Morgunblaðið - 19.11.1999, Side 72
1 ■ • -............. ■ ■ ........Hjyý"~|
72 FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Jón Torfason
sigrar á
öðlingamóti
SKAK
Taflfélag
Ileykjavfkur
ATSKÁKMÓT ÖÐLINGA
Nóvember 1999
JÓN Torfason sigraði á atskák-
móti öðlinga 1999 eftir æsispenn-
andi keppni við Jóhann Örn Sigur-
jónsson. Þeir urðu
jafnir og efstir á mót-
inu með 5'A vinning í
sjö skákum og voru
einnig jafnir að stig-
um. Þeir tefldu því ein-
vígi um efsta sætið á
mótinu. Þar hafði Jón
betur og telst því sig-
urvegari mótsins.
Urslit mótsins urðu
sem hér segir:
1-2. Jón Torfason 5Vz v.
1-2. Jóhann Örn Sigur-
jónss. 5‘Á v.
3. Júlíus Friðjónsson 5 v.
(13,50 st.)
4. Sævar Bjamason 5 v.
(12,50 st.)
5. Bemard J. Scudder 4 v.
o.s.frv.
Tefldar voru 30 mínútna atskák-
ir. Skákstjóri var Ólafur S. Ás-
grímsson.
Stefán Amalds sigrar
á atkvöldi
Stefán Arnalds sigraði á atkvöldi
Hellis sem haldið var hinn 15. nóv-
ember. Röð efstu manna varð sem
hér segir:
1. Stefán Amalds 6 v.
2. -4. Benedikt Egilsson, Ingibjörg Edda
Birgisdóttir og Vigfús Ó. Vigfússon 5 v.
o.s.frv.
Skákstjóri var Vigfús Ó. Vigfús-
son.
Næsta atkvöld Hellis fer fram 6.
desember 1999 og þá fer jafnframt
fram verðlaunaafhending vegna Is-
landsmótsins í netskák 1999 sem
Hellir stóð að ásamt Símanum-
Internet.
Bikarmót TR
Hið árlega bikarmót Taflfélags
Reykjavíkur stendur nú yfir. Að
loknum sex umferðum er staðan
þessi:
1.-2. Sigurður Daði Sigfússon 4V4 v.
1.-2. Ríkharður Sveinsson 4V4 v.
3. Arnar E. Gunnarsson 3’Æ v.
4. Torfi Leósson 3 v.
5. Stefán Amalds 3 v.
o.s.frv.
Yfir 1.500 notendur
KERFISÞRÓUN HF.
Fákafeni 11 • Sími 568 8055
www.islandia.is/kerfisthroun
Unglingameistaramót Hellis
Nú er þremur umferðum lokið á
unglingameistaramóti Hellis 1999.
Efstir á mótinu eru:
I. -2. Dagur Amgrímsson og Birkir Öm
Hreinsson 3 v.
3.-10. Örn Stefánsson, Atli Freyr Krist-
jánsson, Benedikt Öm Bjamason, Hall-
dór Heiðar Hallsson, Oddur Thoraren-
sen, Sigurjón Kjærnested, Vilhjálmur
Atlason og Hjörtur Ingvi Jóhannsson 2 v.
II. -14. Birkir Thorarensen, Birgir Þór
Magnússon, Ingibjörg
Edda Birgisdóttir og
Knútur Otterstedt lVz v.
o.s.frv.
Þátttakendur eru
23. Mótinu verður
fram haldið 22. nóvem-
ber. Skákstjóri er Vig-
fús Ó. Vigfússon.
Unglingameistara-
mót íslands
í kvöld
Skáksamband ís-
lands heldur Ung-
lingameistaramót Is-
lands 1999 (fyrir skák-
menn fædda 1979 og
síðar) daganá 19.-21.
nóvember nk. Tefldar
verða sjö umferðir eftir Monrad-
kerfi og er umhugsunartíminn 1
klst. á keppanda.
