Morgunblaðið - 23.11.1999, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUÖÁGtM 23. NÓ\U3MBER 1999 55
MINNINGAR '
VERONIKA
JÓHANNESDÓTTIR
+ Veronika Jó-
hannesdóttir
fæddist í Búdapest
6. apríl 1940. Hún
lést á heimili sínu í
Mosfellssveit 2. nó-
vember síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Benke Janos
og Haloze Veronika
Janosné. Systir Ver-
oniku og hálfbróðir
lifa systur sína og
eru búsett í Ung-
verjalandi. Veron-
ika kom til íslands
árið 1956 sem
flóttamaður en festi fljótt rætur
hér.
Hinn 28. desem-
ber 1963 giftist
Veronika Axel Al-
bertssyni, f. 3.7.
1933. Börn Veron-
iku og Axels eru:
Aldís Anna, böm:
Karl Axel og Svein-
dís Björk; Albert,
börn: Halla Ýr,
Tinna Rut og Vera
Ósk. Hálfbróðir
þeirra er Agnar
Logi, kvæntur
Ágústu Hallsdóttur,
börn: Hallur Ólafur
og Gunnar Logi.
Útför Veroniku fór fram frá
Lágafellskirkju 12. nóvember.
Kær samferðakona er fallin frá.
Að vera við útför vinkonu sinnar
sem fellur frá svo skyndilega snert-
ir tilfínningar sem eru innra með
manni, upp kemur söknuður, minn-
ingar koma fram og hvetur það til
þess að minnast þeirrar látnu með
nokkrum rituðum orðum.
Það var falleg athöfn í Lágafells-
kirkju við útför Veroniku Jóhann-
esdóttur þann 12. nóvember síðast-
liðinn, haustveðrið skartaði sínu
fegursta á þessum fallega kirkjust-
að. Sóknarprestur okkar, séra Jón
Þorsteinsson, flutti vandaða útfar-
arræðu og rak hann eftirminnilega
uppvöxt Veroniku á erfiðum tímum
í Ungverjalandi um miðja öldina,
snerti það alla sem á hlýddu.
Þá voru leikin tónverk frá æsku-
stöðvum hennar, kirkjukór Lága-
fellssóknar flutti sín lög vel undir
stjórn Jónasar Þóris. Stjama okkar
og nágranni úr Mosfellsdalnum
söng einsöng og gerði það glæsi-
lega að vanda, Sveinn Birgisson,
næsti nági’anni fjölskyldunnar í
Lágholtinu, lék á trompet.
Að sjá svo stóran hóp vina og
vandamanna fylgja þeim látna
hinsta spölinn, hlýða á orð prests-
ins, hlusta á flutning listafólksins,
votta virðingu og þökk við gröfina,
koma svo saman við erfisdrykkju
eins og ein fjölskylda er fallegt og
vonandi styður fjölskylduna að
Lágholti 2 í sorg hennar.
Undirritaður sá Veroniku fyrst
þegar hún kom á hlaðið í Hlégarði á
aðfangadag 1956, tO dvalar yfir jól-
in ásamt löndum sínum frá Ung-
verjalandi sem flóttafólk. Þegar
maður lítur tO baka er þessi
kvöldstund táknræn og einkenni-
legt að í nokkurra metra fjarlægð
frá Hlégarði skyldi heimili Veron-
iku og fjölskyldu hennar verða
meðan hún lifði. Frá þessu fólki
sem þama kom til íslands er kom-
inn fjöldi mannvænlegra Islend-
inga. Eftir aðlögunartíma stundaði
Veronika ýmis störf og hússtjórn-
arnám og var hún afar góð húsmóð-
ir, eiginkona og uppalandi.
Undirritaður minnist þess enn
þegar Axel, eiginmaður Vera og
vinnufélagi minn í Vinnuvélum íyrr
á áram, tók upp nestisboxið sitt í
Blómastofa
Friðjtnns
Suðurlandsbraut 10,
108 Reykjavík, sími 553 1099.
Opið öll kvöld
til kl. 22 - einnig um helgar.
