Morgunblaðið - 07.12.1999, Page 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Stekkjarstaur mætti í heimsókn í Sívertsenhús við góðar undirtektir barnanna, enda hinn
vænsti gaur þegar að var gáð.
Björn Pétursson segir börnunum sögu hússins, en við hlið hans er stytta af Bjarna Sívertsen
sem reisti og bjó í húsinu snemma í upphafi 19. aldar.
Morgunblaðið/Arni Sæberg
Steinunn Þoi-steinsdóttir útskýrir jólahald fyrri tíma fyrir börnunum í leikskólanum
Krakkakoti.
Kertaljós og klæðin rauð
Hafnarfjörður
JÓLAHALD fyrri alda er
nokkuð sem leikskólabörn
þekkja lítið til í dag, enda
hefur margt breyst frá því
að langalangafar og langa-
langömmur þeirra biðu
spennt eftir tilbreytingu
jólanna.
Starfsfólk Byggðasafns
Hafnarfjarðar býður þessa
dagana leikskólabörnum af
höfuðborgarsvæðinu að
koma í heimsókn í Sí-
vertsenhús og kynnast því
hvernig jólin voru fyrir
daga rafljósanna. Björn
Pétursson, forstöðumaður
safnsins, segir að tekið sé á
móti börnunum og þeim er
sagt frá Sívertsenhúsi, sem
er elsta íbúðarhús í Hafnar-
firði. Þá fá börnin nasaþef-
inn af því hvernig jólin
voru í gamla daga og
starfsfólk safnsins býr til
jólastemmningu í húsinu
með kertaljósum og tilheyr-
andi.
Þegar börnin hafa kynnst
húsinu kemur íslenskur
jólasveinn með látum í
heimsókn og leikur við þau
um tíma. Björn segir börnin
yfirleitt ekkert hrædd við
sveinka, þó að fyrir komi
stundum að einhverjir
hlaupi í fangið á fóstrunni
þegar jólasveinnin birtist.
Þegar hann er búinn að tala
aðeins við þau eru þau fljót
að jafna sig, enda er hann
svo séður að hafa á sér kan-
dís til að rétta börnunum.
I gær komu í Sí-
vertsenhús börn frá
Krakkakoti á Álftanesi og
þá kom einnig Stekkjar-
staur í heimsókn, sem að
eigin sögn var á flótta und-
an Grýlu og því var hann
kominn í bæinn allt of
snemma, því eins og allir
vita kemur hann sveinka
fyrstur 13 dögum fyrir jól.