Morgunblaðið - 19.11.1999, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 19.11.1999, Qupperneq 4
4 FOSTUDAGUR 19. NÓVRMBÍ'ÍÉ'1999 VrOR(;UNBLAÐll) FRÉTTIR Viðræður um stofnun félags um Tækniháskóla Deilt um aðild háskóla VIÐRÆÐUR aðila um stofnun félags um rekstur Taekniskólans og síðan stofnun Tækniháskóla Islands liggja niðri eftir að Alþýðusamband Islands lýsti því yfir að hætta væri á hagsmunaárekstri ef Háskóli íslands og Háskólinn á Akureyri tækju þátt í verkefninu, að sögn Sveins Hannes- sonar, framkvæmdastjóra Samtaka iðnað- arins. Samtökin hafa í umboði menntamála- ráðherra forystu um stofnun félagsins. Grétar Þorsteinsson, forseti ASI, segist vilja sem mest og best samstarf við háskól- ann en að ekki séu rök fyrir beinni stjórn- unarlegri aðild skólanna. „Við erum að vinna að þessu og ég veit ekki annað en að við séum samstiga að öllu leyti nema hvað þetta varðar," sagði hann. „Við höfum viljað bæta verk- og tækni- menntun í landinu og eitt af því sem komið hefur til tals er að við ásamt öðrum tækjum að okkur rekstur Tækniskólans með það fyrir augum að breyta honum í Tæknihá- skóla,“ sagði Sveinn. „Við höfum reynt að koma saman hópi sem stofna mun félag um reksturinn og höfum rætt við Háskóla Is- lands og Háskólann á Akureyri, ASÍ, Félag verk- og tæknifræðinga og rannsóknastofn- anir iðnaðarins, fiskiðnaðarins og landbún- aðarins auk Orkustofnunar." Ekki samstaða Sveinn sagði verkefnið tvíþætt, annars vegar að efla almennt verk- og tækni- menntun í landinu og hins vegar að reka Tækniskólann. „Það er skemmst frá því að segja að ekki hefur tekist að ná samstöðu innan þessa hóps,“ sagði hann. „Það sem strandað hefur á er hugmynd okkar um að fá háskólana til liðs við okkur en ASÍ telur að hætt sé við hagsmunaárekstri ef þeir eru með. Við hjá samtökunum teljum hins vegar nauðsynlegt að hafa þessa skóla með okkur til að geta ráðið við framkvæmdina. Við erum ekki sérfræðingar í að reka skóla. Það má því segja að málið sé í biðstöðu eins og er en við höfum verið að skoða leiðir út úr þessum vanda.“ Hætt við hagsmunaárekstri „Það liggur ekki fyrir endanleg niður- staða,“ sagði Grétar. „Það er rétt að við höfum séð aðkomuna þannig, ef þetta á að ganga upp, að aðilar í atvinnulífinu, Samtök iðnaðarins, ASI, rannsóknarstofnanir, Tæknifræðingafélagið annaðhvort í gegn- um ASI og Samtök iðnaðarins eða með beinni hætti sameiginlegra menntastofnana sem eru á okkar vegum til dæmis í málm- iðnaði, byggingariðnaði, rafiðnaði, svo eitt- hvað sé nefnt. Það hefur hins vegar komið upp á haustvikunum með afdráttarlausari hætti að Samtök iðnaðarins hafa lagt áherslu á stjómunarlega aðild háskólanna. Við viljum auðvitað hafa sem mest og best samstarf við þá en við sjáum ekki rökin fyr- ir að þeir komi að beinni stjómunarlegri aðild.“ „Það sem við erum að velta fyrir okkur er hvort einhver fordæmi séu um að há- skólamir eigi stjómarmenn í stjómum annarra hliðstæðra menntastofnana,“ sagði hann og tók sem dæmi Viðskiptahá- skólann og háskóla samvinnumanna og hvort slík stjómarseta ætti þá ekki að vera gagnkvæm. „Þama gæti verið um sam- keppni milli aðila að ræða og hugsanlega um námsleiðir að einhverju leyti og þá er- um við famir að tala um nemendur og í framhaldi fjármagn," sagði Grétar. „Þetta er það sem við stöldrum við þegar talað er um stjórnunarlega aðild en auðvitað blasir það við að öll rök em til þess að eiga mjög traust samstarf og í einhverjum tilvikum formlegt við háskólana. Þama eram við staddir og eram ekki búnir að vinna úr þessu en ég ætla rétt að vona að okkur tak- ist það.