Morgunblaðið - 07.12.1999, Page 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Xerox-umboðið á íslandi kynni
DocuTech stafræna prentvél
Odýrari út-
gáfa bókatitla
í litlu upplagi
„BÓK eftir pöntun“ er heiti sem
Xerox-umboðið á íslandi hefur gefíð
tækni sem Xerox-fyrirtækið hefur
þróað undir enska heitinu „book on
demand“. Með þessari tækni gefst
kostur á að gefa út bækur með hag-
kvæmum hætti í mun smærra upp-
lagi en prentun í prentsmiðju býður
uppá.
„íslendingar eru mesta bókaþjóð í
heimi og eru gefnir út hér fjölda-
margir titlar. Þó er mikið af þessu
prentað erlendis og það er fjöldinn
allur af titlum sem eidd fæst gefinn
út hér því markaðurinn fyrir þær
bækur er of lítill," segir Björgvin
Ragnarsson, sölustjóri Xerox-um-
boðsins á íslandi í samtali við Morg-
unblaðið.
Opnar möguleika fyrir
sérhæfðar bækur
„Hvað verður um ýmislegt sem er
verið að skrifa, til dæmis í skáld-
skap, eða er verið að þýða? Sá kostn-
aðargrunnur sem hingað til hefur
einkennt bókaútgáfu leiðir til þess
að ýmsar sérhæfðar bækur hafa ver-
ið síður gefnar út, eða alls ekki. Þessi
nýja stafræna prentvél frá Xerox er
önnur kynslóð þessara véla, og gerir
skáldum eða þeim sem vilja endurút-
gefa eldra efni kleift að gefa út bók
með hagkvæmum hætti í til dæmis
tuttugu eintökum, eða jafnvel bara
einu, hvort heldur sem er í kilju-
formi eða innbundið. Við höfum ekki
gert mikið í því að kynna þessa
tækni á meðan reynsla væri að kom-
ast á tæknina hjá þeim sem hafa
fjárfest í henni,“ segir Björgvin, en
DocuTech-prentvélin var kynnt í
síðustu viku af Xerox-umboðinu á
Islandi. Af því tilefni voru hér stadd-
ir tveir danskir tæknimenn frá Xer-
ox-umboðinu í Danmörku sem
kynntu notkun vélarinnar.
Lítil fjárbinding í lager
Að sögn Björgvins er Xerox
DocuTech 6135 í raun ristastór þurr-
bleksprentari, sem er afar hraðvirk-
ur og prentar í svarthvítu. Þó er
mögulegt að hafa litmyndir með í
bókum sem gefnar eru út í takmörk-
uðu upplagi, en litaprentun er að
sjálfsögðu dýrari.
„Xerox sá það fyrir um 15árum að
þörf myndi vera á markaðnum fyrir
útgáfu bóka í smáu upplagi. Fyrh--
tækið þróaði því þessa vél og situr
eitt að markaðnum. í dag er mjög
mikið af bókum, sem seljast í litlu
upplagi, til dæmis í bókaverslunum á
Netinu, prentaðar eftir hendinni
með hjálp þessarar stafrænu prent-
vélar. Fjárbinding í lagerhaldi og
þar með áhætta af of stórri prentlotu
er því engin að undanskildu því að
þú þarft að eiga bókina á geisladisk,“
segir Björgvin.
Hann segir að sex fyrirtæki á ís-
landi hafi nú fjárfest í stafrænni
prentvél frá Xerox, en þau eru Fjöl-
ritun Daníels Halldórssonar, Há-
skólafjölritun-Prentgarður,
Morgunblaðið/Kristinn
„Stafræna prentvélin gerir skáldum eða þeim sem vilja endurútgefa eldra
efni kleift að gefa út bók með hagkvæmum hætti í til dæmis tuttugu eintök-
um, eða jafnvel bara einu, “segir Björgvin Ragnarsson, sölustjóri Xerox
umboðsins á Islandi.
Prentsmiðjan Oddi, Offsetþjónust-
an, Samskipti og Skýrr.
