Morgunblaðið - 19.11.1999, Blaðsíða 55
ffKíAJfTMlTníinM
•' MORTTUNBI.A+HfT
000 AnUTBÖ’?
KIRKJUSTARF
Safnaðarstarf
Fríkirkjusöfn-
uðurinn 100 ára
Fríkirkjusöfnuðurinn í Reykja-
vík var stofnaður 19. nóvember árið
1899 og verður því 100 ára þessa
helgi. Þessara merku tímamóta
hefur verið minnst með ýmsum
hætti á yfirstandandi ári og má þar
meðal annars nefna eftirfarandi.
Kirkjubyggingin hefur gengið í
gegnum mikla og kostnaðarsama
endumýjun og skartar nú sínu feg-
ursta sem eitt stærsta og glæsileg-
asta guðshús landsins.
Fríkirkjuhátíð var haldin í Skál-
holti 29. ágúst síðastliðin. Tíma-
mótaguðsþjónusta var þar haldin í
yfirfullri Skálholtskirkju, í sam-
vinnu fríkirkjusafnaðanna þriggja,
Fríkirkjunnar í Reykjavík, Frí-
kirkjunnar í Hafnarfirði og Oháða
safnaðarins. Þá má einnig nefna að
ný kapella í Safnaðarheimili Frí-
kirkjusafnaðarins verður vígð 28.
nóvember nk.
En hápunktur hátíðarhaldanna
verður nú dagana 19.-21. nóvem-
ber.
Hátíðarfundur og málþing verð-
ur í kirkjunni föstudagskvöldið 19.
nóvember kl. 20, en það var hinn
eiginlegi stofndagur safnaðarins.
Það er við hæfi að minnast þess
dags með málþingi þar sem tekist
verður á við tUvistarspumingar er
varða tilurð, hlutverk og markmið
Fríkirkjunnar. 5 stutt framsöguer-
indi verða flutt og síðan pallborðs-
umræður á eftir. Flytjendur verða
sr. Hjörtur Magni Jóhannsson frík-
irkjuprestur, Sigurður E. Sigurðs-
son, formaður safnaðarstjómar,
gróf. Pétur Pétursson, sr. María
Agústsdóttir héraðsprestur, dr.
Sigurjón Arni Eyjólfsson hér-
aðsprestur. Einnig verður tónlist-
ardagskrá og léttar veitingar í
Safnaðarsal að loknu málþingi.
Æskulýðs- og fjölskylduhátíð
verður á laugardeginum kl. 17 í
kirkjunni. Ætlunin er að halda eins
konar smiðjumessu og að sem flest-
ir taki þátt. Markmiðið er að eiga
góða og ánægjulega stund saman í
kirkjunni. I stað hefðbundinnar
predikunar verður sýndur nýr
helgileikur sem saminn var af
þessu tilefni.
Hátíðarguðsþjónusta verður í
kirkjunni kl. 11 á sunnudags-
morgni. Forseti íslands verður
gestur safnaðarins við guðsþjón-
ustuna og mun hann flytja ávarp.
Guðsþjónustunni verður útvarpað
til allra landsmanna. Að henni lok-
inni býður söfnuðurinn kirkjugest-
um að koma til hádegisverðar að
Hótel Borg, verður þar boðið upp á
málsverð (hlaðborð) fyrir gjafverð,
aðeins 500 kr. íyrir manninn. Þar
fer einnig fram stutt afmælisdag-
skrá. Hátíðartónleikar verða síðan
á sunnudagskvöldið kl. 20. Flutt
verður Cacillien-messan eftir Josef
Haydn. Einsöngvarar, kór Frí-
kirkjunnar ásamt 17 manna hljóm-
sveit. Sigrún Hjálmtýsdóttir sópr-
an, Soffía Stefánsdóttir alt,
Þorbjörn Rúnarsson tenór og Ei-
ríkur Hreinn Helgason bassi.
Stjórnandi er Kári Þormar.
Safnaðarprestur.
Skálholts-
dómkirkia
NÆSTKOMANDI laúgardags-
kvöld verður í Skálholtsdómkirkju
Maríukvöld og náttsöngur kl. 20.30.
Sr. Sigurður Sigurðarson vígslu-
biskup flytur hugvekju. Ljóðalest-
ur og tónlistarflutningur sem bygg-
ir á maríuljóðum og söngvum.
Langholtskirkja. Opið hús iyrir
alla aidurshópa kl. 11-13. Létt
hreyfing, slökun og kristin íhugun.
