Morgunblaðið - 19.11.1999, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
urUAitaHTJDfiOM
LISTIR
FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1999 39
'wee f 'iTU'UM'jj'Vóvi'-.'tff-imÐAUT itwc V'T 00
Nýjar bækur
Viðburðaríkt
skeið stjórn-
málasögu
Dagur B. Steingrímur
Eggertsson Hermannsson
• ÆVISAGA Stein-
gríms Hermannsson-
ar, 2. bindi, er eftir
Dag B. Eggertsson.
Bókin er byggð á
samtölum Dags við
Steingrím Hermann-
sson fyrrverandi for-
sætisráðherra og
ýmsa samferðamenn
hans, einkabréfum
Steingríms og ýmsum
persónulegum slgöl-
um og minnisblöðum,
auk annarra heimilda
úr ýmsum áttum. I
þessari bók segir
Steingrímur sögu sína
frá því að hann fór fyrst í framboð á
Vestfjörðum á sjöunda áratugnum
fram til þess tíma er ríkisstjóm
Gunnars Thoroddsens hvarf frá
völdum, en þá hafði Steingrímur
verið ráðherra í tveimur ríkis-
stjómum og stýrt fjóram ráðuneyt-
um.
í kynningu segir m.a.: „í ævisögu
sinni rekur Steingrímur Hermann-
sson eftirminnilega atburði frá
stormasamri ævi. Ólafur Jóhannes-
son, Vilmundur Gylfason, Gunnar
Thoroddsen, Svavar Gestsson og
Ólafur Ragnar Grímsson era meðal
þeima sem stíga fram á sviðið á síð-
um bókarinnar, sem fjallar um eitt
viðburðaríkasta skeið íslenskrar
stjómmálasögu. Steingrímur svipt-
ir hulunni af hrossakaupum og
hatrömmum deilum, fjármálum
Framsóknar-flokksins og klofningi
Sjálfstæðisflokksins, fyrir-
greiðslupólitík og „grænubauna-
málinu“ svo fátt eitt sé nefnt. Ævis-
aga Steingríms Hermannssonar er
í senn spennandi saga af einstæð-
um stjómmálamanni og merkilegt
innlegg í íslenska stjómmálasögu."
Fyrsta bindi kom út haustið
1998.
Útgefandi er Vaka-Helgafell.
Bókin er 380 bls., auk 48 síðna með
ljósmyndum. I bókinni ernafna-
skrá og ítarleg heimildaskrá. Loft-
ur Olafur Leifsson hannaði bókar-
kápu, Oddi hf. prentaði bókina.
Verð: 4.460 kr.
• RAMSES - Musterið eilífa er
skáldsaga eftir Christian Jacq í
þýðingu Helga Más Barðasonar.
Sagan fjallar um viðburðaríkt
líf Ramsesar II., sem var faraó
Egypta fyrir rúmum þrjú þúsund
árum, og er sjálfstætt framhald
bókarinnar Ramses - Sonur ljóss-
ins sem kom út í fyrra.
í fréttatilkynningu segir að
bókin sé um átök, undirferli, álög
og ástir í fornum og heillandi
menningarheimi á bökkum Nílar.
Hinn ungi Ramses er orðinn faraó
Egyptalands en bróðir hans situr
á svikráðum og ætlar sjálfum sér
hásætið.
Bækumar um Ramses hafa ver-
ið þýddar á yfir þrjátíu tungumál
en höfundur þeirra, Frakkinn
Christian Jacq, er sérfróður um
menningu, sögu og lífshætti
Egypta til forna.
Utgefandi er Vaka-Helgafell.
Bókin er er 323 bls., prentuðí
Odda hf. Björn Hermann Jónsson
hannaði bókarkápu. Verð: 3.880
kr.
• RÍKI guðs er skráð af breska rit-
höfíndinum Geraldine McCaug-
hrean í íslenskri þýðingu Vilborg-
ar Dagbjartsdóttur. Bókin hefur
að geyma eftirminnilegustu sög-
ur Nýja testamentisins, m.a. boðun
Maríu til upprisunnar.
Fyrstu jólin, Jesús velur sér lær-
isveina, Vatni breytt í vín, Hastað á
vindinn, Dæmisögur Jesú og
Gangaávatninu.
