Morgunblaðið - 13.11.1999, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
'■ nnrf—
Sp*" IW.'A \ 1 ■ V- *rr**«9 1 ■ «• »*
Morgunblaðið/Ásdfs
Katrín Júlíusdóttir, eigandi barnafataverslunarinnar Lipurtáar. Opnuð hefur verið ný verslun með sama
nafni á Netinu með barnaföt.
Barnafataverslunin Lipurtá opnuð á Netinu
Aukin þjónusta
við landsbyggðina
„ÞETTA er spennandi verk-
efni,“ sagði Katrín Júlíusdóttir,
eigandi barnafataverslunarinn-
ar Lipurtáar, sem opnað hefur
nýja verslun á Netinu með
barnaföt. „Við erum að taka
þátt í almennri uppbyggingu á
verslun á Netinu og ætlum að
kynna þetta vel og erum mjög
spennt fyrir þeim möguleikum
sem eru á Netinu.“ Sagði hún að
hugmyndin hefði kviknað vegna
fjölda fyrirspuma um vörar af
landsbyggðinni.
„Markaðurinn er óráðin
stærð en samt sem áður hefur
maður heyrt frá þeim, sem hafa
verið að skoða þetta að verslun
á Netinu er að aukast mikið og
að hún eigi eftir að aukast enn
meira,“ sagði Katrín „Til þess
að ná til sem flestra reyni ég að
hafa vöru sem er áhættuminnst.
Bamafatnaður getur verið erf-
iður á Netinu og þess vegna
leggjum við mikla áherslu á
nærfatnað og annan slíkan fatn-
að, sem ekki þarf að máta.“
Aðgengilegt ogeinfalt
Katrín sagði að síða verslun-
arinnar á Netinu yrði mjög að-
gengileg og einföíd. Boðið yrði
upp á fjóra vöruflokka og tólf
vörutegundir undir hverjum
flokki með skýrum mvndum af
öllu sem í boði væri. A tveggja
vikna fresti yrði skipt út vörum
og nýjar settar inn í staðinn.
„Þannig verður einfalt að hlaða
síðuna inn og við munum leggja
mikla áherslu á að varan sjáist
mjög vel,“ sagði hún. „Eins og
er verður varan seld á sama
verði og í búðinni en við sjáum
spennandi möguleika í framtíð-
inni ef netverslun fer að aukast.
Kostnaður við hana er minni og
þá get ég séð fyrir að vörur á
Netinu verði ódýrari en það
verður ekki strax. Þetta er eitt
af því sem gerir netverslun
spennandi að umhverfið er
miklu ódýrara."
„Upphaflega fékk ég þessa
hugmynd vegna þess að það eru
svo margir sem hringja utan af
landi og biðja okkur um að
senda vörur gegn póstkröfu,“
sagði Katrín. „Við lýsum þá vör-
unni í gegnum síma og við-
skiptavinurinn tekur hálfpartinn
áhættu með þá vöra sem við
sendum honum því það getur
verið erfitt að lýsa því sem beðið
er um. Þess vegna ákvað ég að
fara út í þetta að bjóða við-
skiptavininum að skoða skýra
mynd af vörunni. Við ætlum
einnig að bjóða upp á þá þjón-
ustu að senda með tölvupósti
myndir af vörum sem ekki eru í
boði á siðunni sé þess óskað.“
Varan er send til viðskipta-
vina með pósti en greiða má fyr-
ir hana með kreditkorti eða
póstkröfu. Vefslóðin er
www.lipurta.is.
Fjármálaráðherrar Norðurlanda
Mikilvægt að
viðhalda lágri
verðbólgu
F JÁRMÁL ARÁÐHE RRAR
Norðurlandanna eru sammála um
mikilvægi þess að viðhalda traustri
stöðu ríkisfjármála og lágri verð-
bólgu. Með slíkri efnahagsstefnu
telja þeir unnt að tryggja áfram-
haldandi stöðugleika og aukna at-
vinnusköpun. Ennfremur er íylgt
aðhaldssamri efnahagsstefnu í
mörgum ríkjanna til þess að halda
aftur af innlendri eftirspum.
Fjármálaráðherrar Norðurlanda
komu saman til fundar í Stokk-
hólmi í tengslum við þing Norður-
landaráðs. Geir H. Haarde fjár-
málaráðherra stýrði fundinum.
