Morgunblaðið - 19.11.1999, Page 1
STOFNAÐ 1913
264. TBL. 87. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
• •
Jeltsín gekk út af leiðtogafundi Oryggis- og samvinmistofnimar Evrópu
Málamiðlun náðist um
þátt ÖSE í Tsjetsjníu
Istanbúl, Moskva. AFP, AP, Reuters.
Borís Jeltsín og Bill Clinton heilsa fréttamönnum fyrir fund sinn í gær.
RÚSSAR og Vesturlönd komust í
gærkvöldi að málamiðlun um af-
skipti Öryggis- og samvinnustofn-
unar Evrópu af átökunum í Tsjet-
sjníu, eftír að Borís Jeltsín
Rússlandsforseti hafði yfirgefíð
fund ÖSE í Istanbúl í fússi.
Fyrri dagur leiðtogafúndar ÖSE
var stormasamur. Leiðtogar ríkja á
Vesturlöndum gagnrýndu Rússa
harðlega íýrir árásir á óbreytta
borgara í Tsjetsjníu og lögðu hart að
þeim að binda enda á átökin. Borís
Jeltsín fyrtist við og yfirgaf fundinn
tveimur klukkustundum fyrr en
áætlað hafði verið. Sagði hann í
ræðu sinni að Vesturlönd hefðu eng-
an rétt á að gagnrýna sókn Rússa
gegn „glæpamönnum og morðingj-
um“ í Tsjetsjníu.
Utanrfldsráðherramir
náðu samkomulagi
Skömmu eftir að Jeltsín gekk á
dyr áttí Igor Ivanov, utanríkisráð-
herra Rússlands, fund með utanrík-
isráðherrum Bandaríkjanna, Bret-
lands, Frakklands, Þýskalands og
Ítalíu. Madeleine Albright, utanrík-
isráðherra Bandarílqanna, , sagði
fréttamönnum að þar hefði Ivanov
samþykkt máiamiðlun sem fæli
meðal annars í sér að Knut Vol-
lebæk, yfírmaður ÖSE, myndi heim-
sækja Tsjetsjníu til að leita póli-
tískrar lausnar á málinu. Rússar
viðurkenndu auk þess að stofnunin
gegndi lykilhlutverki við friðarum-
leitanir. Sagði Albright að þetta yrði
tiltekið í lokaályktun fundarins, sem
samþykkt verður í dag.
ígor ívanov neitaði því í gær að
málamiðlunin fæli í sér að Rússar
féllust á „pólitíska íhlutun" ÖSE í
Tsjetsjníu. Sagði hann við frétta-
menn að loknum fundi utanríkisráð-
herranna að í samkomulaginu væri
komið til móts við kröfúr stjómvalda
í Moskvu, og að ekki væri hægt að
túlka það þannig að ÖSE hefði af-
skipti af innanríkismálum Rúss-
lands.
Borís Jeltsín og Bill Clinton
Bandaríkjaforseti áttu klukku-
stundar langan fund í gær, og flaug
Jeltsín frá Istanbúl skömmu eftir að
honum lauk. Sandy Berger, þjóðar-
öryggisráðgjafi Bandaríkjanna,
sagði að forsetamir hefðu notað um
helming fundartímans til að ræða
um átökin í Tsjetsjníu.
Undirritun nýs öryggissáttmála í
Evrópu, þar sem hlutverk og mikil-
vægi ÖSE í öryggismálum álfunnar
verður staðfest, var frestað þangað
til í dag vegna deilnanna um Tsjet-
sjníu. Þegar Borís Jeltsín gekk af
fundinum þótti flest benda til þess
að ekkert yrði af undirrituninni, en
Joschka Fischer, utanríkisráðherra
Þýskalands, sagði að málamiðlun ut-
anríkisráðherranna hefði tryggt að
skrifað yrði undir sáttmálann.
I gær var einnig staðfest að undir-
ritun á endurskoðuðum sáttmála um
hefðbundinn herafla í Evrópu færi
fram snemma í dag, en óttast hafði
verið að deilumar um átökin í Tsjet-
sjníu yrðu þess valdandi að einhver
aðildamíki neituðu að skrifa undir
hann. í endurskoðaða sáttmálanum
er kveðið á um að hámark hefðbund-
ins herafla aðildarríkjanna verði
skorið niður um 10%.
Samningur um olíuleiðslu
Fulltrúar Tyrkiands, Aserbaídsj-
ans og Georgíu undirrituðu á fúndin-
um í gær samning um lagningu olíu-
leiðslu, sem mun liggja frá
aserskum olíulindum við Kaspíahaf
til hafnarborgarinnar Ceyhan í
Tyrklandi. Samningurinn þykir sig-
ur iýrir Bandaríkjastjóm, sem vildi
koma í veg fýrir að leiðslan yrði lögð
í gegnum Rússland og Iran.
■ EES/28
Umtalað morð-
mál í Texas
Þriðji
maður-
inn sak-
felldur
Jasper. AP.
KVIÐDÓMUR í smábænum
Jasper í Texas komst í gær að
þeirri niðurstöðu að Shawn
Berry, 24 ára hvítur Texas-
búi, væri sekur um aðild að
hrottalegu morði á blökku-
manni árið 1998. Málið hefur
vakið mikla athygli vestra
vegna þess að morðið er rakið
til kynþáttahaturs. Berry á
yfir höfði sér lífstíðarfangelsi
eða dauðarefsingu en þegar
hafa tveir menn verið dæmdir
til dauða vegna morðsins.