Mótið hefst klukkan 19:30 föstu-
daginn 19. nóvember og verða tvær
fyrstu umferðimar tefldar þá um
kvöldið. Á laugardeginum verða
3.-5. umferð tefldar og hefst taflið
kl. 13. Á sunnudeginum hefst
keppnin einnig klukkan 13 og þá
verða tvær síðustu umferðimar
tefldar.
Teflt verður í Hellisheimilinu,
Þönglabakka 1. Þátttökugjald er
kr. 800. Skráning fer fram í síma
Skáksambands Islands, 568-9141,
kl. 10-13 í dag og á mótsstað frá kl.
Í9.
Unglingameistari Islands fær
farseðil á skákmót erlendis í verð-
laun, en auk þess verða skákbækur
í verðlaun fyrir 1.-5. sæti.
Skákmót á næstunni
19.11. SÍ. Unglingameistaramót Islands
21.11. SÍ/Síminn-Internet. Mátnetsmót
22.11. Hellir. Fullorðinsmót
25.11. Hellir. Sveitak. grunnsk. í Breið-
holti
26.11. TR. Klúbbakeppni
28.11. Hellir. Kvennaskákmót
28.11. SÍ/Síminn-Intemet. Mátnetsmót
Daði Örn Jónsson
Jón
Torfason
Glæsilegir amerískir rafmagnsnuddpottar
Acrylpottur í rauöviöarg rind.
Innb. hitunar- og hreinsikerfi.
Vatns- og loftnudd. Engar leiðslur
nema rafm. 16 amp.
Einangrunarlok með læsingum.
Sjálfv. hitastillir.
Tilbúnirtil afhendingar.
mmxsmmsmm
Sýningarsalur opinn alla daga
VESTAN ehf., Auðbrekku 23, 200 Kópavogi,
sími 554 6171, fars. 898 4154.
I DAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Um kýrnar
MIKIÐ hefur verið rætt
um það undanfarið að
bæta íslenska kúakynið
eða skipta yfir í norskan
kúastofn. Það líst mér illa
á. I hug mér kemur hvern-
ig fór í Viðey forðum, þeg-
ar bæta átti kúakynið;
kýrnar drápust vegna
stærðar kálfanna.
Það er hollusta íslensku
mjólkurinnar sem vegur
þungt. Sagt er að efni í ís-
lensku mjólkinni geti bægt
frá sjúkdómum. Það fæst
eflaust meira magn mjólk-
ur úr erlenda kúastofnin-
um, en er þörf á því?
Verða þessar kýr ekki
þurftafrekari? Eitthvað
mun kosta að breyta fjós-
unum og stækka básana.
Eg vona að stjómvöld
athugi vel alia þætti máls-
ins áður en svona lagað
verður leyft.
Ólöf Pétursdóttir.
Slæm
gjaldeyrisþjónusta
EG fór til Kanada með
stuttum fyrirvara og
treysti á að geta fengið
gjaldeyri í Landsbankan-
um í Leifsstöð. En bank-
inn átti ekki kanadíska
dollara sem kom sér mjög
illa fyrir mig. Þama voru
a.m.k. 6-7 manns í sömu
erindagjörðum og sumir
þeirra ákváðu að fara
þessa ferð með mjög stutt-
um fyrirvara og treysti
fólk á þetta. Vil ég vekja
athygli fólks á þessu. Þessi
banki er með einokunarað-
stöðu þama og verður fólk
að geta treyst á að hann
veiti almennilega þjónustu.
Guðrún.
Fyrirspurn
HULDA hafði samband
við Velvakanda og var hún
með fyrirspurn sem hún
vonar að einhver treysti
sér til að svara. Var hún að
velta því fyrir sér hvers
vegna íslenskar verslanir
beri ekki íslensk nöfn.
Segir hún að flestar aug-
lýsingar sem hún sjái í
blöðum séu frá verslunum
sem bera erlend nöfn. Seg-
ir hún að það stingi sig að
sjá öll þessi erlendu versl-
unarnöfn, sérstaklega á
degi tungunnar.
Hulda.
