Morgunblaðið - 19.11.1999, Blaðsíða 20
MORGUNBLAÐIÐ
20FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1999
VIÐSKIPTI
Mjög góð afkoma hjá Flugleiðum hf. fyrstu níu mánuði ársins
Hagnaður tímabils-
ins 2.057 milljónir
. Flugleiðir Úr 9 mán. uppgjöri samsta hf. íðu 199 Jan.-sept. 1999 / 7 Jan.-seot.
Rekstrarreikningur Miiijómr kmna 1998 Breyting
Rekstrartekjur Rekstrargjöld án afskrifta 23.818 21.528 21.602 19.724 +10,3% +9,1%
Afskriftir Fjámagnsgjöld Hagn. af reglul. starfs. fyrir skatta 740 -58 1.492 858 -453 567 -13,8%
Tekju- og eignarskattar Hagn. af reglul. starfs. eftir skatta Haqnaður (tap) af sölu eigna -418 1.074 1.618 -218 349 -10
Tekjuskattur af söluhagn. eigna Hagnaður tímabilsins -635 0
2.057 339
Efnahagsreikningur 30. sept.: 1999 1998 Breyiing
1 Eigmr: \ Veltufjármunír Milij. króna Fastafjármunir 10.954 16.655 8.585 15.829 +27,6% +5,2%
Eignir samtals 27.609 24.415 +13.1%
sku/dír Skuldir og skuldbindingar 18.952 17.849 +6,2%
ciaiðfc- EÍB‘Ö ,É 8.657 6.566 +31,8%
J Skuldir og eigið fé samtals 27.609 24.415 +13,1%
Kennitölur og sjóðstreymi 1999 1998 Breyling
Veltufjárhlutfall Eiginfjárhlutfall Handbært fé frá rekstri Millj. króna Veltufé frá rekstri 1,30 31% 2.359 2.785 1,10 27% 1.904 1.933
FLUGLEIÐIR hf. högnuðust um
tæpan 2,1 milljarð króna eftir
reiknaða skatta á fyrstu níu mán-
uðum ársins 1999 samkvæmt óend-
urskoðuðu milliuppgjöri samstæðu.
A sama tímabili í fyrra nam hagn-
aður eftir skatta 339 milljónum
króna.
Velta samstæðunnar nam um
23,8 milljörðum króna á fyrstu níu
mánuðum ársins í samanburði við
21,6 milljörðum króna fyrstu níu
mánuði ársins í fyrra.
Hagnaður samstæðunnar af
reglulegri starfsemi fyrir skatta
nam 1.492 milljónum króna fyrstu
níu mánuði ársins, en var á sama
tímabili í fyrra 567 milljónir króna.
Afkoman af reglulegri starfsemi
fyrir skatta batnaði því um 925
miljjónir króna.
A fyrstu níu mánuðum ársins
fluttu Flugleiðir um 1,05 milljónir
farþega á móti 1,00 milljón farþega
á sama tímabili á seinasta ári.
„Leiðakerfi félagins hagkvæmt"
„Við erum tiltöluiegá ánægðir
með útkomuna, og með það að hafa
tekist að snúa við rekstri félagsins.
Petta er ekki síst ánægjulegt á tim-
um þegar öðrum flugfélögum vegn-
ast almennt verr um þessar mund-
ir. Ein af ástæðum þess að okkur
gengur þetta vel er hagkvæmt
leiðakerfi félagsins sem nú er farið
að virka mjög vel,“ segir Sigurður
Helgason, forstjóri Flugleiða í
samtali við Morgunblaðið.
„Þessa breytingu má fyrst og
fremst rekja til fyrri hluta ársins,
en við munum kappkosta við að
halda í horfinu á seinni helmingi
ársins við erfiðari kringumstæður í
farþegaflugi á alþjóðamarkaði."
Tekjur móðurfélags jukust um
5,2% meðan að fjöldi farþega sem
Flugleiðir flugu með jukust um 4%.
í tilkynningunni segir að í tekju-
liðnum muni mest um farþega og
fraktflutningatekjur, og hlutfalls-
lega hafi mestur vöxtur orðið í
frakttekjum.
