Morgunblaðið - 19.11.1999, Side 32
32 „EÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1999 ..
—8S—fiaaMHVQU.-.Ql flUOAUUTaO'il
MARAZZI
ÁIFABORG 2
KNARRARVOGI4 • * 568 6755
LISTIR
Starfsmaður Sothebys kemur mynd Cézanne fyrir í sýningarsal, þar sem hægt verður
að virða hana fyrir sér fram að uppboðinu.
Reuters
Handklæðaofnar
Vandaðir handklæðaofnar.
Fáanlegir í ýmsum stærðum.
Lagerstærðir:
700x550 mm
1152x600 mm
1764 x 600 mm
m___HHl-JMI.M
TCÍIGI
Smiðjuvegi 11 • 200 Kópavogur
Sími: 5641088 • Fax: 5641089
Fást í hygglngavóruverslunum um laridallt
Stolin mynd eftir
Cézanne boðin upp
MEISTARAVERK eftir franska
listmálarann Paul Cézanne, sem
stolið var fyrir 21 ári en kom í leit-
imar í byrjun þessa árs, verður
boðin upp hjá Sotheby’s í London
7. desember.
Myndin, sem nefnist „Bouilloire
et fmits“ eða Pjáturkanna og
blóm, var máluð milU 1888 og
1890, er Cézanne var á hátindi
ferils síns. Sýnir hún uppstillingu
af eplum, appelsínum og sitrón-
um, sem komið er fyrir hjá pjátur-
könnu á dúklögðu borði, og fúllyrt
er að hún sé til marks um hlutverk
Cézannes sem fyrirrennara kúb-
istanna. Talið er að myndin muni
seljast fyrir 15 til 20 milljónir doll-
ara, eða 1 til 1,4 milljarða króna.
Kyrralífsmyndinni var stolið úr
einkasafni í Massachusetts í
Bandaríkjunum árið 1978, en fyr-
irtækið Art Loss Register, sem
rekur stærsta gagnabanka heims
um stolin listaverk, hafði upp á
henni fyrir nokkmm mánuðum.
Lögregla réðst í kjölfarið til inn-
göngu á ótilgreindan stað og gerði
myndina upptæka.
Einn merkasti listaverkafundur
síðari ára
Talsmaður Art Loss Register
sagði að verðmæti myndarinnar
og hinn langi túni sem liðinn væri
siðan henni var stolið, gerði þetta
að einum merkasta listaverka-
fúndi siðari ára. Sagði hann að
fundurinn sýndi að æ erfiðara yrði
að koma stolnum listmunum í
verð.
Eigendur myndarinnar, hjón að
nafni Bakwin, em sagðir hafa
byggt upp merkilegt listaverka-
safn á nokkmm áratugum.Tals-
maður hjónanna sagði að þau
hefðu gefið upp alla von um að
myndin kæmi í leitimar, en þegar
hún fannst hefðu þau ákveðið að
selja hana.
Sements-
pokinn í
Listasetrinu
í LISTASETRINU Kirkju-
hvoli, Akranesi, verður opn-
uð sýning á morgun, laugar-
dag, í tilefni af 40 ára
afmæli útgáfu „Sement-
spokans", blaðs starfs-
mannafélags Sements-
verksmiðjunnar, sem er
einnig fertugt.
A sýningunni kennir
margra grasa, s.s. fjölda
ljósmynda frá starfí innan
verksmiðjunnar, myndb-
anda, allra viðtala sem hafa
birtst í Sementspokanum,
ásamt ýmsum munum, sem
notaðir hafa verið í verk-
smiðjunni sl. 40 ár.
Sýningunni lýkur 5. des-
ember og er Listasetrið op-
ið alla daga nema mánu-
daga frá kl. 15-18.
Sýning á
ljósmynd-
um úr
maraþoni
SÝNING á myndum úr ljósmynda-
maraþoni Unglistar verður opnuð í
Hinu húsinu við Ingólfstorg á
morgun, laugardag, kl. 16:00 með
verðlaunaafhendingu. Veitt eru
verðlaun fyrir bestu myndina,
bestu filmuna og frumlegustu
myndina ásamt því að veittar verða
viðurkenningar fyrir bestu mynd-
imar lýrir hvert þema sem vom
tólftalsins.
Sýningin stendur til 27. nóvem-
ber.
Sýningin er opin virka daga frá
kl. 9:00-17:00.
