Morgunblaðið - 13.11.1999, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
VKS hlýtur Islensku
gæðaverðlaunin 1999
Morgunblaðið/Jim Smart
Davíð Oddsson, forsætisráðherra, afhenti Ara Arnalds, framkvæmda-
stjóra VKS, íslensku gæðaverðlaunin 1999.
Samkeppnisstaða hugbúnaðarfyrirtækj a
gagnvart Reiknistofu bankanna
Ekki um mis-
munun að ræða
SAMKEPPNISRAÐ telur ekki
ástæðu til afskipta ráðsins vegna
erindis Samtaka iðnaðarins sem
varðar samkeppnistöðu hugbún-
aðarfyrirtækja gagnvart Reikn-
istofu bankanna. Samtök iðnað-
arins höfðu óskað þess að
samkeppnisyfirvöld mætu hvort
sú staðreynd að Reiknistofa
bankanna greiðir ekki virðis-
aukaskatt af starfsemi sinni
skaði samkeppni á hugbúnaðar-
markaðnum. Ennfremur kröfð-
ust samtökin þess að beitt yrði
ákvæði 2. mgr. 14. gr. samkeppn-
islaga þar sem kveðið er á um
fjárhagslegan aðskilnað vemd-
aðs hluta rekstrar fyrirtækis frá
þeim hluta sem er í samkeppni
við aðra.Samkeppnisráð kemst
að því í ákvörðun sinni, annars
vegar, að lög um virðisaukaskatt
og reglur byggðar á þeim mis-
muni ekki almennum hugbúnað-
arfyrirtækjum samkeppnislega í
samanburði við Reiknistofu
bankanna. I öðru lagi, séu skatt-
skil RB til athugunar hjá skatt-
yfirvöldum. Varðandi kröfu um
aðskilnað segir í ákvörðun sam-
keppnisráðs að rekstur RB upp-
fylli ekki skilyrði fyrir því að
beita téðu ákvæði samkeppnis-
laga þar sem reksturinn njóti
hvorki opinberrar verndar né sé
rekinn í samkeppni við aðra.
Hlutabréf netferðaskrif-
stofu hækka um 50%
ÍSLENSKU gæðaverðlaunin 1999
voru veitt á hátíðarfundi Gæða-
stjómunarfélags Islands í Islensku
ópemnni í gær en þetta er í annað
sinn sem slík viðurkenning er af-
hent. Verðlaunin að þessu sinni
hlaut hugbúnaðarfyrirtækið Verk-
og kerfisfræðistofan hf., VKS, en
við sama tækifæri veitti Gæða-
stjómunarfélagið Herði Sigurgests-
syni, forstjóra Eimskips, og Pétri
K. Maack verkfræðiprófessor sér-
stakar heiðursviðurkenningar fyrir
áralangt starf að gæðastjómunar-
málum.
Fyrirtækjarekstur í raun
síbreytílegt þróunarferli
Davíð Oddsson forsætisráðherra
afhenti Islensku gæðaverðlaunin.
Hann sagði verðlaunin veitt sem
viðurkenningu fyrir raunvemlegan
árangur í gæðamálum og að þeim
væri ætlað að vera öðrum fyrirtækj-
um til hvatningar.
„Undanfarin ár hafa fyrirtækin í
landinu styrkst, fagmennska hefur
aukist og tækniumhverfi tekiðörum
frarnförum," sagði Davíð. „Ymsar
stjómunaraðferðir hafa mtt sér til
rúms á undanfömum áram og ára-
tugum, margar þeirra eru kenndar
við gæði, gæðastjórnun og gæða-
stýringu. Fyrirtækjarekstur er í
raun síbreytilegt þróunarferli þar
sem ætíð er leitað nýrra og betri
leiða. Stjómendur verða að bregð-
ast skjótt við og nýta tækifæri fram-
þróunar og tækifæri til nýrra verk-
efna.“
Sýnir árangur
af gæðastarfínu
Ari Arnalds, framkvæmdastjóri
VKS, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að verðlaunin væra mikil
hvatning fyrir starfsfólk fyrirtækis-
ins tii að halda gæðastarfinu áfram.
„Með þessu sjáum við að það sem
við höfum verið að gera, er að skila
okkur árangri."
Hann sagði jafnframt að ákveðið
hefði verið að taka þátt í samkeppn-
inni um gæðaverðlaunin fyrst og
fremst vegna áhuga á sjálfsmatslík-
aninu sem notað er til grandvallar í
mati á þátttakendum.
„Við töldum þetta vera góða að-
ferð til að mæla hvemig við væram
að standa okkur og til að setja okk-
ur markmið í gæðamálum. Reynsla
erlendis sýnir að hin jákvæðu áhrif
af samkeppni sem þessari era að
þau fyrirtæki sem taka þátt, era að
stórbæta sinn árangur frá ári til
árs.“
Óvenju sterk einurð
í umsögn matsnefndar íslensku
gæðaverðlaunanna segir að VKS
hafi unnið markvisst að gæðamálum
sínum á undanfórnum áram og sé
því verðugur vinningshafi verðlaun-
anna. Þar segir að fyrirtækið hafi
þróað gæðakerfi sem nær til allrar
starfsemi þess og fengið það vottað
samkvæmt alþjóðlega staðlinum
ISO 9001 árið 1995, fyrst íslenskra
hugbúnaðarfyrirtækja- Ennfremur
segir að fyrirtækið hafi ekki látið
þar við sitja, heldur unnið að stöð-
ugum endurbótum og uppbyggingu
gæðastarfsins og grundvalli það
m.a. á nýjustu upplýsingatækni.
