Morgunblaðið - 13.11.1999, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1999 67
FRÉTTIR
Merki Flugþings ‘99.
Flugþing í næstu viku
REKSTRARFORM íslenska flug-
samgöngukerfisins verður tekið til
umræðu á Flugþingi ‘99 sem haldið
verður í Reykjavík næstkomandi
miðvikudag. Þar flytja tíu innlendir
og erlendir fyrirlesarar erindi um
ýmsar hliðar flugsamgangna og fyr-
irkomulag á rekstri þeirra.
Meðal erinda má nefna umfjöllun
Gunnars Finnssonar, deildarstjóra
hjá Alþjóða flugmálastofnuninni,
um ábyrgð ríkisins í flugsamgöng-
um, erindi Þorgeirs Pálssonar flug-
málastjóra um hlutverk Flugmála-
stjórnar í nútíð og framtíð, erindi
Bian McDonnell, forstjóra írsku
flugmálastofnunarinnar, um við-
skiptavæðingu hennar og erindi
Hreins Loftssonar, formanns fram-
kvæmdanefndar um einkavæðingu
um strauma og stefnur í ríkisrek-
inni þjónustu. Þá fjallar Gylfi
Magnússon hagfræðingur um
einkafjármögnun flugstöðvar á
Reykjavíkurflugvelli. Flugþing
hefst með ávarpi Hilmars Baldurs-
sonar, flugstjóra og formanns flug-
ráðs, kl. 9 að morgni miðvikudags-
ins 17. nóvember og lýkur fundum
um kl. 17.
Þorgerður Diðriksdóttir og Eyjólfur Valgeirsson heimilismenn á Hrafh-
istu í Reykjavík undirbúa basarinn ásamt leiðbeinendum sinum, þeim
Valgerði Hjartardóttur, Gerd Ellen Einarsson og Turid H. Erlendsson.
*
Arlegur
Hrafnistu í
HEIMILISFÓLK á Hrafnistu í
Reykjavík vinnur þessa dagana að
undirbúningi á árlegum basar sem
haldinn verður í dag, laugardaginn
13. nóvember nk. á 4. hæð. A
basarnum gefur að líta fjölbreytta
og skemmtilega handavinnu heim-
ilisfólksins, segir í fréttatilkynn-
ingu.
basar á
Reykjavík
Á Hrafnistu er að flnna ýmsa
hagleiksmenn og konur. Þama er
um að ræða ýmis konar föndur
heimilisfólks. Meðan basarinn
stendur yfir mun stjóm Ættingja-
bandsins, sem er félag aðstandenda
heimilisfólksins, selja vöfflur og
heitt súkkulaði í samkomusalnum
Helgafelli á C-4.
Fj ölskyldudagur
í Gullsmára
ANNAR fjölskyldudagurinn í fé-
lagsheimilinu Gullsmára, sem var
opnað í des. 1997, verður nú laugar-
daginn 13. nóv. og helst með dag-
skrá kl. 14.
Á dagskránni, sem flutt er af fólki
á öllum aldri, mun Kór Snælands-
skóla syngja nokkur lög undir stjóm
Heiðrúnar Hákonardóttur, ungir
dansarar frá Dansskóla Sigurðar
Hákonarsonar dansa gömlu
dansana, Ásrún Karlsdóttir, Eva
Lind Jónsdóttir og Þómnn Ása Þór-
isdóttir syngja við undirleik Kol-
brúnar óskars Óskarsdóttur og
Margrét Bjamadóttir íþróttaþjálfari
mun bragða á leik með gestum, ung-
um sem öldnum. Þá mun Guðrún
Eyjólfsdóttir, eldri kona, flytja fróð-
leik um fjölskylduna fyrr og nú.
Veitingar verða glæsilegar að vanda
og seldar á vægu verði en aðgangur
að dagskránni er öllum heimill og án
endurgjalds meðan húsrúm leyfir.
Félagsheimilið Gullsmári er ann-
að af tveimur félagsheimilum sem
ætluð era sérstaklega eldra fólki í
Kópavogi til samfunda og samvera.
Á sumardaginn fyrsta í ár, á Ári
aldraðra, vora þessi félagsheimili,
Gullsmári og Gjábakki, opnuð form-
lega fyrir fólk á öllum aldri, enda yf-
irskrift Sameinuðu þjóðanna „þjóð-
félag fyrir fólk á öllum aldri.“ Áður
hafði verið mörkuð ákveðin „kyn-
slóðastefna" í félags- og tómstunda-
starfi eldra fólks Kópavogi t.v. með
því að gefa kynslóðum tækifæri til
að mæta í félagsheimilunum á
svokölluðum fjölskyldudögum, segir
í fréttatilkynningu.
Lýst eftir
vitnum
FÖSTUDAGINN 5. nóvember sl.
um kl. 12.50 varð umferðaróhapp á
gatnamótum Háaleitisbrautar og
Brekkugerðis í Reykjavík. Þar
lentu saman bifreiðir af Mercedes
Bens gerð rauð/vínrauð að lit og
Masda 323 ljósgræn að lit.
Leitað er eftir vitnum að óhapp-
inu og þau beðin að gefa sig fram
við rannsóknardeild lögreglunnar í
Reykjavík.
Stofnun
foreldra-
samtaka barna
með klumpufót
SUNNUDAGINN 14. nóvember
nk. klukkan 17.00 verður haldinn
stofnfundur samtaka foreldra
bama með klumpufót í sal Um-
hyggju á Laugavegi 7. Þeir sem
tengjast þessu málefni á einhvera
hátt era velkomnir á fundinn og til
að taka þátt í stofnun samtakanna.
R|„ ||j h|„ fevKJAte^Í
WIU UI UIU BORGARLEIKHÚSIÐ
BH I'RIINAR! ll'Sii''
Leikritið Leit að vísbendingu um vitsmunalíf í
alheiminum er í leikstjórn Maríu Sigurðardóttur.
Með aðalhlutverk fer Edda Björgvinsdóttir.
/í>mbl.is
V
—e/T-mi#\£y rJÝTT-