Morgunblaðið - 19.11.1999, Side 34
G6GI Ha/ÍMaYOH .Gf HIJpAOOTgOY
34 FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1999
}IQÁJ fl.MUOíIOM
MORGUNBLAÐIÐ
faiT^J.1
LISTIR
Hátíð til
heiðurs
Gunnari
Dal
í IÐNÓ verður afmælisdagskrá til
heiðurs Gunnari Dal á fimmtíu ára
skáldaafmæli hans á morgun, laug-
ardag, kl. 14.30.
Fram koma Öldungadeild Karla-
kórs Reykjavíkur, Sigrún Eðvalds-
dóttir fiðluleikari, Selma Guðmun-
dsdóttir píanóleikari, Erlingur
Gíslason les ljóð, Atli Heimir
Sveinsson og Jón Jósep
Snæbjömsson munu flytja nýtt
verk, Elísabet Linnet, eftir Atla við
ljóð Gunnars.
♦ ♦♦
Tónleikar
Lúðrasveit-
ar Verka-
lýðsins
LÚÐRASVEIT Verkalýðsins held-
ur tónleika á morgun, laugardag,
kl. 15 í Seltjamarneskirkju. Þar
flytur sveitin nokkra af þekktustu
mörsum blásarbókmenntana.
Meðal verka á tónleikunum era
Stars and Stripes forever, eftir
Sousa, Inngöngumars skylminga-
þrælanna og Florentiner mars eftir
Fueik, Alte Kammeraten eftir Tei-
ke, Colonel Bogey eftir Alford svo
nokkur séu nefnd.
mvorur
Karín Ilerzog
Kynning í dag
Lyf og heiisu, Melhaga,
kl. 14-18,
Hagkaupi, Skeifunni,
15-19 og
Hagkaupi, Kringlunni,
14-18.
undur
Hermannsson,
úrsmiður, antikklukkur
og viðgerðir.
Er fluttur í Bæjarlind 1-3,
Kópavogi, sími 554 7770.
(Næg bílastæði).
Antik-
klukkusýning
dagana
20.-25. nóv.
Blásarakvintett Reykjavikur fær góða dóma í Ástralfu
Blásarakvintett Reykjavíkur á tröppum óperuhússins í Sydney, f.v. Einar Jóhannesson, Jósef Ognibene,
Hafsteinn Guðmundsson, Bemharður Wilkinson og Daði Kolbeinsson.
Bjartur sem
miðnætursólin
BLÁS ARAKVINTETT Reylqavík-
ur fær góða dóma í áströlskum
dagblöðum fyrir tónleika sem hann
hélt neðra fyrir skemmstu.
Gagnrýnandi The Sydney Morn-
ing Herald ber lof á fimmmenning-
ana og segir leik þeirra hafa verið
jafn bjartan og miðnætursólina.
Tónleikamir fóm fram í sal í óp-
eruhúsinu í Sydney og harmar
gagnrýnandinn, David Vance, að
fleiri skyldu ekki sælya þá. Menn
hafí misst af miklu.
Vance er hrifinn af efnisskrá
kvintettsins og fer meðal annars
lofsamlegum orðum um verk Hafl-
iða Hallgrímssonar, Intarsia.
„Þessi kreíjandi og andríka tóns-
míð nýtti möguleika þessarar
hljóðfæraskipanar ákaflega vel.“
Af öðmm hápunktum kvöldsins
nefnir Vance Þijú stykki fyrir ein-
leiksklarínettu og Tíu stykki fyrir
blásarakvintett eftir Ligeti, þar
hafi reynsla hljóðfæraleikaranna
og tilfinningahiti skinið í gegn.
Gagnrýnandi The Westem
Austratían, Neville Cohn, sótti tón-
leika blásarakvintettsins í tónlist-
arháskólanum í Perth og ber lof á
félagana fimm, segir þá ekki að-
eins hafa leikið vel, heldur jafii-
framt boðið af sér góðan þokka.
Gerir hann sérstaklega góðan
róm að frammistöðu Jósefs Ogni-
benes homleikara - notar orð á
borð við „hrífandi" og „töfmm lík-
ur“ um leik hans.
Hápunkt kvöldsins kveður hann
hafa verið flutning á Blásara-
kvintett Carls Nielsens, sem sé í
hópi mest ögrandi og spennandi
verka norrænna tónbókmennta.
