Morgunblaðið - 13.11.1999, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 13.11.1999, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Barnahús hefur verið starfrækt í eitt ár Beðið um lögreglu- rannsókn í málum 89 barna á einu ári Fékk hönnunar verðlaun fyrir stólinn Jaka BARNAVERNDARSTOFA rekur Barnahús en auk hennar komu Rík- issaksóknaraembættið, Ríkislög- reglustjóraembættið, lögreglan í Reykjavík, Landspítalinn, Félags- málastofnun Reykjavíkur og Sam- tök félagsmálastjóra að undirbún- ingi stofnunar þess. Fyrirmyndin er bandarísk, en Barnahús er fyrsta stofnun sinnar tegundar í Evrópu. Á því eina ári sem Barnahús hef- ur starfað hefur Barnavemdar- nefnd vísað málum 125 barna þang- að til rannsóknar og eru 80% þeirra stúlkur og 20% drengii'. 85 bam- anna era búsett í Reykjavík og 40 era af landsbyggðinni. 22 þeirra eru á aldrinum tveggja til fimm ára, 38 á aldrinum sex til níu ára, 25 á aldr- inum tíu til þrettán ára og 40 á aldr- inum fjórtán til sautján ára. Meintir gerendur eru 119 talsins og af þeim era 88 fullorðnir og 31 undir átján ára aldri. Af þeim 88 meintu ger- endum sem eru fullorðnir eru 45 innan fjölskyldu þolenda og 43 utan hennar, en af þeim 31 meinta ger- enda sem eru undir átján ára aldri eru 9 innan fjölskyldu þolenda en 22 utan hennar. Eftir rannsóknarviðtal í Bama- húsi var beðið um lögreglurannsókn í málum 89 þeirra 125 barna sem þangað komu á þessu ári. Búið er að gefa út ákærur í málum sem varða 14 bamanna og hefur dómur fallið í undirrétti í málum fjögurra þeirra, sakfellt var í málum þriggja og sýknað í máli eins. Mikilvægt að barni líði vel í skýrslutöku í Bamahúsi er aðstaða til skýrslutöku og læknisskoðunar og er allt kapp lagt á að taka sem mest tillit til bamanna. Skýrslutaka fer fram í þægilegu umhverfí þar sem barnið talar við manneskju sem hef- ur reynslu og þjálfun í viðtölum af þessu tagi. Viðtalið er tekið upp á myndband og sýnt í beinni útsend- ingu í öðra herbergi í húsinu þar sem fulltrúar lögreglu, bamavernd- aryfírvalda, saksóknara, réttar- gæslumaður bamsins og verjandi þess granaða fylgjast með og geta haft áhrif á gang viðtalsins með spumingum, óski þeir þess. Upp- taka af viðtalinu er svo notuð í frek- ari meðferð málsins og í réttarhöld- um, komi til þeirra. Meginmarkmið Barnahúss er að veita börnum sem þolað hafa kynferðislegt ofbeldi alla þá aðstoð og þjón- ustu sem þau þurfa á einum stað. Bragi Guðbrandsson, forstjóri Bamaverndarstofu, segir þetta fyr- ú-komulag hafa marga mikilvæga kosti. Skýrslutaka af þessu tagi geti kostað mikil sálarleg átök fyrir bamið og jafnvel orsakað svokall- aða endurapplifun á atburðunum og því skipti miídu máli að bamið þurfí ekki að ganga í gegnum slíkt oftar en einu sinni. Einnig sé mikilvægt að sá sem ræði við barnið hafi þá færni og reynslu sem til þurfi, viti hvernig eigi að nálgast barnið og hafí þekkingu á þroska þess og við- brögðum. Til að bam eigi auðvelt með að tjá sig skipti líka máli að það sé í umhverfi þar sem því líði vel en kvíði geti orðið til að rýra árangur viðtalsins. Vigdís Erlendsdóttir, sál- fræðingur, hjúkranarfræðingur og