Morgunblaðið - 23.11.1999, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 23.11.1999, Qupperneq 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 1999 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ -H Mitt líf og þitt Mérfinnst ég alltafvera að rekast áfólk sem krejstþess að allirgeri eins; Ijúki námijái sérvinnu, kaupi íbúð, stofni fjölskyldu ogskipti um bíl á hlaupári. Æ hvað þetta er nú gott. Hvað það er nú dásamlegt að slíta barns- skónum í svona frjálsu landi þar sem allt er leyfilegt og allt er hægt. I landi þar sem allt er þess virði að það sé prófað. Og ekki einungis er þakkar- vert að hrærast í jafn hvetjandi umhverfi og Island aldamótanna er, það er líka alveg ómetanlegt að fá að vera af fyrstu kynslóð- inni sem hefur enga „komplexa“ - eins og spekingarnir orða það. Fyrstu kynslóðinni sem mér skilst að þori og megi gera það sem hún vill án þess að vera íþyngt af draumum eða syndum feðranna, kynslóðinni sem hefur svo mikið sjálfstraust að það hálfa myndi duga milljónaþjóð í VIÐHORF mEef. .... urverið samanburði við forvera sína tO sjávar og sveita sé sú kynslóð sem nú heitir ungt fólk hvergi tjóðruð í túnfæti, hvergi bundin á klafa. Hún hafi möguleika til þess að mennta sig að vOd, búa þar sem hún vill, ferðast eins og hana lystir og flökta mOli stétta og flokka og hjónabanda og lífeyr- issjóða eins og hún hefur þrek tfl. Og ég trúi þessu alveg því ég sé þetta gerast allt í kringum mig. En getur samt verið að þessi viðhorfsbreyting hafi ekki breiðst jafnt út til allra? Eða er frelsið kannski ekki eins hömlu- laust og af er látið? Nú er ég ekki að tala um há- fleyg hugtök eins og frelsi í lagalegum eða siðferðflegum skilningi. Það sem ég hef í huga er einfaldlega frelsið til þess að velja sér sína eigin braut í því kapphlaupi sem kallað er lífs- hlaup. Mér finnst ég nefnOega alltaf vera að rekast á fóik sem ekki virðist samþykkja nein frá- vik frá meginstraumnum. Fólk sem krefst þess að allir geri eins; ljúki námi, fái sér vinnu, kaupi sér íbúð, gifti sig, eignist börn og skipti um bfl á hlaupári. Nú gætu einhverjir haldið að hér væri að hefjast málsvörn liðleskju sem einhverra hluta vegna hefur ekki enn hunskast í hnapphelduna. Svo er ekki því slíkt þarf ekki að afsaka á opin- berum vettvangi. Málið hefur mun víðari skírskotun og nær til ýmiss konar þrýstings sem fólk beitir vini og vandamenn á sviði einkalífs, oftast af helberu hugs- unarleysi. Eg á kunningja sem nýverið eignaðist sitt fyrsta barn með unnustu sinni, en þau höfðu þá verið saman í tíu ár. Aratugur í bamlausu sambandi var meira en umheimurinn gat unnt þeim og ég vil ekki ímynda mér hversu oft parið þurfti að þola „góðlátlegar glósur," „hvetjandi spurningar“ eða hreinlega ósvífna eftirgrennslan um stöðu mála. Að lokum var kunningi minn orðinn svo hvekktur á að þurfa að verja val sitt að hann svaraði því eitt sinn til að hann væri einfaldlega ófrjór. Sá sem spurði varð auðvitað kjaftstopp, fór í kerfi og reyndi að afsaka framhleypnina þar til kunningi minn leiðrétti svar sitt. En þetta varð spyrlinum vonandi lexía, því þótt vel sé meint er aldrei að vita hvenær svona tal hittir á viðkvæma bletti. Vinkona mín ein er orðin þreytt á aðsúg af svipuðum toga. Hún á fimm ára gamla