Morgunblaðið - 13.11.1999, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 13.11.1999, Blaðsíða 28
28 LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1999 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Eldur kviknaði í rústum fjölbýlishússins sem hrundi í Foggia Reuters Slökkviliðsmenn reyndu að slökkva eld er braust út í rústum fjölbýlishússins í gær. Lítil von til að finna fólk á lífi Lítil von þykir nú til þess að fleiri fínnist á lífí í rústum fjöl- býlishússins sem _ hrundi til grunna í Foggia á Italíu snemma á fímmtudagsmorgun, eftir að eldur varð laus í steinbrakinu í gær. Björgunarmenn hafa unnið sleitulaust við leitina síðan í fyrradag, en síðdegis í gær hafði aðeins tekist að bjarga 15 manns á lífí úr rústunum og yfír 30 lík höfðu fundist. Talið er að 70 til 90 manns hafi verið í fastasvefni í húsinu er það hrundi, en fímm manna fjölskyldu tókst að bjarga sér út á síðustu stundu. Orsök slyssins er enn ekki ljós, en hafín hefur verið opinber rannsókn. Rikisstjórnin gaf í gær fyrirmæli um að ástand yfír þriggja milljóna húsa, sem talin eru í hættu, verði rannsakað. Innanrikisráðherra Ítalíu, Rosa Russo Jervolino, sagði í gær að embættismenn hefðu fullvissað hana um að húsið, sem var sex hæða, hefði verið byggt á traustri undirstöðu. Ekki er liðið ár síðan fjölbýlis- hús hrundi I höfuðborginni Róm, með þeim afleiðingum að 27 manns týndu lífí. Varað við upplausn Indónesíu Banda Aceh, Jakarta. Reuters. TALSMAÐUR stjómarhers- ins í Indónesíu tilkynnti í gær, að 600 hermenn yrðu fluttir frá héraðinu Aceh en íbúar þess hafa að undanfömu kraf- ist aðskilnaðar frá Indónesíu og sjálfstæðis. Einn áhrifa- mesti stjórnmálamaður Ind- ónesíu sagði í gær, að ríkið væri „mjög sjúkt“ og myndi leysast upp ef Aceh klyfi sig fráþví. Brottflutningur hermann- anna er liður í tilraunum Ind- ónesíustjómar til að lægja öld- umar í Aceh og verða þar aðeins hermenn, sem þaðan em ættaðir. Þá hefur Abdur- rahman Wahid, forseti lands- ins, heitið Aceh-búum sjálf- stjórn innan ríkisins og auknum hlut í þeim arði, sem er af miklum auðlindum í hér- aðinu. Wahid hefur einnig lýst yfir stuðningi við þjóðaratkvæða- gi'eiðslu í Aceh en herinn og meirihluti ráðherranna er and- vígur henni. Stjómmálaskýr- endur telja líka víst, að Wahid muni aldrei samþykkja slíka atkvæðagreiðslu nema vera viss um, að meirihluti íbúanna sé andvígur sjálfstæði. Amien Rais, forseti löggja- farþingsins, sagði í gær, að ríkið væri „mjög sjúkt“ og fengju Aceh-búar sjálfstæði myndi það leysast upp. Lýsti hann þessu yfir við messu í stærstu moskunni í Banda Aceh, höfuðstað Aceh-héraðs, og sagði sjúkleikann stafa af því, að menn hefðu tekið trú á nýjan guð, spillinguna. Það er þó ekki aðeins í Aceh, sem íbúamir krefjast sjálf- stæðis, heldur líka í Irian Jaya. Þar komu um 5.000 sam- an í gær til að leggja áherslu á þá kröfu. Aceh og Irian Jaya eru tvö auðugustu héruð Indónesíu frá náttúrunnar hendi og segði annaðhvort eða bæði skilið við ríkið, myndi það hafa í för með sér alvarlegar afleiðingar fyrir indónesískt efnahagslíf. N-Irland Viðræð- um frest- að fram yfír helgi Belfast. AP, Reuters. BANDARÍKJAMAÐUR- INN George Mitchell, sem gegnt hefur starfi sáttasemj- ara í deilum kaþólskra og sambandssinna á Norður- Irlandi, ákvað í gær að fresta frekari viðræðum fram yfir helgi. Ráðamenn helsta flokks sambandssinna, UUP, undir forystu Davids Trimbles, forsætisráðherra bráðab- irgðastjórnar héraðsins, hafa ekki náð samkomulagi um að sætta sig við tillögur sem hafa verið settar fram um tilhögun heimastjórnar. Helsti ásteytingarsteinninn er sem fyrr að hörðustu and- stæðingar írska lýðveldis- hersins, IRA, eru óánægðir með ákvæði um afvopnun hryðjuverkasveita hersins og telja þau ganga of skammt. Texti samkomulagsins er enn leynilegur en samninga- menn segja að ekki sé kveðið á um fasta dagsetningu af- vopnunar. Mitchell er fyrrverandi öldungadeildarþingmaður fyrir demókrata. Stjórnir Bretlands og írlands fengu hann til að reyna að finna málamiðlun í deilunum. Hann hvatti í gær menn til að sýna „þolinmæði og skiln- ing“. Gert er ráð fyrir að flokk- ar héraðsins skipti með sér ráðherraembættum í vænt- anlegri heimastjórn. Fengi þá Sinn Féin, stjórnmála- armur IRA, tvö embætti. Gerry Kelly, einn