Morgunblaðið - 13.11.1999, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 13.11.1999, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1999 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ URVERINU Starfsmenn FPI tortryggja fyrirætlanir NEOS Seafoods Lofa varanlegum að- gangi að fískistofnum MIKIL andstaða er meðal starfs- manna kanadíska sjávarútvegsris- ans Fishery Products International (FPI) gegn fyrirhugaðri yfírtöku NEOS Seafood á félaginu. Bill Barry, eigandi Ban-y Group og einn eigenda NEOS Seafoods, segir félagið hinsvegar geta tiyggt verksmiðjum varanlegan aðgang að hráefni. Yfirtaka NEOS á Fis- hery Products International sé þannig nauðsynleg dreifðum byggðum á Nýfundnalandi og þar með fiskiðnaði landsins í heild. NEOS Seafoods, sem auk Barry er í eigu Sölumiðstöðvar hrað- frystihúsanna hf. og Clearwater Fine Food, hefur eins og kunnugt er gert tilboð í öll hlutabréf sjávar- útvegsíyiirtækisins Fishery Products Intemational. Að undan- förnu hafa auglýsingar undir merkjum NEOS Seafoods og viðtöl við forsvarsmenn félagsins birst í fjölmiðlum á Nýfundnalandi, auk þess sem þeir hafa átt fundi með bæjarstjórum þeirra byggða þar sem FPI starfrækir fískrétta- verksmiðjur. Bill Barry segir í kanadíska dagblaðinu að The Tel- egram NEOS Seafoods sé reiðu- búið að tryggja dreifðum byggðum varanlegan aðgang að fiskistofnun undan ströndum Nýfundnalands til að halda rekstri verksmiðja í við- komandi byggðum gangandi. I blaðihu kemur einnig fram að margir starfsmenn FPI tortryggja engu að síður íyrirætlanir NEOS Seafoods og segja að yfirtakan verði þeim ekki í hag. Starfsmenn- irnir óttast að með aukinni tækni- væðingu muni störfum í verksmið- junum fækka eða rekstri þeirra verði hreinlega hætt. Þeir segjast ánægðir með gang mála hjá FPI og því séu breytingar óþarfar. Erlend skip Iandi í auknuin mæli á Nýfundnalandi Bill Barry segir hinsvegar að taka verði upp nýja stefnu í fisk- iðnaði á Nýfundnalandi. Verði það ekki gert haldi fólksflóttinn af landsbyggðinni áfram og fisk- vinnsla muni leggjast af. Hann seg- ir fyrirtækin þrjú geta lagt til nýja stefnu sem geri fiskiðnaðinum kleift að vaxa og dafna og þannig verði það fýsilegur kostur fyrir fólk að búa úti á landi. Styrkur félag- anna þriggja opni ótal ný tækifæri, meðal annars í framleiðslu lyfja úr krabba- og rækjuskeljum og í veið- um úr vannýttum karfastofnum. Þá segir Bari'y að áhersla verði lögð á að fá erlend skip til að landa afla sínum í auknum mæli á Nýfundnal- andi, meðal annars skip sem veiða á Flæmska hattinum. Þá er fyrirhugaður fundur tals- manna NEOS Seafoods með verka- lýðsfélaginu sem gætir hagsmuna flestra starfsmanna FPI. NEOS leggur mikla áherslu á stuðning verkalýðsfélagsins, enda eru sam- skipti Bills Barrys við verkalýðsfé- lög á Nýfundnalandi sögð hafa ver- ið fremur stirð. Vilja breytingar á lögum um hámarkseignaraðild Ein helsta hindrunin í vegi fyiir yfirtöku NEOS er sögð vera lög á Nýfundnalandi sem kveða á um 15% hámarkseignaraðild einstakl- inga eða félaga í fyrirtækjum þar í landi. Lögin voru sett fyrir 12 árum og hafa sérfræðingar hvatt yfirvöld í