eftir
nokkrar illskiljanlegar sagn-
ir, endaði Katz sem sagnhafi
í sex gröndum í suður. Út-
spilið var spaði.
Það má fá fjóra slagi á
lauf með því að gefa einn, en
það dugir aðeins í ellefu
samtals, því tígullinn brotn-
ar ekki 3-3. Katz tók fýrsta
slaginn á spaðakónginn í
borði og spilaði laufi. Austur
sá að laufið lá vel og ákvað
að hræra í stöðunni með þvi
að rjúka upp með kónginn!
Katz drap með ás og prófaði
tígulinn. Þegar austur henti
hjarta í þriðja tígulhámann-
inn leit spilið út fyrir að vera
algerlega vonlaust. En Katz
hélt áfram. Hann spilaði nú
laufi á drottninguna. Tók
síðan tvo slagi á spaða og
spilaði laufi úr borði. Og viti
menn - liturinn féll 3-3 og
vestur lenti inni á gosa, tíg-
ullaus og spaðalaus, og varð
að spila hjarta frá kóngnum.
Katz hleypti á drottninguna,
sem var hvort tveggja í
senn: tólfti slagurinn og inn-
koma á frílaufin.
Það má ímynda sér að AV
hafi þurft að ræða saman
eftir spilið og efnislega gæti
samtalið verið á þessa leið:
Austur: ,Af hverju hent-
irðu ekki laufgosanum undir
drottninguna?"
Vestur: „Vegna þess að
þú blekktir mig með lauf-
kóngnum."
er..
■.. að gefa í skyn að þú
viljir að hann taki þátt í
að mála.
eftír Frances Drake
SPORÐDREKI
Afmælisbarn dagsins:
Fróðleiksþorsti þinn hefur
opnað þér nýjar víddir á svo
mörgum sviðum og það
kemur enginn að tómum
kofanum þar sem þú ert
annars vegar.
n pTÁRA afmæli. Næst-
I tJ komandi þriðjudag
16. nóvember verður sjötíu
og fimm ára Friðrik Stef-
ánsson, Engihjalla 19,
Kópavogi. Eiginkona hans
er Eh'n Aðalheiður Þor-
steinsdóttir. Þau taka á móti
ættingjum og vinum á heim-
ili sínu í dag frá kl. 15-19.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 31. júlí sl. í Illuga-
staðakirkju af sr. Arnaldi
Bárðarsyni Elín María Ing-
ólfsdóttir og Guðmundur
Breiðdal. Með þeim á
myndinni eru dætur þeirra
María Lovísa og Ragnhild-
ur Rún. Heimili þeirra er í
Kópavogi.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 3. júlí sl. í Gaulverja-
bæjarkirkju af sr. Úlfari
Guðmundssyni Guðrún
Elísa Gunnarsdóttir og
Bárður V. Magnússon. Með
þeim á myndinni eru böm
þeirra, Ellý Hrund, Mar-
grét Ýr og Magnús Freyr.
Heimili þeirra er á Selfossi.
SKAK
Umsjón Margeir
Pélursson
STAÐAN kom upp á opna
Wichem mótinu í Þýska-
landi í haust.
Stórmeistarinn
Giorgadze
(2.602), Georgíu,
hafði hvítt, en
Þjóðverjinn Hein
hafði svart og átti
leik. Hann missti
hér af glæsilegum
leik:
Hein lék 28. -
Kh8?? og gafst
upp eftir 29.
Hxe7! - Hxe7 30.
Dh4+ því hann
tapar manni.
Björgunarleikur-
28. - Hhl+! 29. Kxhl - Dfl+
30. Kh2 - Hh8+ 31. Dh4 -
Hxh4+ 32. gxh4 - Kf8 og nú
má hvítur þakka fyrir að ná
jafntefli með 33. Hc8+ - Kg7
34. Hc7 og svartur á ekkert
betra en að þráleika.
Svartur leikur og
heldur jafntefli.
ÓLAFUR DAVÍÐSSON
Seint mér vilja um sefa garð
sjatna hin fomu kynni.
Það liðna, sem fyrir löngu varð,
líður sízt úr minni.
Ólafur var einn af þeim
sem enginn frá mér hrekur,
þangað til að held ég heim,
hvað sem þá við tekur.
Sú var ekki svikin rót,
er svona spratt af leggur.
Af íslands fæddist engri snót
íslenzkari seggur.
En fræði og sagnir sögulands
sakna manns úr ranni.
Viltu taka upp verkin hans
og verða þar að manni?
Jón Þorkeisson (Fornólfur).
pT/\ÁRA afmæli. Næst-
tl U komandi mánudag,
15. nóvember, verður
fimmtug Þuríður Einars-
dóttir, formaður Póst-
mannafélags fslands,
Kambsvegi 3, Reykjavík.
Eiginmaður hennar er
Friðrik Alexandersson,
rafmagnstæknifræðingur.
Ilmandi hákarl
Brakandi harðfiskur
Bravðgóð síld
Ljúrtengur lax
Kræsilegt kjöt
Mjúkar flatkökur
Kolaportskartöflur
íslenskt sælgæti
Tilbúnir rettir
Sérunninn saltfiskur
LJOÐABROT