Tapað/fundið
Pels tekinn
í misgripum
NYR pels var tekinn úr
fatageymslu á Café Victor
sl. laugardagskvöld, 13.
nóvember. Þetta er tilfinn-
anlegt tjón fyrir eigandann
sem er einstæð móðir í há-
skóla með tvö böm. Skilvís
finnandi skili pelsinum á
Café Victor aftur.
Svört Nike-
íþróttataska týndist
SVÖRT Nike-íþróttataska
týndist 5.-7. nóvember í
Reykjavík. í henni var
m.a. gsm-sími. Skilvís finn-
anid hafi samband í síma
557 9248 og 482 3020.
Steingrá
hliðartaska týndist
STEINGRÁ hliðartaska
með rennilás, kventaska,
gleymdist í strætisvagni,
leið 6, um kvöldmatarleyt-
ið sl. mánudag. I töskunni
vom geisladiskar, snyrti-
vörar o.fl. Þeir sem hafa
orðið varir við töskuna vin-
samlega hafið samband í
síma 561 8486.
Dýrahald
Síamsköttur týndist
í Artúnsholti
SÍAMSKÖTTUR, grár
og svartur með blá augu,
týndist í Ártúnsholtinu
sl. fimmtudagskvöld.
Hann er eymamerktur
og gegnir nafninu Fróði.
Fróði gæti hafa villst þar
sem hann var nýfluttur í
hverfið. Þeii- sem hafa
orðið hans varir hafi
samband við Láru í síma
587 5281.
Páfagaukar í búri
fást gefins
TVEIR ungir páfagaukar í
búri fást gefins. Upplýs-
ingar í síma 551 9028.
Mína er týnd
HÚN Mína okkar er
týnd, hún sást síðast á
heimili sínu í Hátúni
sunnudaginn 14. nóvem-
ber. Fólk er beðið um að
litast um í geymslum og
skúrum, hún gæti af for-
vitni hafa skotist þar inn.
Einnig eru þeir sem hafa
séð til ferða hennar beðn-
ir að láta vita í síma
896 8171 eða 562 2977.
Fundarlaun.
SKAK
IJmsjón Margeir
Pétursson
STAÐAN kom upp á opna
Monarch Assurance-mótinu
í Port Erin á Isle of Man í
nóvember. Grikkinn D.
Agnos (2.455) hafði hvítt og
átti leik gegn Dananum
Bjarke Kristensen (2.405)
37. Bxg7! - Dxg3 38. Hh8+!
- Kxg7 39. De5+ - Kf7 40.
De8+ - Kf6 41. Hf8+ og
svartur gafst upp.
Rússinn Sergei Shipov og
Hvítur leikur og vinnur.
Emil Sutovsky frá ísrael,
sigruðu á mótinu með 6'/2 v.
af 9 mögulegum. Nigel Short
var í hópi þeirra sem komu
næstir með 6 v.
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI horfði á beina út-
sendingu frá Edduverðlauna-
hátíðinni og hafði lúmskt gaman af,
enda alltaf spennandi að horfa á
fræga fólkið í sparifötunum, hvort
heldur um er að ræða útlenska
„þotuliðið“ eða hið íslenska. Is-
lenska „þotufólkið“ stendur síst að
baki hinu erlenda hvað varðar and-
legt og líkamlegt atgjörvi, eini
munurinn er sá að fræga fólkið á
Islandi á engar þotur. Enda
kannski líka óþarfi þar sem vega-
lengdin frá Breiðholti og niður í
miðbæ er ekki svo mikil að einka-
bíllinn dugi ekki, eða þá leigubíll í
einstaka tilvikum, ef menn vilja
gera sér dagamun og fá sér í glas á
Astró eða Rex.