Nýfundnalandi til að afnema lög- in, enda komi það fyrirtækjum í landinu mjög til góða. M.a. hafa stórir hluthafar í FPI bent Brian Tobin, forsætisráðherra landsins, á að breytingar á lögunum yrðu fjöl- mörgum fyrirtækjum í hag en hann hefur áður lýst því yfir að lögunum yrði ekki breytt nema landið í heild nyti góðs af. FH RÆKJA H3 Elías Bjarnason, sölustjóri, bendir á inngreyptu rafflöguna í kennikcrinu. Juan Márquez Luzón, svæðissölusljóri, stendur hjá. Kennikerið frá Borgar- plasti byrjað að seljast Á ÍSLENSKU sjávarútvegssýning- unni í Smáranum í Kópavogi sem haldin var í september s.l. sýndi Borgarplast hf., ásamt Astra ehf., ker með inngreyptri rafflögu. Þetta ker var á sýningunni kynnt undir enska heitinu „Info-tub“, en hefur síðan fengið íslenska nafnið kenni- ker, sem vísar til þess að það geymir í sér auðkenni sitt. Möguleikinn á að lesa auðkenni kers með rafrænum hætti opnar ýmsa möguleika á skráningu kers og innihalds þess, að því er segir í fréttatílkynningu frá Borgarplasti. Slíkar upplýsingar má síðan hagnýta á ýmsan hátt í upplýsinga- kerfum notenda, hvort sem um er að ræða útgerðar- eða vinnslufyrirtæki eða ef tilgangurinn er einfaldlega sá að hakte utan um keraeign sem birgðir. Áðm- hefur verið reynt að koma rafrænum auðkennum í ker, þ.e. strikamerki og segulrendur, en slíkar lausnir reyndust ekki þola hnjask og bleytu sem óhjákvæmi- lega fylgir því umhverfi sem kerin Fiskiðjusamlag Húsavíkur kaupir 50 fiskiker eni notuð í. Borgarplast fann hins vegar heppilega lausn á að koma rafflögunni íyrir í kerinu með svo tryggilegum hætti að segja má að hún sitji þar örugglega allan þann tíma sam kerið endist. Nýlega seldi Borgarplast hf Fisk- iðjusamlagi Húsavíkur 50 fiskiker af gerðinni 1000 með inngreyptum raf- flögum. Þetta er fyrsta sala Borgar- plasts á slíkum kerum eftír íslensku sjávarútvegssýninguna í Kópavogi. Fiskiðjusamlag Húsavíkur lagði til rafflögur til ísetningar í kerin og fékk þær flögur frá Tæknivali hf. Þessi búnaður er svo notaður í tengslum við upplýsingakerfið Haf- dísi, sem nú er í eigu TölvuMynda hf. Umræddar flögur geyma fast númer og eru tvær flögur með mis- munandi númerum í hverju keri. Tölvukerfíð sér um að tengja þessi tvö númer við sýnilegt númer kers- ins. Þetta gefur því möguleika á að sjá af hvaða hlið kersins er lesið. Heldur utan um staðsetningu Fiskiðjusamlagið notar kerin fyrst og fremst til lageringar á rækju. Sjálfvirk Marel-vog matar rækju ofan í ker sem geymir saltpækil og ís. Þegar tilskilinni þyngd kers og innihalds er náð, er kerið sjálfkrafa skráð til lageringar og flutt í kæligeymslu. Eftir ákveð- inn tíma (12-24 klst) er kerið tekið úr kæligeymslu og hvolft úr því í sérstakt innmötunarílát. Við þessa tæmingu er kerið sjálfkrafa skráð aftur. Með þessum skráningum get- ur kerfið haldið utan um staðsetn- ingu kersins á hverjum tíma og sýnt hvort það er ónotað, í lageringu eða hvort það hafi verið tæmt og inni- hald þess farið í áframhaldandi vinnslu. Sjö flugskeyti springa í Islamabad Liðsmenn bin Ladens grunaðir um tilræðin íslamabad. AP. SJÖ flugskeyti sprungu nálægt sendiráði Bandaríkjanna, byggingu