Morgunblaðið - 19.11.1999, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Dreng-
urinn á
batavegi
LITLI drengurinn sem fluttur
var fyrir nokkru til læknismeð-
ferðar í Skotlandi er nú á bata-
vegi. Drengurinn er ekki leng-
ur í gervilunga á sjúkrahúsi í
Skotlandi, en hann þjáðist af
sjaldgæfum lungnasjúkdómi.
Drengurinn, sem er fjögurra
ára, var alvarlega veikur og
þarfnaðist sérhæfðrar læknis-
meðferðar sem ekki er unnt að
veita hér á landi. Ekki var
mögulegt að taka við honum á
þeim sjúkrahúsum á hinum
Norðurlöndunum sem hafa að-
stöðu til að veita meðferðina og
var hann því fluttur á sjúkra-
hús í Skotlandi.
Sænskt heilbrigðisstarfsfólk
var fengið til að annast flutning
hans með aðstoð sænska hers-
ins. Eins og greint var frá í
Morgunblaðinu komu Svíarnir
með Herkúles-flutningaflugvél
sænska hersins ásamt sér-
hæfðum sjúkrabíl og tækja-
búnaði. Drengurinn var síðan
fluttur með bílnum um borð í
vélina og flogið með hann til
Skotlands.
Líklegt er að fljótlega verði
hugað að flutningi drengsins
heim til Islands.
Utanríkisráðherra um hugsanlega aðild að Alþjóðahvalveiðiráðinu
Vaxandi líknr á því að Is-
lendingar gangi aftur í ráðið
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkisráðherra
sagði á lUþingi í gær að það væru vaxandi líkur
á því að íslendingar gengju aftur í Alþjóðahval-
veiðiráðið. Sagði hann að bæði Japanir og
Norðmenn hvettu Islendinga afar eindregið til
þess enda væri andrúmsloft innan ráðsins nú
breytt frá því sem var er Islendingar gengu út
árið 1992.
Halldór lét þessi ummæli falla í fyrirspurna-
tíma á Alþingi í gær en Hjálmar Arnason,
þingmaður Framsóknarflokks, hafði spurt
ráðherrann að því hvort til greina kæmi að Is-
land gengi aftur í Alþjóðahvalveiðiráðið. Lagði
Halldór hins vegar áherslu á að það yrði að
vera í því ákveðinn tilgangur að ganga á ný í
Alþjóðahvalveiðiráðið, og tilgangurinn yrði að
vera sá að nýta hvalastofnana við Island og
vinna með öðrum þjóðum í heiminum að því að
koma upp á nýjan leik sjálfbærri nýtingu á
sjávarspendýrum, auk þess sem vinna þyrfti
að því að auka skilning í heiminum á þessum
sjónarmiðum.
Halldór rakti í máli sínu tildrög þess að Is-
lendingar gengu úr Alþjóðahvalveiðiráðinu árið
1992. Sagði hann að Islendingar hefðu vænst
þess þá að fleiri ríki, einkum Noregur, myndu
fylgja þeim úr ráðinu. Það hefði hins vegar ekki
gengið eftir. Ennfremur hefði Norður-Atlants-
hafssjávarspendýraráðið, NAMMCO, sem skip-
að er íslendingum, Norðmönnum, Grænlend-
ingum og Færeyingum, ekki reynst jafnöflugt
og vonir stóðu til.
Halldór sagði að þótt íslendingar hefðu á sín-
um tíma gengið úr Alþjóðahvalveiðiráðinu
hefðu þeir fylgst vel með málum þar sem
áheyrnarfulltrúar. „Vissar vonir eru bundnar
við að með fjölgun ríkja í Alþjóðahvalveiðiráð-
inu, sem vilja nýta sjávarspendýr með sjálfbær-
um hætti, megi vænta einhverra breytinga á
starfsemi ráðsins,“ sagði Halldór.
