Morgunblaðið - 19.11.1999, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1999 13
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Rósa Kristín Benediktsdóttir tekur við viðurkenningu sem
„Félagi ársins 1999“ í alþjóðahreyfingu JC.
Islendingur hlýtur alþjóðlega viður-
kenningu JC-hreyfíngarinnar
/
Ber hróður Is-
lendinga langt
Yfirmaður flugsamgöngumála hjá ESB segir að samræma
verði flugumferðarstjórn í Evrópu
Seinkanir í þriðjungi
allra flugferða
Morgunblaðið/Arni Sæberg
Michael Ayral er framkvæmdastjóri stjórnardeildar flugsamgöngu-
mála hjá framkvæmdasfjórn Evrópusambandsins. Hann var meðal
ræðumanna á flugþingi í gær.
RÓSU Kristínu Benediktsdóttur,
félaga í JC Nesi á íslandi, hefur
verið afhent viðurkenning sem
„Félagi ársins 1999“ í hinni al-
þjóðlegu Junior Chamber hreyf-
ingu. Afhendingin fór fram við
sérstaka móttöku fyrir Rósu sem
stjórn JC Islandi hélt henni en
Rósa var útnefnd á heimsþingi
JC hreyfíngarinnar sem fór fram
í Cannes, í Frakklandi, dagana
5.-13. nóvember sl. Aðeins einn
„félagi ársins“ er útnefndur á
hveiju ári og er þetta í fyrsta
sinn sem Islcndingur verður fyr-
ir valinu.
„Þetta kom mjög skemmtilega
á óvart,“ segir Rósa. Hún hefur
starfað í JC hreyfingunni á Is-
landi siðan 1992 en viðurkenn-
inguna fær hún fyrir störf sín
síðustu 12 mánuði. „Undanfarið
ár hef ég verið umsjónarmaður
með þjálfun og öllum námskeið-
um sem við stöndum fyrir. Ég
hef bæði samið námskeið og haft
umsjón með þeim. Starf mitt felst
meira eða minna í kynningarmál-
um og námskeiðahaldi."
Meginhlutverk JC felst í þjálf-
un í stjórnun. En JC stendur fyr-
ir námskeiðahaldi fyrir félaga
sína og fyrir starfsmenn fyrir-
tækja. „Við æfum okkur og aðra
t.d. í ræðumennsku og skipuleg-
um stjórnarhöldum og vinnu-
brögðum. Við skipum okkur í
nefndir og vinnum alls konar
verkefni, sinnum alls konar emb-
ættum og reynum að vinna allt á
sem skipulegastan máta.“
Rósa segir að mikil eftirspurn
sé eftir stjórnunarnámskeiðum.
„Það er^eins og þetta sé hvergi
kennt. Ég vil hvetja fólk til að at-
huga starfsemi hreyfingarinnar,
hafi það áhuga á því að þjálfa sig
í stjórnun."
Félagar í JC íslandi taka
einnig þátt í alþjóðlegu starfi
hreyfingarinnar, sem í eru um
300 þúsund meðlimir, og Rósa
hefur sótt bæði Evrópuþing og
heimsþing, nú síðast í Cannes þar
sem hún var útnefnd. Ekki munu
fylgja útnefningunni nein sérstök
verðlaun. „Þetta er fyrst og
fremst viðurkenning og ber
hróður okkar Islendinganna
langt,“ segir Rósa.
SEINKANIR verða á þriðjungi allra
flugferða í Evrópu og eru þær að
meðaltali um 20 mínútur, segir Mich-
ael Ayral, framkvæmdastjóri flug-
samgöngumála hjá framkvæmda-
stjóm Evrópusambandsins, í samtali
við Morgunblaðið. Segir hann útilok-
að að farþegar og flugfélög geti sætt
sig við slíkt til langframa og því
brýnt að endurskipuleggja allt flug-
stjómarkerfí í Evrópu.
Michael Ayral ræddi þetta efni í
erindi sínu á flugþingi í gær og
staldraði einkum við stefnumótun
Evrópusambandsins. Hann segir
flugumferð aukast um 6-7% árlega
um þessar mundir og að gert sé ráð
fyrir að hún muni tvöfaldast næsta
áratuginn. Hann segir umferðar-
þungann í lofti nú slíkan að lítið
megi auka við umferðina og því séu
þessar seinkanir staðreynd og ýmis
vandræði við flugvelli þar sem um-
ferðin er mest. Tiltekur hann sér-
staklega Heathrow í Englandi,
Schiphol í Hollandi og Frankfurt í
Þýskalandi. „Vandinn sem við eig-
um við að glíma er hins vegar sá að
Evrópa er ekki eitt flugstjómar-
svæði heldui- hefur hvert land lög-
sögu yfír sínu svæði og setur eigin
reglur en ef auka á afkastagetu í
lofti verður að samræma yfirstjóm
flugumferðar," segir Ayral og bætir
við að samræma verði einnig hvers
konar reglur um öryggismál, eftirlit
og vottun með bæði þjónustu í flugi
og flugvélaframleiðslu. „Við höfum
líka á stefnuskránni að stjórnun
flugsamgangna og rekstur eða
þjónusta við flugið verði aðskilin."
