Morgunblaðið - 13.11.1999, Blaðsíða 66
66 LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Jólakort
Hringsins
komið út
JÓLAKORT Hringsins er komið út.
I ár prýðir jólakortið mynd eftir
Brian Pilkington er nefnist Fyrstu
jólin.
Jólakortaútgáfa Hringsins hefur í
tvo áratugi verið ein aðaluppistaðan
í tekjuöflun félagsins til styrktar
Bamaspítalasjóði Hringsins. Nú
hefur verið hafist handa við bygg-
ingu sérhannaðs barnaspítala á
Landspítalalóð. Hringskonur hafa
lofað 100 milljónum króna til bygg-
ingarinnar.
Brian Pilkington hefur búið hér-
lendis frá 1976 og er löngu lands-
• • >
Aðalfundur Oryrkjabandalags Islands
Sérstaða öryrkja verði viðurkennd
þekktur m.a. fyrir myndskreytingar
sínar á bamabókum. Auk þess hef-
ur hann skrifað nokkrar bamabæk-
ur sjálfur og hafa sumar þeirra ver-
ið þýddar á yfir annan tug tungu-
mála. Brian hefur haldið nokkrar
einkasýningar á verkum sínum.
Jólakortið er að öllu leytið unnið í
Odda ehf. Útgefandi og dreifingar-
aðili er Hringurinn kvenfélag,
Asvallagötu 1,101 Reykjavík.
Aðalfundur Öryrkjabandalags ís-
lands var haldinn laugardaginn 6.
nóvember síðastliðinn en áður hafði
Öryrkjabandalagið staðið fyrir ráð-
stefnu um atvinnumál sem nokkuð á
annað hundrað manns sóttu. Sam-
þykktar voru ályktanir um kjara-
mál, húsnæðismál og fleira og segir
meðal annars í þeim:
Aðalfundur Öryrkjabandalags Is-
lands haldinn laugardaginn 6. nóv.
1999 skorar á Alþingi að aflétta því
neyðarástandi sem ríkir í trygg-
ingamálum öi’yrkja og búa svo um
hnúta að örorka verði ekki framar
ávísun á efnahagslega útskúfun. Þá
ítrekai’ fundurinn fyrri áskomn sína
til Alþingis um að það viðurkenni
hina margvíslegu sérstöðu öryrkja
með því að hækka örorkulífeyri sér-
staklega og mest hjá þeim sem
verða fyrir varanlegri örorku
snemma á starfsævinni.
Ökumenn virði
bflastæði fatlaðra
Brýnt er að fjölga búsetuúrræð-
um með mismikilli þjónustu. Ljóst
er að ákveðnir hópar fólks em í þörf
fyrir sérhæfða og í sumum tUfellum
mikla þjónustu á heimUum sínum
t.d. vegna hreyfihömlunar, geðfötl-
leysir m%rgbl v,
Það eru ekki alltaf „aðrir“ sem fá stóra vinninginn í Lottóinu.
Einmitt þú gætir orðið fimm milljónum ríkari
ef þú kaupir miða fyrir kl. 19.30 í kvöld.
jóker
Mundu eftlr Jókernum.
- PRAUAjt/RlNN
okpip
i l:í
I þágu íþrótta,
ungmenna og
öryrkja
unar eða þroskahömlunar. Fyrir
marga er æskUegasta úrræðið þjón-
ustukjarni með aðliggjandi íbúðum.
Þá skoraði aðalfundurinn á öku-
menn að virða sérstök bifreiðastæði
fatlaðra. Jafnframt er skorað á sveit-
arfélögin í landinu að fjölga slíkum
biíreiðastæðum svo fatlaðir eigi auð-
veldai’a með að sinna erindum sínum.
Kjörið var í framkvæmdastjórn
bandalagsins. Formaður er Garðar
Sverrisson, vai’aformaður Hafdís
Gísladóttir, ritari Gísli Helgason,
gjaldkeri EmU Thoroddsen og með-
stjómandi Valgerður Ósk Auðuns-
dóttir. I varastjórn voru kjörin þau:
Dagfríður Halldórsdóttn-, Elísabet
Á. Möller og Arnór Pétursson.
Þeir Haukur Þórðai-son, fv. for-
maður, og Hafliði Hjartai’son, fv.
gjaldkeri, gengu úr framkvæmda-
stjórn í samræmi við lög bandalags-
ins og voru þeim þökkuð framúr-
skarandi störf í fjölda ára fyrir
bandalagið.
Kynnir upp-
byggingu
þjónustu við
einhverfa í
Svíþjóð
UMSJONARFELAG einhverfra
heldur fræðslufund í menningar-
miðstöðinni Gerðubergi mánudag-
inn 15. nóvember, klukkan 20. Fyr-
irlesari á fundinum verður John
Dougherty, klínískur prófessor við
TEACCH-deildina í Chapell Hill í
Norður-Karólíonu í Bandaríkjun-
um. Hann hefur undanfarið ár
starfað sem gestafyrirlesari og
handleiðari í Nimbusgaarden í
Lundi í Svíþjóð Fyrirlesturinn fer
fram á ensku.
Dougherty er ráðgjafi á ýmsum
stofnunum þar sem böm og fullorðn-
ir með einhverfu era, í Svíþjóð,
Þýskalandi og Danmörku. Hann hef-
ur starfað í einni af TEACCH-deild-
unum í Norður-Karólínu sl. 14 ára.
Hann hefur tekið þátt í uppbyggingu
á samfelldri þjónustu við einhverfa
víða um heim. I fyiú’lestri sínum
mun John Dougherty segja frá
reynslu sinni í Svíþjóð hvemig hann
sér þjónustuna þar og leiðir til að
efla samfellda þjónustu við fólk með
einhverfu á öllum aldursskeiðum.
Fyrirlestur pr. John Dougherty er
haldinn í tengslum við komu hans til
Islands sem gestafyrirlesai’a á
gmnn- og framhaldsnámsskeið á
vegum Umsjónarfélags einhverfra í
skipulögðum vinnubrögðum í anda
TEACCH-líkansins. Umsjónarfélag
einhverfra hefur reglulega staðið
fyrir þessum gmnnnámskeiðum sl. 6
ár. Koma hans sem gestafyrirlesara
veitir þessum námskeiðum ákveðna
viðurkenningu frá TEACCH-deild-
inni, segir í fréttatilkynningu.
Námskeið um
Jobsbók
á vegum
Skálholtsskóla
PRÓFESSOR Daníel Simundson
frá Lutheran Seminary í St. Paul í
Minnesota heldur námskeið dagana
17. og 18. nóvember nk. um Jobsbók
og mannlega þjáningu.
Fjallað verður um lykiltexta
Jobsbókar og þeir skýrðir í ljósi
glímu mannsins við spurninguna
miklu hvers vegna þjáning og órétt-
læti viðgangist í heimi sem góður og
almáttugur Guð hefur skapað.
Æskilegt er að þátttakendur hafi
rifjað upp efni Jobsbókar. Kennsla
fer fram á ensku og hefst kl. 13.30 á
miðvikudaginn 17. nóv. og lýkur kl.
12 á fimmtudaginn 18. nóv. Þátt-
tökugjald (fæði og gisting innifalið)
5000 kr. Fjöldi þátttakenda er tak-
markaður. Upplýsingar og ski’áning
í Skálholtsskóla.