Morgunblaðið - 23.11.1999, Side 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Nefnd um
tekjustofna
í stað söfn-
unarkassa
í ÞINGSÁLYKTUNARTILLÖGU
sem lögð hefur verið fram á Alþingi
er lagt til að ríkisstjórn verði falið
að skipa nefnd sem geri tillögur um
leiðir til fjáröflunar fyrir Háskóla
Islands, Rauða krossinn, SÁA og
Slysavarnafélagið Landsbjörg sem
komið geti í stað tekna af rekstri
söfnunarkassa.
Ögmundur Jónasson, þingmaður
Vinstrihreyfíngarinnar - græns
framboðs, er fyrsti flutningsmaður
tillögunnar en meðflutningsmenn
eru þingmenn úr öllum öðrum
flokkum sem fulltrúa eiga á þingi;
þeir Gísli S. Einarsson, Samfylk-
ingu, Hjálmar Árnason, Framsókn-
arflokki, Pétur H. Blöndal, Sjálf-
stæðisflokki, og Sverrir Hermanns-
son, Frjálslynda flokknum. Eru
flutningsmenn, að undanskildum
Hjálmari Árnasyni, jafnframt flutn-
ingsmenn frumvarpa sem kveða á
um bann við rekstri söfnunarkassa.
I greinargerð með tillögunni er
vísað í svar dómsmálaráðherra við
fyrirspurn Ögmundar Jónassonar,
sem lagt var fram á Alþingi fyrir
skömmu, þar sem fram kom að
rekstraraðilar söfnunarkassa á Is-
landi hefðu 1.069 millj. kr. í tekjur
árið 1998 þegar frá höfðu verið
dregnir vinningar og rekstrarkostn-
aður.
„Því er ljóst að viðkomandi aðilar
eiga mikið undir tekjum af rekstri
söfnunarkassanna," segir í tillög-
unni
Loksins
• /
snjor
BÖRNUM sunnanlands, sem
mörg hver voru orðin langeyg
eftir fyrsta snjó vetrarins, varð
að ósk sinni um helgina þegar
snjónum kyngdi niður. Engin
breyting er sjáanleg í þeim efn-
um á næstunni því Veðurstofan
spáir áfram frosti og éljagangi
víða um land fram eftir vikunni.
Það er því hætt við að áfram
verði nóg að gera við að moka
göturnar, eins og unnið var við á
Selfossi í gær.
Nýjar hiigmyndir um framtíð Reykjavrkurflugvallar
Flugvöllurinn verði
ein flugbraut
HELGI Hjörvar, forseti borgarstjómar, segir fulla ástæðu til að skoða
hvort í Reykjavík eigi að vera flugbraut í stað flugvallar. Með því að loka
einni flugbraut og stytta aðra verulega, eða jafnvel loka tveimur geti
Reykjavíkurborg nýtt verðmæt svæði til uppbyggingar íbúa- og atvinnu-
byggðar án þess þó að skerða flugöryggi við völlinn verulega.
Morgunblaðið/RAX
Björn Bjarnason menntamálaráðherra á málræktarþingi
Staða tungunnar sterkari
nú en um síðustu aldamót
„LÍKLEGA hefur aldrei í sögu þjóð-
arinnar verið unnið jafnötullega að
því að rækta íslenska tungu og nú á
tímum. Staða tungunnar er mun
sterkari um þessi aldamót en hin síð-
ustu. Um það vitnar margþætt bóka-
, tímarita- og blaðaútgáfa, málrækt-
arstarf og kennsla í skólum, félags-
starf hvers konar, íðorðastarf og
starfsemi orðanefnda og Islenskrar
málstöðvar. Erlendir sérfræðingar
um stöðu tungumála telja íslensku
standa vel að vígi í alþjóðlegum sam-
anburði," sagði Bjöm Bjamason
menntamálaráðherra á málræktar-
þingi um helgina.
