Morgunblaðið - 19.11.1999, Page 56
' 56 ,!,!iýÖB¥í}ftÁ#trt£ tó; NÖV^MbSKÍ Íá99
ÖlMMðWMtflffltÐ
UMRÆÐAN
Valdsmenneiga að
• hlusta á þjóð sína
UMHVERFIS-
VINIR eru ný gras-
rótarsaratök sem
setja markið hátt.
Við komum til þessa
leiks á margvíslegum
forsendum en
markmiðið er eitt og
hið sama: Við ætlum
að hjálpa stjómvöld-
"Sfc'um að ná áttum í
máli sem varðar
þjóðina alla og um-
heiminn líka. Við ætl-
um að gefa þjóðinni
tækifæri til að segja
þeim hug sinn með
beinum hætti. Við
viljum að Fljótsdalsv-
irkjun fari í lögformlegt umhverf-
ismat.
Stærstu
tækifærin
Þetta mál er þannig vaxið að
þjóðin vill láta það til sín taka.
Hún vill fá möguleika til að koma
athugasemdum sínum og skoðun-
'Tt.um á framfæri þannig að stjóm-
völd verði að bregðast við þeim.
Þau verði að hlusta - og þau verði
að svara. Um það snýst þetta mál.
Það er sá reginmunur sem er á
lögformlegu umhverfismati og
einkaskýrslu Landsvirkjunar sem
aðeins þingmenn eiga að fjalla um.
Landsmenn hafa verið að vakna til
vítundar um þá auðlegð sem við
eigum í ósnortnum víðemum lands
okkar. Æ fleiri hafa verið að átta
sig á því nú hin síðari ár að nýting
þeirrar auðlegðar er ekki endilega
'■S/fólgin í því að brjóta hana undir
sig, beisla hana og kefla og breyta
henni í eitthvað annað. Hún er
ekki síður og jafnvel miklu fremur
fólgin í því að vemda hana, leyfa
henni að þróast á eigin forsendum,
fá tækifæri til að njóta hennar,
gefa öðmm tækifæri til að njóta
hennar, nýta hana til rannsókna
og fræðslu og efla þannig þekk-
ingu okkar á lögmálum náttúmnn-
ar, nýta hana sem þátt í þeirri ím-
ynd sem við vfljum að landið okkar
hafi og er í raun grannurinn undir
margs konar atvinnusköpun og
markaðssétijingu íslenskrar fram-
leiðslu. Þar liggja okk-
ar stærstu tækifæri tfl
framtíðar. Allt þetta
þarf að virða og meta
ekki síður en
raforkuframleiðslu.
Upphaf að
öðru meira
Hluti landsmanna
vill auka orkufreka
stóriðju í landinu. Nú
snýst málið um risaál-
bræðslu á Reyðarfirði,
verksmiðju með allt að
480 þús. tonna fram-
leiðslugetu, sem er
meira en starfandi
verksmiðjur nú fram-
leiða til samans, jafnvel að við-
bættum þeim stækkunum sem
þær hafa starfsleyfi fyrir. Tfl þess
að reka slíka verksmiðju þarf álíka
mikla raforku og nú þegar er
framleidd í landinu bæði til al-
mennra nota og til stóriðjurekst-
urs. Tfl þess dugar ekki marg-
nefnd Fljótsdalsvirkjun ein og sér.
Hún er aðeins upphafið að þeim
gríðarlegu framkvæmdum sem
fyrirhugaðar em á hálendinu norð-
an Vatnajökuls. Allar frekari
framkvæmdir þurfa án nokkurs
Stóriðja
Þessar framkvæmdir,
segir Kristín
Halldórsdóttir, munu
eyðileggja dýrmæt
landsvæði norðan
Vatnajökuls.
vafa að fara í lögformlegt um-
hverfismat. Um það er ekki deilt.
Hvers vegna þá ekki Fljótsdals-
virkjun? Menn vísa til fortíðar. En
viðhorfín breytast hratt þessi árin.
Æ fleiri era líka þeirrar skoðunar
að lagastoð skorti í raun fyrir því
að undanskilja Fljótsdalsvirkjun
slíku mati þrátt fyrir fortíðina.
