Morgunblaðið - 07.12.1999, Page 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ÚRVERINU
Básafell vill selja skip og kvóta til að létta skuldastöðu
Vilja helst selja heima-
mönnum kvótann
HÓPUR vestfirskra hluthafa í Bása-
felli hf. í Isafjarðarbæ hefur ákveðið
að hefja viðræður við stjórnendur
fyrirtækisins um skipti á hlutabréf-
um sínum í stað aflaheimilda. Fram-
kvæmdastjóri og aðaleigandi Bása-
fells segist frekar munu selja
heimamönnum kvótann en öðrum
náist samkomulag um verð. Heima-
menn á Suðureyri hafa stofnað
Fiskvinnsluna Sögu sem yfirtekur
rekstur Básafells á staðnum.
Hópurinn hefur þegar fundað í
tvígang og segir Halldór Halldórs-
son, bæjarstjóri ísafjarðarbæjar, að
þar hafi menn ákveðið að vinna sam-
an að því að skipta á hlutabréfum og
verðmætum, í þessu tilfelli aflaheim-
ildum. Hópurinn stendur fyrir um
25-30% hlutafjár Básafells hf. Að
sögn Halldórs er hópurinn fjölmenn-
ur en uppistaða hans séu Vestfirð-
ingar. Meðal stærstu þlutahafa inn-
an hópsins eru ísafjarðarbær,
Lífeyrissjóður Vestfjarða og Verka-
lýðsfélagið Baldur. Halldór segir að
ef af skiptunum verði komi einnig
fjöldi einstaklinga að málinu. „Við
viljum hafa áhrif á að verðmætin
haldist innan svæðisins verði Bása-
felli skipt upp. Langtímamarkmiðið
með skiptunum er fyrst og fremst að
tryggja atvinnu á norðanverðum
Vestfjörðum. I því eru mestu verð-
mætin fólgin,“ segir Halldór.
Haraldi Líndal, lögmanni, hefur
verið falið að hefja viðræður við eig-
endur Básafells fyrir hönd hópsins.
Búist er við að þær geti hafist á allra
næstu dögum.
Guðmundur Rristjánsson, fram-
kvæmdastjóri og aðaleigandi Bása-
fells, segir enn ekki ákveðið hversu
mikill kvóti verði seldur en ljóst sé að
selja þurfi bæði kvóta og skip, enda
sé skuldastaða félagsins slæm. Hann
segist munu taka umleitan heima-
manna vel. „Við viljum heldur selja
heimamönnum þennan kvóta frekar
en einhverjum öðrum en það verður
vitanlega að nást samkomulag um
verð. Það væri að mínu mati mjög
gott ef hægt væri að halda þessum
heimildum áfram á Vestfjörðum,"
segir Guðmundur.
Ný fískvinnsla á Suðureyri
Fiskvinnslan Saga hóf vinnslu á
Suðureyri í gær en félagið hefur
keypt vélar og tæki Básafells á
staðnum, þorsaflahámarksbátinn
Hrönn IS og 242 tonna þorskaíla-
hámark. Stærstu hluthafar Sögu eru
Óðinn Gestsson og fjölskylda, Bása-
fell og Guðni Einarsson, útgerðar-
maður á Suðureyri. Óðinn Gestsson
verður framkvæmdastjóri félagsins.
Hann segir að einkum verði treyst á
hráefnisöflun á fiskmörkuðum, ás-
amt samningum við einstaka báta.
Hann segir að starfsemin verði óbr-
eytt frá því þegar fiskvinnslan til-
heyi’ði Básafelli, haldið verði áfram í
frystingu og engu starfsfólki verði
sagt upp störfum. „Við erum mjög
bjartsýnir þó að næstu mánuðir séu
þeir erfiðistu til sjósóknar fyrir
flesta báta á staðnum. Aftur á móti
eru aflabrögð á þessum árstíma ætíð
mjög góð og við treystum á að svo
verði einnig nú.“
Nýjar „Þingeyrar“
Eins og gi’eint hefur verið frá
hyggjast eigendur Fiskvinnslunar
Sögu sækjast eftir þeim byggða-
kvóta sem Suðureyri var ætlaður sl.
sumar en stjórn Isafjarðarbæjar
ráðstafaði til Þingeyrar. Stjórnarfor-
maður Byggðastofnunar hefur hins-
vegar útilokað að byggðakvótanum
verði ráðstafað upp á nýtt. Óðinn
segist undrast þessi orð stjórnarfor-
mannsins og segir þau einkennast af
ábyrgðarleysi. „Við gerum okkur
fulla grein fyrir því að úthlutuninni
verður ekki breytt úr því sem komið
er. Það hefur heldur aldrei hvarflað
að okkur að sækjast eftir þeim
byggðakvóta sem ráðstafað var til
Þingeyrar. Við viljum að okkur verði
úthlutað það sem okkur ber til við-
bótar því sem fór til Þingeyrar. Það
má alveg leysa málið þannig gagn-
vart Suðureyri og Flateyri. For-
dæmin eru fyrir hendi, því byggða-
kvóta var úthlutað til Þingeyrar og
Vesturbyggðar. Það verður að grípa
til aðgerða sem duga öðrum sveitar-
félögum sem lenda í svipaðri að-
stöðu, eins og málin hafa nú þróast á
Suðureyri og Flateyri. Nú eru þann-
ig komnar fram nýjar Þingevrar,"
segir Óðinn.
