Morgunblaðið - 19.11.1999, Side 51
CHíl A J B WU DH pM,
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
(!0(!|íiaaMa’/öM .01 ajjÐAaijtböu. Og
FÖSTUDÁGUR 19. NÓVEMBER1999 51
A
finna hjá hans ágætu konu, Guð-
rúnu. Er ég kom til starfa hjá Nor-
ræna félaginu fyrir fjórum árum
fékk ég hlýjar kveðjur frá Jónasi,
kveðjur sem ég mat mikils. Eg fann
þá aftur það traust sem hann bar til
mín og ég hafði kynnst áður og að
hann treysti mér til að starfa félag-
inu til heilla.
Að leiðarlokum vil ég þakka Jón-
asi fyrir hans góðu störf í þágu
Norræna félagsins og votta um leið
Guðrúnu og fjölskyldunni allri
mína dýpstu samúð.
Blessuð veri minning Jónasar
Eysteinssonar.
Sigurlin Sveinbjamardóttir.
Það hefur löngum verið vinsælt
meðal unglinga að fullyrða að þeir
þoli ekki að læra dönsku. Þannig
var því líka farið þegar ég var í
gagnfræðaskóla og síðar í Verzlun-
arskóla Islands, en fyrirlitningin á
málinu var fljót að hverfa þegar
kennararnir birtust. Bæði _ Haga-
skóli og Verzlunarskóli Islands
höfðu á að skipa þvílíkum dönsku-
kennurum, að danska varð fljótlega
meðal skemmtilegustu námsgrein-
anna.
Það var í Verzló sem við Jónas
Eysteinsson hittumst fyrst. Þessi
snaggaralegi og glaðlyndi maður
var fljótur að snúa fordómum gagn-
vart danskri tungu á þann veg að
aldrei gleymist. Jónas var góður
kennari, skemmtilegur og litríkur
persónuleiki, en umfram allt góð
manneskja, sem ég er fullviss að við
öll nemendur í Verzlunarskólanum,
sem nutum leiðsagnar hans, eigum
eftir að minnast af miklum hlýhug
alla tíð. Þegar við kvöddum skólann
okkar fengu kennararnir á sig vís-
ur; sumar nokkuð beiskar, en vís-
urnar um þá Lýð Bjömsson og Jón-
as Eysteinsson gátu aldrei orðið
öðruvísi en með hlýjum orðum.
Síðar átti ég því láni að fagna að
kynnast Eysteini, syni Jónasar,
sem giftur er Jódísi, einni upp-
áhaldsfrænkunni minni. Það tók
ekki langan tíma að finna sama
gullhjartað og sló í Jónasi dönskuk-
ennara slá í Eysteini vini mínum.
Ég er þakklát fyrir kynni mín af
Jónasi Eysteinssyni sem gaf mér
svo miklu meira á Verzlunarskóla-
árunum en bara kennslu í dönsku.
Megi góður maður hvíla í Guðs
friði. Aðeins fallegar minningar
fylgja honum á æðri svið. Fjöl-
skyldu hans votta ég samúð mína
og bið að þær fögru minningar
megi sefa söknuðinn.
Anna Kristine Magnúsdóttir.
Frágangur
afmælis- og
minningar-
greina
MIKIL áhersla er lögð á, að
handrit séu vel frá gengin,
vélrituð eða tölvusett. Sé
handrit tölvusett er æski-
legt, að disklingur fylgi út-
prentuninni. Það eykur ör-
yggi í textameðferð og
kemur í veg fyrir tvíverkn-
að. Þá er enn fremur unnt
að senda greinarnar í sím-
bréfí (569 1115) og í tölvu-
pósti (minning@mbl.is) -
vinsamlegast sendið greinina
inni í bréfinu, ekki sem við-
hengi.
Um hvern látinn einstakl-
ing birtist ein uppistöðu-
gi-ein af hæfilegri lengd, en
aðrar greinar um sama ein-
stakling takmarkast við eina
örk, A-4, miðað við meðal-
línubil og hæfilega línu-
lengd, - eða 2.200 slög (um
25 dálksentimetra í blaðinu).
Tilvitnanir í sálma eða ljóð
takmarkast við eitt til þrjú
erindi. Greinarhöfundar eru
beðnir að hafa skírnarnöfn
sín en ekki stuttnefni undir
greinunum.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, sonur,
tengdafaðir og afi,
HALLDÓR INGIBERG ARNARSON,
Drekahlíð 5,
Sauðárkróki,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur mánudaginn
15. nóvember.
Jarðsungið verður frá Sauðárkrókskirkju laugar-
daginn 20. nóvember kl. 14.00.