Höfundurinn hefur oftsinnis ver-
ið verðlaunaður fyrir endursagnir
gullaldarbókmennta. Anna Cynthia
Leplar skreytti hverja síðu bókar-
innar litmyndum, en áður hafa þær
unnið saman Þjóð guðs - sögur úr
Gamla testamentinu sem út kom í
fyrra.
Utgefandi er Mál og menning.
Bókin er 120 bls., prentuð á Ítalíu.
Verð: 1.990 kr.
• BIRTAN á
fjöllunum er
skáldsaga eftir
Jón Kalman
Stefánsson.
I kynningu
segir: „Stundum
er eins og allt
það liðna verði
að ljóði. Eins og
minningamar
séu í Ijóðum þar
til reynt er að koma þeim í orð: þá
breytast þær í sögu.“ I dal vestur
á landi hefur myndast sérkenni-
legt sambýli nokkurra sveitunga
þar sem menn skiptast mjög í
flokka; Þórbergsmenn eða Lax-
nessmenn, framfarasinna eða
íhaldsmenn, skáld eða ekki skáld.
Útgefandi er Bjartur. Bókin er
340 bls. prentuð í Gutenberg.
Kápugerð önnuðust Snæbjörn
Arngrímsson og Einar Falur Ing-
ólfsson.
Verð: 3.380 krónur.
• ENDIR og
upphafe rljóða-
bók eftir pólsku
skáldkonuna
Wislöwu Szym-
borsku í þýðingu
Geirlaugs Magn-
ússonar.
í fréttatil-
kynningu segir
að yrkisefni
pólsku skáldkon-
unnar og nóbelsverðlaunahöfund-
arins Wislöwu Szymborsku séu oft
heimspekilegs eðlis, hún hafi hvað
eftir annað fengist við tímaþrá-
hyggju mannsins, stöðuga leit hans
að eðli veruleikans, ótta hans við
hendinguna og spuminguna stóra;
hver er ég í þessum heimi?
Útgefandi erBjartur. Bókin 80
bls., prentuð í Gutenberg Kápu-
gerð annaðist Snæbjörn Arngríms-
son.Verð: 1.880 kr. ■
• MYRKR-
IÐ kringum
ljósastaur-
ana er Ijóða-
bók eftir
Óskar Árna
Óskarsson.
Þetta er
sjöunda
ljóðabók
Oskars Ar-
na. Auk
frumsam-
inna ljóða geymir bókin ljóðaþýð-
ingar frá ýmsum heimshomum.
Útgefandi er Bjartur. Bókin er
80 bls., prentuð í Gutenberg.
Kápugerð önnuðust Snæbjörn
Arngrímsson og Óskar Árni Ósk-
arsson.
Verð: 1.880 kr.
• YSTA brún
er safn stuttra
sagna eftir El-
ínu Ebbu Gunn-
arsdóttur. Sög-
urnar tengjast
innbyrðis og
mynda heild.
í fréttatil-
kynningu segir
m.a.: „Ysta brún
er safn sagna af
fólki sem hefur í hversdagsleika
sínum þokast út á ystu brún í
margvíslegum skilningi - við því
blasir hyldýpi en um leið nýr
veraleiki. Stíll sagnanna er látlaus
og hljóður og búningur þeirra
raunsær en um leið vægðarlaus."
Ysta brún er önnur bók höfundar
en fyrir fyrstu bók sína, Sumar
sögur, hlaut Elín Ebba Bók-
menntaverðlaun Tómasar Guð-
mundssonar 1997.
Útgefandi er Vaka-Helgafell.
Bókin er 167 bls., prentuð í Odda
hf. Wilfríed Bullerjahn hannaði
bókarkápu. Verð: 3.880 kr.
Wislawa
Szymborska
flottari &
ódýrari
s: 552 2270
uk verö okkar verð
stakar buxur 6.100 3.900
dragtarbuxur 8.900 3.900
rúskinsbuxur 5.400 2.900
dragtarjakk ar 6.100 5.900
töskur frá 1.500
eyrnalokkar frá 900
táhringir 490
toppar frá 2.900
pils frá 2.900
ZARA
isma
laugavegi 41