—---♦ ♦♦--
Píanótónleikar
endurteknir
JONAS Ingimundarson píanóleik-
ari endurflytur einleikstónleika
sína í Salnum í Tónlistarhúsi Kópa-
vogs á morgun, laugarda, kl. 16. A
efnisskránni era fyrsta og síðasta
sónata Beethovens og allir fjórtán
valsamir eftir Fréderic Chopin í
tilefni af 150 ára ártíð tónskáldsins.
Miðaverð á tónleikana er kr.
1.500.
Leyndarmálið eftir Aðalheiði Ólöfu Skarphéðinsdóttur er eitt verka í
glugga Meistara Jakobs.
Grafíkverk í glugga
ADALIIEIDUR Ólöf Skarphéðins-
dóttir sýnir sex ný grafíkverk í
glugga Meistara Jakobs, Skóla-
vörðustíg 5. Verkin eru unnin með
þurmál og vatnslit, einnig trérist-
ur.
Aðalheiður er ein af ellefú lista-
mönnum sem reka listhúsið Meist-
ara Jakob. Hún hefur haldið átta
einkasýningar og tekið þátt í
fjölda samsýninga víða um heim.
Gluggakynningin stendur til 29.
nóvember.
MORGUNBLAÐIÐ
aiaALisiwuoiioM
Hádegisleik-
hús á Isafirði
SKG-veitingar á Hótel Isafirði
bjóða upp á leikþáttinn Frátekið
borð eftir Jónínu Leósdóttur í há-
deginu næstu þrjá fostudaga og
verður framsýning í dag.
Um er að ræða samstarf veit-
ingastaðarins og fjögurra ung-
menna á Isafirði, þeiiTa Þórannar
Ömu Kristjánsdóttur, Herdísar
Önnu Jónasdóttur, Hörpu Henrýs-
dóttur og Greips Gíslasonar, sem
leikstýrir.
Leiksýningin tekur um hálfa
klukkustund.
♦ ♦ ♦
Lúðrar hljóma í
Tjarnarsalnum
LÚÐRASVEIT Reykjavíkur
heldur tónleika í Tjarnarsal Ráð-
húss Reykjavíkur á morgun,
laugardag, kl. 15.
A efnisskrá verður syrpa með
Reykjavíkurlögum eftir ýmsa
höfunda í útsetningu Ellerts
Karlssonar; Slavonic Dances eftir
Antoní Dvorák; Themes for Grieg
í útsetningu Clar W. Johnson;
British Watherside eftir Percey
Gringer; The Matador eftir A.
Young; Seven Years In Tibet eft-
ir John Williams; Salut To 01-
’Blue Eyes, syrpa djass- og dæg-
urlaga í útsetningu John Moss,
sett saman til heiðurs Frank Sin-
atra og Csardas eftir V. Monti.
Einleikari á harmonikku er
Grettir Björnsson.
Lúðrasveit Reykjavíkur er
nýkomin úr æfingaferð til Hvols-
vallar þar sem einnig voru haldn-
ir tónleikar með því efni sem flutt
verður í Tjarnarsalnum.
Stjórnandi Lúðrasveitar
Reykjavíkur er Lárus Halldór
Grímsson tónskáld. Aðgangur á
tónleikana er ókeypis.
------♦-♦-♦----
Sýningu
lýkur
Gallerí @ hlemmur.is
SÝNINGU Baldurs J. Baldurs-
sonar og Kristins Pálmasonar í
Gallerí@hlemmur.is , Þverholti 5,
lýkur nú á sunnudag.
Galleríið er opið alla daga nema
mánudaga frá kl. 14-18.
Listin til
Eyja með
Eimskip
RURI opnar sýningu í Gallerí
Áhaldahúsinu í Vestmannaeyjum
á morgun, Iaugardag, kl. 16. Á
sýningu eru ljós-
myndir í stærð-
unum 55x75 cm
og 60x90 cm, en
sýningin er til-
einkuð Sigríði
Tómasdóttur frá
Brattholti sem
barðist harðri
baráttu fyrir
friðun og
vemdun Gull-
foss.
Þetta er önn-
ur sýningin af tveimur á þessu
hausti sem Eimskipafélag íslands
styrkir í Eyjum en í fyrrahaust
sýndu Ráðhildur Ingadóttir og
Ósk Vilhjálmsdóttir með tilstyrk
Eimskipafélagsins.Vestmanna-
eyjabæjar, lánar húsnæðið end-
urgjaldslaust og er það tillegg
bæjarins til eflingar sýningarhaldi
í Eyjum.
Sýning Rúríar verður opin tvær
helgar, þ.e. hinn 20. og 21., og 27.
og 28. nóvember frá kl. 14-18. Að-
gangur er ókeypis.