Sigurður er einnig spurður hvort
flugleiðum sé að takast að auka
fjölda viðskiptaferðalanga í sam-
ræmi við fyrirætlanir félagsins?
„Jú, það er rétt að þeim hefur
fjölgað. En þetta er líka vegna þess
að okkur hefur tekist að auka
fjölda farþega sem koma til lands-
ins, en þeir gefa betri tekjur en far-
þegar sem eru einungis á leið yfir
hafið, og koma auk þess inniendri
ferðaþjónustu til góða.“
Verulega aukinn hagnaður
frá dótturfélögum
I fréttatilkynningunni segir Sig-
urður einnig að Flugleiðir hafi náð
árangri í að markaðssetja ferðir til
Islands utan háannatímans. „Und-
anfarin ár hefur vetrarflug félags-
ins aukist meira en sumarflug og á
því byggist fjölgun ferðamanna til
Islands yfir veturinn.“
Fram kemur í tilkynningunni að
hlutdeild Flugleiða í hagnaði dótt-
urfélaga sé um 150 milljónir króna
á fyrstu níu mánuðum ársins, sem
er liðlega 137 milljónum króna
hærri fjárhæð en á sama tímabili í
fyrra þegar hagnaðarhlutdeild var
um 13 milljónir króna. Þar munar
mestu um batnandi afkomu Flug-
félags Islands og Ferðaskrifstofu
íslands.
Afköst aukist um níu
présent á næsta ári
í fréttatilkynningunni segir að
Flugleiðir hf. eiga fasta pöntun í
fjórar nýjar farþegaþotur af gerð-
inni Boeing 757, og geti Flugleiðir
þá skilað vélum sem félagið sé með
í leigu. Aðspurður um hvort hugs-
anlegt væri fyrir Flugleiði að halda
áfram einhverjum leiguvélum og
auka umsvif segir hann að slíkt
verði að ráðast af efnahagsaðstæð-
um sem og aðstæðum í greininni.
„Á næsta ári tekur félagið við
nýrri farþegavél af gerðinni
Boeing 757 en mun láta af hendi í
staðinn vél af gerðinni Boeing 737
sem er minni vél. Sætaframboð
mun þó aukast meira en það,“ segir
Sigurður. „Við áætlum að auka af-
köst flugflotans um níu prósent á
næsta ári. Við hyggjumst fljúga
vélunum meira og hætta t.d. að
fljúga milli Hamborgar og Kaup-
mannahafnar, en munum auka flug
frá öðrum stöðum í staðinn.“
I fréttatilkynningu frá félaginu
segir einnig að innra virði félags-
ins, eða eigið fé deilt með hlutafé,
hafi verið 3,75 í lok níu mánaða
tímabils en var 2,85 í lok sama
tímabils í fyrra. Söluhagnaður sem
kemur félaginu til tekna í þessu níu
mánaða milliuppgjöri er til kominn
vegna sölu á tveimur hótelbygging-
um í Reykjavík og á Boeing 737-
400 flugvél á fyrsta fjórðungi ár-
sins.
0PIN KERFI hf.
(Samstæða)
Úr árshlutareikningi
Janúar-september 1999
Rekstrarreikningur Milljónir króna
Rekstrartekjur með umboðssölu
Rekstrargjöld
Hrein fjármagnsgjöld
Hagnaður fyrir tekju- og eignaskatt
Tekju- og eignarskattar
Söluhagnaður eigna
ihagnaður eigna___________________
jn. án áhr. dóttur- og hlutdeildarfél.
tdeild og áhrif dóttur- og hlutd.fél.
jnaður tímabilsins
Efnahagsreikningur 30. sept.:
Eignir samtals
Eigið fé samtals
Skuldir samtals
Milljónir króna
Milljónir króna
Skuldir og eigið fé samtals
Kennitölur
Veltufjárhlutfall
Eiginfjárhlutfall
Arðsemi eigin fjár m.v. heilt ár
JAN.-SEPT.
1999
2.674.6
2.443.6
20,0
172,7
53.1
56.2
175,7
-75,7
100,1
1999
2.111,6
805,3
1.306,3
2.111,6
1999
1,31
0,31
24,4%
JAN.-SEPT.