Hann benti á að eins og reglum væri nú hátt-
að væri aðild að Alþjóðahvalveiðiráðinu for-
senda þess að íslendingar gætu selt öðrum
þjóðum, til dæmis Japönum, hvalaafurðir. Enn-
fremur hygðust íslensk stjórnvöld gerast aðilar
að CITES-samningnum, samningi um alþjóða-
verslun með tegundir villtra dýra og plantna
sem eru í útrýmingarhættu, til að geta haft
áhrif á það að ýmsar hvalategundir væru tekn-
ar af lista yfir dýr í útrýmingarhættu. „Það eru
því vaxandi líkur fyrir því að minu mati að við
göngum í Alþjóðahvalveiðiráðið,“ sagði Halldór
í lokaorðum sínum.
Yflrlýsingunni vel tekið
Yfirlýsingu utanríkisráðherra var vel tekið
og m.a. fógnuðu Svanfríður Jónasdóttir og Jó-
hann Ársælsson, þingmenn Samfylkingar, um-
mælunum. Einar K. Guðfinnsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokks, lagði hins vegar áherslu á að
menn gengju varla á ný í Alþjóðahvalveiðiráðið
nema á þeirri forsendu að hefja ætti hvalveiðar
að nýju, líkt og Alþingi hefði ályktað um á síð-
asta þingi.
Tómas Ingi Olrich, þingmaður Sjálfstæðis-
flokks og formaður utanríkismálanefndar,
sagðist telja að það hefði orkað tvímælis á sín-
um tíma að ganga úr Alþjóðahvalveiðiráðinu.
Til þess hefðu reyndar legið ýmis rök en þau
hefðu virst haldbetri þá en þau hefðu síðar
reynst. Auk þess væru uppi efasemdir um að
NAMMCO gæti nokkurn tíma reynst vettvang-
ur fyrir alþjóðlega samvinnu um nýtingu sjáv-
arspendýra. Sagði Tómas Ingi að hann teldi því
skynsamjegt að íhuga að ganga aftur í Alþjóða-
hvalveiðiráðið.
Björn Bjarnason menntamálaráðherra rifjaði
upp að hann hefði, einn þingmanna, á sínum
tíma verið andvígur því að Islendingar gengju
úr Alþjóðahvalveiðiráðinu. Hann teldi hins veg-
ar að til að koma sjónarmiðum sínum á fram-
færi í hvalamálum væri brýnt að íslendingar
væru í ráðinu. Því ætti að stefna markvisst að
aðild.
Bætur fyrir að selja
kvóta frá skipi
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Býr sig undir Evr-
ópumót í uppstoppun
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt tvo
fyrrverandi stjórnarmenn í útgerð-
arfyrirtæki til að greiða Glitni hf.
tæpar 3,7 milljónir, auk dráttar-
vaxta frá apríl 1996. Rétturinn
sagði stjórnarmennina bera ábyrgð
á því tjóni sem Glitnir varð fyrir,
með því að selja aflaheimild báts
áður en báturinn var seldur nauð-
ungarsölu til lúkningar skuld við
Glitni.
Féfang, sem síðar var sameinað
Glitni, lánaði manni 7 milljónir
króna árið 1990 fyrir bátakaupum
og var skuldabréfinu þinglýst á 1.
veðrétt bátsins. Maðurinn afsalaði
árið 1991 bátnum, án veiðiheimilda,
til hlutafélags í Garði, sem yfirtók
áhvflandi veðskuldir.