Enn ein sönnun þess kom fram í
Morgunblaðinu nýlega í viðtali við
Aðalheiði Jóhannsdóttur lögfræð-
ing sem hefur kynnt sér alla þætti
málsins mjög vel.
Lýðræðið
skiptir máli
Aðalatriðið er þetta: Þessar
framkvæmdir munu sökkva Eyja-
bökkum. Þær munu eyðileggja
dýrmæt landsvæði norðan Vatna-
jökuls. Þær munu skerða stórlega
ósnortin víðerni og skaða ímynd
lands og þjóðar. Eg vil ekki að
þetta verði og ég er ekkert feimin
við að segja það. Og þá segja ýms-
ir: Hverju sldptir þá eiginlega lög-
formlegt umhverfismat? Skiptir
það nokkra ef það breytir ekki af-
stöðu verndarsinna? Jú, það skipt-
ir mjög miklu. Það skiptir máli að
öllum sé ljóst hvað þama er að
gerast og hvaða afleiðingar það
muni hafa. Það skiptir máli að
landsmenn hafi tækifæri til að láta
sitt álit á því í ljósi á lögformlegan
hátt og að lögformlegur aðili taki
við því áliti og bregðist við því.
Það skiptir máli að fara að lýðræð-
islegum leikreglum. Lýðræðið
skiptir máli.
Þúsund ár dagur - ei meir
Lýðræðið kostar oft tíma. En
segir ekki í þjóðsöngnum okkar að
þúsund ár séu dagur - ei meir. Við
eram ekki að tala um þúsund ár -
heldur nokkra mánuði. Hversu
mörg ár var það land að mótast
sem hér um ræðir? Þjóðin vill fá
að segja álit sitt. A.m.k. þrír fjórðu
landsmanna hafa ítrekað lýst þeim
vflja í skoðanakönnunum. Þeir
sætta sig ekki við þá bakdyraleið
sem ríkisstjómin og Landsvirkjun
eru að fara tfl þess að losna við að
þurfa að svara athugasemdum
fólksins. Valdsmenn eiga að hlusta
á þjóð sína. Þeir verða að bregðast
við ef þeir fá undirskriftir í tug-
þúsunda tali. Umhverfisvinir setja
markið hátt með þessari aðgerð.
Það er mikið í húfi. Lýðræðið er í
húfi. Og náttúra lands okkar er í
húfi.
Höfundur er fyrrverandi al-
þingiskona og umhverfisvinur.
Kristín Hall-
dórsdóttir
Fasteignagjöld á
landsbyggðinni
í LÖGUM um
tekjustofna sveitarfé-
laga segir í kaflanum
um fasteignaskatt að
stofn til álagningar
skattsins skuh vera af-
skrifað endurstofn-
verð húsa margfaldað
með markaðsstuðli
fasteigna í Reykjavík.
Þetta þýðir að sveitar-
félög á landsbyggðinni
era að reikna fast-
eignaskatta af ímynd-
uðu verðmæti fast-
eigna en ekki
raunverulegu. Verð-
mæti húss er allt að
þrefalt meira ef það er
staðsett í Reykjavík en úti á lands-
byggðinni.
Markmið þessa siðlausa laga-
ákvæðis var að tryggja sveitarfélög-
um á landsbyggð sömu tekjur og
sveitarfélögum á höfuðborgarsvæð-
inu hafa af jafnstóram húsum.
Eitt stærsta vandamálið í ís-
lensku þjóðfélagi nú er stöðugur
fólksflótti frá landsbyggðinni til höf-
uðborgarsvæðisins og hafa fjöl-
margar nefndir fengið það verkefni
að finna lausn á vandanum og
styrkja atvinnurekstur og búsetu í
sveitum landsins. Þessi fólksflótti
hefur m.a. leitt tfl mikillar hækkun-
ar fasteignaverðs á höfuðborgar-
svæðinu, vegna mikfllar eftirspum-
ar, og horfa menn nú fram á 19%
hækkun milli ára. Markaðsverð fa-
steigna úti á landi lækkar víða
vegna fólksflóttans en eigendur
þeirra fá, að öllu óbreyttu, enn eina
hækkunina á fasteignagjöld sín, ein-
göngu vegna hækkunar í Reykja-
vík.