dóttur með manni sínum en hef- ur um árabfl ekki fengið flóafrið fyrir skyldmennum, nági'önnum og kunningjum sem vilja vita „hvort hún ætli nú ekki að fara að koma með annað“. Sjálf hef- ur hún tekið þá ákvörðun að stýra sínum barneignum sjálf - þar sem slíkt er mögulegt á okkar upplýstu og frjálsu tímum - en það virðist fólk eiga erfitt með að skilja. Já, svona eru vinir mínir skrýtnir og um þá mætti áfram ræða; ein er yfir þrítugt og enn í háskóla, önnur er á flandri í út- löndum og ekki búin að festa sér íbúð, sá þriðji nálgast þrítugt og er ekki í sambúð. Óll eru þau orðin dauðleið á umvöndunar- tóni ættingja í fjölskylduboðum, en ekki síður á lúmskum skila- boðum markaðarins. Flugfélög veita sum hver ekki nemenda- afslátt nema upp að ákveðnum aldri sem oftast er í kringum þrítugt - menn skulu nefnilega ljúka námi á skikkanlegum tíma. I auglýsingum um morg- unkorn og fólksbfla eiga allir hús, bfl, maka og tvö hlæjandi börn - menn skulu nefnilega hafa dug í sér til þess að koma á fót fjölskyldu. Helst kjarnafjöl- skyldu enda eru í auglýsingun- um fáir barnlausir, enn færri samkynhneigðir og þaðan af færri eiga fimm börn eða fleiri. Þó er slíkt fólk til og á jafnvel bfla og borðar morgunkom. Við þetta bætast svo tfl- boðsauglýsingamar „tveir fyrir einn“. Helmingsafsláttur er ekki í boði ef einn ætlar í bíó eða ut- anlandsferð - menn skulu nefni- lega eiga konu eða viðhald eða kunningja. Ég klippti svona tilboðskort út úr blaði um daginn og fór með vinkonu í bíó. Þar sem ég gekk að miðasölunni greip í mig öldrað kona og spurði varfæm- islega hvort ég væri nokkuð ein. Þegar ég hristi höfuðið lá við að hún beygði af. Þessi gamla kona átti engan vin eða mann en hana langaði samt að sjá bíómynd. Og tO þess þurfti hún annaðhvort að borga fullt verð eða safna kjarki til að svífa á ókunnuga mapneskju í ösinni. Ég spurði þessa konu ekki hvers vegna hún væri einsömul. Ég spyr heldur ekki vini mína hvers vegna þeir haga lífi sínu eins og fyrr er greint. En ef ein- hver spyr mig, í stað þess að spyrja þá sjálfa, hvort þeir ætli nú ekki að fara að festa ráð sitt, eignast börn eða klára þetta nám, þá byrsti ég mig íyrir þeirra hönd og segi að þetta snúist um sjálfstætt val, að fólk eigi fullan rétt á að for- gangsraða eins og það helst kjósi og svo sleppi ég mér og hrópa upp í gáttað andlitið á þeim sem spyr að ég þoli ekki þessa eilífu afskiptasemi sem reynt er að dulbúa ár og síð sem dægurspjall, spaug eða um- hyggjusemi. Tillögur um Ríkisútvarpið MORGUNBLAÐ- IÐ hefur í tvígang birt sömu greinina efth’ formann Starfsmanna- samtaka Rfldsútvarps- ins þar sem honum verður tíðrætt um orð- sendingar mflh mín og menntamálaráðherra frá því snemma árs 1998 vegna tillagna frá vinnuhópi starfs- manna Ríkisútvar- psins um að stofnunin verði gerð að hlutfélagi í eigu ríkisins. Tvíbirting á grein formannsins er skýrð með því að um mistök hafi verið að ræða við birtingu henn- ar í fyrra skiptið. Vera má að það séu mistök yfirhöfuð að svona grein skuli birt. Ekki myndi þó skaða að birta greinina í þriðja sinn ef hún tæki enn frekari lagfæringum, sé það á annað borð viðleitni höfundar að gefa almennum lesendum glögga og rétta mynd af því hvað í umrædd- um tillögum vinnuhópsins felst. Um