af samn- ingamönnum Sinn Féin lýsti yfir vonbrigðum með UUP. „Við viljum og ég er sann- færður um að það á við alla, að sambandssinnar segi já en við þurfum að fá svar,“ sagði Kelly. Deilan í Bretlandi um refaveiðar Straw seinkar veiði- banni með rannsókn AP Hillary Clinton, forsetafrú Bandaríkjanna, og Nava Barak, forsætis- ráðherrafrú í ísrael, standa við grátmúrinn í Jerúsalem. Fyrir aftan þær standa dætur þeirra, Chelsea Clinton og Michal Barak. Varar við „eldfimum“ ummælum HILLARY Clinton, forsetafrú Bandaríkjanna, hefur í vikunni heimsótt Israel, sjálfstjómarsvæði Palestínumanna og Jórdaníu. Var- aði hún í gær við því að „eldfím" ummæli gætu skaðað friðarviðræð- ur Israela og Palestínumanna. Forsetafrúin komst / vaudræða- lega stöðu á fimmtudag, er Suha Arafat, eiginkona Yassers Arafats leiðtoga Palestínumanna, sakaði ísraela í viðurvist hennar um að eitra vatnsból og andrúmsloft í Pa- lestínu. Israelar mótmæltu ummæl- um Suha harðlega og Saeb Erekat, aðalsamningamaður Palestínu- manna, lýsti því opinberlega yfir í gær að Palestínumönnum „þætti afar miður“ að hafa komið Hillary í slík vandræði. Hillary stefnir að því að bjóða sig fram til öldungadeildar Banda- ríkjaþings fyrir New York í kosn- ingunum á næsta ári, og var líkleg- ur mótframbjóðandi hennar, borgarsljórinn Rudolf Guiliani, ekki seinn á sér að notfæra sér at- vikið í súia þágu. Gagnrýndi hann forsetafrúna fyrir að hafa ekki strax látið í ljós hneykslan sína á ummælum Suha. í New York-ríki búa margir gyðingar, og mikið liggur við fyrir frambjóðenduma að tryggja sér stuðning þeirra. London. AFP, The Daily Telegraph. BRESKA stjórnin lofaði í gær að greiða fyrir afgreiðslu frumvarps til laga um bann við refaveiðum með hundum en sagði að frum- varpið yrði ekki tekið íyrir í þinginu fyrr en að aflokinni rann- sókn á afleiðingum bannsins. Rannsóknin verður mjög viða- mikil og líklegt er að hún verði til þess að veiðibannið verði ekki að lögum á þessu kjörtímabili. Jack Straw innanríkisráðherra sagði að ef þingmenn legðu fram frumvarp um bann við veiðunum myndi stjórnin setja það inn á áætlun sína um verkaskrá þings- ins og veita þingmönnunum að- stoð við samningu frumvarpsins. Hann bætti hins vegar við að fyrst yrði að ljúka rannsókn á því hvernig hægt yrði að framfylgja banninu og hvaða afleiðingar það myndi hafa fyrir sveitahéruðin og dýralífið. Sú rannsókn verður mjög viðamikill, því m.a. á að kanna efnahagslegar, félagslegar og menningarlegar afleiðingar bannsins fyrir einstök sveitahér- uð. Ennfremur á að rannsaka hvort bannið gæti orðið til þess að refum fjölgaði of mikið og hvað hægt væri að gera til að fyr- irbyggja það. Sérstök nefnd verður skipuð til að annast rannsóknina og Straw sagði að hún mætti ekki taka af- stöðu til þess hvort það væri rétt eða rangt að veiða refi á hestbaki með hjálp hunda. Nefndin getur þó fjallað um hvort þessi dráps- íþrótt sé grimmilegri en veiðar með byssum, eitri eða gildrum. Nefndin á að skila skýrslu um rannsóknina síðla vors á komandi ári. Straw sagði að stjórnin myndi standa við loforð sitt um að aðstoða þingmennina og greiða fyrir afgreiðslu frumvar- psins um leið og skýrslan lægi fyrir. Þingmenn Verkamanna- flokksins yrðu þá leystir undan flokksaga þannig að þeir réðu því sjálfir hvernig þeir greiddu at- kvæði. Veiðibann ólíklegt fyrir kosningar Refaveiðar hafa verið mjög umdeildar í Bretlandi og ákvörð- un stjórnarinnar verður til þess að deilan dregst á langinn. Breska dagblaðið The Daily Tel- egraph telur að með því að efna til svo viðamikillar rannsóknar á áhrifum banns við refaveiðunum hafi stjórnin dregið mjög úr lík- unum á því að frumvarpið verði að lögum á þessu kjörtímabili. Viðbrögð andstæðinga refa- veiðanna voru blendin. Bresk samtök, sem hafa efnt til mót- mæla í sveitahéruðunum gegn veiðibanninu, fögnuðu rannsókn- inni en sökuðu Straw um að hafa „sparkað boltanum" - loforði Tonys Blairs forsætisráðherra um að banna veiðarnar - „langt út af vellinum". Andstæðingar refaveiðanna segja að þær séu grimmilegar og ónauðsynlegar. Stuðningsmenn veiðanna segja hins vegar að fjölmargir íbúar sveitahéraðanna hafi atvinnu af þeim og þær séu nauðsynlegar til að halda refa- stofninum niðri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.