Að sögn Björgvins er verð eitt-
hvað mismunandi hjá þessum fyrir-
tækjum, en nefnir að prentsmiðjan
Oddi hafi reiknað það út að prentun
hvers eintaks með þessum hætti sé
ódýrari en venjuleg prentun, þar
sem filmu- og plötugerð er dýr
kostnaðarliður í upphafi, þegar ætl-
unin sé að framleiða færri en 700
eintök af bók í kiljuformi.
Björgvin segir að ekki sé nauðsyn-
legt að eiga bók á tölvutæku fonni.
Með nútímatækni sé hægt að skanna
bók inn í tölvu með litlum tilkostn-
aði, og „endurútgefa“ hana svo. Því
til sönnunar voru gamlar útgáfur af
Lísu í Undralandi og bókinni Slóð
mánans eftir John Steinbeck, sem
höfundarréttur var útrunninn af,
„endurútgefnar" fyrir sýninguna.
„Það er mikið af gömlu efni sem
ýmsum þætti fengur að ef væri gefið
út að nýju, en það hefur hingað til
verið illmögulegt með hefðbundinni
prentun. Meðal upplag á hvern út-
gefinn bókartitil hér á landi er að-
eins um 1.500 eintök, og því hentar
þessi tækni íslenska markaðnum af-
ar vel,“ segir Björgvin Ragnarsson
að lokum.
IIILI
HÖNNUN / SMÍÐI / VIÐGERÐIR / ÞJÓNUSTA
= HÉÐINN =
Stórás 6 »210 Garðabæ
sími 569 2100 • fax 569 2101
#
✓
Mikil viðskipti með Islandsbanka
Yfír 4 milljarða
viðskipti á árinu
TÆPLEGA 120 milljóna króna við-
skipti voru með hlutabréf í íslan-
dsbanka í gær en tæplega 4,1 millj-
arða viðskipti hafa verið með bréf
bankans það sem af er árinu á Verð-
Fjármögnun hagkvæmniathugana
vegna verkefnaútflutnings
Morgunverðafundur með sérfræðingum NOPEF
9. desember, kl. 08:00-10:00 á Hótel Sögu, Skála, 2. hæð
Hlutverk Norræna verkefnaútflutningssjóðsins (NOPEF) er að styrkja alþjóðlega
samkeppnishæfni norrænna fyrirtækja. Sjóðurinn veitir stuðning til forathugana eða annarrar
forvinnu vegna samstarfs norrænna og erlendra fyrirtækja um verkefni utan Evrópu. Sjóðurinn
tekur árlega þátt í um 100 verkefnum víðs vegar um heiminn.
Dagskrá fundarins:
08:00
08:30
Mæting, morgunverður
Kynning á Nordic Finance Group
P O Dahllöf
09:15 Verkefnaútflutningur og alþjóðavæðing, stuðningur frá Nopef
Ali Celebi og Stephan Gröndahl
10:00 Fundarslit
Eftir fundinn er þátttakendum sem þess óska boðið að ræða við þrjá sérfræðinga NOPEF
um ýmsa þætti fjármögnunar og þátttöku sjóðsins í verkefnum.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku á morgunverðarfundinn auk einkafunda hjá
Útflutningsráði íslands í síma 511 4000. Fundurinn er opinn öllum og þátttaka er ókeypis.
^nopef
m
OTFLUTNINGSRAÐ islands
bréfaþingi íslands. Gengi íslan-
dsbanka hækkaði um 2,8% í gær og
var lokagengi bankans 5,46. Um síð-
ustu áramót var gengi bréfanna 3,85.
Alls námu hlutabréfaviðskipti á
VÞÍ 252 milljónum króna í gær og
hækkaði verð hlutabréfa almennt.
Urvalsvísitala aðallista hækkaði um
0,62% og er nú 1.467,24 sem er 33,5%
hækkun frá áramótum.
í gær bárust Verðbréfaþingi fjór-
ar tilkynningar um að innherji í
Fjárfestingarbanka atvinnulífsins
hafi keypt hlutabréf í félaginu. I einu
tilviki var um 50 milljónir að nafn-
verði sem keypt voru á genginu 2,80
og þrenn viðskipti upp á 18,5 milljón-
ir króna. Alls var söluverð bréfanna
295,4 milljónir króna.