það verður reyndar efast við lestur greinarinnar, bæði í fyrri og seinni prentun. Jón Asgeir Sigurðsson, formaður Starfsmannasamtaka Ríkisútvarps- ins, hefur áður sent frá sér skriflega yfirlýsingu, þar sem því er haldið fram, að „flestir yfirmenn Ríkisútv- arpsins telji að það eigi að afnema afnotagjöld Ríkisútvarpsins og breyta því í einkafyrirtæki. Þetta er alrangt. Eftir að hafa séð slíkar staðhæfingar í skrifum formannsins verður öllum getgátum hans um meintan vflja eða ásetning þeirra einstaklinga, sem hann kýs að gera að umfjöll- unarefni, tekið með miklum fyrirvara af minni hálfu. I bréfi mínu tfl menntamálaráðherra dags. í maí 1998 gerði ég grein fyrir því að vinnuhópur innan Rík- isútvarpsins hefði skfl- að álitsgerð um fram- tíðarsýn Ríkis- útvarpsins og m.a. fjallað um stofnun Rík- isútvarpsins hf. í eigu íslenzka ríkisins. Um þetta segir orð- RÚV Opin umræða, segir Markús Örn Antonsson, um framtíðarskipulag Ríkisútvarpsins og tekjustofna þess er bráðaðkallandi. rétt á þessa leið í bréfi mínu: „Hinn 28. nóvember 1996 skOaði starfshópurinn, sem vann undir for- ystu Eyjólfs Valdimarsson, þáver- andi framkvæmdastjóra tækni- deOdar, meðfylgjandi skýrslu tfl útvarpsstjóra og var hún lögð fram í framkvæmdastjóm Rfldsútvarpsins 5. desember 1996, sbr. meðfylgjandi ljósrit af fundargerð. Þá var skýrsl- an einnig lögð fram í útvarpsráði hinn 13. janúar 1997, sbr. meðfylgj- andi ljósrit af fundargerð. Eins og fram kemur af þessum gögnum hefur skýrslan að geyma mjög stefnumarkandi tfllögur um tækniþróun Rfldsútvarpsins á kom- andi áram, dagskrárframboð, sam- keppnisstöðu þess og breytingu á rekstrarformi stofnunarinnar í hlutafélag í eigu ííkisins. Um rök- semdir fyrir hlutafélagsstofnun er sérstaklega fjallað á bls. 3 og 4 í skýrslu starfshópsins. Þar segir m.a: „Líklegt er að Rfldsútvarpið þurfi að auka þjónustu tfl að verja hlut sinn. Frá sjónarmiði Ríkisútvarps- ins verða ný lög að tryggja að það geti bragðist við nýjum, ófyrirséð- mn aðstæðum með skjótum hætti. Það er skoðun hópsins að það verði best gert með því að Ríkisútvarpið verði gert að hlutafélagi í eigu rflds- ins. Þannig verði rekstrarlegur sveigjanleiki best tryggður. Undirritaður telur að hér hafi verið hreyft svo þýðúigarmiklu máli, að því beri hér með að vísa tO umfjöllunar hjá stjómvöldum í tengslum við endurskoðun útvarps- laga, sem lengi hefur staðið yfir. Hið fyrsta þai’f að taka afstöðu tO framþróunar Ríkisútvarpsins í ljósi yfirvofandi tæknibyltingar og skfl- greina framtíðai’hlutverk þess og þjónustusvið í framtíðinni. I tfllög- um starfshópsins er vakið máls á mörgum athyglisverðum nýmælum um eflingu Ríkisútvai’psins og bætta þjónustu þess við landsmenn með auknu dagskrárframboði. TO að styrkja stöðu þess í vaxandi sam- keppni er tillagan um hlutafélags- stofnun fram komin. Þekkt er Markús Örn Antonsson Skattur á lífeyri aldraðra NÚ hefur það skeð að loforð liggur fyrir að leiðrétta eigi það misræmi og óréttlæti að hjón og sambýlis- fólk njóti ekki þeirra sömu skattleysis- marka, sem tveir ein- staklingar njóti við út- reikninga skatta og útsvars, heldur er dregið 20% af vegna maka, sem fær aðeins 80% frádrags af því sem aðrir í þjóðfélag- inu fá. Nú hafa borist tíð- indi um að jafna