1998
1.970,8
1.820,1
17,8
90.8
17.8
16,6
89,6
-20,1
69,5
1998
1.736,0
671,1
1.064,9
1.736,0
1998
1,39
0,32
37,1 %
Breyting
436%
434%
+12%
+90%
+198%
+238%
+96%
+276%
444%
Breylingl
+22%
+20%
+23%
+22%
Afkoma Tæknivals
umfram væntingar
NIÐURSTAÐA af reglulegri
starfsemi Tæknivals hf. á þriðja
ársfjórðungi 1999 er betri en áætl-
að hafði verið, að því er fram kem-
ur í tilkynningu Tæknivals til
Verðbréfaþings Islands. Gert var
ráð fyrir 30 milljóna króna tapi á
þriðja ársfjórðungi en Ámi Sigfús-
son, framkvæmdastjóri Tæknivals,
segir niðurstöðuna nú helmingi
betri, en gefur þó ekki upp ná-
kvæma tölu.
„Þegar uppgjör fyrstu sex mán-
uða ársins 1999 var lagt fram, sem
sýndi 144,3 milljóna króna tap-
rekstur, tilkynntu forsvarsmenn
Tæknivals að stefnt væri að við-
snúningi í rekstri fyrirtækisins á
seinni sex mánuðum ársins, sem
Gott níu mánaða uppgjör hjá Opnum kerfum hf.
Hagnaðist um 100 milljonir
OPIN kerfi hf. skiluðu 100,1 milljón
króna hagnaði eftir reiknaða skatta
á fyrstu níu mánuðum ársins 1999
samkvæmt óendurskoðuðu árs-
hlutauppgjöri samstæðunnar. Á
sama tíma í fyrra nam hagnaður
69,5 milljónum króna og nemur
aukning 44%.
Hagnaður móðurfélags Opinna
kerfa hf. af reglulegri starfsemi eft-
ir skatta nam 63,0 milljónum króna
fyrstu níu mánuði ársins 1999, en
37,8 milljónum króna á sama tíma í
fyrra, sem er 67% aukning. Þetta
kemur m.a. fram í fréttatilkynn-
ingu frá Opnum kerfum hf.
„Við munum enda árið með meiri
hagnaði en við bjuggumst við í upp-
hafi árs, enda höfum við náð hagn-
aðarmarkmiðum ársins og búumst
við að ná a.m.k. 140 milljónum eftir
skatta sem er þá urn 40% yfir áætl-
unum,“ segir Gylfi Amason, fram-
kvæmdastjóri Opinna kerfa hf. í
samtali við Morgunblaðið.
I fréttatilkynningu kemur fram
að velgengni móðurfélagsins megi
rekja til aukinnar sölu á UNIX- og
NT netþjónum og tengdri þjónustu
svo sem rekstrarþjónustusamning-
um Einnig sé góður vöxtur í-sölu á
PC-tölvum og ClSCO-netbúnaði.
Fram kemur að forsvarsmenn fé-
lagsins séu ánægðir með aldurs-
samsetningu birgða og stöðu við-
skiptakrafna.
Áhugi á nýsköpunarverkefnum
ungs fólks
„Við vonumst til að áhrif hlut-
deildar- og dótturfélaga á rekstrar-
niðurstöðu samstæðunnar verði í
árslok orðin jákvæð. Mér sýnist að
það sé jákvæð þróun að eiga sér
stað hjá Tæknivali geti skilað okk-
ur betri niðurstöðu en nú er,“ segir
Frosti Bergsson, stjórnarformaður
Opinna kerfa.
Hann segir einnig að Opin kerfi
hafi áhuga á að koma að með fjár-
magn þar sem ungt fólk sé með
áhugaverðar nýsköpunarhug-
myndir á upplýsingatæknisviði.
„Við höfum í gegn um tíðina fjár-
fest í ýmsum fyrirtækjum. Það þarf
einnig tíma til að fylgjast með fyrir-
tækjum og þarf að hafa mannskap
til að gera það. Undanfarna tólf
mánuði höfum við kannski haft full-
ar hendur af verkefnum, en ég vona
að á nýju ári verðum við í stakk
búnir til að skoða ný verkefni,“ seg-
ir Frosti Bergsson.
gerði ráð fyrir 50 miUjóna króna
hagnaði af reglulegri starfsemi það
tímabil,“ segir í tilkynningunni.
