Morgunblaðið - 23.11.1999, Qupperneq 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ættingjar Kosovo-Albana sem búsettir eru hér á landi komu til landsins í gær
Morgunblaðið/Kristinn
Xhyla Doshlaku kom hingað ásamt eiginmanni sinum Tafil Zogaj frá
Kosovo í gær og voru þau að vonum himinlifandi yfir endurfundunum
við börn sín og barnabörn sem hér búa.
ÞAÐ urðu fagnaðarfundir í Flug-
stöð Leifs Eiríkssonar síðdégis í
gær þegar fimm manna hópur
Kosovo-Albana kom til landsins, en
í hópnum eru ættingjar fólks sem
er búsett hér á íslandi.
Hjónin Xhyla Doshlaku og Tafil
Zogaj eru um áttrætt og eiga tvo
sym og eina dóttur sem eiga heima
hér ásamt fjölskyldum sinum. Þau
voru að vonum himinlifandi yfir
endurfúndunum við börn sín og
barnabörn sem tóku á móti þeim í
flugstöðinni í gær.
Xhyla og Tafil fluttust sjálf til
íslands fyrir þremur árum en í
ágúst í fyrra fóru þau í heimsókn
til Kosovo, en þá var talið óhætt að
ferðast þangað. Á meðan þau voru
þar snarversnaði ástandið, þau
urðu innlyksa og þurftu að flýja
upp i fjöll.
Sonur þeirra Idriz Zogu hefur
ásamt konu sinni, Tamilu, og börn-
um þeirra búið hér frá árinu 1987
og voru þau fyrstu Kosovo-Alban-
arnir sem fluttu hingað til lands.
Morgunblaðið/Kristinn
Þrír ungir flóttamenn frá Kosovo komu hingað í gær, tveir bræður, 19
og 24 ára, og 19 ára frændi þeirra. Bræðurnir eiga tvo aðra bræður á
Dalvík og frændi þeirra á móður og fjögur systkini.
lands. Tilgangur farar hennar var
einnig að fylgja konu og fimm
börnum hennar, sem hafði verið á
Dalvík um skeið, aftur heim til sín.
Maður hennar hafði verið talinn af
en fannst svo á lífi og segir Hólm-
fríður að það hafi verið yndislegt
að fá að fylgja henni og börnunum
aftur heim og sjá fjölskylduna
sameinast. Þar hafi maðurinn
hennar verið ásamt foreldrum sín-
um, móður hennar og fleiri ætt-
ingjum og húsið og allt umhverfi
hafi litið alveg ótrúlega vel út og
var ástandið miklu betra en við
hefði mátt búast. I þeirra þorpi sé
staðan ekki svo slæm en segir hún
hana verri á öðrum stöðum. Að
sjálfsögðu er mjög þýðingarmikið
að fjölskyldur fái að sameinast á
ný eftir aðskilnað og segir Hólm-
fríður Rauða krossinn vinna sér-
staklega að sameiningu fjöl-
skyldna á alþjóðavettvangi og að
ungu piltarnir þrfr sem komu
hingað í gær séu dæmi um árang-
ur þess starfs.
Hann scgir það mikla gleði fyrir
alla fjölskylduna að foreldrar hans
séu nú komnir aftur eftir rúmlega
árs fjarveru. Fjölskyldan hér
heima hafi verið orðin mjög
áhyggjufull því þau hafi verið ein-
hvers staðar uppi í fjöllum og ekki
i simasambandi svo mánuðum
skipti. Því hafi það verið mikill
léttir þegar í Ijós kom að þau
kæmust aftur hingað.
í hópnum eru einnig þrír ungir
flóttamenn sem eru að koma hing-
að í fyrsta sinn, tveir bræður, 19
og 24 fjögurra ára og 19 ára
frændi þeirra. Bræðurnir eiga tvo
Fjölskyldur
sameinast
aðra bræður hér sem voru í hópi
flóttamanna sem komu hingað frá
Kosovo í sumar og eiga þeir heima
á Dalvík, annar með eigin fjöl-
skyldu. Frændi þeirra á móður og
fjögur systkini sem eru einnig í
hópi þeirra sem kom hingað í sum-
ar og eiga heima á Dalvík. Piltarn-
ir þrír urðu viðskila við fjölskyldur
sínar á flóttanum en tókst með að-
stoð Rauða krossins að komast til
Islands og fara þeir norður til Dal-
víkur í dag eða á morgun.