Menntamálaráðherra sagði að
nokkrar umræður hefðu orðið um
málfarslega stöðu nýbúa og kröfur
til þeirra. Hann kvaðst ekki þeirrar
skoðunar að skylda ætti skóla til að
kenna móðurmál nýbúa, enda væri
víða verið að hverfa frá þeirri stefriu
erlendis. „Hins vegar á að þróa
námsefni og kennsluaðferðir til að
auðvelda nýbúum að tileinka sér ís-
lensku. Er vert að vekja athygli á því
að nú hefur í fyrsta skipti verið gerð
námskrá í íslenskukennslu fyrir ný-
búa, þ.e. nemendur sem hafa annað
móðurmál en íslensku og þá nem-
endur sem hafa íslensku að móður-
máli en hafa dvalist lengi erlendis,
og auk þess er sérstök námskrá fyrir
táknmáls- og íslenskukennslu heym-
arlausra nemenda," sagði mennta-
málaráðherra. Menntamálaráðherra
sagði að aukið framboð á margskon-
ar afþreyingarefni hefði ekki dregið
úr íslenskri bókaútgáfu, aldrei hefðu
komið út fleiri nýir titlar á einu ári
en 1998. Útgáfa vandaðra fræðirita
og handbóka fyrir almenning og þar
á meðal böm hefði stóraukist. Með
launasjóði fræðaiithöfunda, sem
tæki til starfa á næsta ári með átta
milljóna króna fjárveitingu úr ríkis-
sjóði, ætti enn að verða ýtt undir
gerð vandaðra fræðirita á íslensku.
„Þótt margt sýni sterka stöðu ís-
lenskrar tungu er þó víða pottur
brotinn. Skortur á hugmyndaflugi
við að velja verslunum og veitinga-
stöðum íslensk nöfn er sorglega mik-
ill, svo að dæmi sé tekið. Leti við að
íslenska heiti á kvikmyndum sýnist
færast í vöxt. Agaleysi í notkun
tungunnar er einnig áberandi og svo
virðist sem orðaforði minnki og
skilningur á inntaki orðtaka. Efla
þarf virðingu mai'gra fyrir móður-
málinu í daglegri notkun þess,“ sagði
menntamálaráðherra meðal annars í
ræðu sinni.
Andlát
\úr nýjum bókum
úfistanum
þriðjudagskvöld
23. nóvember kl. 20
GUÐMUNDUR H.
JÓNSSON
ísak Harðarson tes úr skáldsögu sinni
ivianmfáiðllhancibókín
Elísabet Jökulsdóttir les úr skáldsögu sinni Laufey
Þórður Helgason les úr bók sinni Einn fyrir alla
Hjaltí Rögnvaldsson ies úr bók Hrafns Jökulssonar
Mlklu meira en mest
Mál og menning
malogmenning.is
Laugavegi 18 • Simi 515 2500 • Síðumúla 7 • Simi 510 2500
GUÐMUNDUR H.
Jónsson, fyrrverandi
forstjóri BYKO, er lát-
inn. Guðmundur fædd-
ist 1. ágúst 1923 í
Haganesvík í Fljótum
og ólst upp á Móskóg-
um í sömu sveit. Hann
fór að heiman rúmlega
tvítugur en hafði þá
unnið hjá Samvinnufé-
lagi Fljótamanna í þrjú
ár en hann stundaði
nám í Samvinnuskólan-
um 1943 og 1944.
Guðmundur starfaði í þrjú ár hjá
Kaupfélagi Amesinga á Selfossi og
var útibússtjóri á Stokkseyri. Hann
starfaði síðar á skrifstofu SÍS. Hann
stofnaði byggingarvöru-
verslun sem SIS rak á
Grandavegi. Hann hætti
hjá SÍS og stofnaði
BYKO 1962 í 135 fer-
metra húsnæði á mótum
gamla Hafnarfjarðar-
vegarins og Kársnes-
brautar. BYKO keypti
lóð á Nýbýlavegi 6 og
flutti verslun og skrif-
stofur þangað 1972.
Síðan hafa bæst við
verslanir í Hafnarfirði,
tvær verslanir í Reykja-
vík, Keflavík og Akureyri. Eftirlif-
andi eiginkona Guðmundar er Helga
Heruysdóttir og áttu þau saman
fimm eftirlifandi böm.