Hann flutti einnig ræðu á þingi
Norðurlandaráðs um almenna
stöðu efnahagsmála, einkum á
Norðurlöndum, auk þess sem hann
gerði grein fyrir þeim málum sem
hafa verið ofarlega á baugi í for-
mennskutíð íslands.
Mikill hagvöxtur
Á fundi fjármálaráðherranna
var rætt um stöðu og horfur í
efnahagsmálum á Norðurlöndum,
meðal annars á grundvelli nor-
rænnar skýrslu um efnahagsmál
sem fyrir lá á fundinum. I frétt frá
fjármálaráðuneytinu kemur fram
að ráðherrarnir bentu á að al-
mennt ríkir gott ástand í þeim
málum á Norðurlöndum. Hagvöxt-
ur hefur verið mikill, atvinna fer
vaxandi og verðbólgan hefur verið
lítil. Jafnframt hefur staða ríkis-
fjármála haldið áfram að styrkjast
og skuldir lækkað jafnt og þétt.
Að þessu leyti er staðan betri en í
öðrum OECD-ríkjum. Efnahags-
horfur eru einnig taldar góðar til
lengri tíma litið.
A fundinum var fjallað um mál-
efni Evrópusambandsins og Evr-
ópska efnahagssvæðisins. Ráð-
herrarnir ræddu um reynsluna af
Efnahags- og myntbandalaginu og
áhrif þess á eftiahagslíf Norður-
landa. Ljóst er að tilkoma mynt-
bandalagsins þrengir svigrúm til
hagstjórnar á sviði peningamála og
því er enn mildlvægara en áður að
stefnan í ríkisfjármálum sé traust,
segir í frétt ráðuneytisins.
Á fundinum gerði Geir H. Haar-
de grein fyrir stöðu nokkurra verk-
efna sem unnið er að á vegum ráð-
herranna, meðal annars um aukið
samstarf norrænna kauphalla og
frekari samræmingu skráningar-
reglna milli landanna og viðamikla
athugun á stöðu og horfum í lífeyr-
ismálum á Norðurlöndunum, en ís-
land hafði frumkvæði að athugun-
inni. Loks var rætt um málefni
Norræna fjárfestingarbankans.
Náttúruverndarsamtök fslands
Fullyrðingar Lands-
virkjunar standast ekki
LANDSVIRKJUN og iðnaðar-
ráðuneytið vilja forðast faglega og
gagnsæja umfjöllun um Fljótsdals-
virkjun, líkt og lög um mat á um-
hverfisáhrifum kveða á um, að því
er segir í frétt írá Náttúruverndar-
samtökum íslands.
Þar segir enn fremur: „Lands-
virkjun stillir stjórnmálamönnum
upp við vegg þegar fullyrt er að
þeim beri að meta hvort vegi
þyngra „náttúrusjónarmið" eða
„hagsmunir atvinnulífs“.“ Rök-
studdar ábendingar hafi komið
fram um að Fljótsdalsvirkun
standist ekki arðsemismat.
Náttúruverndarsamtökin segja
fullyrðingu forstjóra Landsvirkj-
unar um að virkjun fallvatna geti
orðið framlag íslands í baráttunni
gegn gróðurhúsaáhrifum ekki
standast faglega skoðun. Samtökin
hafi áður bent á að stjórnvöld hafi
ekki getað tilgreint hvaða mælan-
legu jákvæðu áhrif staðsetning ál-
vera á íslandi hafi á heildarlosun
gróðurhúsalofttegunda í heimin-
um. Ekki sé því hægt að réttlæta
eyðileggingu íslenskra náttúru-
verðmæta með skírskotun til
hnattræns ávinnings.
Jón Steinar Gunnlaugsson um dóm Hæstaréttar í kynferðisbrotamáli
Sýkna óhjákvæmileg í
hinum vestræna heimi
JÓN Steinar Gunnlaugsson, hæsta-
réttarlögmaður og verjandi karl-
manns, sem sýknaður var í Hæsta-
rétti hinn 28. október sl. af ákæru
fyrir kynferðisbrot gegn dóttur
sinni, segir alveg ljóst, að hvar sem
er í hinum vestræna heimi hefði
verið óhjákvæmilegt að sýkna
ákærða miðað við það hvernig málið
lá fyrir og miðað við þær kröfur
sem réttarríki gera til sönnunar-
færslu í kynferðisbrotamálum.