Hólmfríður Gísladóttir hjá
Rauða krossi Islands fór út til
Kosovo og fylgdi hópnum til Is-
Andstaða við yfirtöku
á Fishery Products
Tortryggja
fyrirætlan-
ir NEOS
BÆTJARSTJÓRAR nokkurra smá-
bæja á Nýfundnalandi telja yfirtöku
NEOS Seafoods á Fishery Products
International (FPI) ekki vera dreifð-
um byggðum í hag þegar til lengri
tíma sé litið. Bæjarstjórarnii- hafa
farið fram á fund með Brian Tobin,
forsætisráðherra Nýfundnalands,
vegna málsins.
NEOS Seafoods, sem m.a. er í
eigu Sölumiðstöðvar hraðfrystihús-
anna hf., hefur gert tilboð í öll hluta-
bréf FPI en til að hægt sé að taka
tilboðinu þurfa stjórnvöld í
Nýfundnalandi að afnema lög sem
kveða á um 15% hámarkseignaraðild
einstaklinga og félaga í fyrirtækjum
þar í landi. Bæjarstjórar í þremur
smábæjum þar sem FPI rekur fisk-
vinnsluhús segja hinsvegar við
kanadíska blaðið The Telegram að
tilgangur laganna hafi verið að
vernda dreifðar byggðir í landinu.
Verði lögunum breytt þrufi að
tryggja að þau geri það áfram. Þá
lýsa bæjarstjórarnir yfir áhyggjum
sínum af fyrirætlunum NEOS, félag-
ið leggi mikið í auglýsingar og líta
þannig vel út í augum almennings.
Þá efast bæjarstjórarnir um að
NEOS geti staðið við það sem félag-
ið hefur lofað. Meðal annars telja
bæjarstjórarnir að erfitt geti verið
að afla hráefnis vegna samdráttar í
aflaheimildum í Barentshafi og því
verði erfitt fyrir NEOS að efna lof-
orð um stækkun og fjölgun frysti-
húsa og útdeilingu varanlegra afla-
heimilda. Bæjarstjórarnir telja því
að yfirtakan verði dreifðum byggð-
um ekki til góðs í framtíðinni og hafa
farið fram á fund með forsætisráð-
herra Nýfundnalands til að kynna
honum sjónarmið sín.
Aukínn lestur á sér-
blöðum Morgunblaðsins
Sérblöð Morgunblaðsins
Hlutfall þeirra sem las blaðið á viðkomandi degi
skv. fjölmiðlakönnun Gallup
Meðal-
einkunn
7,1 j? Ferðalög
□ 42,5%
163%
7,0 j Lesbók
] 39,6%
156%
□ 38,7%
133.4%
134.1%
48%
48%
7,1 Úr verinu
7,2 } Dagskrá
7,4 Myndasögur . ,
19%
23%
] 25,7%
CZI íapríl 1999
í október 1999
Lágmarkssamningi
hafnað af útgerðinni
MIKIL aukning hefur orðið á lestri
á sérblöðum Morgunblaðsins að því
er fram kemur í fjölmiðlakönnun
Gallups sem framkvæmd var í októ-
ber. Sérblöð Morgunblaðsins eru
tíu.
Tiltölulega jöfn aldursdreifing er
meðal lesenda Ferðalaga. Lesendur
eru þó flestir í aldurshópunum 30-
34 ára og 35-39 ára, 69% lesenda í
hvorum aldursflokki lásu blaðið.
Flestir lesenda Bíla, eða 48%, eru í
aldurshópnum 35-39 ára. Daglegt líf
var mest lesið af aldurshópnum 30-
34 ára, 61%, og lesendur Viðskipta-
blaðs voru flestir í aldurshópnum
68-80 ára, 54%. Aldurshópurinn 68-
80 var sömuleiðis stærsti lesenda-
hópur Lesbókar en 80% í þessum
aldurshópi lásu blaðið. 51% í aldurs-
hópnum 40-49 ára las Heimili/fast-
eignir.
Tveir aldurshópar skáru sig úr
hvað varðar íþróttir. 64% í aldurs-
hópnum 35-39 ára lásu Iþróttir og
63% á aldrinum 12-19 ára. 20-24 ára
var stærsti lesendahópur Mynda-
sagna, 34% og 20-24 ára og 35-39
ára voru stærstu lesendahópar
Dagskrár, eða 36% í hvorum aldurs-
flokk, 44% lesenda Ur verinu voru á
aldrinum 35-39 ára.