„mjóðfæraleikaramir bmgðust
við þessari áskomn af fágun og
næmi.“
Auk Jósefs, er Blásarakvintett
Reykjavíkur skipaður Einari Jó-
hannessyni klarínettuleikara, Haf-
steini Guðmundssyni fagottleikara,
Bemharði Wilkinson fiautuieikara
og Daða Kolbeinssyni óbóleikara.
Horn end-
urskapar
Dickinson
BANDARÍSKI listfræðingurinn
Eva Heisler flytur fyrirlestur er
nefnist: „The Artist as Reader/
Reading as Sculpture" mánudag-
inn 22. nóvember kl.12.30 í LHI í
Laugarnesi, stofu 24.
Bandaríski myndlistarmaður-
inn Roni Horn er vel þekkt hér-
lendis og hefur unnið mörg verk
tengd íslenskri náttúru. A undan-
förnum árum hefur hún m.a. gert
fjögur myndverk þar sem ljóð
Emely Dickinson eru uppspretta
hugmyndanna. Fyrirlesturinn
fjallar um það hvernig Horn end-
urskapar texta Dickinson í verk-
um sínum.
Guðmundur Oddur Magnússon,
grafískur hönnuður og kennari
við LHI, flytur fyrirlestur um
hina nýju gullgerðarlist í Skip-
holti 1, stofu 113, miðvikudaginn
24. nóvember kl. 12.30.
Nýjar bækur
• HVÍLDAR-
DAGAR er
skáldsaga eftir
Braga Olafsson.
I kynningu
segir: „Eg reyni
að ímynda mér
hver muni koma
fyrstur inn í
,uragi íbúðina mína,
óiafsson snúi ég ekki aft-
ur úr Heiðmörkinni. Og hversu
langur tími muni líða þangað til ein-
hver saknar mín. Mögulega tveir
og hálfur mánuður, hugsa ég; sá
tími sem ég á eftir af sumarleyf-
inu.“ Sögupersóna bókarinnar hef-
ur fengið óvenjulangt sumarfrí frá
vinnu sinni. Ákveður hann að halda
upp í Heiðmörk í dagsferð en sú fór
fær snöggan og óvæntan endi.
Útgefandi er Bjartur. Bókin er
200 bls., prentuð í Gutenberg.
Kápugerð önnuðust Sigi-ún Páls-
dóttir og Einar Örn Benediktsson.
Verð 3.380 kr.
William
Faulkner
• LJOS í ágúst
er eftir William
Faulkner í þýð-
ingu Rúnars
Helga Vignis-
sonar.
I kynningu
segir: „Kasólétt
gengur Lena
Grove eftir
sveitavegi í
Mississippi í leit
að barnsföður sínum. I sakleysi
sínu álpast hún inn í marg-
slungna atburðarás sem sýnir
bandaríska suðrið í hnotskurn.
Þar stíga fram sumar af eftir-
minnilegustu persónum Faulk-
ners, svo sem Joe Christmas, sem
lítur út fyrir að vera hvítur en
telur sig hafa svertingjablóð í æð-
um, og séra Gail Hightower, sem
lifir í fortíðinni og gleymir nútíð-
inni.
Williams Faulkners, er einn
helsta sagnameistara Banda-
ríkjamanna á 20. öld. Hann hlaut
Nóbelsverðlaunin í bókmenntum
árið 1949.
Útgefandi er Bjartur. Bókin er
300 bls. prentuð í Gutenberg.
Kápugerð annaðist Snæbjörn
Arngrímsson. Verð: 3.880 kr.
Biblíuleg
orgeltónlist
í Selfosskirkju
ORGELVERKIÐ Job eft-
ir Petr Eben verður flutt í
Selfosskirkju á morgun,
laugardag, kl. 17.
I fréttatilkynningu segir
að verkið hafí ekki verið
flutt áðui' hér á landi en
flytjandinn, Jörg E. Sond-
ermann, organisti, fram-
flutti þetta verk í Þýska-
landi árið 1990. Með
honum flytur verkið sr.
Kristján Valur Ingólfsson.
Orgelverkið Job skiptist í
átta þætti. A undan hverj-
um þætti er fluttur viðeig-
andi lestur úr Jobsbók og
innihald textans túlkað í
endurómi orgelsins.