forstöðumaður Barnahúss, og Ragna Björg Guðbrandsdóttir, sér- hæfður rannsakandi, taka viðtöl við bömin sem þangað koma, en báðar hafa þær mikla reynslu og þekkingu í þessum efnum. Vigdís segir mjög brýnt að vel sé að viðtölum við börnin staðið. Framburður bamsins sé oftast mik- ilvægasta sönnunargagnið fyrh- dómstólum, málin hvíli jafnvel á honum, og því verði að vanda til skýrslutökunnar eins og framast sé unnt. Þau hjá Barnahúsi hafí mikla trú á þeirri aðferð sem þau noti við skýrslutökuna en rannsóknir sýni að réttmæti frásagna bama, þar sem henni hefur verið beitt, sé marktækt meiri. Einnig hafa rann- sóknii- sýnt að síendurtekin viðtöl, við ýmsar ólíkar og jafnvel óþægi- legar aðstæður, geti ekki einungis haft skaðleg áhrif á barnið heldur einnig valdið því að framburður breytist, sérstaklega ef bamið er spurt leiðandi spurninga. Vigdís bendir á að það sé ekki síður mikil- vægt fyrir hinn granaða að vel sé staðið að skýrslutökunni því í ljós hafi komið í tilfellum þar sem rang- lega hefur verið sakfellt að ástæðan hafi oft verið sú að óvarlega hafi verið farið að við rannsókn. Vigdís vill ítreka að hverjum sem verður vís að því að barn sé beitt kynferðislegu ofbeldi beri skylda samkvæmt lögum til að tilkynna það til barnavemdaryfirvalda og segir hún brýnt að almenningur sinni þeirri skyldu sinni. RÍKISSAKSÓKNARI, Bogi Nils- son, hefur hafnað ítrekaðri beiðni Jóns Steinars Gunnlaugssonar, lög- manns Magnúsar Leópoldssonar, um opinbera rannsókn á tildrögum þess að Magnús var grunaður um aðild að hvarfi Geirfinns Einarsson- ar. Sakar Jón Steinar ríkissaksókn- ara um ámælisverðan undandrátt í málinu og mun snúa sér til dóms- málaráðherra endurskoði ríkissak- sóknari ekki ákvörðun sína. Magnús Leópoldsson sætti gæsluvarðhaldi fyrri hluta árs áiið 1976 vegna grans um aðild að hvarfi Geirfinns, sem hvarf frá heimili sínu í Keflavík hinn 19. nóvember árið 1974 og hefur aldrei spurst til hans síðan. Jón Steinar segir að upplýsingar séu komnar fram um að Magnúsi hafi verið haldið í gæsluvarðhaldi um langan tíma eftir að rannsak- endum var orðið ljóst að hann væri ekkert við hvarf Geirfinns riðinn, en ríkissaksóknari víki ekkert að því atriði í höfnunarbréfi sínu. Vill Jón Steinar fá úr því skorið hvort nafn Magnúsai- hafi tengst málinu í gegnum hugmyndir lög- reglunnar um að veitingahúsið Klúbburinn, sem Magnús var fram- kvæmdastjóri fyrir, stæði fyrir spírásmygli á Suðumesjum, eða DÓMNEFND Hönnunarverð- launa húsgagna og innréttinga hefur veitt Erlu Sólveigu Óskarsdóttur aðalverðlaun fyr- ir stólinn Jaka. Verðlaun sem taka mið af hönnun, formi og listrænni tján- ingu voru veitt Sigurði Gústafs- syni fyrir stólinn Tangó. Dóm- nefnd veitti Einari Ólafssyni sérstaka viðurkenningu fyrir stólinn Dropa og Erlu Sólveigu Óskarsdóttur fyrir stól, barstól og borð undir nafninu Dreki. Þá ákvað dómnefndin að veita fyr- irtækjunum Á. Guðmundssyni hf. og GKS hf. sérstakar viður- kenningar fyrir skólahúsgögn og Pennanum hf. og Húsgögn- hvort hann hafi tengst málinu eftir myndbirtingu í fjölmiðlum af leir- styttu sem gerð var af manni sem talinn var hafa hringt í