Þriðji ársfjórðungur skilar betri
niðurstöðu af reglulegri starfsemi
en ráðgert var og gangi áætlanir
fjórða ársfjórðungs eftir mun við-
snúningur í rekstri fara fram úr
þeim væntingum sem gerðar voru.
Góð verkefnastaða
Árni Sigfússon, framkvæmda-
stjóri Tæknivals segir verkefna-
stöðu fyrirtækisins mjög góða þeg-
ar horft er til fjórða ársfjórðungs.
„Við teljum allar líkur á að áætlan-
ir þess ársfjórðungs standist. Þar
með erum við að ná þeim mark-
miðum sem við settum okkur um
að viðsnúningur í rekstrinum
kæmi fram strax á þessu ári.“
Aðspurður segir Árni það
standa til að birta ársfjórðung-
suppgjör í framtíðinni en uppgjör-
ið var ekki birt að þessu sinni. I til-
kynningunni kemur fram að þriðji
fjórðungur ársins sé að jafnaði erf-
iðastur en afkoman er þó betri nú
en gert var ráð fyrir. „Júlí og
ágúst eru áberandi erfiðastir í
rekstri fyrirtækis eins og Tækni-
vals en í september gengur jafnan
mun betur. Einnig er rekstrar-
kostnaður, sem fyrirtækið hefur
borið, óðum að léttast," segir Árni.
„Lausnin er ekki fólgin í aukinni
veltu heldur áherslu á lyldlhæfni
okkar, framlegð og kostnaðarað-
hald. Jákvæð merki koma heldur
fyrr fram en við ætluðum. Nú er
bara að tryggja framhaldið."
í september sl. varð AX-hug-
búnaðarhús hf. til með samruna
hugbúnaðarsviðs Tæknivals og
Agresso-sviðs Skýrr, auk þátttöku
Opinna kerfa og annarra aðila.
Hagnaður af sölu hugbúnaðarsviðs
Tæknivals nemur um 180 milljón-
um króna, að því er fram kemur í
tilkynningunni, en söluhagnaður-
inn verður aðeins að hluta tekju-
færður á árinu 1999. Árni segir að
ekki hafi verið ákveðið hversu stór
hluti hagnaðarins verði færður.
„Varfæmissjónarmið ráða þar
ferðinni og ákvörðun verður tekin í
samráði við endurskoðendur. Við
teljum það varlegri leið að horfa til
lengri tíma varðandi tekjufærsl-
una.“
Rétt ákvörðun að selja
hugbúnaðareiningu
Matthías H. Johannessen, hjá
greiningardeild Kaupþings, segir
að það hafi verið rétt ákvörðun að
selja hugbúnaðareiningu Tækni-
vals og reyna samstarf við önnur
hugbúnaðarhús í ljósi þess að það
hafi vegið minnst í rekstrinum.
„Þrátt fyrir verulegan viðsnún-
ing í rekstri þá stendur eftir gríð-
arlegt tap á fyrri árshelmingi eða
um 144 milljónir króna. Þrátt fyrir
að félagið muni skila nokkru meiri
hagnaði en 50 milljónum króna,
mun það vart ná að jafna út hið
mikla tap. Það er því líklegt að um
helmingur söluhagnaðarins verði
tekjufærður tU þess að sýna niður-
stöðu í árslok réttum megin við
núllið.
Niðurstaðan er sú að um já-
kvæðar fréttir er að ræða fyrir
Tæknival, félagið virðist vera á
réttri leið með nýjum stjórnendum
og jákvætt að einungis hluti hagn-
aðar hugbúnaðarsviðsins verði
tekjufærður. Það er því vonandi að
viðsnúningurinn muni skila sér
jafnframt í rekstri félagsins á
næsta ári og að ekki muni þurfa að
koma á ný til svokallaðra sér-
stakra afskrifta birgða,“ segir
Matthías.
Tvenn viðskipti urðu með hluta-
bréf Tæknivals í gær og hækkaði
gengi bréfanna um rúm 7%.