Petr Eben er fæddur 22.
janúar 1929 og er í hópi
merkustu núlifandi tón-
skálda. Hann nam tónlist í
Prag og hefur kennt tónvís-
indi við Karlsháskóla í Prag
frá 1955. Frá 1991 hefur
hann verið prófessor í orgelleik við
Tónlistarakademíuna í Prag. Hann
skrifar um þetta verk: „Stefin í
Jobsbók veita svör við einni erfið-
ustu spurningu lífsgátunnar:
Hvers vegna á gott fólk við böl að
búa? Biblían sýnir ekki einungis
fram á hvað mæða ein-
staklingsins er lítilfjörleg í
samanburði við bölið í ver-
öldinni, heldur beinir hún
sjónum okkar fyrst og
fremst til Guðs. Guð
stendur við hlið mannsins í
þjáningunni."
Jörg E. sondermann er
fæddur 1957 í Witten í
Þýskalandi. Hann lauk
einleikaraprófi á orgel
1982 í Hamborg. Árin
1979-1997 starfaði hann
sem organisti og kórstjóri
í Westfalen. Hann hefur
haldið tónleika víða um
lönd og hefur hljóðritað
fyrir útvarp, m.a. allar sex
tríósónötur Johanns Seb-
astians Bachs.
Jörg , Sondermann
flutti til íslands haustið
1997 og hefur síðan starf-
að sem organisti í Hvera-
gerðis- og Kotstrandar-
sóknum.
Sr. Kristján Valur Ingólfsson er
lauk guðfræðiprófi frá HÍ 1974 og
hefur starfað sem sóknarprestur á
Raufarhöfn, Grenjaðarstað og ísa-
firði og verið rektor Skálholtsskóla
frá 1992.
Jörg E.
Sondermann
Sr. Kristján
V.alur Ing-
ólfsson
Getur þú
svarað?
BÆKUR
Fjölskýldubok
GETTU NÚ
Spumingakeppni fyrir alla fjöl-
skylduna.
Safnað af Guðjóni Inga Eiríkssyni
og Jóni Hjaltasyni. Káputeikning:
Hjördís Olafsdóttir Prentvinnsla:
Ásprent / POB ehf, 1999. - 77 síður.
Jón Guðjón Ingi
Hjaltason Eiríksson
HÚN lætur ekki mikið yfir sér
þessi bók, svo nett og feimin, að
hætta er á, að henni verði valinn
staður á söluborði, þar sem lítið ber
á. Skaði væri það, því í heimi, þar
sem börn þekkja foreldra sína helzt
af myndum í albúmi og orðunum:
„Leiktu þér annars staðar, því eg
er svo þreytt(ur)“, eða „Farðu nú
strax í rúmið!“, þá er þessi bók brú
milli sálna. Brúin er undarlegrar
náttúru, því gangirðu eftir henni,
þá líður þreyta dagsins úr þér við
þá gleði að hitta afkvæmi þitt á
göngu þar líka, og við það, að þið
takið upp spjall á vitrænum jafn-
réttisgrandvelli. Þetta er þinn akk-
ur, barnsins aftur á móti, að bráin
er leið að þroskansfjalli,. þar sem
pabbi og mamma rétta því hönd til
klifurs. Væri einhver stund dagsins
valin til slíkrar göngu, þá era minni
líkur á, að böm í unglíngslíkömum
þyrftu að brjóta ráður í amsturs-
herberjum foreldra sinna; - liggja
örvita við veg þeirra; - koma sér úr
vinnu eða námi, til þess að hitta
þessi fyrirbæri sem þeim var kennt
að kalla mömmu og babba. Hvern-
ig? Jú, bókin er safn fimm spurn-
ingaflokka. Gerðar era mismun-
andi kröfur til þroska, æskan ung
og ellin rám finna hér gátur við
hæfi. Af sérstakri háttvísi við spyr-
il, þá hafa þeir, er efni söfnuðu, sett
svörin við spurningunum líka á
blað, svo um rétt eða rangt þarf
ekki að deila, en þau koma samt
ekki í veg fyrir það, að spurning-
arnar geti orðið upphaf skemmti-
legra umræðna um tilveruna og líf-
ið. Þökk fyrir góða bók, -
fjölskylduvæna! Kápumynd snjöll
og prentverk allt vel unnið.
Sig.Haukur