Geirfínn kvöldið sem hann hvarf. Kom upp orðrómur um að Magnús væri tengdur hvarfi Geirfinns eftir að myndin af styttunni birtist en ríkis- saksóknari segir að ekki verði ann- að séð en að það hafi gerst vegna þess að styttan líktist Magnúsi. Hugsanleg þýðingarmikil gögn í ferðatösku ófundin Á grundvellí breytinga á lögum um meðferð opinberra mála frá því í vor var farið fram á rannsóknina og m.a. farið fram á að ríkissaksóknari fyndi gögn í Geirfinnsmálinu, sem afhent voru hinn 5. janúar árið 1976 á skrifstofu ríkissaksóknai'a. Telur Jón Steinar að í þessum gögnum kunni að leynast þýðingarmiklar upplýsingar um málið og segir í bréfi sínu til ríkissaksóknara að finnist gögnin ekki í skjalageymslu embættis ríkissaksóknara ætti það eitt að duga til opinberrar rann- sóknar á afdrifum þeirra. Valtýr Sigurðsson, dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur, sem gegndi stöðu fulltrúa bæjarfógeta í Keflavík árið 1974 og bar stjórnun- arlega ábyrgð á upphafsrannsókn urn og innréttingum hf. viður- kenningu fyrir Fléttu 2000- skrifstofuhúsgögn og -skilrúm. Finnur Ingólfsson iðnaðar- ráðherra afhenti verðlaunin á Kjarvalsstöðum í gærkvöldi og hér er hann ásamt Haraldi Sumarliðasyni, formanni Sam- taka iðnaðarins, og verðlauna- höfum, f.v.: Guðmundur Ás- geirsson frá Á. Guðmundssyni, Guðni Jónsson frá Pennanum, Haraidur Sumarliðason, Erla Sólveig Óskarsdóttir, Eyjólfur Pálsson sem tók við verðlaun- um Sigurðar Gústafssonar og Rafn Rafnsson frá GKS. ■ Athygli vakin/32 Geirfinnsmálsins, afhenti umrædd gögn í ferðatösku, en þar var um að ræða allar skýrslur og ýmis rann- sóknargögn varðandi málið. Segir hann í grein í Morgunblaðinu hinn 31. október 1998 að hann hafi ekki séð neitt af þessum gögnum síðan. Ríkissaksóknari segh' í bréfi sínu til Jóns Steinars, hinn 25. okóber sl. að ekki liggi fyrir önnur gögn um framrannsókn málsins en gagna- hefti sem merkt sé „Geirfinnsmál Kefiavíkurrannsókn" en hvorki verði líkum að því leitt að til séu frekari gögn úr frumrannsókninni í Keflavík né hvar þeirra sé að leita ef til séu. Segir ríkissaksóknari þ° að meginþungi rannsóknar á Geir- finnsmálinu hafi hvílt á herðum starfsmanna Sakadóms Reykjavík- ur og mættí ætlá að þar hefði öllum gögnum málsins verið haldið til haga. Jón Steinar segist munu snúa sér til dómsmálaráðherra og óska eftii' því að ráðherra beiti heimild í lög- um um meðferð opinberra mála til að leggja tO við forseta Islands að ákvörðun ríkissaksóknara verði felld úr gildi og að settur verði sér- stakur saksóknari til að fara með málið ef ríkissaksóknari endurskoði ekki ákvörðun sína fyrir 20. nóvem- ber. „Ótrúlega vel skrifuð bók" ★ ★ ★ ★! | „Mjög skemmtileg og hefur aila kosti góðrar skáldsögu. Gerð af þessari ótrúlega fallegu og Ijóðrænu snilld sem er ísaki eiginleg. Virkilega mannbætandi bók og mikil nautn að lesa hana." Súsanna Svavarsdóttir, Bylgjan/Stöó 2 {) FORLAGIÐ wwwjjnalogmenningj^^ Laugavegl 18 • Simi 515 2500 • Siðumúla 7 • Sími 510 2500 Beiðni um rannsókn á þáttum Geirfínnsmálsins hafnað Lögmaður hyggst vísa málinu til ráðherra
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.