ENN hefur flutningaskipið
Nordheim, sem liggur við Sunda-
höfn, ekki verið affermt nema að
litlu leyti eftir að félagar í Alþjóða
flutningasambandinu komu í veg
fyrir vinnu við affermingu skipsins
á föstudag vegna meintra brota út-
gerðafélags skipsins á alþjóða-
kjarasamningum.
Nordheim er skráð á Kýpur og
er í leiguverkefnum fyrir Eimskip.
Að sögn Borgþórs Kærnested,
hjá Alþjóða flutningasambandinu,
hefur útgerðarfélag skipsins hafn-
að því að gera svokallaðan ITF
samning við áhöfnina, sem er lág-
markssamningur Alþjóða flutn-
ingasambandsins. Grundvallarat-
riði samningsins fela í sér 1.104
dollara mánaðarlaun fyrir háseta
að meðtöldum 103 yfirvinnustund-
um, en þeir átta hásetar sem eru
um borð hafa nú um 300 dollara á
mánuði að sögn Borgþórs.
Borgþór segir að sínir menn
muni verja aðgerðir Alþjóða flutn-
ingasambandsins fram í fmgur-
góma og segir hann að það sé illa
komið fyrir íslensku samfélagi þeg-
ar ekki sé hægt að ráðast á þræla-
kjör manna þótt erlendir séu.
„Vel getur verið að íslensk lög
banni ekki uppskipun á þessu skipi
og því séu aðgerðir okkar ólög-
mætar eins og Eimskip heldur
fram, en það þýðir þá að hingað
geta komið þrælaskip því íslensk
lög banna hvorki hingaðkomu
þeiiTa né uppskipun," segir Borg-
þór.
Stóra fíkniefnamálið
Einum
sleppt
KARLMANNI, sem setið hefur í
tveggja mánaða gæsluvarðhaldi í
tengslum við rannsókn stóra fíkni-
efnamálsins, var sleppt úr gæslu-
varðhaldi í gær. Lögreglan í
Reykjavík taldi ekki ástæðu til að
krefjast framlengingar á gæslu-
varðhaldi hans.
Enn sitja tíu sakborningar í
gæsluvarðhaldi vegna málsins, en
að auki sitja þrír karlmenn á fer-
tugsaldri í gæsluvarðhaldi vegna
stóra hassmálsins, sem upp kom í
byrjun síðustu viku. Rennur viku
gæsluvarðhald út yfir tveimur
þeirra í dag, þriðjudag, en lögreglan
hefur ekki ákveðið hvort krafist
verði framlengingar á gæslu þeirra.
-------------
Leikskólagjöld
hækka um 13%
LEIKSKÓLAGJÖLD í Reykjavík
hækka um 13% frá og með áramót-
um, eða um 2.500 krónur á mánuði á
bam fyrir þá sem mest borga nú.
Leikskólaráð tók ákvörðun um
hækkunina í gær og er búist við að
borgarráð samþykki hana í dag.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í
leikskólaráði sátu hjá við atkvæða-
greiðsluna. Bergur Felixson, fram-
kvæmdastjóri Leikskóla Reykjavík-
ur, segir að framlög borgarinnar til
leikskólanna hafi hækkað og því séú
framlög foreldra aukin til samræm-
is. Hann segir að miðað sé við að
framlag foreldra sé í framtíðinnj
fast hlutfall af kostnaðinum, eða um
þriðjungur. Nú er hlutur foreldra í
kostnaðinum rúm 32%.
Þjónusta númer eitt!
Til sölu MMC Pajero
2500 Diesel. 3ja dyra,
nýskráður 29.05.1998.
Kastaragrind, CD, álfelgur.
Ásett verð kr. 2.250.000.
Nánari upplýsingar hjá Bíla-
þingi Heklu í síma 569 5500.
Opnunartími: Mánud. - föstud. kl. 9-I8
laugardagar kl. I2-I6 .
BÍLAÞINGÍEKLU
Númck e-ÍH í noiv?vm tílvm!
Laugavegi 174,105 Reykjavík, sími 569-5500
www.bilalhinq.is • www.bila1hiiuj.is • www.bilalbituj.is