Þegar framangreint ákvæði var
sett í lögin vöraðu vinnuveitendur
við því og bentu á að með því væri
verið að heimila að skattur væri
lagður á eign sem væri í raun ekki
tfl, en allt kom fyrir ekki.
Þessi skattheimta kemur sér-
staklega flla niður á ferðaþjónustu-
fyrirtækjum þar sem fasteignir
þeirra era ekki nýttar að marki
nema yfir hásumarið og hefur
hækkunin orðið svo gífurleg víða að
rekstrarforsendur hafa breyst.
Þegar atvinnurekendur tfl sveita
hafa bent á að þeir fái heldur slæ-
lega þjónustu af hálfu sveitarfélags-
ins sé miðað við þjón-
ustuna í stærri bæjum
þá hafa fulltrúar sveit-
arfélaganna lagt
áherslu á 3. grein gild-
andi laga um tekju-
stofna sveitarfélaga
þar sem stendur að
álagning fasteigna-
skatta teljist til al-
mennrar skattlagning-
ar, en séu ekki
þjónustugjöld. Það
hlýtur að vera athygl-
isvert mál íyrir dóm-
stóla landsins að skoða
hvort fyrirtækin í
landinu sitji við sama
borð hvað varðar þessa
skattheimtu.
í stefnuyfirlýsingu ríkisstjómar-
Ferðaþjónusta
Þessi skattheimta, segír
Erna Hauksdóttir,
kemur sérstaklega illa
niður á ferðaþjónustu-
fyrirtækjum þar sem
fasteignir þeirra eru
ekki nýttar að marki
nema yfír hásumarið.
innar er kveðið á um endurskoðun á
fyrirkomulagi fasteignagjalda
þannig að skattstofninn endurspegli
betur raunverðmæti fasteigna og
var nýlega sett á laggimar nefnd
sem fengið hefur það hlutverk að
endurskoða lög um tekjustofna
sveitarfélaga í heild og mun hún
skila niðurstöðum vorið 2000. Það er
Ijóst að þeir sem era að reyna að
reka ferðaþjónustufyrirtæki á
landsbyggðinni una ekki þeim
seinagangi. Þau era í dag að sligast
undan háum fasteignagjöldum, sem
lögð era á með ótrúlega siðlausum
hætti, og munu þar af leiðandi ekki
þola stórhækkun á næsta ári vegna
hækkunar í Reykjavík.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Samtaka ferðaþjónustunnar.
Erna
Hauksdóttir
Nýjar leiðir í Grafarholti
BORGARSTJÓRN hefur nú
samþykktar tillögur Reykjavikur-
listans um úthlutun lóða í Grafar-
holti, nýjasta hverfi Reykjavíkur.
í þessum nýju úthlutunarreglum
kveður við nýjan tón og horfið er
frá miðstýrðum stjórnarháttum
fortíðarinnar í átt til opinnar og
réttlátari stjórnsýslu. Grafarholt-
ið mun byggjast upp á næstu
þremur til fjórum árum. Þar
verða alls um 1500 íbúðir ásamt
tilheyrandi þjónustukjörnum fyr-
í>ir um 4500 manna byggð. Hverfið
verður allt hið glæsilegasta og
þar munu ferskir vindar leika í
mörgum skilningi. Sérstæð nátt-
úra, fjölbreyttar húsagerðir og
fagurt útsýni til sjávar og lands.
Það fer vel á því að
þetta nýja hvefi
ryðji þannig braut-
ina fyrir heilbrigð-
ari stjómarhætti í
takt við kröfur
nýrrar aldar og ár-
þúsundamóta.