Bréfin voru áður í eigu FBA og
eru nýir eigendur fjórir af starfs-
mönnum bankans. Þeir Bjarni Ár-
mannsson forstjóri FBA, Svanbjöm
Thoroddsen, framkvæmdastjóri
markaðsviðskipta, Tómas Kristjáns-
son framkvæmdastjóri skulda og
áhættustýringar, og Erlendur
Magnússon, framkvæmdastjóri fyr-
irtækjasviðs.
Þegar 26 kaupendur keyptu 51%
hlut ríkisins í FBA voru þessir aðilar
hluti af kaupendahópnum og var
samkomulag um að þeir myndu
kaupa hluta af bankanum sjálfum að
fengnu samþykki stjórnar bankans.
www.mb l.is
Gjaldeyr-
isforðinn
dróst sam-
an um 2,7
milljarða í
nóvember
GJALDEYRISFORÐI
Seðlabankans dróst saman um
2,7 milljarða króna í nóvem-
ber og nam í lok mánaðarins
31,4 milljörðum króna (jafn-
virði 433 milljóna bandaríkja-
dala á gengi í mánaðarlok.
Frá ársbyi'jun hafði forðinn
styrkst um 1,6 milljarða
króna. Tímabundnar erlendar
lánahreyfingar ríkissjóðs
leiddu til stækkunar forðans á
haustmánuðum en þær gengu
að fullu til baka í nóvember.
Gengi íslensku krónunnar,
mælt með vísitölu gengis-
skráningar, var því sem næst
óbreytt í mánuðinum. Erlend
skammtímalán Seðlabankans
hækkuðu um 2,5 milljarða
króna í nóvember. I lok mán-
aðarins námu erlend langtíma-
lán bankans 1,2 milljörðum
króna og höfðu lækkað um 3,9
milljarða króna frá ársbyrjun.
Heildareign Seðlabankans í
markaðsskráðum verðbréfum
nam 7,4 milljörðum króna í
nóvemberlok miðað við mark-
aðsverð og lækkaði um 0,9
milljarða króna í mánuðinum.
Kröfur Seðlabankans á inn-
lánsstofnanir jukust um 5,7
milljarða króna í nóvember og
námu 23,7 milljörðum ki-óna í
lok mánaðarins. Kröfur á aðr-
ar fjármálastofnanir
hækkuðu um 2,8 milijarða
króna í mánuðinum og voru
8,5 milljarðar króna í lok
hans.
Nettókröfur bankans á rík-
issjóð og ríkisstofnanir hækk-
uðu um 1,3 milljarða króna í
nóvember og voru þær neik-
væðar um 8,4 milljarða króna
í lok mánaðarins. Grunnfé
bankans jókst um 4,7 millj-
arða króna í mánuðinum og
nam 27,8 milljörðum króna í
lok hans.
Netverk
selur hug-
búnað í S-
Kdreu
ÍSLENSKA hugbúnaðar- og há-
tæknifyrirtækið Netverk hefur gert
sölusamning við eitt af stærstu
skipafyrirtækjum Suður-Kóreu,
Hanjin Shipping. í samningnum
felst að Netverk selur Hanjin
MarStar-hugbúnað sinn til nota í
öllum flutningaskipum fyrirtækis-
ins, en Hanjin rekur 44 slík skip.
Samningur þessa efnis var undir-
ritaður milli dreifingaraðila Net-
verks í Hong Kong, ShingDong Co.
Ltd. snemma í nóvember síðastliðn-
um. Öll skip Hanjin Shipping verða
komin með MarStar-hugbúnaðinn
fyrir áramótin 2000 og ShingDong
Co. mun annast þjónustu við Hanj-
in.
„I samstarfi við ShingDong Co. í
Hong Kong erum við í góðri aðstöðu
til að styrkja stöðu okkar á þessum
markaði og um leið veita betri þjón-
ustu til viðskiptavina okkar,“ segir
Ómar Guðmundsson, svæðisstjóri
Netverks í Asíu.
Netverk hefur ennfremur endur-
nýjað þjónustusamning sinn við
HMM (Hyundai Merchant Marine),
en það skipafélag rekur 85 flutn-
ingaskip. Heildarandvii'ði þessara
tveggja samninga er um tólf milljón-
ir króna.
:
I
1