„Það sem öðra fremm’ hefur eink-
ennt gæðastarf VKS er óvenju
sterk einurð helstu stjómenda og
starfsmanna við að ná tökum á öll-
um helstu stjómunar- og verkferl-
um í starfsemi fyrirtækisins. Þessi
einurð hefur auk þess að vera leið-
arljós í innra starfi fyrirtækisins,
einnig haft afgerandi áhrif á þjón-
ustu- og vöraframboð þess. Þannig
vinnur fyrirtækið nú af krafti við að
fullþróa þau stjóm- og upplýsinga-
kerfi sem það hefur notað í eigin
gæðastarfi yfir í lausnir sem standa
öðram fyrirtækjum til boða. Þessar
lausnir eiga eflaust eftir að nýtast
mörgum fyrirtækjum og stofnunum
til uppbyggingar í sínu gæðastarfi,
auk þess að eiga góða möguleika í
útflutningi þar sem þær era fylli-
lega samkeppnisfærar við það sem
best þekkist á alþjóðlegum vett-
vangi í dag á þessu sviði."
Ennfremur segir í umsögninni að
gæðastarf fyrirtækisins hafi þegar
skilað miklum árangri í starfi þess
og verði sá árangur vart mældur
með áþreifanlegri hætti en góðri
rekstrarafkomu fyrirtækisins.
HLUTABRÉF í bresku netferða-
skrifstofunni ebookers hækkuðu
um tæp 50% fyrsta daginn eftir
skráningu á hlutabréfamarkaðinn
í New York, að því er fram kem-
ur á fréttavef BBC.
Samkvæmt genginu er mark-
aðsvirði fyrirtækisins nú sem
svarar 32 milljörðum íslenskra
króna. Aftur á móti nema sölut-
ekjur ebookers um 1.200 milljón-
um króna á ári og fyrirtækið var
rekið með um 230 milljóna króna
tapi á fyrstu sex mánuðum þessa
FORSVARSMENN breska far-
símafyrirtækisins Vodafone Air-
Touch hafa tilkynnt opinberlega að
þeir hugleiði að gera tilboð í þýska
fjarskiptafélagið Mannesmann.
Hugsanlegt tilboð Vodafone ýtti
undir breytingar á gengi hluta-
bréfa félaganna en hlutabréf
Vodafone lækkuðu um 4% í gær.
Aftur á móti hefur gengi hlutabréfa
í Mannesmann hækkað um 16% í
vikunni vegna umræðna um hugs-
anlegan samrana félaganna.
Nýleg yfirtaka Mannesmann á
bandaríska félaginu Orange er í
hættu og talið er að Orange verði
árs. Væntingar fjárfesta hafa því
meira að segja í þessu tilviki eins
og algengt er um netfyrirtæki.
Ástæður fyrir vexti fyrirtækis-
ins eru m.a. taldar þær vænting-
ar sem hafðar eru til evrópskra
fyrirtækja. „Evrópa er talin
nokkrum árum á eftir Bandaríkj-
unum og nú er búist við miklum
vexti í evrópskum netfyrirtækj-
um,“ segir sérfræðingur á vef
BBC. Búist er við aukinni sam-
keppni í sölu ferðalaga á Netinu
á næstunni.
selt aftur. Hluthafar í Orange hafa
frest til 22. nóvember að sam-
þykkja söluna. Sérfræðingar segja
hugsanlegt að Orange verði selt
France Telecom eða Vivendi.
Fjármálasérfræðingar segja
ástæðu hugsanlegs tilboðs Voda-
fone í Mannesmann að breska fé-
lagið vilji stöðva vöxt hins banda-
ríska Orange. í Wall Street Journal
var haft eftir ónefndum heimildar-
mönnum að hugsanlegt tilboð
Vodafone í Mannesmann hljóði upp
á 200 evrur á hlut, alls 78 milljarða
evra sem samsvarar um 5.800 millj-
örðum íslenskra króna.
Yahoo! fyrir rétt
St. Louis. AP.
NÝSJÁLENSK kona, Juliette
Harrington, hefur stefnt netfyr-
irtækinu Yahoo! fyrir að nota
hugbúnað sem hún hafði hlotið
einkaleyfi á í Bandaríkjunum.
Hugbúnaðurinn auðveldar fólki
að gera verðsamanburð á vörum
sem seldar eru á Netinu og
versla í mörgum netverslunum
frá einu svæði.
Fyrirtækið SBH sér um mála-
ferlin fyrir Harrington en hún
réð fyrirtækið til að markaðs-
setja hugbúnað sinn. Yahoo! not-
ar samsvarandi búnað en hefur
ekki gert samninga við SBH um
notkunina, að því er fram kemur
í ákæru. Forsvarsmenn Yahoo!
hafa ekki tjáð sig um málið en
forstjóri SBH segir samninga-
viðræður ekki hafa borið árang-
Hugsanleg yfírtaka
Vodafone á Mannesmann
London. Reuters.
fMn
OPID HÚS HJÁ LIMHVERFlSVlNiIM
Laugardag, kl. 15
Bubbi Moríhens o.fl.
Sunnudag, kl. 15
Ljóða- og skáldavaka
Ólafur Gunnarsson,
Þórunn Valdimarsdóttir,
Andri Snær Magnason o.fl.
KREFJLIMST LÖGFORMLEGS UMHVERFISMATS
ifliUWI
umhvertisvinir@mmedia.is
UMHVERFIS
:<vinir
Síðumúla 34 ■ sími 533 1180 • fax 533 1181* www.umhverfisvinir.is