Morgunblaðið - 13.11.1999, Blaðsíða 32
32 LAUGARDAGUR Y3.' NÖVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
HÖNNUN
Hönnunardagur húsgagna og innréttinga 1999
SAMTÖK iðnaðarins efndu í gær til
Hönnunardags húsgagna og innréttinga.
Þetta er í sjöunda sinn sem dagurinn er
haldinn hátíðlegur en markmiðið með
honum er að vekja athygli á helstu nýj-
ungum í hönnun og framleiðslu hús-
gagna og innréttinga hérlendis og veita
viðurkenningar fyrir þær áhugaverð-
ustu.
Yfir tuttugu ný verk tólf hönnuða,
arkitekta og iðnhönnuða voru tilnefnd
til Hönnunarverðlauna 1999 og kynnt á
hönnunardeginum.
Hér á síðunni má sjá sýnishorn af
verkunum, en þau verða til sýnis í dag
kl. 10 - 16 hjá fyrirtækjunum Á. Guð-
mundssyni, Bæjarlind 8-10 í Kópavogi,
Epal, Skeifunni 6 í Reykjavík, GKS,
Smiðjuvegi 2 í Kópavogi, og Pennanum,
Hallarmúla 2 í Reykjavík.
Þokki, stóll eftir Sigríði Heimisdóttur, til sýnis í
GKS. Stóllinn varð til vegna óska tveggja aðila,
GKS, sem vildi hressa upp á útlit hins klassíska
eldhússtóls, og Kaffileikhússins, sem óskaði eftir
léttum, nettum en umfram allt sterkum kaffistól.
Eftir Sigríði eru einnig til sýnis skólahúsgögnin
Askur.
Wing, stóll Daggar Guðmundsdóttur, til sýnis í
Epal. Stóllinn er gerður úr formbeygðum
krossviði og má snúa og sitja í á ýmsa vegu.
Skutla, sófi Björgvins Snæbjömssonar, til sýnis í GKS. Markmið
Björgvins með hönnuninni var að gera einfaldan og hagkvæman sófa
sem byði upp á marga möguleika hvað varðaði samsetningu.
Morgunblaðið/Ásdís
Saga Klassik ’99, hluti af nýrri skrifstofuhúsgagna-
Iínu Guðmundar Einarssonar, til sýnis í GKS. Við
hönnunina tók Guðmundur mið af íslenskri sögu og
menningu, jafnframt tækniþörfum nýrrar aldar.
Línan samanstendur af mismunandi vinnustöðvum;
skrifborðum, móttökuborðum, vinnuborðum,
vinnuskápum, fundarborðum, skápum, hillum og
kaffibar. Einnig er til sýnis eftir Guðmund funda-
og gestastóllinn Opus og K-kynningarkerfið.
GM-sófi Gunnars Magnússonar, til sýnis í GKS. Sófinn er hluti af
nýrri línu sem Gunnar er með á teikniborðinu. Sófinn er ætlaður fyr-
irtækjum og stofnunum og sófunum má raða saman í 90 gráðu horn.
Flétta 2000 skilrúmsveggir og set/standborð með rafdrifinni
hækkun, eftir Valdimar Harðarson, til sýnis í Pennanum. Skil-
rúmsveggirnir eru hljóðeinangraðir og þá má fá með leiðslu-
stokk fyrir síma-, tölvu- og raflagnir. Fylgihluti, svo sem hillur,
skápa, bakka, handritahaldara, símastatíf og minnistöflur má
festa upp á skilrúmið. I línunni Flétta 2000 eru einnig til sýnis
skrifborð og skápar fyrir stjórnendur, borðaskilrúm og síma-
þjónustuborð.
ars í húsgagnahönnun og þannig til kominn að hans eigin sögn að
hann vantaði stól heima. Stóllinn skyldi vera einfaldur og stílhreinn -
og jafnvel þægilegur. Hægt, er að stilia setuna svo auðveldara sé að
standa upp úr stólnum - og hugsaði Einar þar sérstaklega til aldr-
aðrar ömmu sinnar.
Dfmon, sófi Erlu Sólveigar Ósk-
arsdóttur, til sýnis f Epal. Dúnon er
fyrsti sófi Erlu, sem er kunn fyrir
stóla sína, svo sem Jaka og Dreka,
sem einnig má sjá í Epal.
Innstac stólar og fellifætur Péturs B. Lúthersson-
ar, til sýnis í GKS. Innstac er auðstaflanlegur fjöl-
notastóll ætlaður í móttökuherbergi eða fyrir við-
skiptavini við afgreiðsluborð eða skrifborð.
Fellifætur borðsins gera það að verkum að borð-
fætumir misleggjast ekki undir lítilli borðplötu.
Einnig em til sýnis eftir Pétur stólamir Lúdó og
Jói, ásamt bogadregnum T-borðfótum.
001, sófaborð eftir
Ólöfu Jakobínu Þrá-
insdóttur, til sýnis f
Epal. í borðinu er
hirsla, sem hægt er
að opna beggja
vegna frá. Borðið er
spónlagt með vengi
og undir því em
álprófflar.
Seria ergo, ný skrifstofuhús-
gagnalína Sturlu Más Jónssonar,
til sýnis hjá Á. Guðmundssyni.
Skrifborðin em í þremur út-
færslum; í fastri hæð, hand-
stillanlegri hæð og með rafdrif-
inni hæðarstillingu. Fætur
borðanna em úr sérhönnuðum
álprófíl. Einnig era til sýnis skóla-
húsgögn eftir Sturlu.
Tangó, stóll Sigurðar Gúst-
afssonar, til sýnis í Epal. Að
sögn arkitektsins táknar stálið
konuna en viðurinn dansherr-
ann.