Morgunblaðið - 13.11.1999, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1999 63
_____________UMRÆÐAN____
Hljóðkerfisvitund er
undanfari lestrarnáms
SÍÐUSTU ár hefur lestur og
lestrarferlið fengið vaxandi at-
hygli frá kennslufræðingum og
öðrum sérfræðingum. Mikið hefur
verið fjallað um sambandið á milli
lestrar og máls. Eitt af þeim svið-
um máls sem hefur verið sérstak-
lega kannað er sambandið á milli
lestrar og hljóðkerfisvitundar.
Með hljóðkerfisvitund er átt við
þann hæfileika að geta hugsað og
talað um hljóðkerfi málsins.
Hljóðkerfisvitund gefur börnum
Lestur
Hljóðkerfísvitund,
segir, Asthildur Bj.
Snorradóttir, er tengd
úrvinnslu á ritmáli.
verða að læra að rituð orð hafa
merkingu og skipta miklu máli í
umhverfinu. Hljóðkerfisvitund er
tengd úrvinnslu á ritmáli og þess
vegna hefur bætt hljóðkerfisvit-
und einnig áhrif á skriftarfærni
hjá börnum. Sambandið á milli
lestrar og máls er augljóst og mik-
ilvægt er að leikskólakennarar,
kennarar, sérkennarar, sálfræð-
ingar, talmeinafræðingar og aðrir
sérfræðingar vinni saman að fyrir-
byggjandi starfi. Þetta þyrfti að
gera áður en börnin byrja í grunn-
skóla en það skiptir líka miklu að
finna lestrarörðugleika hjá sex ára
börnum og vinna markvisst með
hljóðkerfisvitund hjá þeim ef þess
er þörf. Þetta gæti dregið veru-
lega úr miklum lestrarörðugleik-
um seinna meir. Námsleiði og
neikvæð sjálfsmynd tengist oft
lestrarörðugleikum. Börn sem
bíða ósigur aftur og aftur í lestrar-
ferlinu eru ekki líkleg til að lesa
sér til ánægju. Alltof mikil orka
fer í það að stauta sig í gegnum
textann þannig að innihaldið fer
forgörðum. Þess vegna er ánægju-
legt að hljóðkerfisvitund hefur
fengið mikla athygli og vonandi
getur þjálfun á þessu sviði skilað
bættum árangri til margra nem-
enda þannig að þeir upplifi gleðina
sem að felst í því að lesa góða bók.
Höfundur er talmeinafræðingur.
Jakkapeysurnar
fást í Glugganum
,.«rf 1'^
S'í i; i>t
i> m/, ;s
'* M %
Glugginn
Laugavegi 60, sfmi 551 2854
Ásthildur Bj.
Snorradóttir
grundvöll til þess að skilja mál
sem byggist á rituðum táknum
(bókstöfum). Börn verða að skilja
að í orðum eru hljóð sem eiga sér
fyrirmynd í bókstöfum. Rann-
sóknir víða um heim sýna fram á
bein tengsl milli hljóðkerfisvitund-
ar og lestrar. Börn með lestrar-
örðugleika hafa oft slakari hljóð-
kerfisvitund en jafnaldrar.
Rannsóknir sem meta árangur
þjálfunar í hljóðkerfisvitund á
lestrarfærni hjá börnum sýna
einnig fram á að hægt er að þjálfa
hljóðkerfisvitund. Betri hljóðkerf-
isvitund hefur síðan bein áhrif á
færni í lestri og skrift. Mikilvægt
er að leggja áherslu á að finna
börn sem eru í áhættuhópi hvað
varðar lestrarörðugleika og vinna
markvisst með að þjálfa upp hljóð-
kerfisvitund strax á forskólaaldri.
Það hefur sýnt sig að slík vinna
höfðar mjög sterkt til barna og er
hægt að nota í skemmtilegum
leikjum í leikskóla. Mögulegt er að
leggja fyrir ákveðin verkefni til
þess að greina börn sem eru í
áhættu hvað varðar lestrarörðug-
leika. Vinna má síðan að því að
þjálfa upp betri hljóðkerfisvitund
og stuðla að betri lestrarfærni hjá
þessum börnum. Undanfarið hef-
ur verið mikil umræða um að gera
ritmál sýnilegra í leikskólum.
Þetta er jákvæð þróun vegna þess
að allt málkerfið er virkt þegar
böm fást við hið ritaða mál. Börn
Stretchbuxur
St. 38-50 - Frábært úrval
verslunarmiðst. Eiðstorgi,
sími 552 3970.
Pantið núna
565 3900
1 jólastjörnur
% að eigín vali
HJICKMI