“ Unnið við breytingar innandyra í gamla Safnahúsinu við Hverfísgötu ENDURBÆTUR innandyra standa nú sem hæst 1 gamla Safnahúsinu við Hverfisgötu sem mun heita Þjóðmenn- ingarhúsið þegar það verður opnað 20. apríl næstkomandi. Guðmundur Magn- ússon, forstöðumaður Þjóðmenningar- hússins, segir að nöfnin sem húsið sé þekktast undir, Landsbókasafnið og Safnahúsið, hafi ekki þótt endurspegla nógu vel þá nýju starfsemi sem fara muni fram í húsinu, en húsið verður op- inbert sýninga- og fundahús og vett- vangur kynninga á íslenskri sögu og menningararfi. „Ákveðið var að finna nýtt nafn og var meðal annars leitað ráða hjá Is- lenskri málstöð. Nafnið þótti hæfa starf- seminni og einnig þótti við hæfi að Þjóð- menningarhúsið stæði við hliðina á Þjóðleikhúsinu." Starfsemi á öllum hæðum Fyrsti áfangi framkvæmdanna, end- urbætur utandyra, hófst 1996, annar áfangi, endurbætur á lóð, 1998 og þriðji og síðasti áfangi, endurbætur innan- dyra, hófst í vor. „Við leggjum mikla áherslu á að húsið haldi sinum uppruna- lega sjarma," segir Guðmundur. „Allt sem er gert er háð samþykki húsafrið- unarnefndar ríkisins og voru allar áætl- anir bornar undir hana auk þess sem hún hefur eftirlit með framkvæmdun- um.“ Innanhússframkvæmdum lýkur í mars á næsta ári og þá verða gömlu inn- réttingar hússins og húsmunir, sem nú er verið að lagfæra, flutt þangað aftur, ásamt öðrum munum sem eiga að vera þar til frambúðar. Endur- bætur á svipmiklu húsi Nú verður starfsemi á öllum hæðum hússins, sýningarsalir, fundarsalir og veitingastofa. Tvær stórar menningar- sögulegar sýningar verða opnaðar á næsta ári, sýning um landafundi íslend- inga verður opnuð um leið og húsið í risi þess, og 17. júní verður opnuð sýn- ing um kristni í íslensku þjóðlífi í þús- und ár. Kostnaður um 315 milljónir í fundarstofum verða til sýnis gamlir munir og mun hver salur hafa sinn svip. Einn verður kenndur við Hannes Haf- stein, annar við Jón Sigurðsson og aðrir við leiklistar- og tónlistarsögu Islands. Rekstur fundarstofa og veitingaþjón- ustu verður boðinn út og segir Guð- mundur að eftir forkönnun um útboðið sem gerð var fyrir skömmu hafi borist um sextíu fyrirspurnir. „Þeir sem reka fundarstofurnar munu ákveða útleigu- verð á þeim í samráði við okkur, jafn- framt verða settar reglur um hvernig þær verði notaðar. Við höfum til dæmis ekki hugsað okkur að þar fari fram veislur, ættarmót eða eitthvað slíkt.“ Rekstur á verslun í húsinu verður einnig boðinn út og er hugmyndin að selja þar muni og bækur sem tengjast starfsemi hússins. „Það sem staðið var frammi fyrir í upphafi verksins var að hér væri eitt af svipmeiri húsum Reykjavíkur, um hundrað ára gamalt, friðað að utan sem innan og ljóst að það bæri að varðveita í upprunalegri mynd. Samdóma álit þeirra sem þekkja til friðunarmála húsa er að mikilvægt sé að einhver starfsemi sé í húsunum. Því var farin sú leið að finna starfsemi sem myndi henta húsinu og geta lagað sig að byggingunni.“ Guðmundur tekur fram að ekki sé verið að búa til nýtt safn heldur sé verið að opna húsið og gera það aðgengilegt fyrir þá sem vilja halda þar fundi, fyrirlestra, móttökur eða sýningar. Framkvæmdarinnar eru Qármagnað- ar úr endurbótasjóði menningarbygg- inga, og segir Guðmundur fjárhagsáætl- anir hafa staðist. Gert er ráð fyrir að heildarkostnaður verði um 315 milljónir en ekki er enn Ijóst hver rekstrarkostn- aður hússins verður. „Sértekjur hússins verða einhveijar, bæði leigutekjur af fundarsölum og aðgangseyrir að sýning- unum en við ætlum okkur þó að hafa hann eins lágan og mögulegt er og von- andi Iægri en gengur og gerist," segir Guðmundur. ÞJOÐMENNINGARHUSIÐ við Hverfisgötu V sýningarsolur skrifstolur hússins fundarstofur sýningarsalir bókasalur- sýningarsalur fundarstofur sýningarsalir sýningarsalur -aðal- inngangur eldhús veitingastofa verslun Kjallarí innn starfsemi snyrtiherbergi fatahengi tæknirými og innri starfsemi Morgunblaðið/Sverrir Tugir iðnaðarmanna vinna nú hörðum höndum að endurbótum innandyra í húsinu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.