Góðir kostir
sameinaðir
í grófum dráttum
gera hinar nýju
reglur ráð fyrir
tvennskonar aðferð-
um við úthlutun á
byggingarrétti í
þessum fyrsta
áfanga Grafarholts-
ins. I þeim eru sameinaðir ýmsir
góðir kostir við úthlutun á bygg-
ingarrétti. Annarsvegar er gert
ráð fyrir því að byggingarrétti
verði úthlutað til fyrirtækja,
byggingarmeistara eða einstakl-
inga þannig að sá sem hæst býð-
ur í hverja lóð fái réttindin. Með
þessu móti er komið í veg fyrir
óeðlileg afskipti stjórnvalda við
úthlutun þessara takmörkuðu
gæða en alltof oft hafa stjórnvöld
í Reykjavík legið undir ámæli
vegna þesskonar afskipta á und-
anfömum áratugum. Flokksgæð-
ingar og aðrir velvildarmenn sitja
nú við sama borð og aðrir bygg-
ingaraðilar og sá
þeirra sem hagkvæm-
ast byggir er líklegast-
ur tfl að hreppa hnoss-
ið. Samhliða þessu
munu nýju reglumar
tryggja borgarbúum
sanngjarnara verð fyr-
ir þau takmörkuðu
gæði sem lóðir og
byggingarréttur era. A
undanförnum áratug-
um hefur Reykjavíkur-
borg nefnilega afhent
þessi gæði langt undir
kostnaðarverði og því í
raun niðurgreitt þau
til byggingaraðila.
Þetta hefur eðli máls-
ins samkvæmt orðið til þess að
myndast hefur líflegur eftirmark-
aður þar sem braskað er með
þessi réttindi á miklu hærra verði
án þess að borgarbúar hafi notið
þess á nokkurn hátt. Þessi niður-
greiðsla hefur því engu breytt um
fasteignaverð í Reykjavík enda
lýtur það fyrst og fremst lögmál-
um framboðs og eftirspumar en
ekki einstökum kostnaðarþáttum
hverju sinni. Af sömu ástæðum
munu hærri gjöld vegna bygging-
arréttarins væntanlega engin
áhrif hafa á fasteignaverð í
Reykjavík.
Allir við
sama borð
Byggingarrétti vegna atvinnu-
húsnæðis, félagslegs húsnæðis og
hluta einbýlishúsahverfisins verð-
ur hinsvegar úthlutað samhvæmt
umsóknum á föstu verðlagi, enda
Lóðaúthlutun
Með þessum nýju út-
hlutunarreglum, segir
Hrannar Björn
Arnarsson, stígur
Reykjavíkurlisinn enn
eitt skrefið í átt til opn-
ari og nútímalegri
stjórnarhátta.
lúta þessar lóðir ýmsum ómark-
aðstengdum hagsmunum sem
nauðsynlegt er að hafa í huga við
uppbyggingu hverfisins. Atvinnu-
reksturinn verður til að mynda að
falla vel að skipulagi hverfisins og
uppbygging félagslegs húsnæðis
verður að skipuleggjast í náinni
samvinnu við borgaryfirvöld. Til
að jafna þann fjárhagslega að-
Hrannar Björn
Amarsson
stöðumun sem óneitanlega ríkir á
milli einstaklinga og fyrirtækja í
byggingariðnaði, þótti meirihluta
borgarstjórnar einnig rétt að
hluti þeirra einbýlishúsa sem
byggð verða i hverfinu yrði af-
hentur beint til einstaklinga án
þess að til kæmi samkeppni
þeirra við fjársterka bygginga-
raðila. Um þessar umsóknir gildir
þó sama grundvallarjafnræðis-
reglan og gildir um afhendingu
byggingarréttar vegna annarra
íbúða í hverfinu.. Til að tryggja
slíka sanngjarna úrlausn verður
öllum umsóknum um umrædd
einbýlishús safnað í pott og úr
honum dregnar þær sem sam-
þykktar verða. Afskipti stjórn-
valda verða því útilokuð og allir
umsækjendur sitja við sama borð.
Samstarf um betri
stjórnsýslu
Með þessum nýju úthlutunar-
reglum stígur Reykjavíkurlisinn
enn eitt skrefið í átt til opnari og
nútímalegri stjórnarhátta. Reglu-
rnar hafa verið unnar í góðu sam-
ráði við helstu aðila byggingar-
iðnaðarins og þess ber að vænta
að reynslan og áframhaldandi
samráð við borgarbúa auðveldi
okkur enn frekari skref í þessa
átt. Uppbygging Grafarholtsins
markar því margþætt ánægjuleg
þáttaskil í sífelldri þróun Reykja-
víkurborgar. Það er vel.
Höfundur er borgarfulltrúi.