eigi þennan mismun, þannig að jafn- ræði og misvægi sé aflétt í áfóng- um á 3-4 árum. Er það ánægjulegt. En það er annað misræmi sem laga þarf og það er skattlagning á elli- lífeyri frá lífeyrissjóðum. Lífeyrir- inn er reiknaður út í samræmi við þá upphæð sem við höfum greitt mánaðarlega, flestir í áratugi. Fj ármagnsskattur Fyrir 3 árum var farið að leggja á fjármagnstekjur 10% skatt! Þetta fór tdtölulega létt í fram- kvæmd og ekki mikil mótmæli. Mér kom þá í hug hvort ekki væri sanngjarnt að þeir sem greiddu samviskusamlega í lífeyr- issjóði og borguðu nú alit að 40% af sínum tekjum í skatt meðan aðrir sem hefðu komið að sér undan að greiða í lífeyrissjóði, en lagt fé sitt í ávöxtun á annan hátt (skuldabréf, hlutabréf o.s.frv.) greiddu 10% í ávöxtun þar. Við fengum lífeyris- sjóði til að láta gera úttekt og út- reikning á hlutaskiptingu hvaðan útgreiddur lífeyrir væri kominn: frá mán- aðargreiðslu okkar, sem við greiddum lengst af ekki skatt af og hins vegar ávöxtun þess fjár í sjóðum líf- eyrissjóðs stéttarfé- lags okkar. Samkvæmt útreikn- ingi Bjama Þórðar- sonar trygginga- stærðfræðings var niðurstaðan þessi: „Við skoðun ellOíf- eyristryggingu, sem 25 ára gamall maður tekur og greiðir fast iðgjald til 65 ára aldurs, en þá tek- ur hann ellilífeyri til æviloka. Skiptingin í vaxtagreiðslur og ið- gjöld verða þá þessi m.v. forsendur um raunávöxtun: Niðurstöður era þær að 33% greidds lífeyris kæmi frá mánaðar- legu greiðslum okkar í mörg ár, en 67% frá ávöxtun fjársins. Vextirnir vega þyngst fyrstu ár; in en síðan dregur úr vægi þein-a. í séreignarsjóðum, þar sem innust- æðan er greidd út á 10 áram, nema vextirnir lægra hlutfalli af greiðsl- um.“ Við höfum því fyrir okkur að um 2/3 hluti lífeyris kemur frá ávöxtun fjársins á vegum vel rekinna lífeyr- issjóða og verða að teljast fjár- magnstekjur. Hér er miðað við til- tölulega lága ávöxtun, því ætti að greiða 10% fjármagnsskatt af þeim hluta, en ekki tæp 40% eins og er nú. Við í Félagi eldri borgara höf- um rætt þetta mál við marga ráð- herra og ekki fengið jákvæð svör en heldur ekki afsvar. Okkur er Réttlæti Um 2/3 hlutar lífeyris, segir Páll Gíslason, koma frá ávöxtun fjárins í vel reknum lífeyrissjóðum. ljóst að ýmisleg atriði era, sem þarf að athuga samkvæmt útreikningi á öllum lífeyri frá lífeyrissjóðum. Hér er ekki um þá svimandi upp- hæð að ræða eins og halda mætti fyrir ríkissjóð. En þetta er augljóst réttlætis- mál, því að auðvitað eigi allir að vera jafnir fyrir lögum, ekki síst við skattlagningu. Nú ætlar ríkisstjómin að leið- rétta rétt hjóna og sambýlisfólks hvað skattleysismörk snertir á 4 árum. Mér hefur því dottið í hug hvort ekki væri hægt að nota sömu aðferð til að leiðrétta álagningar- prósentu á lífeyri eftirlaunafólks þannig að að við greiddum rétti- lega eins og aðrir, tæplega 40% skatt af 1/3 greiðslunni, en 10% fjármagnsskatt af 2/3 hluta sem er ávöxtun inneignar okkar í lífeyris- sjóðum. Hér er réttlætismál, sem mætti leysa á sama hátt og skattlagningu hjóna - þ.e.a.s. gera 3 eða 4 ára áætlun, sem leiðrétti þann mismun sem er í dag. Ég held að þetta gæti verið lausn, sem báðir aðOar gætu sætt sig við. Höfundur er læknir. Páll Gíslason 1
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.