Ólöf Konráðsdóttir,
Öm Sölvi Halldórsson, Elva Ösp Ólafsdóttir,
Halldór Heiðar Halldórsson,
Erla Ásgrímsdóttir,
Andrea Anna Arnardóttir
og aðrir aðstandendur.
t
Ástkær móðir okkar,
ÞÓRA GUÐNÝ KOLBEINSDÓTTIR,
Kleppsvegi 64,
áður til heimilis
á Laugarnesvegi 80,
Reykjavík,
er látin.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Fyrir hönd annarra ættingja og aðstandenda,
Kolbeinn Jakobsson,
Hólmfríður Jakobsdóttir.
t
Hjartkær eiginmaður minn, sonur, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
HREINN HERMANNSSON
fyrrum útibússtjóri
hjá Landsbanka fslands,
Gullsmára 9,
Kópavogi,
lést á Landspítalanum sunnudaginn 14. nóv-
ember.
Útförin fer fram frá Kópavogskirkju mánudaginn 22. nóvember kl. 13.30.
Valdís Þórarinsdóttir,
Þorgerður Pétursdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Elskulegur sambýlismaðurinn minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
SVEINBJÖRN KRISTJÁN JOENSEN,
Langanesvegi 10,
Þórshöfn,
sem lést á Sjúkrahúsi Suðurnesja laugar-
daginn 13. nóvember, verður jarðsunginn frá
Keflavíkurkirkju laugardaginn 20. nóvember
kl. 11.00.
Guðný Jósefsdóttir,
systkini,
börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
HELGA ÁRNADÓTTIR BACHMANN,
Áshamri 59,
Vestmannaeyjum,
verður jarðsungin frá Landakirkju, Vestmanna-
eyjum, laugardaginn 20. nóvember kl. 14.00.
Þorkeli Sævar Guðfinnsson, Edda Snorradóttir,
Guðbjörg Antonía Guðfinnsdóttir, Jóhann Magni Jóhannsson,
Sigurjón Örn Guðfinnsson, Kristín Birgisdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
Bróðir okkar og mágur,
GRÉTAR VILHJÁLMSSON,
verður jarðsunginn frá Eyrarbakkakirkju laug-
ardaginn 20. nóvember kl. 14.00.
Brynjólfur Vilhjálmsson,
Ingi Vilhjálmsson, Erla Sigurðardóttir,
Vilhjálmur Vilhjálmsson, Magnúsína Sigurðardóttir,
Marta Vilhjálmsdóttir, Haukur Guðmarsson.
t
Faðir minn, tengdafaðir, fósturfaðir, afi og langafi,
MAGNÚS JÓNSSON,
Selási 26,
Egilsstöðum,
er lést á sjúkrahúsinu á Egilsstöðum laugardaginn 13. nóvember sl.,
verður jarðsunginn frá Egilsstaðakirkju laugardaginn 20. nóvember
kl. 14.00.
Ármann Örn Magnússon, Erla Jónsdóttir,
Bjarghildur Sigurðardóttir,
Oddrún Sigurðardóttir,
fósturböm, barnabörn og langafabörn.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
JÓRUNN GUÐMUNDSDÓTTIR,
sem lést á sjúkrahúsinu í Bolungarvík þriðju-
daginn 16. nóvember, verður jarðsungin frá
Hólskirkju í Bolungarvík á morgun, laugar-
daginn 20. nóvember, kl. 14.00.
Þórarinn Leifur Árnason,
börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabamabörn.
t
Móðir mín og fósturmóðir,
SOFFÍA K. LÖVE,
Hlíf 1,
Isafirði,
sem lést sunnudaginn 14. nóvember, verður jarðsungin frá ísafjarðar-
kirkju laugardaginn 20. nóvember kl. 14.00.
Einar H. Þorsteinsson,
Þorleifur K. Kristmundsson
og fjölskyldur.
t
ÞÓRARINN B. HJÖRLEIFSSON
frá Norðfirði,
sem lést á dvalarheimilinu Hrafnistu í Hafnarfirði fimmtudaginn 11. nóvem-
ber, verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu í dag, föstudaginn 19. nóvem-
ber, kl. 15.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Hjördís Hólm Hermannsdóttir,
Jakob Hóim Hermannsson.
t
Hjartans þakkir til þeirra sem sýndu okkur
samúð, hlýhug og vináttu við andlát og
útför unnusta míns, föður, sonar, bróður,
tengdasonar, mágs óg frænda,
ANTONS BJÖRNS FERNANDO.
Tanja Aðalheiður Larsen,
Alexía Rós
Pálína Kristjánsdóttir,
Þóra Haraldsdóttir,
Lilja C. Larsen,
Finnur H. Larsen,
Anna K. Larsen,
Finnur Harðarson,
Kristján Harðarson,
ivar Öm Harðarson.
Femando,
Edvin Már Fernando,
Kaj Anton Larsen,
Sigurður I. Einarsson,
Anna M. Bjömsdóttir,
Valgeir Sveinsson,
Eva Sigurðardóttir,
Lilja V. Bryngeirsdóttir,