Sameinuðu þjóðanna, bandarískii menningarmiðstöð og _ opinberum byggingum í miðborg íslamabad í gær. Grunur lék á að Sádi-Arabinn Osama bin Laden, sem hefur verið sakaður um mannskæð hermdar- verk, hafi staðið fyrir tilræðunum. Að minnsta kosti sex manns særðust í árásunum, sem stóðu í tvær mínútur og ollu ekki miklu eignatjóni. Ekkert flugskeytanna hæfði byggingarnar og tiltölulega fáir voru staddir þar sem þau sprungu. Aðstoðarlögreglustjóri Islama- bad sagði að óþekktir menn hefðu skotið flugskeytunum úr bílum og komist undan. Pakistanar varaðir við Enginn lýsti tilræðunum á hend- ur sér en heimildarmenn AP í inn- anríkisráðuneytinu sagði að grunur léki á að liðsmenn Osama bin La- den hefðu verið að verki. Bandarísk stjórnvöld hafa sakað bin Laden um að hafa staðið fyrir sprengju- árásum sem urðu 224 að bana í sendiráðum Bandaríkjanna í Kenýa og Tansaníu í fyrra. Bin La- den er í Afganistan og nýtur þar verndar Talebana, sem hafa náð 90% landsins á sitt vald. Heimildarmenn AP sögðu að Ta- lebanar hefðu áður varað stjórn- völd í Bandaríkjunum og Pakistan við því að reyna að knýja þá til að framselja bin Laden. „Þessum sprengingum er ætlað að vara yfirmenn pakistanska hers- ins við því að hefji þeir samstarf við Bandaríkjamenn gegn Osama megi búast við enn meira ofbeldi," sagði einn embættismanna innanríkis- ráðuneytisins. „Þetta er ekki að- eins viðvörun til Bandaríkjamanna, heldur einnig Pakistana." Öryggiseftirlitið á flugvöllum landsins var hert og leitað var vandlega á öllum sem voru á leið úr landinu. Leiðtogi Talebana fordæmir árásirnar Leiðtogi Talebana, Mullah Mohammad Omar, fordæmdi flug- skeytaárásimar í yfirlýsingu sem gefin var út í afgönsku borginni Kanadhar. „Þessu hermdarverki var ætlað að skapa misskilning milli Afgana og annarra þjóða, einkum til að skaða tengsl Áfganistans við Pakistan," sagði hann. „Markmiðið var einnig að valda enn meiri vandamálum í samskiptum Afgan- istans og Bandaríkjanna.“ Pakistan er eitt af þremur ríkj- um sem hafa viðurkennt stjóm Ta- lebana í Afganistan. Pervaiz Mus- harraf hershöfðingi, sem tók völdin í sínar hendur í síðasta mánuði, gaf þó til kynna eftir að hann steypti Nawaz Sharif forsætisráðherra af stóli að Talebanar gætu ekki reitt sig á fortakslausan stuðning Pak- istans og að hann vildi að þeir mynduðu stjórn með andstæðing- um sínum. Musharraf sagði eftir árásirnar í gær að hann væri tilbúinn að ræða við leiðtoga Talebana til að reyna að leysa deilu þeirra við Banda- ríkjamenn um bin Laden. Andrawes leyst úr haldi PALESTÍNUKONAN Souhaila Andrawes, sem tók þátt í ráni á Lufthansa-þotu 1977 og var fangelsuð 1994 í Noregi, verður frjáls ferða sinna 30. nóvember. Hefur hún þá afplánað um helm- ing dómsins sem hún fékk á sín- um tíma í Þýskalandi fyrir hryðjuverk. Mun Andrawes fá dvalarleyfi í Noregi en hún á þar eiginmann og börn. Hún kom til Noregs snemma á þessum ára- tug og sagðist vera pólitískur flóttamaður. Flugræningjarnir myrtu flugstjórann en þrír þeirra féllu þegar þýskir sér- sveitarmenn náðu loks vélinni á sitt vald í Sómalíu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.