Gæðaverðlaun Coldwater Seafood UK voru afhent í nýju Þróunarsetri
UA. Lengst til vinstri á myndinni er Nigel Holt, sölustjóri Coldwater
Seafood UK, þá Helgi Anton Eiríksson, innkaupastjóri Coldwater Seaf-
ood UK og Caryn Kendall, frá verslunarkeðjunni Marks & Spencer.
Guðbrandur Sigurðsson, framkvæmdastjóri UA, heldur á verðlauna-
gripnum og bakvið hann eru starfsmenn UA.
UA fær gæðaverðlaun
Coldwater Seafood UK
ÚTGERÐARFÉLAG Akureyringa
fékk fyrir skömmu afhent gæðaverð-
laun Coldwater Seafood UK, dóttur-
félags Sölumiðstöðvar hraðfrysti-
húsanna (SH) í Bretlandi. Þetta er í
fyrsta skipti sem verðlaunin eru
veitt en þau eru ætluð framleiðanda
sem náð hefur framúrskarandi ár-
angri í vöruvöndun og áreiðanleika í
framleiðslu. Verðlaunagripurinn er
listaverkið „Straumur" eftir Jónas
Braga, glerlistamann.
Coldwater Seafood UK rekur
tvær fiskréttaverksmiðjur í Grimsby
þar sem framleiddar eru fullunnar
afurðir fyrir veitingahúsamarkað og
smásölukeðjur. „ÚA hefur verið
mikilvægur samstarfsaðili í
markaðsstarfi okkar á undanförnum
misserum og þegar tekin var ákvörð-
un um að efna til þessara verðlauna
var ÚA fremst í flokki margra fram-
úrskarandi framleiðenda. Framleið-
endur á breska markaðnum þurfa að
mæta mjög hörðum kröfum, bæði
neytenda og smásölukeðja, og það
hefur ÚA gert með sóma,“ segir
Helgi Anton Eiríksson, innkaupa-
stjóri Coldwater Seafood UK, sem
aflienti verðlaunin.Guðbrandur Sig-
urðsson, framkvæmdastjóri ÚA,
veitti verðlaunagripunum viðtöku og
sagði þetta mikla viðurkenningu fyr-
ir starfsfólk félagsins. „Við höfum
verið að leggja aukna áherslu á Bret-
landsmarkað og því sérlega ánægju-
legt að uppskera árangur erfiðisins
með þessum hætti.“
B 6 k i n u m L o u i s u Matthíasdóttur
KYNNINGARVERÐ
í DESEMBER
8.980 kr.
Komin í
búðir
240 blað'
síður í stóru
broti með 220
ljósmyndum,
þar af 125
litmyndum
af verkum
Louisu.
Allt við það sama
hjá FPI o g NEOS
ENGIR viðræðufundir milli Fishery
Products International, FPI, og
NEOS, sem er í eigu Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna og kanadísku fyr-
irtækjanna Bany Group og
Clearwater Fine Foods, hafa verið
ákveðnir en fulltrúar fyrirtækjanna
hittust um helgina.
Óskað var eftir áliti FPI á lögum í
Nýfundnalandi sem kveða á um 15%
hámarkseignaraðild einstaklinga
eða félaga í fyrirtækjum í fylkinu.
Vitnað var í yfirlýsingu stjórnar FPI
þar sem kom fram að 15% hámarks-
eignaraðild þjónaði hvorki hagsmun-
um fyrirtækisins né hluthöfum þess.
FPI hefði rætt við ríkisstjórn Nýf-
undnalands og Labrador um afnám
umræddrar 15% hindrunar og þar
hefði efnislega komið fram eftirfar-
andi: FPI viðurkennir að erfitt væri
fyrir ríkisstjórnina að óska eftir nið-
urfellingu 15% hámarkseignaraðild-
ar án sérstaks tilboðs. Ríkisstjómin
viðurkennir að legði FPI fram tilboð
sem þjónaði hagsmunum hluthafa
best, frá sjónarhóli FPI, sem þjónaði
hagsmunum Nýfundnalands og
Labrador best, frá sjónarhóli ríkis-
stjórnarinnar, og krefðist afnáms
15% reglunnar, myndi hún líta tilboð
FPI jákvæðum augum. Hins vegar
hvíldi sú skylda á FPI að sannfæra
hluthafa fyrirtækisins, starfsmenn
og bæjarfélög, þar sem starfsemi
þess er, um ágæti þess að afnema
15% regluna.
Eins og greint hefur verið frá
gerði NEOS tilboð í FPI og stendur
það til 30. desember en stjórn FPI
segir að þó hún vilji að lögum um
hámarkseignaraðild verði breytt
megi ekki skilja þá túlkun sem
stuðning við tilboð NEOS.
í jólapakkann
Snowbee er nýtt vörumerki á íslandi í veiðivörum og sport-
fatnaði. Snowbee vörurnar eru þekktar fyrir gæði, gott verð
og mikið úrval, t.d. vöðlur, vöðluskór, veiðivesti, flís- og
öndunarfatnaður, hjól, stangir og margt fleira.
Snowbee vörur fást í öllum helstu veiði- og
sportvöruverslunum landsins. i
Vöðlujakki
Neoprene hanskar Vöðluskór
Veiðivesti
Veiðimaðurinn
iesjsreJis mé ter
QwdöÆaí'váíttir