Víkverji biðst forláts. Það er ekki
sanngjamt að hafa Edduverðlaunin
eða Islensku kvikmynda- og sjón-
varpsakademíuna í flimtingum með
þessum hætti. Bæði fyrirbrigðin
eiga fyllilega rétt á sér og vonandi
eiga Edduverðlaunin eftir að verða
íslensku sjónvarps- og kvikmynda-
gerðarfólki hvatning til frekari
dáða. Það var bara svo skondið að
horfa upp á þetta, kannski vegna
þess að hér var greinilega verið að
líkja eftir afhendingu Oskarsverð-
launanna og í íslensku samhengi
verður það dálítið hallærislegt. Hér
er allt svo smátt í sniðum að þetta
form gengur tæplega upp að mati
Víkverja. Sama fólkið kemur iðu-
lega við sögu og til dæmis sá Vík-
verji ekki betur en Ingvar Sigurðs-
son leikari kæmi fram í öllum
myndskeiðum sem þama vom sýnd.
Kannski ekki öllum, en afar mörg-
um að minnsta kosti. Hér er ekki
verið að gera lítið úr Ingvari, hann
er uppáhaldsleikari Víkverja og hef-
ur verið lengi.
Reyndar var ekki úr svo mörgum
kvikmyndum eða sjónvarpsþáttum
að spila. „Ungfrúin góða og húsið“
fékk tilnefningu í nánast öllum
flokkum enda sögðu gárungamir að
svo mörg myndskeið hefðu verið
sýnd úr myndinni þama um kvöldið
að menn þyrftu ekki að ómaka sig
við að fara í kvikmyndahús til að sjá
hana. Víkverji ætlar samt að drífa
sig áður en sýningum lýkur. Mynd
sem hlýtur svona inörg verðlaun
hlýtur að vera einnar kvöldstundar
virði.
XXX
VÍKVERJI vill nota tækifærið í
þessum pistli, enn og aftur, til
að taka upp hanskann fyrir Ríkis-
sjónvarpið. Flestir sjónvarpsþætt-
imir, sem tilnefndir vom á Eddu-
verðlaunahátíðinni, vora framleidd-
ir fyrir Ríkissjónvarpið. Það segir
sína sögu um hlut þess í íslenskri
dagskrárgerð. Landlægt nöldur um
að Ríkissjónvarpið sé leiðinlegt og
niðurdrepandi á heldur ekki við rök
að styðjast að mati Víkverja. Er
honum ekki grunlaust um að þetta
neikvæða tal sé orðið eins konar
kækur hjá fólki sem orðið er svo
„ameríkanserað" í hugsun að ekkert
fær hreyft við því nema aulafyndni
og fjöldamorð.
Ríkissjónvarpið býður upp á fjöl-
breytta dagskrá og sem dæmi má
taka dagskrána síðastliðið fimmtu-
dagskvöld, en þá horfði Víkverji á
dagskrána frá því fréttir hófust
klukkan sjö og framyfir seinni frétt-
ir klukkan ellefu. Eftir fréttir var
Frasier (sem að vísu er byggður upp
á amerískri aulafyndni, en þó skárri
en margir aðrir þættir af því tag-
inu), því næst kom spurningaþáttur-
inn Petta helst... og strax þar á eftir
gamla kempan Derrick, þá Nýjasta
tækni og vísindi og að þeim þætti
loknum ágætur bandarískur mynda-
flokkur, sem nýlega hóf göngu sína,
Feðgarnir. Víkverji undi vel hag sín-
um fyrir framan sjónvarpstækið
þetta kvöld og fann enga þörf hjá
sér til að skipta um rás.
XXX
VÍKVERJI vill ennfremur nota
hér tækifærið og þakka þeim
Auði Haralds og Kolbrúnu Berg-
þórsdóttur fyrir bráðskemmtilegan
útvarpsþátt á Rás tvö á sunnudög-
um, Sunnudagslærið, sem sam-
kvæmt kynningu er „safnþáttur um
sauðkindina og annað mannlíf‘, en í
þættinum fara þær stöllur á kost-
um. Sérstaklega er Víkverji ánægð-
ur með tónlistina sem flutt er í
þættinum, en í þeim efnum kennir
ýmissa tóna frá öllum heimshom-
um. Þessi þáttur er hreinasta
„perla“ að mati Víkverja.