Helgi segir að mikil áhersla hafi
verið lögð á það við Reykjavíkurflug-
völl að halda uppi góðri þjónustu.
Nýtingarhlutfall vallarins, þ.e.
hversu oft er hægt að lenda á vellin-
um árlega vegna vinds, er 98%.
Helgi bendir á að viðmið Alþjóða
flugmálastofnunarinnar við hönnun
flugvalla er 95% svo nýtingarhlutfall
Reykjavíkurflugvallar er töluvert
hærra en gerðar séu kröfur um. Til
samanburðar bendir Helgi á að nýt-
ingarhlutfall Keflavíkurflugvallar
hafí verið 98% en eftir að Banda-
ríkjamenn lokuðu einni flugbraut
vallarins fór hlutfallið niður í 95%.
„Að gefnum þessum forsendum
spyr maður sig hvort gera þurfí
kröfu um hærra þjónustustig á
Reykjavíkurflugvelli heldur en gert
er á alþjóðaflugvellinum í Keflavík
Fyrir utan æfinga- og kennsluflug
þjónar völlurinn einna helst flugi til
Ákureyrar, Isafjarðar, Egilsstaða og
Vestmannaeyja. Á Akureyri er að-
eins ein flugbraut og þar hefur eng-
um dottið í hug að fara fram á þrjár
flugbrautir, hvorki af öryggisástæð-
um né þjónustuástæðum," segir
Helgi.
Snjóbræðslukerfí í flugbrautina
Á Reykjavíkurflugvelli era eins og
stendur þrjár flugbrautir og miðstöð
fyrir æfínga- og kennsluflug. Helgi
segir að flytja hefði átt æfínga- og
kennsluflug fyrir löngu frá Reykja-
víkurflugvelli, en meirihluti lendinga
og flugtaka á vellinum sé af þeim
toga.
„Eg tel að það sé ástæða til að
skoða hvort ekki ætti að loka tveimur
flugbrautum og halda eingöngu eftir
flugbrautinni sem liggui- frá norðri til
suðurs og leggja í hana snjóbræðslu-
kerfí. Nýtingarhlutfall brautarinnar
fyrir stærri vélar í innanlandsflugi
gæti orðið allt að 95%, samkvæmt
grófum útreikningum, sem er nálægt
viðmiði Alþjóða flugmálastjómarinn-
ar,“ segir Helgi. Að sögn Helga
hefur Orkuveita Reykjavíkur reiknað
út stofn- og rekstrarkostnað fyrir
lagningu snjóbræðslukerfis í eina
flugbraut og yrði kostnaður við það
rúmlega 30 milljónir króna á ári.
„Önnur tillaga er að leggja áherslu
á austur-vestur brautina og lengja
hana jafnvel, en stytta norður-suður
brautina verulega þannig að aðflug
yfir miðborgina legðist að mestu af og
verðmætasti hluti flugvallarsvæðisins
næst miðborginni, Háskólanum og
Landspítalanum myndi losna. Megin-
atriðið er að menn skoði til íúlls val-
kosti sem komið geti til móts við sjón-
armið landsbyggðarinnar og borgar-
innar en stilli ekki bara upp kostun-
um annaðhvort eða,“ segir Helgi.
*
Arekstur í
Bakkasels-
brekku
ÖKUMAÐUR og farþegi fólksbíls
vora flutt á slysadeild Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri á sunnu-
dagskvöld eftir harðan árekstur við
jeppa en hann varð í Bakkasels-
brekkunni á Öxnadalsheiði um kl. 6.
Fólksbíllinn var á suðurleið en
jeppanum var ekið niður Bakkasels-
brekkuna. Mikil hálka var á þessum
stað í brekkunni og er talið að hálk-
an og snörp vindhviða hafi valdið því
að jeppinn rann stjórnlaust niður
þar til hann skall á fólksbílnum sem
kom á móti.
Ökumaðurinn hlaut slæma áverka
á höfði og fór í aðgerð á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri, en farþegi
bílsins kenndi til í ökkla en slapp að
öðru leyti með skrámur.