Hernaðarumsvif taka pláss
Þá nefnir Michael Ayral enn eitt
vandamál í flugi yfir Evrópu sem er
það rými sem herir hafi til sérstakra
afnota. „Þegar Kosovo-deilan stóð
varð mikil takmörkun á borgaralegu
flugi á stómm svæðum vegna hem-
aðarumsvifa. Þessi svæði höfðu fram
að því verið opin allri umferð en um
leið og átök eða deilur standa yfir
era settar ýmsar takmarkanir vegna
hemaðar og það kemur niður á
venjulegu flugi,“ segir hann og nefn-
ir að slíkt gerist reyndar líka á jörðu
niðri; við vissar aðstæður geti yfir-
völd sett ýmsar takmarkanir á
venjulega bílaumferð. Hann segir
ástandið mjög misjafnt eftir löndum
og sums staðar sé gott samræmi
milli flugumferðarstjómar hers og
borgaralegrar umferðar og afköst í
flugumferðinni því mikil. • Hann
minnir líka á að 33 flugvellir í Evr-
ópu hafi eigin reglur um takmörkun
á flugumferð, banni til dæmis flug
að næturlagi og hafi reglur um há-
vaða frá vélum. Þannig sé afkasta-
geta flugvallanna minnkuð stórlega.
Þá segir framkvæmdastjórinn að
mikið sé rætt hvoit og hvemig megi
leysa vandann á stystu flugleiðun-
um. „A styttri leiðum, þegar menn
era að ferðast nokkur hundrað kíló-
metra milli borga, era kannski í
klukkutíma flugferð, er mikil sam-
keppni við ofurhraðlestimar. Það á
til dæmis við um Briissel og París
og í nokkram mæli við leiðina milli
Parísar og London. Á slíkum leiðum
hefur fólk í auknum mæli notfært
sér þessar hraðskreiðu lestar og
það á sérstaklega við þá sem ekki
era að fara neitt lengra. Þama má
ef vil vill létta eitthvað á mesta
þunganum í fluginu og draga úr
þörfinni fyrir tíðar ferðir,“ sagði
Michael Ayrel. „Svo má líka velta
fyrir sér þeim tæknilega möguleika
að mun stærri flugvélar annist flug
þar sem umferðin er mest, þá
myndi ferðum fækka.“ En á hann
von á að hægt verði að auka af-
köstin í Evrópu á næstunni?
„Þetta tekur talsverðan tíma.
Fyrst þarf að ná pólitískri samstöðu
um stefnu og síðan þarf að koma um-
bótunum á og það er á öUum sviðum,
hjá flugvöllum, flugumferðarstjóm,
flugfélögum. Og þótt vandinn sé mik-
ill nú þegar megum við ekki einblína
á hann, við verðum að hafa í huga
lausnir sem duga næstu áratugina."
Umræðufundur Sambands ungra sjálfstæðismanna um starfsemi nektardansstaða
Andstaða við að banna
nektardansstaði
Morgiinblaðið/Jim Smart
Fjölmennt var á fundi Sambands ungra sjálfst æðismanna
um starfsemi nektardansstaða.
ÞAÐ er ekki rétt að banna nektar-
dansstaði á íslandi, um það vora
allir sem héldu framsögu á um-
ræðufundi SUS um starfsemi nekt-
ardansstaða sammála.
Elsa B. Valsdóttir, fyrrverandi
formaður Heimdallar, sagði kom-
inn tíma á önnur sjónarmið í þeirri
einsleitu umræðu sem hefði ríkt
um þetta málefni og svaraði hún
nokkram af rökum gagnrýnis-
radda. Hún sagðist þó eingöngu
hlynnt starfsemi þar sem konur
taka þátt af fúsum og frjálsum
vilja.