Bundu fórnarlambið
aftan í bifreið
Mennimir þrír voru fundn-
ir sekir um að hafa fyrst mis-
þyrmt hrottalega hinum tæp-
lega fimmtuga James Byrd
með barsmíðum og síðar
bundið hann aftan í bifreið
sem ók fimm kflómetra leið
með hann í eftirdragi. Berry
hélt því fram við réttarhöldin
að hann hefði ekki tekið þátt í
barsmíðunum og neitaði því
að hafa ekið bifreiðinni.
■ Ákærði/26
Reuters
Flóð á Nýja-Sjálandi
Wellington. Reuters.
Mitchell segir frið í
augsýn á N-Irlandi
Belfast. Reuters.
Borgar stj óraefni
Verkamanna-
flokksins í London
Livingstone
i kjon
London. AFP.
BRESKI Verkamannaflokkurinn
tilkynnti í gær að Ken Livingstone
yrði meðal þeirra sem verða í kjöri í
atkvæðagreiðslu kjörmannaráðs,
sem velur frambjóðanda flokksins
fyrir borgarstjórakosningamar í
London á næsta ári.
Akvörðunin var tekin að lokinni
fjögurra klukkustunda yfirheyrslu
kjömefndar yfir Livingstone, sem
boðað var til vegna efasemda um að
hann samþykkti kosningastefnu-
skrá flokksins, sem hefur ekki enn
verið samin. Livingstone sagði eftir
fundinn með kjömefndinni að hann
hefði skuldbundið sig til að sam-
þykkja kosningastefnuskrána og að
barátta sín yrði byggð á henni, yrði
hann valinn sem borgarstjóraefni.
Livingstone tilheyrir vinstri
armi Verkamannaflokksins, og er
ekki í náðinni hjá Tony Blair, sem
hefur lagt allt kapp á að koma í veg
fyrir að hann verði frambjóðandi
flokksins. „Rauði Ken“, eins og
hann er kallaður, hefur meðal ann-
ars lýst sig andvígan þeirri stefnu
ríkisstjómarinnar að einkavæða
neðanjarðarlestarkerfi höfuðborg-
arinnar að hluta og leita eftir fjár-
magni einkaðila í rekstur þess.
FLÓÐIN sem gengið hafa yfir
Suðureyju á Nýja-Sjálandi voru í
rénun í gær, og gátu flestir
þeirra 350 manna sem neyðst
höfðu til að yfirgefa heimili sín
snúið aftur. Miklar rigningar
urðu þess valdandi að ár og fljót,
á Suðureyju uxu allt að sexfalt,
og urðu vinsælustu ferðamanna-
svæði eyjarinnar verst úti.
Á myndinni sést fólk ferðast
með gúmmíbátum um götur
borgarinnar Queenstown, en um
þriðjungur miðbæjarins var enn
á kafi í gærdag. Hótelhaldarar
og verslunareigendur í borginni
urðu fyrir miklu tjóni af völdum
flóðanna. Sögðu þeir að útlit
hefði verið fyrir bestu ferða-
mannavertíðina í fimm ár, en að
flestir gestir hefðu nú yfirgefið
svæðið.
GEORGE Mitchell, sendimaður
Bandaríkjastjórnar, sem miðlað
hefur málum milli lýðveldissinna
og sambandssinna,
sagði í gær að frið-
ur væri loks í
augsýn á Norður-
írlandi, eftir að of-
beldi og vantraust
hefðu ráðið ríkjum
um aldir.
Mitchell lét þessi
ummæli falla er
hann lýsti því yfir
að 11 vikna samn-
ingaþófi um afvopn-
un Irska lýðveldis-
hersins væri lokið,
en IRA hét því á
miðvikudag að ein-
um úr forystusveit
hreyfingarinnar
yrði falið að semja
um afhendingu
vopna. Lagði Mitchell áherslu á
nauðsyn þess að upphaf viðræðna
um afvopnun skæruliða og mynd-
un samsteypustjórnar mótmæl-
enda og kaþólskra bæri upp á
sama dag, og að það þyrfti að
gerast sem fyrst.
Mitchell sagði á fréttamanna-
fundi er hann lagði fram loka-
skýrslu sína um samningaumleit-
anirnar, að hann teldi að
friðarsamkomulaginu, sem kennt
er við föstudaginn langa, yrði
framfylgt að fullu.
Lauk hann lofsorði á
samningamenn beggja
íýlkinga, og sagði
hvoruga þeirra hafa
beðið lægri hlut né far-
ið með sigur af hólmi.
„Hvorugur aðilinn mun
fá allar kröfur sínar
uppfylltar og báðir
munu ganga í gegnum
pólitíska erfiðleika,"
sagði Mitchell.
Reg Empey, samn-
ingamaður sambands-
sinna, sagði að engin
önnur leið hefði verið
fær en að ganga til
samninga, og að íbúar
Norður-írlands væru
sigurvegararnir. Gerry
Adams, leiðtogi Sinn Fein, stjórn-
málaarms IRA, lét að því liggja
að heppilegra væri að leita póli-
tískra lausna en beita hryðjuverk-
um í þágu málstaðarins. Tony
Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, fagnaði yfirlýsingu IRA á
ríkisstjórnarfundi í gær, og hrós-
aði Mitchell fyrir „þolinmæði,
hugrekki og hæiíleika".
George
Mitchell