Við nauðungarsölu á bátnum í
janúar 1995, vegna vanskila á veð-
skuldabréfinu, kom í ljós að afla-
hlutdeild, sem færð hafði verið á
bátinn eftir söluna til hlutafélags-
ins, hafði verið skilin frá honum án
samþykkis Féfangs. Hafði aflahlut-
deildin verið færð eftir beiðni
hlutafélagsins til Fiskistofu, en í
beiðninni sagði, að með henni
fylgdi nýtt veðbókarvottorð og
skriflegt samþykki þeirra aðila,
sem veð áttu í skipinu 1. janúar
1991. Við útgáfu sýslumanns á veð-
Framsal
óheimilt án
samþykkis
bókarvottorði bátsins hafði hins
vegar láðst að geta um veðrétt
lánafyrirtækisins. Á nauðungar-
uppboðinu keypti einn stjórnar-
manna hlutafélagsins bátinn á 5,2
milljónir og lánastofnunin fékk um
3,6 milljónir í sinn hlut.
Stjórnarformaður og fram-
kvæmdastjóri hlutafélagsins var
dæmdur í héraði fyrir skilasvik
með því að hafa selt bátinn án sam-
þykkis lánastofnunarinnar. Veð-
rétturinn hefði náð til aflahlut-
deildar bátsins og ráðstöfun fram-
kvæmdastjórans hefði ekki getað
samrýmst þessum réttindum.
Brugðust skyldum sinum
í dómi sínum í máli stjórnar-
mannanna tveggja vísaði Hæsti-
réttur til þess, að samkvæmt
bráðabirgðaákvæði í lögum nr.
38/1990 um stjórn fiskveiða, en þau
lög höfðu tekið gildi þegar hlutafé-
lagið keypti bátinn, hefði verið
óheimilt að framselja aflahlutdeild
skips nema fyrir lægi samþykki
þeirra aðila, sem samningsveð
ættu í skipinu. Hæstiréttur taldi,
að ákvörðun hlutafélagsins um að
framselja aflahlutdeildina hefði
verið mikils háttar ákvörðun í
skilningi 2. mgr. 52. gr. þágildandi
laga um hlutafélög nr. 32/1978.
Hún hefði því verið á verksviði
stjórnar félagsins en ekki fram-
kvæmdastjóra eins.
Stjórnarmennirnir hefðu vitað
um veðrétt Fjárfangs, nú Glitnis,
og því mátt vita, að veðbókarvott-
orðið sem fylgdi beiðninni til Fiski-
stofu um framsal aflahlutdeildar
væri rangt. Þeim hefði jafnframt
borið að ganga úr skugga um, að
samþykki veðhafa væri fengið fyrir
framsalinu.
Hæstiréttur sagði stjórnar-
mennina hafa brugðist skyldum
sínum samkvæmt þágildandi hluta-
félagalögum og bæru þeir skaða-
bótaábyrgð á því tjóni, sem rakið
yrði til þessarar vanrækslu. Þeim
var gert að greiða Glitni bætur,
sem námu þeim eftirstöðvum veð-
skuldabréfsins, sem ekki höfðu
greiðst við nauðungarsölu bátsins,
samtals tæpar 3,7 milljónir auk
dráttarvaxta, auk 400 þúsund
króna í málskostnað.
Laxamýri - Evrópumót í upp-
stoppun verður haldið í París í
júnímánuði á næsta ári og er þeg-
ar haflnn undirbúningur þeirra
sem þangað fara.
Haraldur Ólafsson, uppstoppari
á Akureyri, er einn þeirra sem
ætla að taka þátt í keppninni. Að
sögn Haraidar kemur margt fólk
til mótsins. Hann kom af þessu til-
efni við í Norðurlaxi hf. til þess að
fá Iax til uppstoppunar.
Á hverju hausti er fargað laxi
sem notaður er í ræktunarstarfið
og fékk Haraldur að velja úr það
sem honum leist best á. Hann
valdi 20 punda hæng á Evrópu-
mótið og ætlar að stoppa hann
upp í náttúrulegu umhverfí þar
sem laxinn verður að stökkva
upp háan foss.
A myndinni hampar Haraldur
laxinum og er bjartsýnn á gott
gengi í keppninni.
mWmm
W am
A FOSTUDOGUM
, Slóvenar „skutu“
íslendinga niður/C1
Tómas Holton tekur við
Skallagrími/C3
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is