Kyrrðar- og bænastund i kirkjunni
kl. 12. Orgelleikur, sálmasöngur.
Fyrirbænaefnum má koma til
sóknarpresta og djákna. Kær-
leiksmáltíð, súpa, salat og brauð
eftir helgistundina.
Laugarneskirkja. Morgunbænir
k. 6.45. Mömmumorgunn kl. 10-12.
Kaffispjall fyrir mæður, góð upp-
lifun fyrir börn.
Neskirkja. Félagsstarf aldraðra
■ - £*•>- «.§p
Híf
•4T|{
r!
P
Ltf .. ] i, | ,, , -
m ;r fyr? . : ;
laugard. 20. nóv. kl. 13. Kvik-
myndasýning. Farið í Sýningarsal
Vilhjálms Knudsen. Sýndar verða
myndirnar Homstrandir frá 1950
og Reykjavík frá 1955. Kaffiveit-
ingar í Norræna húsinu. Þátttaka
tilkynnist í dag kl. 10-12 og 16-18 í í
síma 511-1560. Allir velkomnir. Sr.
Frank M. Halldórsson.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús í
Strandbergi laugardagsmorgna.
Trú og mannlíf, biblíulestur og
kyrrðarstund.
Ffladelfía. Unglingasamkoma kl.
20.30. Mikill og hress söngur.
Ræðumaður Ester Jakobsen. Allir
hjartanlega velkomnir.
Landakirkja Vestmannaeyjum.
Kl. 10 foreldramorgunn. Spjall,
samvera og stutt helgistund for-
eldra með ungum börnum sínum.
Kl. 20 nótt í KFUM & K húsinu við
Vestmannabraut. Gleði og gaman í
æskulýðsfélaginu.
Hofskirkja á Skaga. Kirkjuskóli
kl. 14.
Víkurprestakall í Mýrdal.
Kirkjuskólinn í Mýrdal er með
samverur á laugardagsmorgnum
kl. 11.15 í Víkurskóla.
Sjöunda dags aðventistar á Isl-
andi:
Aðventkirkjan, Ingólfsstræti:
Biblíufræðsla kl. 10.15. Guðsþjón-
usta kl. 11.15. Ræðumaður Einar
Valgeir Arason.
Safnaðarheimili aðventista,
Blikabraut 2, Keflavík: Guðsþjón-
usta kl. 10.15. Biblíufræðsla eftir
guðsþjónustu. Ræðumaður Björg-
vin Snorrason.
Safnaðarheimili aðventista,
Gagnheiði 40, Selfossi: Biblíu-
fræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11.
Aðventkirkjan, Brekastíg 17,
Vestmannaeyjum: Biblíufræðsla
kl.ll.
Loftsalurinn, Hólshrauni 3,
Hafnarfirði: Biblíufræðsla kl. 11.
Með Kristi inn í
nýja öld
RÁÐSTEFNA um kristinn boð-
skap í samfélagi okkar tíma verður
haldin laugardaginn 20. nóvember
1999 í húsi KFUM & K v/Holtaveg
og hefst kl. 13.30.
Fyririesarar verða: Sr. Kjartan
Jónsson, trúboði, sr. Sigurður Páls-
son, sóknarprestur, Halldór Elías
Guðmundsson, framkvæmdastjóri
ÆSKR, Adda Steina Björnsdóttir,^
ritstj. Víðförla, og Elín Hirst frétta-
maður.
Að loknum hverjum fyrirlestri
verða fyrirspurnir og í lok ráð-
stefnunnar verða pallborðsumræð-
ur. Allir velkomnir.
lOi^Ð
KRISTIN TRÚ
f ÞÚSUND ÁR
ÁRIÐ2000
Kirkjugöngur
I dag, laugardaginn 20. nóvem-^*
ber, verður ganga nr. 4. Lagt verð-
ur af stað frá Umferðarmiðstöðinni
kl. 10 og hefst gangan við Hall-
grímskirkju. Gönguleiðin verður
frá Hallgrímskirkju að Fíladelfíu í
Hátúni og endað verður í Háteigs-
kirkju. Hreyfing, fræðsla og bæna-
hald. Veitingar í boði Háteigs-
skirkjusafnaðar. Þátttökugjald 500
kr.
'VÁlllv."
17 verslanir og þjónustuabilar
bjóöa frábært vöruúrval til
hátíbarundirbúnings og jólagjafa.
Næg bílastæöi.