Skreytingar fyrir öll tilefni.
Gjafavörur.
matar- og kaffitímum hversu inni-
haldið var fallega saman sett, gert
af kunnáttu, snyrtimennsku og list-
fengi eins og seinna var umbúið á
heimOi þeirra í Lágholtinu. Þar
sem við Axel vorum vinnufélagar
var samgangur miOi heimila okkar
og með velvild vinnuveitenda okkar
í sandnáminu nutum við aðstöðunn-
ar að fá lánaðar vélar þegar byggð
vora hús fyrir fjölskyldurnar og
hjálpuðum við hvort öðru á margan
hátt. Þegar Axel og Vera voru flutt
í nýja húsið sást best hversu frábær
húsmóðir hún var, heimilið var
gegnum hreint og fjölskyldan
gladdist innilega við hvern áfanga
sem hægt var að taka fjárhagslega.
Þá var lóð hússins tO fyrirmyndar
og „að rækta garðinn sinn“ er mál-
tæki sem á þarna vel við, því bæði
var garðurinn fallegur, stflhreinn,
trjárækt og matjurtagarður tií
búsflags. Allur búskapur þeirra
hjóna bar raunar vott um mikla
ráðdeildarsemi og snyrtimennsku.
Það var ávallt notalegt að koma í
Lágholtið á Þorláksmessukvöld,
minnast komu Vera til landsins og
þiggja veitingar og gerðum við það
oft hjónin.
Þann tíma sem Vera og Axel
bjuggu í litla húsinu í Vinnuvélum
voru þau í meiri tengslum við Kjal-
nesinga og sóttu þá þær skemmt-
anir sem haldnar voru, s.s. þorra-
blót og fleira. Veru þótti mjög
gaman að dansa og var hún mjög
góður dansfélagi enda afar tónelsk
og naut hljómlistar mjög. Tónlist-
aráhugi Vera var mikfll og þarf
ekki að undrast með tilliti til þess
hvaðan hún var ættuð. En hér
íylgdist hún mjög vel með öllu sem
laut að tónlist og reyndar var hún
vel heima á öflum sviðum þjóðlífs-
ins enda mjög eftirtektarsöm og vel
gefin. Það var mér alltaf sönn án-
ægja þegar hún spurði um styrkt-
arfélagsmiðana sína að hljómleik-
um karlakórsins Stefnis og yljaði
það mér um hjartarætur að sjá
hana í salnum.
Seinni ár hafði Vera misst nokk-
uð sjón og háði það henni mjög og
hindraði hana í að fara um ein síns
liðs og að stunda vinnu. Það var
sérstakt hveru heym hennai’ var
góð og er mér minnisstætt hve
næm hún var þegar hún heyrði
hvaða rödd bauð góðan dag áður en
hún sá komumann við útidyr.
Sem starfskraftur meðan full
heilsa leyfði var Veronika afar sam-
viskusöm og dugleg. Það sagði mér
Unnur á Móum að betri starfsmann
og félaga væri ekki hægt að fá, en
Vera vann um árabil hjá sæmdar-
hjónunum Unni og Teiti á Móum
við frágang og pökkun á Móakjúkl-
ingum. Sem fjölskylduvinur hugsa
ég afar hlýtt til Vera og dái öll
hennar verk. Þar ber hæst hlutverk
húsmóðurinnar, eiginmanni sínum
bjó hún gott heimili og bömin sín ól
hún vel upp.
Það var fallegt veður og athöfn
þann 12. nóvember. Það var líka
fallegt veður og athöfn 1. aprfl síð-
astliðinn þegar fjölskyldur okkar
vora saman í Lágafellskirkju þegar
bamaböm okkar voru fermd sam-
an, ný kynslóð að vaxa úr grasi.
Unga stúlkan sem kom á hlaðið í
Hlégarði aðfangadag 1956 og hefur
gengið veginn fram til góðs og skfl-
ur eftir sig góð börn, barnabörn og
sjóð minninga.