Að segja starfsemi nektardans-
staða stuðla að kvenfyrirlitningu
og ofbeldi gegn konum fannst
henni sýna nokkuð sérstakt við-
horf til kynlífs og nektar, þar sem
kynlíf sé talið niðurlægjandi fyrir
konur en ekki karla og karlmenn
séu „gerendur" í kynlífi en konur
„þolendur". Að verið sé að nota
líkama kvenna í gróðaskyni sagði
Elsa mega andmæla með því að
benda á að flestar dansmeyjanna
hafi mjög góðar tekjur og vísaði
hún í viðtal við tvær íslenskar
stúlkur í tímaritinu Veru sem vilja
frekar dansa nektardans eina
helgi en að vinna í heilan mánuð
frá níu til fimm, en fyrir þetta fái
þær sama pening. Ein þyngstu
rök andmælenda nektardansstaða
eru þau að þar sé verið að nota sér
neyð kvenna. Elsa sagði það sorg-
lega staðreynd að víða í heiminum
neyddist fólk til að stunda vændi
til að svelta ekki. En þetta væri
þess skásti kostur og spurði hún
hvort réttlætanlegt væri að svipta
það honum. Nær væri að reyna að
bæta efnahagsleg skilyrði svo
enginn þurfi að vera í þessari
stöðu.
Tryggja þarf réttar-
stöðu kvennanna
Þorgerður Katrín Gunnarsdótt-
ir, þingmaður Sjálfstæðisflokks,
sagði óraunhæft að banna rekstur
nektardansstaða. Það þyi’fti hins
vegar að ganga úr skugga um að
þær erlendu stúlkur sem kæmu
hingað til þessara stai-fa gerðu það
af fúsum og fijálsum vilja. Ef þetta
væri þeirra val ætti að leyfa þessa
starfsemi, það virtist vera markað-
ur fyiir hana og ef hún yrði bönnuð
færi hún fram í einhverjum bak-
húsum og það yvði síst til bóta.
Þorgerður gagnrýndi að erlendu
dansmeyjarnar væra undanþegnar
reglum um atvinnuleyfi og heil-
brigðisskoðun sem aðrir útlending-
ar sem koma hingað til starfa þurfa
að fylgja og sagði hún réttast að
þær giltu einnig um þær, ekki síst
þeirra sjálfra og réttarstöðu þeirra
vegna.
Olafur Arnfjörð, eigandi Club 7,
gagnrýndi þá einslitu umræðu sem
fram hefði farið um þetta málefni
þar sem samtök femínista færu
fremst í flokki. Málflutningur
þeirra væri ekki til sóma og ein-
kenndist af þekkingarleysi, rang-
færslum og fordómum. Jafnvel
þingmenn væru farnir að vitna í
sögusagnir og sagði hann tímabært
að umræðan yrði málefnalegri.
Mikilvægt væri að leiðrétta þann
misskilning að þetta sé niðuriæg-
ing fyrir konur og þeim sé haldið
hér nauðugum því reynslan sýni að
95% af þeim konum sem komi
hingað óski eftir því að koma aftur
og það eigi einnig við um konur frá
Austur-Evrópu. Varðandi áhyggj-
ur af smitsjúkdómum benti hann á
að Islendingar ferðist mikið og þeir
sem komi heim frá útlöndum geti
alveg eins verið „smitberar". Þó
sagðist hann deila þeim áhyggjum
sem landlæknir hefur meðal ann-
arra tjáð og ritaði hann landlækni
bréf með beiðni um aðstoð við að
koma í veg fyrir vandamál tengd
smitsjúkdómum, en svar hefur
ekki enn borist.
Sýnir nýjungagirni landans
Þórann Sveinbjamardóttir sagði
tvö þjóðareinkenna íslendinga
vera nýjungagimi og skammsýni,
þau væru oft til góðs en í ekki máli
sem þessu. Lög og reglur um starf-
semi nektarstaða væra ekki til því
svo virðist sem aldrei hafi verið
gert ráð fyrir að þeir gætu sprottið
upp svo hratt og víða. Konurnar
sem hingað kæmu væru á keng-
bognu undanþáguákvæði vísinda-
og listamanna, um atvinnuleyfi,
borguðu ekki skatta og vinnuveit-
endur hefðu engar skyldur gagn-
vart þeim. Hún benti á að alls stað-
ar í heiminum væri starfsemi af
þessu tagi tengd við vændi, mis-
notkun, verslun með manneskjur
og níðingshátt hverskonar og sagði
það ranghugmyndir hjá Islending-
um að telja starfsemina hér eitt-
hvað betri og þrifalegri en annars
staðar. Þórunn sagðist þó ekki
telja hægt að banna þessa starf-
semi, frekar en áfengi eða spila-
kassa, og benti á að ef fólk teldi
þetta vera vandamál væri svarið
við því vandamáli ekki boð og
bönn. Hún sagði virðingarvert þeg-
ar eigendur þessara staða settu sér
ákveðnar vinnureglur og brýndi
hún jafnframt mikilvægi þess að
það löggjafinn setti ramma um
þessa atvinnustarfsemi eins og alla
aðra.