Hann segir í tilefni ummæla Rúnu
Jónsdóttur, talsmanns Stígamóta, í
Morgunblaðinu í gær þess efnis, að
sönnunarkrafan í málinu hafi verið
of ströng, að slakað hafi verið veru-
lega á sönnunarkröfum í kynferðis-
brotamálum. Um það væiu greini-
legar vísbendingar í kynferðisbrota-
málum frá síðustu árum, sem dóm-
stólar hafa fjallað um.
„Það eru minni kröfur gerðar til
sönnunarfærslu í málum sem snerta
kynferðisbrot heldur en í öðrum
málum,“ segir Jón Steinar og segir
ástæðuna eflaust vera þá opinskáu
baráttu sem háð hefur verið á liðn-
um árum fyrir því að slaka á sönn-
unarkröfum í slíkum málum.
Hann segir um sönnunarfærsluna
í hinu margumrædda máli, að engin
vitni hafi verið að hinum meintu
brotum og aukinheldur hafi engin
vissa verið fyrir því að nokkur brot
hefðu verið framin. Þá hefðu engin
sérstök brot verið nefnd til sögunn-
ar, heldur hafi verið um að ræða al-
menna atvikalýsingu á löngu tíma-
bili.
„Stúlkan bar sakir á föður sinn og
hann neitaði og þá var sú leið farin
að kalla til sérfræðinga, sem fengu
það verkefni að meta trúverðug-
leika framburðar stúlkunnar," segir
Jón Steinar. „í fyrsta lagi verður að
spyrja að því hvort það geti ein-
hvem tíma orðið fullnægjandi sönn-
unarfærsla í opinberu máli, þar sem
framburðir tveggja aðila stangast á,
að kalla inn sérfræðinga til að
kanna hugarheima þeirra, svo hægt
sé á grundvelli slílcra álita að gera
upp á milli framburðanna. Öllum
hlýtur að vera ljóst að sá háttur í
sönnunarfærslu fær ekki staðist, því
þá mætti viðhafa hann í öllum mál-
um og í stað þess að sanna mál með
vettvangsathugunum og öðrum
rannsóknaraðferðum, mætti kalla
til sérfræðinga til að meta hver
segði satt og hver ekki.“
Framburðir sérfræðinga
einkenndust af hlutdrægni
gegn ákærða
Jón Steinar segir að við meðferð
málsins á lægra dómsstigi, hafi
komið fram að framburðir sérfræð-
inganna hafi einkennst af mikilli
samúð með stúlkunni og hlutdrægni
gegn ákærða. „Við ítarlegar yfir-
heyrslur vora svör þeirra á þann
veg, að það skipti í raun engu máli
hvaða rannsóknaniðurstöður þeir
fengu út úr einstökum rannsóknum,
því allt var túlkað henni í hag. Af
þessu tilefni aflaði ég sérfræðilegra
álita, sem lögð vora fram í Hæsta-
rétti og fjölluðu um álit sérfræðing-
anna í héraðsdómi. Þar kom fram
með fræðilegum hætti að miklar og
stórar veilur vora í aUri rökfærslu
sérfræðinga í héraði. I hinum nýju
umsögnum kom einnig fram að nið-
urstöður athugana sérfræðinganna
í héraði leiddu í ljós að stúlkan væri
mjög ólíkleg til að hafa orðið fyrir
eins miklu ofbeldi og hún átti að
hafa þolað öll sín uppvaxtarár. Hún
var í góðu andlegu ástandi og eðli-
leg stúlka að mörgu leyti og hafði
engin einkenni áfallastreitu, sem
Uklegt er að hún hefði haft ef hún
hefði mátt þola allar þær hörmung-
ar sem faðir hennar átti að hafa leitt
yfir hana.“
Jón Steinar segir að talað hafi
verið um að framburður stúlkunnar
hafi alla tíð verið staðfastur, en seg-
ir það rangt.
„Framburður hennar breyttist
eftir því sem á leið, á þann hátt að
þegar hún stóð frammi fyrir erfið-
leikum, sem fyrri framburður hafði
valdið henni, þá breyttist framburð-
ur hennar."
Segir Jón Steinar þá að ýmis at-
riði í framburði stúlkunnar hafi gert
frásögn hennar ósennilega t.a.m.
það, að hún hafi sakað föður sinn
um alvarlegt ofbeldi, „sem átti að
hafa átt sér stað oft í viku inni í lít-
illi íbúð þar sem móðirin var sofandi
í næsta herbergi með dyr opnar á
milli án þess að hún yrði nokkurn
tíma vör við neitt, á átta til níu ára
skeiði“, segir Jón Steinar.