Minningagreinin er skrifuð í 1.
persónu en enn frekar vora Hanna,
kona mín, og Veronika góðir vinir
og áttu margt sameiginlegt.
Vottum fjölskyldunni Lágholti 2
dýpstu samúð.
Jón Sverrir og Hanna,
Varmadal.
-\ Hjartkær sonur okkar, ■
KRISTINN DAVÍÐSSON,
lést sunnudaginn 21. nóvember. Fyrir hönd annarra aðstandenda, María Guðmundsdóttir, Davíð Erlendsson.
t
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför
PÁLSÁRNASONAR,
Setbergi,
Hornafirði.
Ari og Helgi Árnasynir
og aðrir aðstandendur.
Setjum upp
lýsingar á Jeiði
Fossvogskirhjugarði
Raflýsin^arjijónustan í
Fossvo^slíirlíjugarái
Sfmi: 869 1608 - 867 1896
Fax: 557 8485 • E*niail: aeg@vortex.is
t
Elsku eiginkona mín, dóttir, móðir og amma,
JÓSEFÍNA STELLA ÞORBJÖRNSDÓTTIR,
Ásholti 5,
Mosfellsbæ,
lést á krabbameinsdeild Landspítalans fimmtu-
daginn 18. nóvember.
Jarðsungið verður frá Bústaðakirkju föstudag-
inn 26. nóvember kl. 15.00.
Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hinnar látnu, er
bent á krabbameinsdeild Landspítalans.
Jónas Helgi Sveinsson,
Elín Sigurtryggvadóttir, Jón Hannesson,
Jón Hannes Kristjánsson, Sigrún Gísladóttir,
Sigurður Hólmar Kristjánsson, Anna Hulda Hjaltadóttir,
Jóhannes Ægir Kristjánsson,
Sigurbjörn Þór Einarsson,
Elín Guðmunda Einarsdóttir
og barnabörn.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
HULDA Þ. OTTESEN,
síðast til heimilis
á dvalarheimiii aldraðra,
Hlaðhömrum, Mosfellsbæ,
verður jarðsungin frá Digraneskirkju,
Kópavogi miðvikudaginn 24. nóvember
kl. 13.30.
Hrafnhildur Sigurðardóttir, Halldór Kristinsson,
Hildigunnur Sigurðardóttir, Jónas Jónsson,
Jónas Sigurðsson, Guðrún Skúladóttir,
Þráinn Sigurðsson, Hrönn Finnsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Okkar ástkæri,
KRISTJÁN KARL GUÐJÓNSSON
fyrrverandi flugstjóri,
Safamýri 89,
Reykjavík,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur föstudaginn
19. nóvember.
Jarðarförin auglýst síðar.
Ingibjörg Sigurðardóttir, Tinna Kristjánsdóttir,
Sólveig Hallgrímsdóttir,
Kolbrún Kolbeinsdóttir, Ásgeír Svan Herbertsson,
Sigurður Óli Kolbeinsson, Marta Sigurðardóttir,
Jóhanna Guðjónsdóttir,
Unnar Þór, Elísabet Metta, Sólveig og Ingibjörg.
t
Elskulegur eiginmaður minn og faðir okkar,
GUÐMUNDUR H. JÓNSSON
fyrrverandi forstjóri BYKO,
Efstaleiti 1,
Reykjavík,
lést á Landakotsspítala að morgni mánu-
dagsins 22. nóvember.
Útförin verður auglýst síðar.
Helga Henrýsdóttir,
Jón H. Guðmundsson,
Bjarnheiður K. Guðmundsdóttir,
Þórunn Guðmundsdóttir,
Björk Guðmundsdóttir,
Sjöfn Guðmundsdóttir.
t
Ástkær sonur okkar og bróðir,
HARALDUR BRAGI BÖÐVARSSON,
Reykjavíkurvegi 35,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum sunnudaginn
21. nóvember sl.
Gígja Haraldsdóttir,
Böðvar Bragason,
Ragnheiður Ólöf Böðvarsdóttir.