Morgunblaðið - 23.11.1999, Page 15

Morgunblaðið - 23.11.1999, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 1999 15 FRÉTTIR Morgunblaðið/Jón Svavarsson Slökkviliðsmenn voru fengnir til að dæla heitu vatni úr kjailara Mýrarhúsaskóla á sunnudagskvöldið. Vatnsleki olli rafmagnsleysi RAFMAGN SLAUST varð í Mýr- arhúsaskóla á Seltjarnarnesi í fyrrinótt vegna vatns, sem lak um húsnæði skólans og fór að lokum í rafmagnstöflu með þeim afleiðingum að rafmagni sló út í byggingu skólans. Ekki urðu skemmdir á húsnæði skól- ans. Símkerfí skólans lá niðri um tima. Slökkvilið Reykjavíkur var kvatt á vettvang með verð- mætabjörgunargám seint í fyrrakvöld og saug upp 25 cm djúpt vatn í kjallaraherbergi skólans. Unnið var að rafmagnsvið- gerðum í fyrrinótt og tókst að koma á rafmagni nægilega snemma til að ekki yrðu telj- andi tafír á skólastarfi. Talið er að vatnið hafí lekið í nokkrar klukkustundir á sunnudags- kvöld áður en vart varð lekans. Kennsla gat hafíst um klukkan 8.20 í gærmorgun. Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna 10 ára Nýr vefur fyrir börn stofnaður á Netinu BARNASÁTTMÁLI Sameinuðu þjóðanna varð 10 ára sl. laugardag. Umboðsmaður bama hefur með vís- an til sáttmálans ákveðið að stofna til gagnvirks vefjar á Netinu sem hlotið hefur heitið Þingvöllur. Þar mun ís- lenskum börnum gefast tækifæri til að koma skoðunum sínum á fram- færi við umboðsmann sinn og um leið að styrkja embættið sem málsvara barna og ungmenna. Barnasáttmáli Sameinuðu þjóð- anna geymir ákvæði um grundvall- armannréttindi barna yngri en 18 ára og hafa 191 ríki staðfest sáttmál- ann. Að sögn Þórhildar Líndal, um- boðsmanns barna, er Barnasáttmál- inn byltingarkenndur að því leyti að hann felur í sér skuldbindandi sam- komulag þjóða heims um sérstök réttindi börnum til handa, óháð rétt- indum hinna fullorðnu. Sáttmálinn hefur haft víðtæk pólitísk áhrif á al- þjóðlegum vettvangi og í honum birtist jafnframt ný sýn á réttar- stöðu barna að því leyti að lögð er rík áhersla á að börn skuli njóta um- hyggju og sérstakrar verndar auk þess sem þau séu virkir þátttakend- ur í þjóðfélaginu. Umboðsmaður barna segir að hér á landi skorti börn tækifæri til að láta í ljós skoðanir sínar á skipulegan hátt í samfélagsumræðunni, eins og réttur þeirra stendur til en í 3. gr. sáttmálans segir að það sem barni sé fyrir bestu skuli ávallt hafa forgang þegar yfirvöld taka ákvarðanir er varða börn. Forsenda þess að yfir- völd geti tekið slíkar ákvarðanir er að börn fái að segja álit sitt, að á þau sé hlustað og skoðanir þeirra séu virtar í samræmi við aldur þeirra og þroska, sbr. 12. gr. sáttmálans. „Hér þai-f að verða hugarfarsbreyting, ekki síst hjá fulltrúum í sveitar- stjórnum, sem fara með fjölda mála er varða réttindi og hagsmuni barna og unglinga, tæplega þriðjungs ís- lensku þjóðarinnar," segir í fréttatil- kynningu frá umboðsmanni barna. Embætti umboðsmanns barna var stofnað með hliðsjón af ákvæðum Barnasáttmálans íýrir tæpum fimm árum og var markmiðið með stofnun embættisins að vinna að bættum hag barna og standa vörð um réttindi þeirra, hagsmuni og þarfir. Býrð þú úti á landi? Ef þú kaupir gleraugu hjá Sjónarhól, getur þú ferðast fyrir mismuninn Gleraugnaverslunin SJÓNARHÓLL HAFNARFIRÐI & GLÆSIBÆ Frumkvöðull að lækkun gleraugnaverðs á íslandi Ford EscortVan Ford sendibílar af minni gerðinni sameina mikið flutningsrými og sérlega milda burðargetu. Öryggi ökumanns, þægilegt vinnuumhverfi og hagkvæmni í rekstri sitja í fyrirrúmi. Allir kostir við fjármögnun eru fyrir hendi, þ.á.m. rekstrarleiga. Nýttu þér þjónustu sölumanna okkar við að finna rétta bílinn og útbúa hann eftir þínu höfði. brimborg Briraborg Akureyri Tryggvabraut 5, Akureyri sími 462 2700 Tvisturinn Faxastíg 36, Vestmannaeyjum sími 481 3141 Brimborg • Bíldshöfða 6 • Sími 515 7000 • www.brimborg.is I Bíley 1 Bctri bílasalan 1 Bílasalan Bilavík Búðareyri 33, Reyðarfirði Hrísmýri 2a, Sclfossi Holtsgötu 54, Rcykjanesbæ | sími 474 1453 | sími 482 3100 | simi 421 7800

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.